Morgunblaðið - 06.05.1973, Side 12

Morgunblaðið - 06.05.1973, Side 12
12 MORGUNRLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAl 1973 Góðir gestir 1 Norrænahúsinu Frændur vorir Færeyingar eru nú hér i heimsókn með yngri myndlistarmenn. Fyrir all mörg- um árum var hér á ferð mikil og merkileg sýning á færeyskri myndlist, haldin í húsakynn- um Listasafns Islands. Nú skyldi maður halda, að jafn fámenn þjóð og Færeyingar hefðu ekki þeim fjölda listamanna á að skipa að hægt væri að koma aft- uir til íslands með stóra listsýn- ingu og tefla fram ungu fólki, sem jafnvel ekki var farið að eiga við myndlist, þegar fyrr- nefnd sýning var hér á ferð. En þetta er ekki i fyrsta sinn, sem vlð Islendingar verðum dolfalln ir yfir þeirri þróttmiklu og öru menningu, sem Færeyingar hafa upp á að bjóða. Þessi litla þjóð hefur varðveitt menningu, sér- stæða og einstæða, aðallega í ijóði og litríkum dansi, og mynd list þeirra er með eindæmum traust og vönduð. Það er eins og einhver vinur minn í Danmörku sagði eitt sinn við mig, að Fær- eyingar elskuðu land sitt svo mjög, að þeir dirfðust ekki að stunda slæma myndlist. Ég held ég sé sammála þessari athuga- semd, sem segir ef til vill meiri sannleika en margan grun- ar. Eitt er vist, að Færeyingar geta verið stoltir af þeirri mynd list, er þeir hafa framvísað hér á Islandi. Á þessari sýningu eru ein- göngu verk eftir unga myndlist- armenn. Það er Listafélag För- oya, og Norræna húsið, sem bor- ið hafa hita og þunga dagsins við að koma þessari sýningu til okkar. Listafélag Föroya er ekki félagsskapur listamanna, heldur áhugafóiks um listir. Ef við nú litum í eigin barm, finnum við það fljótlega, að hér hjá okk ur eru að vísu starfandi lista- mannafélög, en hins vegar ekk- ert félag, sem samanstendur af áhugafólki um myndlist. Eitt • sinn var það þó til, en langt er síðan Listvinafélagið var og hét. Listamennirnir, sem verk eiga á færeyslku sýningunni í Norr- æna húaimu eru sjö talsins, og milli sextíu. og sjötiu verk hafa verið valin tU þessarar sýning- ar. Þar kennir að visu margra grasa, en heildarsvipur sýning- arinnar er heiðarlegur og ber sterklega vitni um grósku og virðingu fyrir fyrirmyndum og þjóðlegu umhverfi. Þess- ir ungu listamenn virðast ekki hafa þá köllun að frelsa heim- inn, sem svo margir sam- tíðarmenn þeirra virðast þrúgað ir af. Þeir koma tii dyra eins og þeir eru, og látalæti eða yfir- borðskák er þeim alls fjarri. Þeir eru um margt gerólík- ir þeim eldri mönnum, sem við könnumst við í myndlist Fær- eyja, og ég fæ ekki betur séð en að með þessu unga fólki sé að myndast meiri breidd í mynd- list Færeyja. Ef litið er á þenn- an hóp í heild, eru þetta nokk- uð jafnir listamenn, sem þó vekja áhuga manns á mismunandi hátt. Það er eins og gengur og ger- ist, að einn hefur meira vald á lit en annar, sem svo hefur sterk ari tök á formi en sá næsti. En það sem einkennir hópinn, er hve vandað virðist vera til þess- arar sýningar. Þvi er það, að sýningin í heild verður Færey- ingum til mikils sóma. Tróndur Patursson, notar hreina og einfalda myndbygg- ingu, bæði í lit og formi, og út- færir hugdettur sínar á nýstár- legan hátt. Hann virðist hafa sérstöðu og vera sérlega efni- legnr. Zakarias Heinesen mun að einhverju leyti vera skólaður hér á landi. Hann sýnir bæði oliumálverk, vatnslitamyndir og krítarteikningar. Verk hans eru djörf í lit, og það er hressileg- ur blær yfir flestu, er hann ger- ir, en stundum vili koma fyrir, að hann kann sér ekki hóf í lita- meðferð, og þá fer í verra. Bárður Jacobsen er auðsjáanlega