Morgunblaðið - 23.01.1973, Side 21

Morgunblaðið - 23.01.1973, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MUÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1973 21 I>órðardóttir, - Minning Auður Howie Fædd 5. október 1942. Dáin 13. janúar 1973. ÞEGAR Auður Þórðardóttir er til grafar borin á úrsvölum þorra, hverfur hugurinn að sum- angleði bjartari sturnda á ævi hennar. Þegar nú er lokið löngu sjúkdóm.sistríði umigrar konu, lif- ir minningin um h:'m# dagiegu sigra, «n Mfsþrótt og fræða- gleði. Þegar Auður átti þritugs- atfonæli á sl. hausti, var auðsætt að tekið var að líða að ævilokum, en hún missti ekki þróttinn, bar- áttwviljann, ag allt viðmót henm- ar og viðhorf til önlaga sinna bar vott um stórbrotimm ag djúpsæ- an persónuleika. Meðfædd ag þjálfuð skarpskygigni hennar, dómgreind og hæfni til hiutlægs mats ag rýningar sttiæivðust ekki í þeirri eldskím að þurfa nú hin síðari árin að horfast í augiu við ísta eigin önlög, er ekki urðu um- flúin. Auður Þórðardóttir Howie var fædd 5. okt. 1942 í Reykjavík, dóttir hjónamna Þórðar Jasonar- sonar tæknifræðings ag bygig- inigameistara og k. h. Jóninu Þórðardóttur. Hún varð stúdent firá M.R. vorið 1962 og hélt þá til Edinbongar og hóf nám til M.A.- prófis hins æðra (M.A. Honaurs) í klassískum fræðum, grísku og latínu, og lauk hún því 1967. Hvarf hún þá heim og kenindi latinu hér við Háskólann í tvo vetur. Sumarið 1969 giftist hún James Gordon Howie, kennara í griskri tungu og bókmenntum við Ed nborgarháskóla, hinum merkasta fræðimanni, og stofn- uðu þau heimili í Edinborg. Hóf hún þá nám í kennsiufræðum í þvi skyni að helga sig grisku- kennslu í menntaskóla, em þeigar þar var komið sögu var sjúkdóm- ur sá, er hún þegar tók að kenna v>etur:mn 1967—68, kominn á það stig, að ekki varð lengur fram haildið á starfsbrautinni, og ©ekkst hún undi r margiar aðgerð- ir á sjúkrahúsi í Edimborg. En þess ber líka að minnast, að margar voru gleðistundirnar, enda voru þau hjón mjög sam- rýmd og með þeim mikið jafn- ræði. Hugur hennar, viljafesta ag kæriieiksþel bar hama uppi ásamt trúarþreki hennar, og var hún manni sínum ómetanleg stoð í fræðastaríi hams og lífi, og öll- um þeim til yndisaiuka er sam- vistum voru við hana. Sá er þetta ritar, á henni margt að þakka. Gordon sýndi henni ein- staka umihygigju, og er þau hurfiu himigað heim í síðasta sinn sl. haust, annaðist hann um konu Sirnia af stakri prýði og verður með sanni sagt, að hann hafi veitt henni hina fullkomn- ustu hjúkrun til hinzta dægurs. Einmig var samband Auðar og foreldra hennar með þeim eim- staka hætti, að hol'l hugvekja væri öll'Um foreldrum. Skal það ekki rakið hér. Auður sýndi snemma mii’kinn námsáhuga. Á menntaskóflaár- um sínum dvaldist hún þrívegis erlendis við málanám, og urðu ibuinigumál og þó e'mkum bók- menntir hennar æðsta hugðar- efni. Tengdust saman í hwga hennar viðfangsefni islenzkra fornbókmennta og klassískra fræða. Er hún hvarf til Edin- borgar til náms í grísku og lat- inu, settist hún á „skólabekk" mieð námsmönnum, sem höfðu lesið mikl'a grisku i menntaskóla, en Jiún byrjandi. Hefði þá þrek márgs