Morgunblaðið - 23.01.1973, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MUÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1973
21
I>órðardóttir,
- Minning
Auður
Howie
Fædd 5. október 1942.
Dáin 13. janúar 1973.
ÞEGAR Auður Þórðardóttir er
til grafar borin á úrsvölum
þorra, hverfur hugurinn að sum-
angleði bjartari sturnda á ævi
hennar. Þegar nú er lokið löngu
sjúkdóm.sistríði umigrar konu, lif-
ir minningin um h:'m# dagiegu
sigra, «n Mfsþrótt og fræða-
gleði. Þegar Auður átti þritugs-
atfonæli á sl. hausti, var auðsætt
að tekið var að líða að ævilokum,
en hún missti ekki þróttinn, bar-
áttwviljann, ag allt viðmót henm-
ar og viðhorf til önlaga sinna bar
vott um stórbrotimm ag djúpsæ-
an persónuleika. Meðfædd ag
þjálfuð skarpskygigni hennar,
dómgreind og hæfni til hiutlægs
mats ag rýningar sttiæivðust ekki
í þeirri eldskím að þurfa nú hin
síðari árin að horfast í augiu við
ísta eigin önlög, er ekki urðu um-
flúin.
Auður Þórðardóttir Howie var
fædd 5. okt. 1942 í Reykjavík,
dóttir hjónamna Þórðar Jasonar-
sonar tæknifræðings ag bygig-
inigameistara og k. h. Jóninu
Þórðardóttur. Hún varð stúdent
firá M.R. vorið 1962 og hélt þá til
Edinbongar og hóf nám til M.A.-
prófis hins æðra (M.A. Honaurs)
í klassískum fræðum, grísku og
latínu, og lauk hún því 1967.
Hvarf hún þá heim og kenindi
latinu hér við Háskólann í tvo
vetur. Sumarið 1969 giftist hún
James Gordon Howie, kennara
í griskri tungu og bókmenntum
við Ed nborgarháskóla, hinum
merkasta fræðimanni, og stofn-
uðu þau heimili í Edinborg. Hóf
hún þá nám í kennsiufræðum í
þvi skyni að helga sig grisku-
kennslu í menntaskóla, em þeigar
þar var komið sögu var sjúkdóm-
ur sá, er hún þegar tók að kenna
v>etur:mn 1967—68, kominn á það
stig, að ekki varð lengur fram
haildið á starfsbrautinni, og
©ekkst hún undi r margiar aðgerð-
ir á sjúkrahúsi í Edimborg. En
þess ber líka að minnast, að
margar voru gleðistundirnar,
enda voru þau hjón mjög sam-
rýmd og með þeim mikið jafn-
ræði. Hugur hennar, viljafesta
ag kæriieiksþel bar hama uppi
ásamt trúarþreki hennar, og var
hún manni sínum ómetanleg stoð
í fræðastaríi hams og lífi, og öll-
um þeim til yndisaiuka er sam-
vistum voru við hana. Sá er
þetta ritar, á henni margt að
þakka. Gordon sýndi henni ein-
staka umihygigju, og er þau
hurfiu himigað heim í síðasta sinn
sl. haust, annaðist hann um
konu Sirnia af stakri prýði og
verður með sanni sagt, að hann
hafi veitt henni hina fullkomn-
ustu hjúkrun til hinzta dægurs.
Einmig var samband Auðar og
foreldra hennar með þeim eim-
staka hætti, að hol'l hugvekja
væri öll'Um foreldrum. Skal það
ekki rakið hér.
