Morgunblaðið - 06.05.1973, Side 23

Morgunblaðið - 06.05.1973, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1973 23 Guðrún Ólafsson - Minning Fædd 11. jan. 1880 Dáin 29. apríl 1973 1 HVERT skipti, sem ég kem norður í Eyjafjörð og nálgast Akureyri fyllist ég tregablöndn- um fögnuði. Ég fagna því að sjá Kræklingahlíðina, sem er að verða ein samfelld túnbreiða og minnist þá orða föður míns, er hann sagði: „Það verður gaman að fara um Hlíðina, þegar búið er að gera hana alla að velrækt- uðu túni,“ hann sá fram í tim- ann. — Þá fagna ég því að sjá Súlurnar á sínum stað og bless- aða Vaðlaheiðina, sem sífellt verður gróskumeiri, KaMbakur er einnig samur við sig og Sólar- fjöll. Það gleður einnig augað að horfa yfir Möðruvallaplássið og sjá Staðarhnjúkinn breiða út faðminn mðti byggðinni og þann ig mætti lengi telja. Og svo þeg- ar komið er til Akureyrar, leita ég uppi gömlu húsin, sem biða þar eins og gamlir kunningjar, er standa vörð um ljúfar minn- ingar frá æskudögum. Ennþá er Menntaskólinn bæjarprýði og gróðri hefur miðað vel. Ný hverfi verið reist og ýmsar stórbygging- ar risið af gru-nni. Síðast þegar ég gisti Akureyri saknaði ég þó tveggja húsa sem hýstu vini míma þegar ég var unglingur heiima. Það var Strandgata 5, og litOJa. húsið í Barði. Fólki hefur fjölgað á götunum. Einu sinni þekkti ég svo að segja hvert mannsbarn, sem um göt- umar fór, nú mæta mér fram- andi andlit. Ég sakna vina í stað, en skýringin kemur þegar ég reika suður á Höfðann og les letrið á legsteinunum í kirkju- garðinum. Þarna hvíla þeir, vin- ir mínir og kunningjar frá bemsku- og æskudögum, þó koma ekki öll kurl til grafar, mörg leiðin eru ómerkt, aðeins litlar grasigrónar þúfur sem eiga þó sína sögu. Og enn fækfcar vin um á Akureyri. Fyrir nokkrum dögum frétti ég lát vinkon-u minn ar, Guðrúnar Ólafsson, éfckju Ragnars Óiafssonar fyrrum fcaup manns á Akureyri. Verður hún borin upp á Höfðann á morgun og bætist þá eitt vinaleiði við i kirkjugarðinum á Akureyri. Guðrún var orðin háöldruð, fædd á Eskifirði 11. janúar 1880. Foreldrar hennar voru hjónin Þuríður Hallgrimsdóttir frá Hól- um í Reyðarfirði, af Reyfcjahlíð- arætt, og Jón sýslumaður John- sen, sonur Ásmundar Jónssonar prófasts í Odda og Guðrúnar Þor grímsdóttur frá Bessastöðum, sem var systir Grims skálds Thomsens. Ólst Guðrún upp i for eMrahúsum og var allra yndi og eftirlæti, enda frið og góðum gáfum gædd. Sem unglingur naut hún meiri menntunar en þá var títt um stúlkuböm. Á unglingsárum sigldi hún til Danmerkur og dvaldi um tima hjá móðursystur sinni, er var mikilsmetin kona þar í landi. Lærði hún þá ýmsar kvenlegar listir, er kornu henni að notum síðar í lífinu. Eftir heimkomuna til Eski- fjarðar kynntist hún ungum verzlunarmanni, Ragnari Ólafs- syni frá Viðvik á Skagaströnd. Hafði hann dvalizt við skósmíða- nám í Kaupmannahöfn, en lagði þá iðn brátt á hilluna og gerðist verzlunarmaður á Austfjörðum. Þótti