námsmannsins bilað. En Auðuir sýndi þá þegar svo frá- bæra snerpu, sem var hemnar eigind, að brátt varð hún jafn- víg félögum sinum og gerði margt frábærlega veil á náms- brautinmi. Var það eitt, þótt ekki verði fLeira tíundað hér, mikið og einstætt námsafrek. Er hún hóf kennslu hér við Háskólann, gekk hún ekki heil til skógar, og þegar eftir fyrra kennsluárið gekkst hún undir sína fyrstu að- gerð og siðan eftirmeðferð er- lend s. Má því nærri geta, að hún hafi ekki getað beitt sér sem skyldi við það verk, sem var hennar stærsta hjartans mál, að stuðla að því, að latinu- mám hér á landi verði anmað og meira en málfræðinám eitt sam- an. Bókmenntir, lífsviðhorf bók- mennta og Ijóðræn túlfcun á veruleikanium voru þau verk- efni, sem huigur hennar beimd- ist að öðrum fremur. Taldi hún, að islenzk fræði þyrftu mjög á því að halda, að ástundun klass- iskra fræða griskra og latneskra efldist hérlendis, væri endurvak in, svo mjög sem íslenzkar form- bókmenntir eru eðlisskyldar evr- ópskum bókmemntaviðhorfum samtíðar þeirra. Auður Þórðardóttir var stór í lumd, skapföst og hélt einarðlega á máli sínu, ef henni fannst rétt vera. Hún hafði till að bera skarpa dómgreind á víisindaleg viðfangsefni og var rýnin og djúpsæ á manmleigt eðli. Vilja- festan tempraðist af fágun per- sónuleikams og ljúfsemi lundar- fiarsins. Kristin viðhorf voru henni hugstæð, og er margt minnilegt úr þeim samræðum, síðast rúmri viku áður en hún lézt. Saga grísfcra og latneskra fræða á íslamdi er löng. En hún er slitrótt. Nú í sednni tið verður vart aukims áhuga ungs fræða- fólks á þeim greinum. Það er því mikill mannskaði að Auði Þórðardóttur. Hún var ein fá- menns hóps þeirra í samtíð vorri, er gert hafa þessi fræði að höf- uðviðfamgsefni i háskólanámi og starfað hafa að því að endur- vekja áhriif þeirra á íslemzkt menningarlif. Hernmi varð ek'ki auðið annars en að taka aðeins fyrstu vængjatökin á þeirri braut. En þó má ætla, að starf hennar hafi ekki verið unnið fyrir gýg. Líf hemnar var þeim, er henni kynntust, sterk ám'.nn- ing í þessu efni; viti, er lýsir fram á veginn. Þess má vænta, að aðrir verði til þess að halda þann veg áfram. Þórir Kr. Þórðarson. Á SÍÐASTLIÐNU vori þegar við hittumst til að fagma tíu ára stúdentsafimæli, söfcmuðum við sérstaklega eiminar bekfcjarsyst- ur okkar Auðar Þórðardóttur sem við vissum að átti þá þegar við mi'kil veikindi að stríða. Nú þegar við hittumst á ný er það eimmitt til að minnast henmar sem er horfin frá okbur svo ótiknabært. Hugurinm reikar aftur til skólaáranma og ýmsar minmimg- ar leita á. Við minmumst þess- arar hæglátu og hlýju stúlku, sem jafnan sfcaraði fram úr hvað námishæfileilka snerti. Auð- ur var fremiur hlédræg og naut sín bezt í fámemnum hópi. En alltaf var gott að leita til henn- ar, þegar við vorum síðbúnar með heimavinnuma. Átti hún einkar gott með að útskýra flókna hluti, sem hún var lömgu búin að velta fyrir sér og skilja, — hæfileiki góðs kenmara. Kennsla var lífca það starf sem ihugur henmar stóð til. Það má með sanini segja að hún hafi verið stolt bekkjarins þegar hún að loknu sttúdemts- prófi tók á móti