Auður sýndi snemma mii’kinn
námsáhuga. Á menntaskóflaár-
um sínum dvaldist hún þrívegis
erlendis við málanám, og urðu
ibuinigumál og þó e'mkum bók-
menntir hennar æðsta hugðar-
efni. Tengdust saman í hwga
hennar viðfangsefni islenzkra
fornbókmennta og klassískra
fræða. Er hún hvarf til Edin-
borgar til náms í grísku og lat-
inu, settist hún á „skólabekk"
mieð námsmönnum, sem höfðu
lesið mikl'a grisku i menntaskóla,
en Jiún byrjandi. Hefði þá þrek
márgs námsmannsins bilað. En
Auðuir sýndi þá þegar svo frá-
bæra snerpu, sem var hemnar
eigind, að brátt varð hún jafn-
víg félögum sinum og gerði
margt frábærlega veil á náms-
brautinmi. Var það eitt, þótt ekki
verði fLeira tíundað hér, mikið
og einstætt námsafrek. Er hún
hóf kennslu hér við Háskólann,
gekk hún ekki heil til skógar, og
þegar eftir fyrra kennsluárið
gekkst hún undir sína fyrstu að-
gerð og siðan eftirmeðferð er-
lend s. Má því nærri geta, að
hún hafi ekki getað beitt sér
sem skyldi við það verk, sem
var hennar stærsta hjartans
mál, að stuðla að því, að latinu-
mám hér á landi verði anmað og
meira en málfræðinám eitt sam-
an. Bókmenntir, lífsviðhorf bók-
mennta og Ijóðræn túlfcun á
veruleikanium voru þau verk-
efni, sem huigur hennar beimd-
ist að öðrum fremur. Taldi hún,
að islenzk fræði þyrftu mjög á
því að halda, að ástundun klass-
iskra fræða griskra og latneskra
efldist hérlendis, væri endurvak
in, svo mjög sem íslenzkar form-
bókmenntir eru eðlisskyldar evr-
ópskum bókmemntaviðhorfum
samtíðar þeirra.
Auður Þórðardóttir var stór í
lumd, skapföst og hélt einarðlega
á máli sínu, ef henni fannst rétt
vera. Hún hafði till að bera
skarpa dómgreind á víisindaleg
viðfangsefni og var rýnin og
djúpsæ á manmleigt eðli. Vilja-
festan tempraðist af fágun per-
sónuleikams og ljúfsemi lundar-
fiarsins. Kristin viðhorf voru
henni hugstæð, og er margt
minnilegt úr þeim samræðum,
síðast rúmri viku áður en hún
lézt.
Saga grísfcra og latneskra
fræða á íslamdi er löng. En hún
er slitrótt. Nú í sednni tið verður
vart aukims áhuga ungs fræða-
fólks á þeim greinum. Það er
því mikill mannskaði að Auði
Þórðardóttur. Hún var ein fá-
menns hóps þeirra í samtíð vorri,
er gert hafa þessi fræði að höf-
uðviðfamgsefni i háskólanámi og
starfað hafa að því að endur-
vekja áhriif þeirra á íslemzkt
menningarlif. Hernmi varð ek'ki
auðið annars en að taka aðeins
fyrstu vængjatökin á þeirri
braut. En þó má ætla, að starf
hennar hafi ekki verið unnið
fyrir gýg. Líf hemnar var þeim,
er henni kynntust, sterk ám'.nn-
ing í þessu efni; viti, er lýsir
fram á veginn. Þess má vænta,
að aðrir verði til þess að halda
þann veg áfram.
Þórir Kr. Þórðarson.
Á SÍÐASTLIÐNU vori þegar
við hittumst til að fagma tíu ára
stúdentsafimæli, söfcmuðum við
sérstaklega eiminar bekfcjarsyst-
ur okkar Auðar Þórðardóttur
sem við vissum að átti þá þegar
við mi'kil veikindi að stríða.
Nú þegar við hittumst á ný
er það eimmitt til að minnast
henmar sem er horfin frá okbur
svo ótiknabært.
Hugurinm reikar aftur til
skólaáranma og ýmsar minmimg-
ar leita á. Við minmumst þess-
arar hæglátu og hlýju stúlku,
sem jafnan sfcaraði fram úr
hvað námishæfileilka snerti. Auð-
ur var fremiur hlédræg og naut
sín bezt í fámemnum hópi. En
alltaf var gott að leita til henn-
ar, þegar við vorum síðbúnar
með heimavinnuma. Átti hún
einkar gott með að útskýra
flókna hluti, sem hún var lömgu
búin að velta fyrir sér og skilja,
— hæfileiki góðs kenmara.
Kennsla var lífca það starf sem
ihugur henmar stóð til.
Það má með sanini segja að
hún hafi verið stolt bekkjarins
þegar hún að loknu sttúdemts-
prófi tók á móti verðlaunum í
latínu, þýzku og frönsfcu og
hélt við það tækifæri ræðu á
latínu.
