Morgunblaðið - 05.01.1973, Page 22

Morgunblaðið - 05.01.1973, Page 22
MbRGUNhLAÐIÐ, Í'ÖSIrtidAGUR fet’ íf’Áljtílák: tíftj' HOGNI GUÐNA- SON - MINNING Fædditr 10. október 1884. Ðáinn 27. desember 1972. I dag verður til moldar bor- inn að Stóranúpi Högni Guðna- son, áður bóndi í Laxárdal í Gnúpverjahreppi, en hann and- aðist á St. Jósefsspítala í Hafn- arfirði á þriðja i jólum eftir langvarandi veikindi, liðlega 88 ára að aldri. Högni var fæddur í Traðar- koti við Stokkseyri 10. O'któber 1884. Foreldrar hans voru hjón in Guðni Högnason og Björg Jónsdóttir, ættuð úr Hruna- mannahreppi. Var Högni yngst- ur fjögurra barna þeirra, en hin voru Guðjón, bóndi í Lax- árdal, Guðmundur, togaraskip- stjóri í Reykjavík og Sigriður, kona Jóns Guðmundssonar á Brúsastöðum og veitingamanns á Þingvöllum. Öll eru þau dáin. Vorið 1885 brugðu þau Guðni og Björg búi, og fluttist Högni þá 30 vikna gamall í fóstur að Kópsvatni í Hrunamannahreppi til Sigurðar Magnússonar og konu hans Kristrúnar Jónsdótt- ur. Lét Högni mjög vel af veru sinni þar, enda var það efna- heimili og þau hjón mannkosta fólk. Þar ólst Högni upp nokk- uð fram yfir fermingu, en fór síðan að sjá um sig sjálfur, eins og þá var títt. Nokkru síðar fluttist Högni til Reykjavíkur og stundaði þar verkamannavinnu um nökkur ár. Árið 1907 kvæntist Högni Ól- öfu Jónsdóttur, ættaðri úr Holt- um, reistu þau bú í Reykjavik og bjuggu þar í tvö ár, en ár- ið 1909 hófu þau búskap í Aust urhlíð í Gnúpverjahreppi og bjuggu þar í 10 ár. Vorið 1919 fluttust þau að Laxárdal, en þar hafði búið Guðjón, bróðir Högna, en Hann dó úr spönsku veikinni haustið 1918. Þau Högni og Ólöf eignuðust 8 börn, 4 dætur og 4 syni og komust öll upp. Vorið 1957 dó Ólöf eftir nærri hálfrar aldar ástríka sambúð þeirra hjóna. Notkkru síðar hætti Högni bú- skap, enda þá kominn á áttræð- isaldur og heilsuveill, en var þó heimilisfastur í Laxárdal til dauðadags, en sonur þeirra tók við jörðinni. Þetta eru í örstuttu máli hin ytri atvik í ævi Högna heiitins. Þetta er hin venjulega saga um dugmikla unga menn á önd- verðri þessari öld, sem byrja láí ið óstuddir með tvær hendur tómar, en vinnufúsar, en brjót- ast áfram með dugnaði, þraut- seigju og hagsýni til að sjá fyr- ir sér og sinum. — Og þetta tókst Högna með miklum mynd- arskap, þrátt fyrir það, að um langt árabil átti hann við van- heilsu að striða. En seigla hans var óbilandi, og hin ágæta kona t Móðir okkar, Elísa Bjarnadóttir frá Haga í Grímsnesi, andaðist 2. jan. sl. að Hrafn- istu. Jarðartförin auglýst síðar. Börn hinnar látnu. t Eiginmaður minn og faðir, JÓN ORMSSON, rafvirkjameistari, lézt í Borgarspitalanum 4. þessa mánaðar. Sigríður Jónsdóttir, Jón Aðalsteinn Jónsson. t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, SIGURÐUR INGIMAR ARNLJÓTSSON, Bergstaðarstræti 43 A, andaðist í Borgarsjúkrahúsinu að kvöldi hins 3. janúar. Jónína Filippusdóttir og bömin. t Faðir okkar, JÓN KRISTJANSSON. Suðurgötu 24, Siglufirði, andaðist að heimili sinu 3. þessa mánaðar. t Sonur okkar og bróðir, Skúli Helgason, læknir, amdaðist á heimili sánu að Umeá í Svíþjóð. Sigurlaug Jóna Jónsdóttir, Geirtaug Jónsdóttir, Kristinn Jónsson. Kara Briem Helgi Skúla.son Sigríður Helgadóttir Sigurður Helgason. t Eiginmaður minn, ÁRNI GUÐJÓNSSON, fyrrverandi bóndi, Kaupangi, Eyjafirði, til heimilis Mávahiíð 6, andaðist í Borgarsjúkrahúsinu 3. þ.m. Jarðarförin auglýst siðar. Bjamþóra Benediktsdóttir. t Elsku litla dóttir okkar, MARGRÉT LARA, Hjallabraut 1, Hafnarfirði, verður jarðsungin laugardaginn 6. jan. kl. 10.30 frá Fossvogs- kirkju. Þeim, sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspitala Hringsins. Sigríður Esther Hansdóttir, Jón Þorvaldur Walterson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttuhug við andfát og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GlSLA GÍSLASONAR, Hásteinsvegi 36, Vestmannaeyum. Sérstakar þakkir færum við Vinnslustöð Vestmannaeyja og vinnufélögum hins