Morgunblaðið - 31.01.1973, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 1973
** .0 u» n, .
FTTJW
Stúlka óshast
á heimili fyrir utan Grimsby til að gæta 2ja
ungbarna auk léttra húsverka.
Aígreiðslumenn
Óskum eftir að ráða röska og trausta af-
greiðslumenn nú þegar eða eftir nánara sam-
komulagi.
Yngri en 17 ára koma ekki til greina.
Upplýsingar á skrifstofunni í dag kl. 17—18.
Hjnkrunnrkonur
Hjúkrunarkonur vantar að Sjúkrahúsinu.
Hvammstanga.
Upplýsingar í síma 1329.
SJÚKRAHÚS HVAMMSTANGA.
Upplýsingar gefur Nanna Olgeirsson Banka-
stræti 14 eftir kl. 17.
MÁLARINN,
Bankastræti 7a.
Trésmiðir — júrnsmiðir
Biívélnvirkjar
Óskum að rúða stúlku
Vélvirkjar eða menn vanir bifreiðaviðgerðum
óskast.
til vélritunar og annarra skrifstofustarfa.
Upplýsingar á verkstæðinu Grímsstaðarholti
eða skrifstofunni Reykjanesbraut 12 og
I símum 20720 og 13792.
ÍSARN H.F.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, mennt-
un og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins
merkt: ,,701 “.
Félagsmúlostoínun
Reykjnvíkurborgar
Tryggingorfélog
óskar eftir að ráða vana vélritunarstúlku og
einnig vana stúlku á bókhaldsvél strax.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður
deildarfulltrúa við fjölskyldudeild stofnunar-
innar. Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi
„frá viðurkenndum skóla í félagsráðgjöf eða
svipuðu námi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf þurfa að hafa borizt stofnun-
inni fyrir 10. febrúar n.k.
Fækari upplýsingar um starfið veitir yfir-
maður fjölskyldudeildar.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR.
Vonarstræti 4, sími 25500.
ALMENNAR TRYGGINGAR HF.,
sími 17700.
Atvinna
Óskum að ráða mann eða konu nú þegar eða
sem fyrst til starfa við launaútreikninga o. fl.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
ÁLAFOSS HF.,
Mosfellssveit.
I
Viljum ráða trésmiði og járnsmiði nú þegar.
Húsnæði getur fylgt.
Nánari upplýsingar í síma 92-7615 og á kvöld-
in í síma 7570.
HÖRÐUR HF., Sandgerði.
Húshjdlp óskast
Óska eftir að ráða stúlku vana húsverkum
frá kl. 9—2 4 daga vikunnar, mjög gott kaup
í boði ef um semst.
Tilboð merkt: „Húshjálp — 666" sendist blað-
inu fyrir laugardag.
Atvinna óskast
Pilt vantar vinnu. Margt kemur til greina.
Upplýsingar milli kl. 2.00 og 6.00
í síma 30410.
Júrniðnaðarmenn
Viljum ráða járniðnaðarmenn og aðstoðar-
menn.
Vélsmiðjan KEILIR,
Sími 34550.
— A9 eiga veröldina
Framh. af bls. 17
pides (sem eirmig var viðstaddur
þessa sýningu á verki sínu) of vei.
Þetta hefur verið of nálægt þeim í
tímanum. Og keisararnir voru jafn
neflausir eftir sýninguna og þegar
við komum. Það var einkennilegt
hvað þeir minntu á Maó formann
sem er skáld gott eins og kunnugt
er og hefur afsannað kenninguna
um að stjórnmálamenn taki aldrei
mark á skáldum; þ.e. hann er undan-
tekningin sem sannar regluna. Og
egypzku múmiurnar þama í Giyptó-
tekinu létu ekki í sér heyra, á með-
an á sýningunni stóð, svo að ég var
farinn að halda að þær ættu
að skrifa leikdóminn.
Annars hefur Medea verið með in-
flúensu margar undanfarnar vikur
svo að fresta hefur þurft sýning-
um fyrir bragðið. Þetta var ljóta in-
flúensan. Hún var dýrt spaug. Af
hverju fá gagnrýnendur aldrei inflú-
ensu? spurði einhver. Af þvi að veir
urnar koma ekki í hvaða veizlu sem
er, svaraði annar. En hvað sem þvi
líður tókst sýningin vel, að dómi
gagnrýnenda (enda var Euripides
danskur í föðurættina, eins og allir
snillingar sögunnar). Og þegar per-
sónur í leikriti fá inflúensu, má
segja að verkið sé ekta. Ekki fyrr.
XXX
Ósköp gerist hér annars lítið.
Blöðin eru svo léleg og leiðinleg að
gula pressan heima getur ekki
keppt við illgresið. Hún er bara föl-
ur arfi móts við þá grósku arfa og
illgresis, púðurskota, sensasjóna og
umfram allt stirðnaðra leiðinda sem
einkenna útbreiddustu dagblöðin
hér. Og blessaður Berlingur, hann
er kominn úr koparfrakkanum sín-
um og er eitthvað svo umkomulaus.
Lesið Pólitiken — lifandi blað, stóð
um alla borgina um daginn. Þá kom
Pólitíken ekki út, því að prentararn
ir voru í verkfalli. Það var álika
gáfulegt verkfall og önnur.
Svo fór Pólitíken að koma út aft-
ur — og hætti að vera lifandi blað.