eftirtektarverður listamaður, sem glímir við myndflötinn á kunnáttusamlegan liátt, og það bregður fyrir í verkum hans áhrifum frá ýmsum frönsk- um meisturum, en litameðferð hans er sérstæð og persónuleg. Elinborg Liitzen hefur ný- lega vakið athygli hérlendis með svartlistarmyndum sinum, sem eru að mínu áliti ágætar og gerð- ar af mikilli kunnáttu. Eyvind Mohr er mjög leikinn málari, sem notar gráa tóna í einföldum og sterkum fyrirmyndum. Hann hef ur sérstakan tón í verkum sín- um, sem verða manni minnis- stæð. Aniariel Norðoy sýnir þarna hressilegt listaverk i létt- um og leikandi formum, sem nefnist Mikladaiur. Tummas | Arge er einnig á góðri leið með að verða persónulegur listamað- ur, verk hans eru svolítið dul- mögnuð, og það tekur nokkum t.íma að komast í tengsl við þau. Eins og sjá má af þessum Mn- um, er ég mjög ánægður með Mynd Tróndur Patursson: þessa sýningu, og ég er ekki í nokkrum vafa um, að fleiri, sem fylgjast með óg fást við mynd- list á Islandi, eru mér sammála. Allt eru þetta ungir menn, sem eru þegar búnir að tileinka sér viissa hluti, en eru auðsjáanlega fcnn í mótun sem myndlistarmenn. Sinf óníuhl j óms veitin Enn einu sinni leggur Uri Se- gal leið sína hingað til að stjórna Sinfóníuhljómsveitinni, einhverj- um bragðdaufustu tónleikum vetrarins. Hvort það er stjóm- andanum að kenna eða óáran í hljómsveitinni, t.d. mættu ekki nema fjögur celló til leiks, og ýmsir aðrir leikmenn voru furðu sofándalegir og ónákvæmir í inn komum sínum, er óvíst. Hins vegar ei víst, að það þarf meir en lítinn sannfæringarkraft tii að koma. verki eins og „Ruy Blas“ forleik Mendelssohns á framfæri, tækifærimúsík löngu iiðins tækifæris. Þogar Mendels- sohn var sjálfur að endurvekja verk, sem áður höfðu lifað, fannst kollega hans Berlioz stund um nóg um og sagði „að Mend- elssohn elskaði allt of mikið hina dauðu“. Hvað segði sá góði mað- ur við þeirri áráttu okkar tíma, þegar reynt er að lífga við verk, sem fædd voru andvana fyrir 135 árum? Og það eingöngu til að standa í vegi nýsaminna of lifandi verka! Pianókonsert Moz- arts í C-dúr K.V.467 skildi líka eftir daufieg áhrif. Einleikarinn, André Tsjaikovský, er óneitan- lega frábærlega flinkur maður, og hann spilar furðulegar kad- ensur, jafnframt því sem hann laðar fram hrífandi blæbrigði í styrkleika — en það stoðar lítið, þegar hljómsveitin „svarar í axar skaft“, eins og hún sé ekki með- vitandi um samleik. Þegar Ijóst er að einleikarinn er kominn til að flytja kammermúsík, er líka óskiljaniegt, hvers vegna hljóm- sveitin þarf að safna saman öll- um fáanlegum nemendum i strengjasveitina. Sömuieiðis er óskiljanlegt, að stjórnandi, sem þekkir viðbragðsflýti leikmanna sinna skuli ekki reyna að fyrir byggja, að þeir drattist inn eins og þeir séu í „fram, fram fylk ing“. Berlioz er e.t.v. ekki eins við kvæmur fyrir ónéikvæmninni og Mozart, en samt eru tak- mörk fyrir því, hvað Symphonde fantastique þolir mörg tempi samhliða eða innkomur mörgum töktum of snemma. 1 þriðja þætti tók sinfónían loks flugið i sam- leik óbós og enska homsins og úr því tókst að leiða verkið til skammlausra lykta. ÞORKELL SIGURBJORNSSON SKRIFAR UM Nr. 58 — Gongru-Rolvur. Ekki ætla ég neimu að spá hér í þessum lmum um það, hvemi.g hluti.rnir eiga eftir að þróast i náinni framtíð, en eitt er víst, að með þeim þrótti og þeirri getu, sem þegar er fyrir hendi hjá þessu fólki, þurfa Færeyingar ekki að hafa áhyggj-ur af fram- tíð myndMstar í landi siinu. Þetta eru sérlega góðir gestir hér á sóMkum kuldadögum, og sannleikurinn er sá, að ég held, að þessi sýning standi of