það tíðindum sæta, þegar sýslumannsdóttirin á Eskifirði festi ráð sitt og giftist Ragnari 18. júní 1901, þá rúmlega tvítug. Var sá ráðahagur beggja gæfa. Var Ragnar frá byrjun og þar til yfir lauk, frábær heimilisfaðir. Árið eftir að þau giftust fluttust þau til Akureyrar ' og gerðist Ragnar forstöðumaður Gránufé- lagsins þar. Ragnar undi ekki lengi í Gránu. Hann var of mik- ill áhuga- og athafnamaður til þess að lúta annarra stjórn. Hann vildi vera frjáis og öðrum óháð- ur. Og þvi stofnaði hann eigin verzlun, sem blómgaðist meðan líf entist, með hverju ári sem leið. Sem kunnugt er varð Ragn- ar brátt þjóðkunnur fyrir fram- sýni og dugnað. Hann var víð- sýnn og drenglundaður. Lét hann mjög til sín taka um öll fram- íaramál og setti svip á bæinn. Ragnar varð ekki mosavaxinn í Gránu, hann flyzt þaðan eftir 5 ára starf og þá búa þau hjón í gamla Útvegsbanfcahúsinu. En brátt festir Ragnar kaup á húsinu í Strandgötu 5. Var það nýtt hús, sem Jón Norðmann fyr irrennari Ragnars i Gránu, byggði eftir brunann mikla á Oddeyri 1907. Upp frá þvi var þar heimili þeirra hjóna, meðan bæði lifðu. Margar ljúfar minn- ingar eru bundnar við heimilið i Strandgötu 5. Þar var öllum vel tekið, og glaðværð og gest- risni var þar viðhöfð. Guðrún og Ragnar eignuðust 11 börn. Eitt barn mistu þau, lít- inn dreng, Ólaf, er dó i bernsku. Hin 10 komust til manns, enda ekkert til sparað að mennta þau og styðja til manndóms. Lifa þau öl móður sína' Það var í mörg horn að líta fyrir húsfreyjuna i Strandgötu 5. 10 böm á palli, fleiri og færri venzlamenn áttu þar athvarf. Móðir Guðrúnar var þar heimilisföst og Ingibjörg afa systir, eins og hún var kölluð átti þar öruggt skjól, ef því var að skipta, og eins og fyrr getur var gestagangur mikill. Bæði er- lendir og innlendir ferðalangar áttu þangað erindi. En Guðrún húsfreyja æðraðist ekki, þó að I mörgu væri að snúast. Með ör- yggi og ljúfmennsku sá hún heimafólki sínu borgið, og gest- um, sem að garði bar. Hún vissi sem var, að hún átti traustan bakhjarl þar sem húsbóndinn var. Það var því engu að kviða og ölllu óhætt með afkomuna, Guðrún var mjög vel gefin kona og hvar sem hún fór, vakti hún eftirtefct. Hún var falleg kona og gædd óvenjumiklum yndisþokka. Listelsk var hún og unni öllu fögru. Ógrynni af ljóð- um kunni hún. Var óspart tekið á þeirri kunnáttu á góðra vina fundum í Strandgötu 5, því oft kvað þar við söngur og hijóð- færaleikur. Mér er sagt, að hún hafi til hinztu stundar haft yfir kvæði Gríms frænda sins á Bessa stöðum. Einnig greip hún oft til ljóða Matthíasár sér til hugar- hægðar. Dimm ský dró fyrir sólu, þegar húsbóndinn veifctist haustið 1927. Leitað var læknís utan lands og innan en ekkert stoðaði. Ragnar dó 14. sept. 1928. Það var stórkostlegt áfall fyrir aila fjölskylduna, ekki sízt kon- una með stóra barnahópinn sinn. En Guðrún bar harm sinn með stillingu og æðruleysi, þó að harmur hennar væri