Ég segi þetta með þau blöð í huga
sem bezt eru sunnar í álfunni. Við
eigum ekki að sækja fyrirmyndir
hingað, heldur sunnar. Og svo er
eitthvert blað sem heitir Börsen. Ég
held að mest cif upplaginu sé seht á
bókasöfn. En þar hef ég ekki séð
neinn lesa Börsen, þó að nafnið sé
gómsætt.
XXX
Ríkislistasafnið gerir Kaupmanna-
höfn að stórborg. Þar eru myndir
eftir Rembrandt, Rubens, Matisse,
Braque, Modigliani, E1 Greco,
Picasso, Munch. 1 sama herbergi og
hinn síðast nefndi eru Krogh
og Carstens, sá síðar nefndi norsk-
ur samtímamaður Munchs. Stórkost-
legur málari. Aldrei hef ég séð aðra
eins krossfestingu og myndina hans
samnefnda þarna í herberginu. Engu
líkara en verið sé að krossfesta allt
mannkynið. Og svo hefur hann mál-
að svo fallegan, eða öllu heldur eft-
irminnilegan hest að hann gekk út
úr myndinni og hefur fundið sér
grænan haga í huga mínum. Annars
verður maður að fara i Thorvald-
senssafn til að sjá reglulega hesta.
„Enginn getur gert svona lifandi og
eftirminnilega hest.a,“ sagði ungur
listnemi sem með mér var í Thor-
valdsenssafni. Ég man Maximilian
Bæjarakóngur situr á öðrum þessara
hesta Thorvaldsens. Skýringin er
augljós: Thorvaldsen er Skagfirð-
ingur eins og Jón Stefánsson. Það
er allt og sumt. Hann er með Skag-
firzkt hestamannablóð í æðum. Ann-
ars þótti unga listnemanum mest
koma til teikninga og riss þessa
gamla meistara, sem var svo fræg-
ur að hann gekk ekki á fund páfa,
heldur gekk páfinn á hans fund. Þá
báru menn virðingu fyrir listinni.
Nú bera menn ekki einu sinni virð-
ingu fyrir páfanum.
1 Ríkislistasafninu er myndin
fræga af Madame Matisse, með gult,
grænt og bleikt andlit og blátt hár.
Og sjálfsmynd hans, einnig græn í
amdliti. Og hver gleymir „Dauða-
stríði“ Munchs frá 1915. Það er
eins og enginn hafi dáið síðan.
Það vakti athygli mina að í safn-
inu eru engar myndir eftir græn-
lenzka listamenn, né færeyska. Það
er ekkert gaman að eiga hálfnýlend-
ur og flagga ekki með' þær. Ekki
einu sinni mynd eftir Mikines! En
kannski er hann geymdur niðri í
kjallara. Hann lærði af expressjón-
istunum sem voru upp á sitt bezta
eftir aldamótin. En litirnir hans,
„sagan“ i formum hans er harm-
sögulegri en í myndunum þeirra. Það
gefur þeim fjórðu víddina. Gunn-
laugur Scheving sagði mér eitt sinn
að hann hefði ekkert gaman af neinu
nema það segði einhverja sögu. „Sög
una“ vildi hanin fyrir hvem mun
ekki missa úr listinni. Með það í
huga er auðveldara að skilja
ást hans á þjóðsögunum og myndir
hans yfirleitt.
x x x
1 einu herberginu í Ríkislistasafn-
inu eru eintómar myndir eftir dansk-
an málara, Jensen. Hann var svo
heppinn að vera uppi rétt áður en
myndavélin kom til sögunnar. Hann
er einn þekktasti portrettmálari
Dana, var mér sagt með andagt og
næstum í hálfum hljóðum. Það mun-
aði litlu að ég endurtæki söguna frá
Dresden, þegar Guðmundur
Magnússon undraðist, íslenzkum
gálgahúmor og illmennsku til óend-
anlegrar gleði, hvað margar mynd-
ir væru eftir „Derselbe" á málverka-
sýningu sem hann sá. Jensen hefur
verið hræðilegur kapítalisti, hugsaði
ég með mér, þegar ég hafði séð sex
myndir með þessu nafni: hélt satt að
segja að einhver málarinn hefði ver-
ið fenginn til að mála „hele familien"
og þarna væri hún saman komin,
fólk á öllum aldri með kódak-andlit.
En forsjónin var mér svo hliðholl að
ég fór að kanna málið betur — og
hef ekki i huga að breyta nafni
mínu vegna þessa hrips.
Enginn hefur leikið betur á ís-
lenzku öfundina en Guðmundur
Magnússon. Hann hafði alltaf verið
hundskammaður, þangað til þessi
Jón Trausti fór allt í einu að láta til
sín heyra. Hver var hann? Það var
nauðsynlegt að fara sér hægt í dóm-
um. Þetta gæti verið eitthvert skurð-
goðið.
Og „Derselbe" var forsenda þess
að Jón Trausti skrifaði athyglisverð
ustu rómana síns tima á voru landi,
og þótt víðar væri leitað. Frá nátt-
úrunnar hendi, eins og sagt er á
finu máli, er hann kanski mesti
skáldsagnahöfundur íslenzkur frá
13. öld.
XXX
En ósköp var nú annars gott að
ganga ekki í gildruna þama í Rík-
islistasafninu. Það er svo leiðinlegt
að skemmta illmennum. Og suðið í
gluggakistunni getur verið ótrúlega
hvimleitt og hávært, meðan á þvi
stendur. Og þá hefði kannski komið
fram á sjónarsviðið einhver góð-
viljaður maður — ef slikur mað-
ur er enn til — og spurt eins og
barn: Skyldi ekki ritstjóra Morg-
unblaðsins leiðast að láta krossfesta
sig? M.