Morgunblaðið - 01.04.1973, Síða 1

Morgunblaðið - 01.04.1973, Síða 1
Loðnuveiðar MORGUNBLAÐSMENN brugðu sér fyrir nokkru í loðnuleiðangur með Óskari Hall- dórssyni RE. Það var sótt á miðin út af Garðskaga þar sem fleiri bátar voru fyrir. Loðnan var þar á nokkuð stóru svæði, en bátarnir sigldu þvers og kruss hver innan um annan. Fyrir leikmenn var það þræl- spennandi og raunar furðulegt að þeim skyldi öllum takast að athafna sig þarna á litlu svæði, án þess að til nokkurra árekstra kæmi. Oft voru næturnar lagðar svo þétt að það voru ekki nema nokkur fet á milli þeirra, en aldrei lenti þó neitt í flækju, enda voru þarna ekki neinir viðvaningar á ferð. Þeir þekkja líka nokk sína báta „kallamir", a.m.k. Eggert Þorfinnsson, skipstjóri á Óskari en hann hefur verið stýrimaður og svo skip- stjóri á bátnum síðan hann kom til landsins 1960. Loðnan hafði verið stygg um nóttina svo .þeir bátar sem þá köstuðu á hana fengu lítið sem ekkert. En með morgninum virtist hún þétta sig enda komust menn þá í mik- inn vígahug og meðan verið var að dæla á að gizka 170 tonna kasti um borð í Óskar, voru hinir bátarnir líka að fylla sig, á báða bóga. Við vorum nú reyndar búnir að segja frá þessum leiðangri í máli og myndum (föstu- daginn 16. marz) en þar sem hann Kristinn okkar Ben., skaut litmyndum jafn ótt og títt og hann skaut svarthvítum þótti tilvalið að sýna hvernig loðnuveiðar líta út í litum. Og hérna hafið þið sem sagt árangurinn. — ót.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.