þungur og sár. I 45 ár hefur Guðrún verið ekkja, og segir það sína sögu. Guðrún átti þvi liáni að fagna að vera heilsuhraust, þar til sið ustu árin að heilsu hennar hrak- aði. Var hún síðustu árin öðru hvoru á sjúkrahúsi og lézt að Kristneshæli 29. apríl s.l. Miklu og merku ævistarfi er nú lokið. Þegar ég frétti lát Guðrúnar brá fyrir ótal leiftrum góðra minninga. Ég sá hana unga og glæsta innan um barnahópinn sinn í Strandgötu 5, ásamt manni sínum fagna góðum vinum. Á góðviðrisdögum sá ég þau hjón þeysa af stað á gæðingunum í fjölmennum kunningjahópi fram al'Ian fjörð „með nesti við bog- ann og bikar með“. Það voru dýrðlegar stundir. Og svo sé ég hana einnig fyrir mér á björt- um sumardegi heima i Svartár- koti, sem stendur við brún Ódáðahrauns, en þá jörð keypti Guðrún eftir að Ragnar dó. Dvaldi hún þar oft á sumrin, sýnir það smekkvisi Guðrúnar, að velja þann stað til sumardval- ar, því óvíða mun fegri útsýn. En Guðrún elskaði íslenzka nátt- • úru. Það yrði of langt mál að telja upp allar þær minningar er að mér sækja, enda tilgangs- laust. En þó að ég geti ekki fylgt Guðrúnu upp á Höfðann við Akureyri á morgun, þá sendi ég henni kveðjur og þakkir fyrir góða vináttu og margar yndis- stundir. Ég treysti því að Ragn- ar hafi beðið Guðrúnar með út- breiddan faðminn á strönd ham- ingjunnar. Guð blessi þig og þína, Guðrún mín. Hulda Á. Stefánsdóttir. — Minning Halldór Framh. af bls. 22 rngin kynni að gera auknar kröf- ur til fcennarains, en fór í þessu eilni elns og öðru sínar eigin Leið- ir án þess að láta stjórnast af viðhorfuim annarra. Þannig af- sannaði Halldór þá fullyrðiingu, sem hann í gamni og alvöru stundum setti fram um sjálfan sig, að hann væri óforbetranleg- ur íhalds- og einstaklingshyggju- maður, enda þótt jákvæð fast- heldni og sjál’fstæði mótuðu eimniig persónuleika hans og væru hornuim eðlislægir kostir. Mér hefur í þessurn línum orðið tíðrætt um Halldór Þórar- insison sem kennara og sam- starfsmann okkar í Langholts- skólanum og um söknuð okkar og missi. Sannast þar enn hið fombveðna, að hver er sjálfum sér næstur. En hversu Mtilvæigur er þrátt fyrlr allt okfcar vandi og söknuður samanborið við þann harm, sem kveðinn er að fjöl- skyldu hans og ástvinum. Aldrei eru orð eins vanmáttug og þeg- ar tjá skal samhryggð á slífcum stundum. En mínar innilegustu samúðarkveðjur sendi ég ást- vinium hans, og eftirlifandi eigin- komu, Helgu Alfonsdóttur, og bömumum þeirra þremur, Þor- gerði og Grétari og ymgstu dótt- urimni, Bryndísi, sem enn er á barnsaldri og var augasteinn föð- ur sins. Þegar tjaldið, sem skilur milli liifs og dauða, fellur, stöndum við flest ráðvillt eftir. Helzta harmabót okkar verður þegiar frá liður mimningin um það sem var og vonin, — þessi óbugamdi von, sem fylgt hefur manmkyn- ím-u frá örófi alda, — vomin um emdiurfundi. Kristján J. Gunnarason. ORÐLAUS sökniuður, máttvana skiilnimgisleysi andspænis rökum llfs og da-uða. Vinur er á burt kallaður, m'nin togin lifir með okkur og leiðir um ófarinn veg. Við spyrjum efcki leimgur í skólan-um: „Hvað le-gguir Halidór tii, hvað finnst Halldóri um þetta?