Morgunblaðið - 01.04.1973, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 01.04.1973, Qupperneq 4
4 'MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRlL 1972- Stríðsfangar ráðvilltir eftir heimkomu — ný viðhorf eiginkvenna koma á óvart og ýmsir eiga erf itt með að sætta sig við byltinguna í kynferðismálum Reymond A. Vohden, sjó- liðsforingi, haifði veirið stríðs fangi í meira en sex ár, þeg- air hann skrifaði eiiginkonu sinni, Bonnye, og hvatti hana til „að hefja nýtt líf“. Á síð- asta ári óskaði frú Vohden eftir skilnaði og sagði til skýr inga: „Hvorki ég né bömin höfum lifað mannsæmandi lífi; við höfum líka á vissan hátt verið í fangelsi líka.“ Ýrnsar aðrar eiginkonur bandarískira striðsfanga í Ví- etnam urðu að taka svipaða ákvörðun. Margar ibiðu og deildu „einangrun" bónda sins; en sumar völdu þann kostinn „að hefja nýtt líf“. Qg nú eru eiginmenn iþeirra að koma heim, og margar þess ara kvenna verða að horfast í augu við mjög erfitt val mMli þessa nýja lífs og hins gamla. „Ég er viss um, að það verða margir skilnaðir," sagði eiginkona eins foringja, sem er nýkominn heim. „Sum ar kvennanna eru ekki lenig- ur ástfangar af eiginmönnum síwum, þær eru hrifnari af mönnum, sem þaar kynntust síðar." Skömmu eftir að frú Vohd- en, sem minnzt var á hér að ofan, óskaði eftir skilnaði, hófust samningaviðræður að nýju. Síðan kom vopnahléið og þar næst fréttir um, að eig inmaður hennar yrði meðal þeirra fyrstu, sem látinn yrði laus. Þegar hann kom til Clark- herstöðvarinnar á Filippseyj- um, hafði Vohden samband við eiginkonu sina; hann var í hinu mesta uppnámi og hún samþykkti að hætta við skiln aðinn. „Ég veit ekki hvemig stefnu þessi mál taka,“ sagði hún svo á heimili sínu í MemphLs eftir samtalið við manninn. „ Við verðum að vinna að því sameiginilega að láta þetta blessast. Hann er svo glaður og hamingjusam- ur og ég er það iika.“ En i síðastliðinni viku sagði Vohden blaðamönmun frá því að hann ætlaði að skreppa í smáferðalag „sér til skemmt- unar og upplyftingar." En hann ætlaði að fara einn, sagði hann. Frú Vohden orðaði það svo: „Eftir að mesta fögnuðinn við heimkomuna hafði lægt, hefur hann fengið þunglynd- isköst. Því miður var ekki alilt í sama horfinu og þegar hann fór fyrir átta árum, og það getur verið erfitt að skilja slíkt og sætta sig við það. Ég held 'það sé igott fyr- ir hann að vera einn um hríð og átta sig á hlutunum." Vohden viðurkenndi að vissulega hefði margt breytzt frá því hann fór. „Ég er eng- in pempía," sagði hann, „en þessi bylting i kynferðismál- um hefur eiginlega reynzt mér hvað erfiðastur biti að kyngja." Endurfundirnir geta verið gleðilegir fyrlr marga — að minnsta kosti fyrst í stað, eins og sést á þessum myndum. En margir bandarisku strtðsfanganna, sem nú snúa heim, eftir langa vist í fangelsi, eiga erfitt með að laga sig að gerbreyttum viðhorfum og skoðunum eigin- kvenna sinna. síns, heimta að fá að vera ein staklingar og hafa sínar skoð anir. Margar hafa stundað vinnu utan heimilis í möng ár. Galand Kramer kapteinn frá Tulsa vissi ekki, að hann var skilinn, fyrr en hann kom heim fyrir tveimur vikum. Fyonrverandi eiginkona hans, Mairy", sagði: „Ég er ekki lengur elskulega, blíða, og auðsveipa eiginkonan, sem hann fór frá fyrir mörgum ár „Við höfum vaxið hvort frá öðru,“ sagði frú Kramer, sem vinnur nú fyrir James Jones, þingmann í Oklahoma. „Mér fannst það yrði erfitt fyrir okkur að vera saman úr þessu.“ Það hefur verið opinbert leyndarmál, að eiginkomir marigra bandarískra striðs- fanga hafa haft náin sam- skipti við aðra karlmenn, meðan eiginmenn þeirra hafa setið í haldi. Þessar eiginkon ur benda á, að stundum hafi liðið ár, án iþess þær vissu hvort eiginmennimir væru dauðir eða lifandi. Og eftir að 1 ljós kom að þeir voru á lífi, þá var engin trygginig skipti við aðra kardmenn, nokkru sinni heim aftur. Eiginkona bandarísks stríðsfanga í Norður-Víetnam orðaði það svo: „Eiginmaður minn er með hinum lifandi dauðu, en ég er með hinum lif andi. Ég kæri mig ekki um að lifa, eins og ég væri dauð.“ „Einstaka eiginkona var eiginmanninum trygg og trú,“ sagði önnur „eða þangað til hún hiitti kannski mann, sem hún varð hrifin af." Og önnur isagði: „Ég gerði það sem var bezt fyrir sjálfa mig. Og ég hef 'búið með manni í þó nokkur ár. Ef vopnahléið hefði ekki verið samið hefði ég farið fram á skilnað." „Ég hafði lagt nægilega mikið á mig," sagði ung kona, sem átti mann í vietnömsku fangelsi í sex ár. „Ég gat ekki haldið svona áfram." Fangamir ræddu iðulega sín á mili möguleikana á því að konur þeirra væru þeim ótrúar og færu jafnvel fram á skilnað, en fæstir munu hafa trúað þvi í alvöru, að eiginkonumar litu við öðr- um karimönnum, þó svo að þær sæju"ekki menn sína ár- um saman. Kemur það reynd ar heim við rótgróna trú eig- inmanns, að óhugsandi sé með öllu, að kona geti girnzt annan en hann. Þó voru ein- staka, sem reyndu að horfast í au'gu við staðreyndir. Raymond Merritt, sex barna faðir, sagði þegar hann sneri heim: „Við vissum, að lífið varð að ganga sinn gang. I fjöl- mörgum tilvikum vissi eng- inn hvort við kæmum aftur. Alir þurfa á ást og um- hyggju að halda og sjö eða átta ár eru hræðilega langur tirni. Við gerðum okkur sumir grein fyrir þessum möguleika en við vissum ekki, hvemig við myndum bregðast við, þegar heim kærni." Mörg hjónabönd banda rískra stríðsfanga, sem koma nú heim munu fara út um þúf ur á næstunni, en kannski blessast það hjá sumum. Taka mætti William Shankel frá Jackson í Kalifomáu sem dæmi. Hann var hálftrú- lofaður stúlku, iþegar vél hans var skotin niður á Þor- láksmessu 1965. Viku eftir að hann kom heim, voru þau gift.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.