stutt til að geta haft fyllileg áhrif (aðeins fimm daga). Það er orð- ið of áberandi hér í Reykjavík, hvað sýningar eru orðnar stutt- ar oig jafnvel mætti segja snubb- óttar. Það er sannleikur, sem ekki verður hrakinn, að mynd- list krefst nokkurs tima til að komast inn fyrir dyr hjá fólki. Það er hvergi nægiiegt að sjá sýningar aðeins einu sinni, það er alltaf eitthvað að gerast í góðri myndlist, sem tekur tima að kynnast. Ég held, að þessi sýning hefði þurft að standa aðra viku til, og ég efast ekki um, að margur hefði fagnað þvi. En það þýðir vist ekki að fást um það, og þvi vendi ég mínu kvæði í kross og færi öllum, sem að þessari sýrúngu Færeyinga í Norræna húsinu standa, mínar beztu þakkir fyrir skemmtilega viðkynningu og vona, að ekki líði en.n einn áratugur, þar til við fáum að sjá meira af Fær- eyskri myndlist. Valtýr Pétursson. Haukur Ingibergsson: HUOMPLÖTUR Sólskinskórinn Fjögur barnalög 45. s. EP. Mono SG-hljóniplötur Á þessari hljómplötu eru fjögur bamalög, sem Her- mann Ragnar Stefánsson dans kennari valdi, og munu dans- ar við þessi lög vera kenndir í flestum dansskólum, og það segir sig þá sjálft, að lögin hljóta að vera með góðum takti og skemmtileg, enda er sú raunin á. Við það bætist svo, að textamir eru mjög við hæfi barna, en þeir eru eftir Magnús Pétursson, sem einn- ig stjórnar kórnum og hljóm- sveitinni, sem leikur undir. En það er að segja af þessum kór, Sólskinskórnum, að hann er skipaður telpum, sem allar eru í Melaskólanum í Reykja vík, þar sem Magnús er söng kennari, og er platan frekar vel sungin. Aðalgallinn er hins vegar sá, hversu hljóðrit unin er mött, auk þess sem platan er í mono. Sólskinskórinn. Einar Hólni 45. s stereo SG-hljómpIötur Enn ein hljómplatan, þar sem íslenzkum söng er bætt við erlendan undirleik. Og i þetta sinn er það Einar Hólm, sem spreytir sig við lögin „Eldar minninganna" og „Við leiddumst tvö“. Einar er ekki mjög þekkt ur söngvari, en hann var um tima meðlimur í hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar. Hann er þó frekar snjall söngvari, þótt öll hans geta komi hins vegar ekki fram á þessari plötu, en bæði var hljóðritunargerð í flaustri og eins hafði Einar þá ekkert sungið í nokkra mánuði og var því ekki í sem beztri æf- ingu. Við það bætist, að lögin eru róleg og erfið i söng. Er það mjög óvenjulegt, þar sem róleg lög eru oft á tíðum ekki eins vel fallin til vinsælda og hröð lög og lífleg. Með þessar staðreyndir í huga kemur það þvi ekki á óvart, að söngurinn er ekki eins góður og maður hefði getað búizt við, þótt margt hafi heyrzt mun verra á ís- lenzkum plötum. En undirleik urinn er góður, og það hjálp- ar mikið, þannig að þetta er mjög þokkaleg plata, þótt ekki sé hún likleg til að kom- ast á vinsældalista. Pink Floyd: The dark side of the moon. LP, Stereo Fálkinn Pink Floyd er hljómsveit gömul i hettunni, en hefur þó alltaf verið að gera eitthvað nýtt. Tónlistin hefur venjuleg ast verið mjög þung, og á plötum þeirra hefur verið tölu vert af elektróniskum brell- um, sem hljómsveitin hefur dálæti á. Á þessari plötu er hvatt til fegurra mannlífs og bent bæði beint og óbeint á gagns leysi geimferða og raunar allrar tæknidýrkunar. Þrátt fyrir það er tæknin óspart notuð, og eru elektrónisku kaflarnir vissulega með þeim beztu, sem komið hafa á hljóm plötu. En það eru nú ekki all- ir, sem hafa gaman af svona „fiffum", jafnvel þótt þau séu snilldarvel gerð, og ættu þeir hinir sömu þá að forðast þessa plötu, svo og ailir þeir, sem unna kúlutyggjómúsik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.