verðlaunum í latínu, þýzku og frönsfcu og hélt við það tækifæri ræðu á latínu. Hér skildu leiðir. Auður fór til náims til Edinborgar og lauk þar M.A. prófi í latínu og gríslku. Hún kenndi síðan tvo vetur við Háskóla fslands, en fluttist þá til Skotlands og giftist þarlendum manni James Gordon Howie. Það er sárt til þess að hugsa, að ung kona, sem svo vel hefur búið sig umdir lífið og framtíð- in virðist blasa við, skuli svo óvægilega hrifin burt. Við eig- wm engin svör og enigin orð til huggunar, en reynum að tjá hug okkar með orðum Matthiasar. Þú, sem að hér harrnar það ljós, sem var tekið frá þér trúðu því kærleikans kraftur kveikir það aftur. Við vottum ástvinum Auðar oklkar innilegustu samúð. Bekkjarsystur úr M.R. „Eitt eilifðar smáblóm með titrandi tár sem tilbiður Guð sinn og deyr.“ Sumar fegurstu jurtimar vaxa á heiðinmi inn milli fjalla. Þau stækka umhverfið með hrein- leifca sinum og glæsilegustu blómum og maður gleymir aldrei návist með slíkum blómum. En sumarið er ekki langt og á þeim stutta tíma hfia þau lifi sinu, lifa eðli sitit unz yfir þyrmir. Eiinn þráður spunninn í óendanleifca Guðs. Auður Þórðardóttir var burtu köliuð á sumri lífs stns. Glæsi- leg ung kona, gáfuð, víðlesin, traust og stórhuga. Burtu köll- uð og þá er erfitt að spyrja Guð. Þar sem maður mætti Auði brást það ekki að það var bros í augum hennar og hún bar mikla reisn og virðuleika af svo ungri konu að vera. f hversdagslifiniu er það gott fólfc sem maður þakkar mest fyrir og það veitir gleði að hitta það. Ég minnist kvölds i haust leið. Aukur og eiginmaður hennar, Gordon, komu akandi i hlað i bíl með föður hennar. Þau voru að korna úr Þjóðleik- húsinu þar sem Skozka óperan hafði sýnt um kvöldið. Ung glæsileg kona sté út úr bílnum, tigulegt fas, gleði i augum, en þó vissi hún hvert stefndi. Hvað getur verið sárara? En persónu- leiki hennar var óvenju sterkur og sá styrkleiki hafði alltaf fylgt henni. Auður kynintisit eiginmanni simum, Gordon Howie, í Skot- landi fyrir nokkrum árum. Hún var þá við framhalf\nám þar í háskóla eftir glæsilegan náms- árangur hér heiima með MA próf í klassískum fræðum, grisku og latiímu. Hér heima kenndi hún við Háskóla íslands í tvo vetur, en hélt síðan aftur utan til frekara náms. Gordon Howie er kennari í grískri tungu og bókmenntum við Edinborgarháskóia þar sem hann er mikils metinn. Þau giftust 1969 og árið 1970 fluttu þau i eigið hús ytra. Þau eignuðust góða nágranna, enda átti Auður mjög auðvelt með að tala við fólk. Þau hjón áttu miklar og stórar framtíðarvon- ir, enda ákaflega hænd hvort að öðru. Manni sínum var hún stoð í starfi hans, hafði gaman af að ræða málin af sanngimi og hreinskilni og starfsfélagar hans voru boðndr og búnir á heimili þeirra. Húsmóðir var hún frábær og henni var lagið að fá mikið út úr hverjum degi. Hún lais góðar bækur og unni tónlist og það þurfti ekki stóra hluti til að vekja gleði henmar. Þegar þau kynnfiust var hann kennari en hún nerni. Þó vildi hún aldrei þiggja hjálp frá hon- um í náminu. Hún vildi spreyta sig sjálf og vanda sínum var hún ekki vön að flika. Skömmu efitir að þau giftust