Hér skildu leiðir. Auður fór
til náims til Edinborgar og lauk
þar M.A. prófi í latínu og
gríslku. Hún kenndi síðan tvo
vetur við Háskóla fslands, en
fluttist þá til Skotlands og
giftist þarlendum manni James
Gordon Howie.
Það er sárt til þess að hugsa,
að ung kona, sem svo vel hefur
búið sig umdir lífið og framtíð-
in virðist blasa við, skuli svo
óvægilega hrifin burt. Við eig-
wm engin svör og enigin orð til
huggunar, en reynum að tjá hug
okkar með orðum Matthiasar.
Þú, sem að hér
harrnar það ljós, sem var
tekið frá þér
trúðu því kærleikans kraftur
kveikir það aftur.
Við vottum ástvinum Auðar
oklkar innilegustu samúð.
Bekkjarsystur úr M.R.
„Eitt eilifðar smáblóm með
titrandi tár
sem tilbiður Guð sinn og deyr.“
Sumar fegurstu jurtimar vaxa
á heiðinmi inn milli fjalla. Þau
stækka umhverfið með hrein-
leifca sinum og glæsilegustu
blómum og maður gleymir aldrei
návist með slíkum blómum. En
sumarið er ekki langt og á þeim
stutta tíma hfia þau lifi sinu, lifa
eðli sitit unz yfir þyrmir. Eiinn
þráður spunninn í óendanleifca
Guðs.
Auður Þórðardóttir var burtu
köliuð á sumri lífs stns. Glæsi-
leg ung kona, gáfuð, víðlesin,
traust og stórhuga. Burtu köll-
uð og þá er erfitt að spyrja
Guð.
Þar sem maður mætti Auði
brást það ekki að það var bros
í augum hennar og hún bar
mikla reisn og virðuleika af svo
ungri konu að vera.
f hversdagslifiniu er það gott
fólfc sem maður þakkar mest
fyrir og það veitir gleði að hitta
það. Ég minnist kvölds i haust
leið. Aukur og eiginmaður
hennar, Gordon, komu akandi i
hlað i bíl með föður hennar.
Þau voru að korna úr Þjóðleik-
húsinu þar sem Skozka óperan
hafði sýnt um kvöldið. Ung
glæsileg kona sté út úr bílnum,
tigulegt fas, gleði i augum, en
þó vissi hún hvert stefndi. Hvað
getur verið sárara? En persónu-
leiki hennar var óvenju sterkur
og sá styrkleiki hafði alltaf
fylgt henni.
Auður kynintisit eiginmanni
simum, Gordon Howie, í Skot-
landi fyrir nokkrum árum. Hún
var þá við framhalf\nám þar í
háskóla eftir glæsilegan náms-
árangur hér heiima með MA
próf í klassískum fræðum,
grisku og latiímu. Hér heima
kenndi hún við Háskóla íslands
í tvo vetur, en hélt síðan aftur
utan til frekara náms.
Gordon Howie er kennari í
grískri tungu og bókmenntum
við Edinborgarháskóia þar sem
hann er mikils metinn.
Þau giftust 1969 og árið 1970
fluttu þau i eigið hús ytra. Þau
eignuðust góða nágranna, enda
átti Auður mjög auðvelt með að
tala við fólk. Þau hjón áttu
miklar og stórar framtíðarvon-
ir, enda ákaflega hænd hvort
að öðru. Manni sínum var hún
stoð í starfi hans, hafði gaman
af að ræða málin af sanngimi
og hreinskilni og starfsfélagar
hans voru boðndr og búnir á
heimili þeirra. Húsmóðir var
hún frábær og henni var lagið
að fá mikið út úr hverjum degi.
Hún lais góðar bækur og unni
tónlist og það þurfti ekki stóra
hluti til að vekja gleði henmar.
Þegar þau kynnfiust var hann
kennari en hún nerni. Þó vildi
hún aldrei þiggja hjálp frá hon-
um í náminu. Hún vildi spreyta
sig sjálf og vanda sínum var
hún ekki vön að flika.