látna. Asdís Guðmundsdóttir, böm, tengdaböm og bamaböm. t Kginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og ammia, Ólöf Sigurðardóttir, Smyrlahrauni 6, verður jarðsungin frá Frí- kirkjunni í Hafnarfirði laug- ardaginn 6. janúar kl. 10.30 f. h. Blóm eru viinsamlega af- þökkuð, en bent er á láknar- stofnanir. Einar Guðmundsson Guðfinnur Einarsson Sigurður Einarsson Sigurbjörg Valdimarsdóttir Ólafur Sigurðsson Guðmar Sigurðsson Halldór Sigurðsson Sigrún Sigurðardóttir. t Þökkum inniiega auðsýinda samúð og vinarhug við and- lát og útför Kristjönu Þórðardóttur. Vandamenn. hans, Ólöf, var honum stoð og stytjta, enda voru þau hjónin samhent í öllum hlutum, og bömin dugmikil og myndarleg. Mikill myndarskapur var því í búskapnum í Laxárdal, bæði í ræfctun og húsabótum. Högni var maður létfur í lund og gamansamur í viðmóti, um talsprúður og lá vel orð til allra, enda vinsæll af sveitung- um sínum, sem og öllum, sem kynntust honum, ættrækinn mjög, og gestrisin voru þau hjón bæði með innilegum og lát lausum hætti, svo að gestum leið vel á heimili þeirra. Minnumst við hjónin þess enn með mikilli gleði, þegar við komium fyrst til þessa föðurbróður feonu minnar í Laxárdal fyrár tæpri hálfri öld, við þá ungt fólk, hve gott var þar að koma. Og enn er mér í fersku minni er Högni fylgdi okkur upp að Gullfossi og Geysi, og var það í fyrsta sinn, sem við komum á þær slóð ir. Þrátt fyrir hellirigningu var það hátiðleg stund, sem ekki g.eymist, enda minntumst við Högni þess, er ég kom til hans í síðasta. sinn á spítalann fáum döguim áður en hann dó. Hin síðustu ár var Högni oft veikur og var langdvölum á sjúkrahúsum, en hann bar þær þrautir með rólyndi og var allt- af glaður á að hitta. Högni var hamingjumaður, honum tókst lífsstarf sitt vel með dugnaði og þrautseigju, naut ástrikis góðrar, samhentr- ar og hjartahlýrrar eiginkonu, og umihyggju góðra bama, tengdabama og barnabarna aMt til síðustu stundar, og velvilja og vinsælda allra, skyldra og vandalausra, sem kynntust hon um. Hann lifði sín hinztu jól í friði, fékk hægt andlát og slokknaði út af eins og jólaljós, þegar það er útbrunnið. Friður veri með honum. Við hjónin þökkum honum vinsemd hans og hlýju og vott- um öll'um ástviinum hans samúð okkar. Einar Magnússon. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM ÉG sæki kirkju reglulega, en þegar ég heyri prestinn okkar tala uni frið kristins manns, þá veit ég, að ég á ekki þennan frið. Ég held, að ég sé einlægur. Hvernig stendur á þessu? HELGISTAÐIR eru venjulega kyrrlátir staðir, og þó geta þeix ekki veitt okkur innri frið. Jesús sagði: „Minn frið gef ég yður. Ekki gef ég eins og heimurinn gefur.“ Innri friður er ávöxtur þess, að Kristur er í hjörtum okkar. Hvorki meira né minna. Það getur jafnvel aukið á taugaspennu að sækja kirkju, ef við eigum ekki persónulegt samfélag við Krist. Sektarkennd okkar kann að aukast við að koma í návist hans með syndir, ósáttfýsi eða einhverja ávana, sem standa okkur fyrir þrifum. Auðvitað er þetta ástæðan til þess, að margur maðurinn sækir ekki kirkju: Þetta veldur honum óþægindum. En þér sækið kirkju af trúfesti, og er það vel. En hvers vegna gefið þér yður ekki Kristi á vald og þar með allt, sem yðar er, án allra skilyrða? Þá getur kirkjugangan veitt yð- ur samfélag við sjálfan Guð. Hún verður sem upp- spretta krafts og náðar. Að sækja kirkju án þess að þekkja Krist persónu- lega er eins og að hafa samneyti við persónu, sem okk- ur þykir ekki vænt um. Það er eins og Shakespeare skrifaði einu sinni, að orð hans flygju upp, hugsanir hans sætu niðri, en orð án hugsana næðu aldrei til himins. Tilbeiðsla er æðsta reynsla lífsins, þegar Kristur er raunverulegur og ekkert er á milli hans og okkar. t Þökkurn innilega auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og jarðarför, FINNBOGA PALMASONAR Rannveig Ótafsdóttir Stoinunn Amadóttir, og synir. bræður og mágkonur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.