Morgunblaðið - 04.04.1973, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.04.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 1973 7 Bridge Itölsku dömurnar þóttu mjög snjallar í Evrópumótinu 1971, enda sigruðu þær með miklum yfirburðum. Hér fer á eftir spil frá leik þeirra gegn Sviss. NORÐUR: S: G-9-6-4 H: Á-D-4-3 T: 6 L: Á 9 3-2 VESTUR: AUSTUR: S: Á-10-5-3 S: 8-7-2 H: K-10 H: G-2 T: 10-9-7 T: Á-D-5-4 L: D-10-8-5 L: K-G-4-3 SUÐUR: S: K-D H: 9-8-7-6 5 T: K-G-8-3-2 L: 6 Við annað borðið sögðu allar dömurnar pass. Við hitt borðið sátu ítölsku dömurnar N—S og náðu ágætri úttektarsögn með eftirfarandi sögnum: N: S: 1 1. 1 hj. 2 hj. 3 t. 3 hj. 4 hj. Sagnhafi fékk auðveldlega 11 slagi og Italía græddi 12 stig á spiiinu. ■ llllllllllllllllllilillllllllllllliiillilDllllllllltllillllllllJlllilllllUJIliliillllllllliliJlllllilillUllli FRÉTTIR uiiiiiiiiiiiuiii!iiiuiii]uiimtuiiiiiiiii)ui]ii]]iiiiim]iiiii)!!iiuniiiiiH]!imimiiiimniiiiiii!il Kvemfélag Árbæjarsóknar Fundur verður haldinn, miðviku daginn 4. april í Árbæjarskóla. Spiluð verður félagsvist. Konur fjöimennið. Kvenféla.gið Hrönn Fundur í kvöld, miðvikudaginn 4. april, kl. 8,30, að Bárugötu 11. Páskabingó. DAGBOK BARMMA.. FRflMHHbBSSRMN S VABTAVATN Eftir Huldu Hilmarsdóttur Hinrik konungssonur hafði ekki neitt við þessa uppá- stungu að athuga og ég var hjá þeim þangað til mér batriaði. Og öndin hélt áfram. „Ég mundi sérstaklega vel eftir þessu orði, þvi að hann var alltaf að tyggja það upp, aftur og aftur. En hann var líka að tala um að fá sér eitthvað, ef hann gæti. Ég skildi harla lítið af því. En allt í einu stökk maðurinn á fætur og hrópaði einhver orð, sem ég skildi ekki. Hann talaði eitthver-t hrognamál, sem ég tala ekki. En svo í endann á þessum ræðustúf skildi ég nokkur orð: „En hvað getum við gert? Við erum fangar hjá norninni, systur yfirþorparans.“ Ég færði mig þá nær þeim til að heyra og sjá meira og betur. En þá í andartakinu kom einn mannanna auga á mig. Hann hrópaði upp og stökk að mér. Þegar hann reyndi að ná mér, gerði ég auðvitað tilraun til að fljúga og bjarga lífi mínu. En það var ekki það, sem hann sóttist eftir. Þegar ég gerði þessa virðingarverðu tilraun, tóku mennirnir eftir því, að ég var fremur deyfðarleg og stirð. Piltinum tókst að ná mér, en ég barðist um eins og ég hafði krafta til. En þá sagði pilturinn: „Hinrik kon- ungssonur, sjáðu þessa önd. Hún er særð á höfði, líklega eftir ránfugl. Það er svo mikið af þeim hér. Hún hefur misst meðvitund. Við skulum taka hana að okkur og reyna að gera hana eins spræka og hún hefur vafalaust verið áður.“ Ég fékk að vita það, að þessir menn voru fangar þarna á eynni. Og ég fékk Kka að vita af hvers völdum. Einhver norn, sem þeir kölluðu systur yfirþorparans, hafði „hlekkjað“ þá við eyna. Og mennirnir urðu að dúsa þar, því að þeir höfðu engin hjálpargögn til að auðvelda þeim flóttann. Tíminn leið og hann græddi um leið sárið á höfði mér. Ég var farin að fljúga um og loks var mér alveg batnað. Þá fékk einn mannanna þá ágætu hugmynd að senda mig eftir hjálp, því að þeir höfðu ekkert getað komizt burt. Átti ég, ef ég var fús til, að fara til kast- ala, sem er eign Ólafs konungs, og hafa meðferðis bréf, sem segði mönnum hvar Hinrik og fylgdarmenn, hans væru niðurkomnir. - Á meðan mér var að batna, sögðu þeir mér frá för þeirra til eyjarinnar. En allt fór fyrir ofan garð og neð- an hjá mér. Ég fór með bréfið til kastalans og var á leiðinni, er ég hvíldi mig á vatninu hér og spjallaði svolítið við slæð- urnar. Þegar ég var nýbúin að afhenda skilaboðin, komu ein- hverjar furðuverur, líkar mönnum, skrækjandi og gól- andi og tóku mig og fóru með mig hingað. Ég er búin að fá nóg af þessu og nú vil ég komast í dagsbirtuna á ný.“ Já, já, þú mátt fara núna,“ leyfði Svarti Svartur. DRÁTTHAGI BLÝANTURINN Kvenfélagið Seltjörn Félagið vekur athygli á afmæl- isfundi sínum, sem verður 4. apríl (í kvöld) i félagsheimil- inu og hefst kl. 9. Skemmtiatriði. Eftirhermur: Karl Einarsson, Danssýning- Nemendur úr Dansskóla Hei’manns Ragnars Stefánssonar, Einsöngur: Guð- rún Á. Símonar. Félagið býður hverri konu að taka með sér einn gest. PENNAVINIR Anne Halkola Högstensgatan 61B 77700 Smedjebacken Svíþjóð óskar eftir að skrifast á við ís- lenzka unglinga á aldrinum 14—16 ára. Anne hefur áhuga á tónlist, dýrum og börnum. Skrifar ensku. Hæ! Ég er 14 ára og hef geysi- legan áhuga á frímerkjum. Hef áhuga á að' skrifast á við ís- lenzkan pilt sem vill skiptast á frimerkjum. Ég skrifa ensku. Vonast eftir bréfi fijótlega. SMAFOLK —------ nokkrum að Itamn bragðist Hvernig er bægt að segja hræðilega? Lena Lundberg Hackspettsvágen 7 161 39 Brimma Svíþjóð. í óskilum Fyrir skömmu fannst brúnbrönd ótt kisa í Austurbænum. Kisan er mjög horuð og hefur þvi lik- lega verið lengi á flækingi. Eig- andi er vinsamlega beðinn að hafa samband við skrifstofu Dýraverndunarfélagsins, Hjarð- arhaga 26, þar sem kisan er. Sími 16597. FERDTNAND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.