Morgunblaðið - 01.04.1973, Side 6

Morgunblaðið - 01.04.1973, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1973 Um sjóminjasafnid f MYSTIC og svieitaþorpið STURBRIDGE og andstæðtir stórborgarglaumsins á dreifbýlissvæðum Nýja Englands SKYLDU allir íslendingar, sem leggja leið sína til New York ýmissa erinda, átta sig á því, að þeir þurfa ekki að aka meira en svo sem tveggja klukkustunda leið til þess að komast í allt annað umhverfi, þar sem þeir eiga þess kost að sjá talsvert frábrugðna mynd af banda- rísku þjóðlífi þeirri, sem við blasir í stórborg- inni með skýjakljúfunum og hinni marglitu manngerð undir mjóum himinræmum. — Lengra þarf ekki að fara til þess að finna dreif- býl og gróðursæl svæði, sjá smábæi sitja eins og berjaklasa í kvosum milli skógivaxinna hæða og finna fólk sem ekki þarf að flýta sér. Þegar ekið er iim hraðbrautir Nýja Englands í fyrsta sinni, sýnist umhverfi þeirra harla fá- breytt, svo mjög eru borgimar svipaðar, þar sem þjóðvegimir liggja í gegnum þær. Hvarvetna blasa fyrst við byggingar og auglýsingaskilti hinna ýmsu fyr irtækja, sem reka starfsemi sína um Bandaríkin gervöll. MacDon alds merkin fær enginn umflúið né Hardees húsin eða ísbúðir og gistihús Howard Johnsons hringsins.. Stórverzlanimar bera sömu nöfnin í hverri borg- inni af annarri svo og bensín- stöðvarnar og hvarvetna eru það merki viðskiptalífsins og neyzluþjóðfélagsins, sem fyrst verða fyrir augum. Hluti hafnarinnar í Mystic, þar sem gömul skip af ýmsum gerðum liggja við festar. Hluti sjávarþorpsins litla í Mystic. Gillette-kastali. En sé vikið út af þjóðvegun- um stóru og þræddir hinir þrengri vegir, sem hlykkjast milli einstakra smástaða, kemur í ljós, að bak við allan ysinn og þysinn, kaupæðið og kapp- hlaupið á þessum slóðum, eru aðrir staðir svo undur kyrrlát- ir, fáfamir og friðsælir. Þama eru smábæir og þorp með fjöl- breytilegum og litríkum íbúðar- húsum, þar sem umhverfis eru fallegir skrúðgarðar, næg íþrótta- og leiksvæði fyrir börn og ungl- inga og dulitlar búðarholur, þar sem starfsfólk hefur nógan tíma til þess að spjalla við aðkomu- menn, þar sem grænmetið og ávextirnir eru tíndir upp úr kössunum úti fyrir litlum bjálka kofum. Á þessum slóðum er algengt að finna litlar fomminjaverzl- anir og skransölur, þar sem skrýtnar konur aldraðar grúska í dót.ti látinna nágranna sinna og glúmir karlar hreykja sér af þvi að hafa komizt yfir merkis- muni úr þekktu stórbúi og selja kannski aðgang að búðinni sinni eins og safni meðan þessir mun ir eru óseldir. Þar er lika tals vert um lítil minjasöfn, þar sem manni er tekið tveim höndum, því kannski hefur enginn gestur komið þann daginn, kannski ekki í marga daga og vörður- inn, sem oftast er eldri karl eða kona ségir sögu hvers hlutar af svo mikilli innlifun og áhuga, að það eitt verður aðkomumanni- minnisstætt, löngu eftir að hann hefur gleymt sjálfum hlutunum og sögu þeirra. Sértu á ferðinni á laugardegi er eins víst þú sjáir ung brúð- hjón koma út úr kirkju í hópi aðstandenda og vina, sem strá hrísgrjónum yfir brúðhjónin og marglitum pappírsstrimlum og svo aka þau burt í bíl, sem pott- ar, pönnur og gömul skóræksni hafa verið hengd aftán í, — rétt eins og í gamalli Hollywood- kvikmynd. Það er heldur ekki ósennilegt, að þú rekist á dálitla iistsýningu; málari, myndhög.gv- ari eða leirkerasmiður hefur sett upp nokkur verk sín í vinnuskúrnum eða úti fyrir hon um, ef vel viðrar, í þeirri von að einhver slæðist þar með þunga buddu og áhuga a.m.k. sýndaráhuga á kúnst og stuðli að því, að viðkomandi geti hald ið áfram að dunda sér í skúrn- um. Við næstu beygju er eins lík- legt að sjá innan girðingar skrautlegan flokk fugla, sem einhver skrítinn fugl hefur safn að að sér — eða bara kýr á beit, kannski líka nokkra asna. Það er líka vel líklegt, að þú rekist á klett, þar sem finna má fallegan stein eða vatn, þar sem hægt er að fá leigðan árabát og róa milli stranda. Að vísu má búast við að ekki sé hægt að fara í land nema á stöku stað því að sumarbústaðir efnafólks- ins úr stórborginni standa oft á vatnsbökkunum og bátar þess, einn eða fleiri, eru bundnir við einkabryggjur. Stundum fara ungir piltar og stúlkur framhjá á hvítum seglbátum, áhyggju- laus ungmenni sem sigla kannski með lokuð augun gegn um lífið í skjóli allsnægtanna og leiða lítt hugann að skuggahlið- um lífsins handan skógarins. Vafalaust er þarna trjágarður i nánd með tréborðum og bekkj um, þar sem gott að að setjast með nestiskörfuna og baka sig í sólinni svolitla stund. En það getur tekið dálítinn tíma að finna þessa staði, sé maður ókunnugur. Það getur líka tekið taisverðan tima að komast að raun um hvað samfé- lagið á þessum slóðum hefur upp á að bjóða umfram við skipti, hvert á að leita forvitni- legra safna og sögustaða, hvar finna má leiksýningar, hljóm- leika og aðra menningarstarf- semi. En þeir, sem nenna að leggja á sig þá leit verða margs vísari, meðal annars þess, að bandaríska list og menningu þarf ekki endilega að sækja til stóriborgarma svo og að til þess að njóta þeirra þarf maður ekki endilega að vera svo vel stæður sem aðgangseyrir að New York borg bendir til. Þess er vitaskuld ekki að vænta, að þeir, sem koma á þess ar slóðir til stuttrar dvalar hafi tima til, eða áhuga á að leita uppi menningarstarfsemi í bandarísku dreifbýli. Hins veg- ar mæli ég eindregið með því, að þeir New York farar, sem eiga þess nokkum kost, bregði sér í smáferðir um ríki Nýja Englands, annaðhvort austur með ströndinni eða norður eftir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.