komu veikindi hennar i ljós. Voru þar ýmist skin eða skúrir, en þegar ljóst var fyrir fáuim mánuðum að hverju dró fóru þáu heim til Islands og Gordon fékk frí frá vinnu sinni. Á heimili foreldra sinna, sæmdarhjón£inna Jóniinu Þórð- ardóttiur og Þórðcir Jasonarson- ar, tæknifræðings og bygginga- meisfiara, var þeirra vin síðustu mánuðina, enda samband Auðar við foreldra sina og fjölskyldu með eindæmúm. Ef hægt er að hugsa sér samlyndi, þá var það til sfiaðar og Auður hafði mikla ánægju af að fylgjast með bróð- urdóttur sinni, Rakel, eins barn- elsfc og hún var. Það var Auði mikiia styrkur að dvelja hjá fjölskyldu sinni síðustu mánuðina, en að venju reyndi hún að gera gott úr hlut- unum. Þrátfi fyrir einlæga þrá til lifsins, lét hún aldrei á neinu bera, hún fór í gönguferðir á meðan hún gat, faðir hennar fór oft með hana í ökuferðir, hún las mikið, ræddi stjómmál af áhuga og Mfsvonin brást aldrei. The Daily Telegraph var uppáhaldsbliað hennar ytra og Morgunblaðið hér heima. Vinir og vandamenn voru Auði mikil hjálp i beirri ógn er að stefndi, en hún feðraðist ekki. Hún bar reisn sína unz yfir þyrmdi og helstríðinu var lokið. Hún gengur ekki framar í þessu lilfi, bros augna henmar er minn- ing. Hún er eiinis og fegurstu blóm sumarsins, þau stækka um hverfið og sú stærð helzt i minningunni þó að þau séu horfin af vettvangi. Þá er auð- veldara að spyrja Guð. Megi Guð almáttugur veita henni ró, en hinum likn, sem lifa. — á- ,j. Hvi er nú visnuð vangarós og viðkvæm stirðnuð mund ? Hvi er nú brostið brúnaljós, er blikaði skært um stund? Hvi er nú sofinn svipur hreinn og saklaust hjarta kalt? Ég veit það ei! — þú veizt það einn, sem veizt í heimi allt. (K. J.) Hún Auður er dáin, — sú fregn kom mér þó ekfci á óvart. Ég hafði fylgzt með striði henn ar úr fjarlægð, fylgzt með hetjulegri baráttu hennar við hinn skæða sjúkdóm. Kunnings- skapur okkar var aldrei náinn en við fylgdumst alltaf hvor með annarri, allt frá þvi við fyrst kynntumst gegnum Dúddu frænku hennar, þá 8 og 9 ára gamlar. „Hún Auður frænka á Háteigsveginum“ eins og hún var alltaf kölluð í Tungu og í Hátúninu, það var einhver aðdá un og ljómi yfir nafninu, og ég man að ég var ósjálfrátt spennt að sjá þessa Auði frænku, það hlaut að vera .sérstök manneskja sem talað var wm með slíkum hreim. Og það skipti einu hvar fundum okkar bar saman, þá og síðar í lífinu, hvort heldur var í sveitasælunni á Höfða, eða á göngum Menntaskólans, ætíð gat ég sannprófað að sú aðdá- un var á góðum rökum reist. Þar sem Auður fór, fór dugmik il og heilsteypt stúlka gædd flestu því bezta, sem unga konu má prýða. Er Menntaskólaárun- um lauk og létt var úr öruggri höfn foreldrahúsanna, tók við háskólanám í framandi landi. Við gerðumst báðar farfuglar og ósjaldan hittumst við og glödd- umst saman á leið heim á jól- um, eða á heimleið á vorin, og ef til vill urðu okkar tengsl sterkari fyrir það að við gift- umst báðar yfir hafið, en vorum þó stöðugt á förum „heim“ og „heim“. En nú hefur hún hald- ið í förina miklu, sem við öll munum leggja í að lokum. Eftir stendur hjartkær eiginmaður hennar, sem elskaði