“ Framvegis m-unum við hugsa og segja hvert við anmað: „Hvað hefði Halldór sagt?“ Ég minn.ist kunnáttumanns í s-tarfi, sem geirði miskunnarlaus- ar kröf-ur til sjálfs sín. Ég minn- ist etostæðrar sanmgimi hans og einurðar, þar sem h'n næma rétt- lætiskennd æskuáramna náði að þróast og vaxa í fari fu-llþroska mainns. Ég minnist manns, sem laigði m-etnað sinn og stolt í að verða góður kennari og tókst það frábærlegia. Ég minnist gæfluimanns, sem átti fa-gurt heimlli, konu og börn, sem hann dáði og eiskaði og varð aðnjót- andi þeirrar lifsfyllinigar að hafa fullkomið vald á vandasömu ævistarfi. Þakkarskuld er ógoMin fyrir áralamga hjálpsemi og vináttu þeirra Halldórs og Helgu við okk u>" hjónin. Mikill er missir ykkar, eigin- kona og börn. Megi v'tneskjan um það, sem þið voruð honum í liftau verða ykkur huiggun í harmi og lifandi minning okkar alira urn óvenju sannan og hei-1- steyptan mann milda sárasta tregann. Þökk fyrir le'ðsögnina. Þökk fyrir samiveruna. Erling S. Tóinasson. KVEÐJA ÞAÐ fer ekki hjá þvi, að við svipl-egt fráfall m-anns i blómia iifsins, setj'i að manni geig og harkalega á það minnt, hversiu skammt -getur ver'ð mi-lili lífs og dariða. Þessar hugsianir og bit-ur tregi sóttu að mér, þegar ég stóð framimi fyrir þeirri staðreynd, að Hallldór var kallaður á burt úr hinurn jarðin-eska heimi. Þessar fáu línur eiga ekki að vera eftirmæli í eiginlegu-m skiln imgi, heldur n-okkur kveðju- og þskk-lætiisorð, ekki aðeins til mágs, heldur til trausts vinar, sem ég mat mikiLs. Með HalMóri er kvaddur dremgur góður. SkyMurækni og e'nstök regilu- semi var hon-um í blóð borin o-g mátti hann í en-gu vam-m sitt vita. Meðal þess, sem mér er efst í huga, eru þakkir fyri-r ein- staka umhyggju við foreldra mina alla tíð, frá því leiðir lágu saman. Það var táknrænt fyrir þessa umhyggj-u, að aðeins fáum tímum áð-ur en hann var á brott kvaddur, bar hann í ta-1 við mlg máiefni, sem þei-m skyldi koma til góða. Huigheilar þakkir mínar og fjölskyldu minnar fyrir einlæga vináttu. V ð biðjum þér blessun- ar hans, s-e-m öllu ræðu-r. Þorvarður Alfonsson. KYNNI min af Halldóri Þórar- toissyni, kennara, hófu-st fyrst að ráði árið 1957, er við ásamt fleiruni hófum byggtogu raðhús- anina nr. 8 — 24 við Álfhetaia hér í borg. Vi@ húslbyggjendur kom-umst fljótt að því, að á meðan sam- eigtolegar framkvæimdir stæðu yfir, yrðutm við að hafa af okkar hálfu verkstjórnarmann á vinnu- stað til þess að sjá um daglega stjóm, bæði á vinnu væntanilegra hús-eigenda og a-nnarra. Það varð engto-n ágreiningur um val verk- stjóra-nis, Til þess var Halldór Þórarinsson sjálfkjörinn og hann brást effcki traust-i man-na í þetta sinn frem<ur en í anina-n timia. Þanmig hófust kynni hans við það