Skömmu efitir að þau
giftust komu veikindi hennar i
ljós. Voru þar ýmist skin eða
skúrir, en þegar ljóst var fyrir
fáuim mánuðum að hverju dró
fóru þáu heim til Islands og
Gordon fékk frí frá vinnu sinni.
Á heimili foreldra sinna,
sæmdarhjón£inna Jóniinu Þórð-
ardóttiur og Þórðcir Jasonarson-
ar, tæknifræðings og bygginga-
meisfiara, var þeirra vin síðustu
mánuðina, enda samband Auðar
við foreldra sina og fjölskyldu
með eindæmúm. Ef hægt er að
hugsa sér samlyndi, þá var það
til sfiaðar og Auður hafði mikla
ánægju af að fylgjast með bróð-
urdóttur sinni, Rakel, eins barn-
elsfc og hún var.
Það var Auði mikiia styrkur
að dvelja hjá fjölskyldu sinni
síðustu mánuðina, en að venju
reyndi hún að gera gott úr hlut-
unum. Þrátfi fyrir einlæga þrá
til lifsins, lét hún aldrei á neinu
bera, hún fór í gönguferðir á
meðan hún gat, faðir hennar
fór oft með hana í ökuferðir,
hún las mikið, ræddi stjómmál
af áhuga og Mfsvonin brást
aldrei. The Daily Telegraph var
uppáhaldsbliað hennar ytra og
Morgunblaðið hér heima.
Vinir og vandamenn voru
Auði mikil hjálp i beirri ógn er
að stefndi, en hún feðraðist ekki.
Hún bar reisn sína unz yfir
þyrmdi og helstríðinu var lokið.
Hún gengur ekki framar í þessu
lilfi, bros augna henmar er minn-
ing. Hún er eiinis og fegurstu
blóm sumarsins, þau stækka um
hverfið og sú stærð helzt i
minningunni þó að þau séu
horfin af vettvangi. Þá er auð-
veldara að spyrja Guð.
Megi Guð almáttugur veita
henni ró, en hinum likn, sem
lifa. — á- ,j.
Hvi er nú visnuð vangarós
og viðkvæm stirðnuð mund ?
Hvi er nú brostið brúnaljós,
er blikaði skært um stund?
Hvi er nú sofinn svipur hreinn
og saklaust hjarta kalt?
Ég veit það ei! — þú veizt það
einn,
sem veizt í heimi allt.
(K. J.)
Hún Auður er dáin, — sú
fregn kom mér þó ekfci á óvart.
Ég hafði fylgzt með striði henn
ar úr fjarlægð, fylgzt með
hetjulegri baráttu hennar við
hinn skæða sjúkdóm. Kunnings-
skapur okkar var aldrei náinn
en við fylgdumst alltaf hvor
með annarri, allt frá þvi við
fyrst kynntumst gegnum Dúddu
frænku hennar, þá 8 og 9 ára
gamlar. „Hún Auður frænka á
Háteigsveginum“ eins og hún
var alltaf kölluð í Tungu og í
Hátúninu, það var einhver aðdá
un og ljómi yfir nafninu, og ég
man að ég var ósjálfrátt spennt
að sjá þessa Auði frænku, það
hlaut að vera .sérstök manneskja
sem talað var wm með slíkum
hreim. Og það skipti einu hvar
fundum okkar bar saman, þá og
síðar í lífinu, hvort heldur var
í sveitasælunni á Höfða, eða á
göngum Menntaskólans, ætíð
gat ég sannprófað að sú aðdá-
un var á góðum rökum reist.
Þar sem Auður fór, fór dugmik
il og heilsteypt stúlka gædd
flestu því bezta, sem unga konu
má prýða. Er Menntaskólaárun-
um lauk og létt var úr öruggri
höfn foreldrahúsanna, tók við
háskólanám í framandi landi.
Við gerðumst báðar farfuglar og
ósjaldan hittumst við og glödd-
umst saman á leið heim á jól-
um, eða á heimleið á vorin, og
ef til vill urðu okkar tengsl
sterkari fyrir það að við gift-
umst báðar yfir hafið, en vorum
þó stöðugt á förum „heim“ og
„heim“. En nú hefur hún hald-
ið í förina miklu, sem við öll
munum leggja í að lokum. Eftir
stendur hjartkær eiginmaður
hennar, sem elskaði og studdi
hana hvert spor að leiðarlokum,
foreldrar, bróðir, mágkona og
frænka, stór og lítil, sem öll
eiga nú um sárt að binda. Orð
ná skammt á slíkri stundu, en
megi góður guð gefa þeim styrk
og traust. Og minninigin um
góða stúlku, sem ætíð var þeirra
sólargeisli mun ylja þeim um
ókomna framtíð.