og studdi hana hvert spor að leiðarlokum, foreldrar, bróðir, mágkona og frænka, stór og lítil, sem öll eiga nú um sárt að binda. Orð ná skammt á slíkri stundu, en megi góður guð gefa þeim styrk og traust. Og minninigin um góða stúlku, sem ætíð var þeirra sólargeisli mun ylja þeim um ókomna framtíð. Svo gengur allt að guðs vors ráði, gleðin og sorgin skiptast á. Þótt vinur hnigi lik að láði og logi tár á hrelldri brá, þá hwggar eitt, sem aldrei brást: Vér aftur síðar munum sjást. (Kristján Jónsson) Blessuð sé minning þin. Guðfinna Rjignarsdótir. Og þvi varð allt svo hljótt við helfregn þína, sem hefði klökkur gigjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta harmi losfiið, sem hugsar til þín alla daga Elsku Auður mín, hve bágt er að trúa því að þú sért horfin sjónum okkar, að göngu þinni sé lokið, við ástvinir þínir stönd um eftir i köldu tóminu og spyrj um hvers vegna? Hvers vegna varst þú hrifin frá okkur, svo ung og æsku- glöð, svo dugmikil og góðum gáf uim gædd. Við fáum víst seint skilið þá almættishönd sem slík högg greiðir. Bezta frænka min, hve margs er ekki að minnast frá okkar sameiginlegu stundum, allt frá því að við litlar hnát- ur lékum okkur saman og fram á þína hinztu daga, er við rædd- um um hinar mörgu hliðar mannlegs lífs, og þú ræddir afi slíku raunsæi og innri styrk að ég fór ætíð sterkari af fiundi þínum. Og slik var einmitt ævi þín, þ' varst hinn eilifi miðlari og ljósgeisli þíns umhverfis, gædd svo ríkri lífslöngun og bjart- sýni, enda farnaðist þér vel og gæfusamlega á þinnd svo stuttu ævi. Námið var þér nautn og leikur einn, enda laukst þú stúdentsprófi með glæsilegum vitnisburði og varstu þar jafn slyng í öllum greinum. Ekki urðu heldur þröskuldar á vegi þinum i þínu háskólanámi i Ed- inborg, sem þú laukst með mestu sæmd. Hvarvetna gazt þú þér hið bezta vitsorð og með þinni Ijúfu og hægu framkomu vannst þú hug allra sem kynntust þér, og veit ég að þar hefur ísland átt fulltrúa, sem bar landi sínu og þjóð fagurt vitni. En ekki sóttir þú aðeins námið til Skot- lands, þar kynntist þú einnig eiginmanni þínum Gordon, og veit ég að allir eru mér sam- mála um að það var þitt gæfu- ríkasta spor. Þótt ljár sláttumannsins hefði þegar markað þig oddi sínum, gekkst þú óhrædd áfram, og þið Gordon stofnuðuð ykkar in dæla heimili i Edinborg, heim- ilið ykkar, sem var þér svo hjartfólgið og prýtt þinni högu, nærfærnu og smekklegu hönd. En óveðursskýið við sjón- deildarhringinn nálgaðist, sólin skammtaði geisla sina. Þú gekkst undir miklar og erf iðar aðgerðir, og hver slík að- gerð kveikti í brjóstum okkar veika von um að Mfi þínu yrði bjargað. Þú kunnir glögg skil á sjúkdónmum og allri framvindu hans og ræddir áhrif og mögu- leika aðgerðanna af slíku raun- sæi og rósemi að emginn var þar af ósnortinn. Og hverja stundu stóð hann við hlið þér þinn elskulegi eigin- maður, og gaf þér sinn styrk. En enginn má sköpum renna, mannlegur máttur náði ekki að bjarga þínu unga lífi. Þú kvadd ir þennan heim hinn 13. janúar s.l. i faðmi þinna elskulegu ást- Framh. á bls. 25

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.