Svo gengur allt að guðs vors
ráði,
gleðin og sorgin skiptast á.
Þótt vinur hnigi lik að láði
og logi tár á hrelldri brá,
þá hwggar eitt, sem aldrei brást:
Vér aftur síðar munum sjást.
(Kristján Jónsson)
Blessuð sé minning þin.
Guðfinna Rjignarsdótir.
Og þvi varð allt svo hljótt við
helfregn þína,
sem hefði klökkur
gigjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta
harmi losfiið,
sem hugsar til þín alla daga
Elsku Auður mín, hve bágt er
að trúa því að þú sért horfin
sjónum okkar, að göngu þinni
sé lokið, við ástvinir þínir stönd
um eftir i köldu tóminu og spyrj
um hvers vegna?
Hvers vegna varst þú hrifin
frá okkur, svo ung og æsku-
glöð, svo dugmikil og góðum gáf
uim gædd.
Við fáum víst seint skilið þá
almættishönd sem slík högg
greiðir. Bezta frænka min, hve
margs er ekki að minnast frá
okkar sameiginlegu stundum,
allt frá því að við litlar hnát-
ur lékum okkur saman og fram
á þína hinztu daga, er við rædd-
um um hinar mörgu hliðar
mannlegs lífs, og þú ræddir afi
slíku raunsæi og innri styrk að
ég fór ætíð sterkari af fiundi
þínum.
Og slik var einmitt ævi þín,
þ' varst hinn eilifi miðlari og
ljósgeisli þíns umhverfis, gædd
svo ríkri lífslöngun og bjart-
sýni, enda farnaðist þér vel og
gæfusamlega á þinnd svo stuttu
ævi. Námið var þér nautn og
leikur einn, enda laukst þú
stúdentsprófi með glæsilegum
vitnisburði og varstu þar jafn
slyng í öllum greinum. Ekki
urðu heldur þröskuldar á vegi
þinum i þínu háskólanámi i Ed-
inborg, sem þú laukst með
mestu sæmd.
Hvarvetna gazt þú þér hið
bezta vitsorð og með þinni
Ijúfu og hægu framkomu vannst
þú hug allra sem kynntust þér,
og veit ég að þar hefur ísland
átt fulltrúa, sem bar landi sínu
og þjóð fagurt vitni. En ekki
sóttir þú aðeins námið til Skot-
lands, þar kynntist þú einnig
eiginmanni þínum Gordon, og
veit ég að allir eru mér sam-
mála um að það var þitt gæfu-
ríkasta spor.
Þótt ljár sláttumannsins hefði
þegar markað þig oddi sínum,
gekkst þú óhrædd áfram, og
þið Gordon stofnuðuð ykkar in
dæla heimili i Edinborg, heim-
ilið ykkar, sem var þér svo
hjartfólgið og prýtt þinni högu,
nærfærnu og smekklegu hönd.
En óveðursskýið við sjón-
deildarhringinn nálgaðist, sólin
skammtaði geisla sina.
Þú gekkst undir miklar og erf
iðar aðgerðir, og hver slík að-
gerð kveikti í brjóstum okkar
veika von um að Mfi þínu yrði
bjargað. Þú kunnir glögg skil á
sjúkdónmum og allri framvindu
hans og ræddir áhrif og mögu-
leika aðgerðanna af slíku raun-
sæi og rósemi að emginn var þar
af ósnortinn.
Og hverja stundu stóð hann
við hlið þér þinn elskulegi eigin-
maður, og gaf þér sinn styrk.
En enginn má sköpum renna,
mannlegur máttur náði ekki að
bjarga þínu unga lífi. Þú kvadd
ir þennan heim hinn 13. janúar
s.l. i faðmi þinna elskulegu ást-
Framh. á bls. 25