nágrenni, sem hanin átti eftir að búa við á annan áratug, en á miorgun verður hann kvaddur htaztu kveðju o-g kemur sú ótíma- bæra kveðjustu-nd fyrirvaralaust og óvænt öllum þeim, er hann þekktu. Þótt erfit sé að sætta sig við orðinn hlut, verðuir örlaga- dómnum ekki breytt en hér skuiu ekki þuldar harmia-tölur, það væri í hrópandi mótsögm við skapfestu og karlmennsku þess, aem kvaddur er. Hér verður eklki rakto ævisaga Hallldórs, það rnu-nu vafalaust aðrir gera, enda þekkti ég ekki æsiku- eða uppvaxtarár hans. Ég veit þó, að hanin fæddisit árið 1927 og ólst upp vestur við Djúp, 1-agði lei’ð síma í Kenm-araskóla ís- lands og stumdaði snðan kennslu til ævi’loka. Vafalaus-t hefur hann hafi-ð ævistarf sitt með tvær hendur tómar að verald-arauði einis og svo m-argir af hans kyn- slóð. Hims vegar hlau-t hann í veg- arnesi það, sem mörgum hefur reyn-zt giftudrjúgt, góðar gáfur, samvizkus-emi og giraindva-rlei-k. Ég hygg, að okkur nábúum hans hafii fundizt þes-sir eigi-nleikar eiinna ríkastir í fa-ri hanis, hvort heMur ha-nm vann við húsbygg- togar eða kenmslu, lengs't af var hann kenm-ari við bama- og uingiingaskólann hér i hverfinu, La-ngholtsskólann. Du-gnaður hans og saimvizku-sem-i var sú sa-m-a að hverj-u sem hann gekk. Það kvarta marg- ir u-ndan óstýrilátri æsku nú á dögum og má vel vera, að það sé ekki að ástæðulauau, en hi-flt er mér vel kunnugt, að stjórnleysis gætti ekki í kennslu- stundum hjá Halldóri Þórarins- syni. í upphafi hvers skólaárs gerði hann nemendum símum það fylliiega ljóst, hver væri „verk- stjórinn“ í skólastofunmi og ég held, að nemendurnir hafi fyrir vikið talið hann mann að meiri, a.m.k. hafa allir þeir eldri og nemendur hans, sem ég hef hitt, dáð hann og virt. Veit ég, að nú sakna margir þeirra vinar í atað. HaHldór hafði mikinn áhuga á ýmsurn málum, ekki sízt þjóð- málum. Hann hafði ákveðnar póliitískar skoðanir, sem ekki varð haggað, en hann rökstuddi skoðanir sínar vel að hætti hins slynga reik-ni-ngskeninara. Mér fan-nst hann því skemmtilegur viðmælandi, þóflt sjaldan yrðum við samm.ála, þegar stjórnmálin voru til umræðu. Það fór ekki fram hjá okkur, sem svo mærri bjuggum heimili hams, hvílíkur heimilisfaðir hann var og lét sér annt um fjölskyldu sína. Veit ég fá dæmi slíkrar umhyggjus-emi. Ég vei't, að ég mæli fyrir mun>n nágrannanna, ekki sízt þeirra, sem hófu með honum bygginguna 1957, þegar ég nú flyt Helgu, eftiriifandi komu hanis og börnum þeirra svo og ötllu venzla- og æittfóllki dýpstu samúðarkveðjuir okkar á þessum sorgardegi. Við mnnum jafnan mimnast Halldórs Þórarinss-onar með virðingu og þakklæti. Einar Sverrisson. Hallldór Þórariinisiaon, kennari, lézt að heimili sí-nu í Reykjavík 28. apríi s.l. Hann var fæddur 16. ágúst 1927 i Vatnsfirði í ísa- fjarðarsýsíu. Voru foreldrar hans Þórarinn Einarsson fyrrum bóndi á Látrum og Þorgerður Halldórsdóttir. Voru þau foreldr- ar Halldórg lengi í húsmennsku í Vatmsfirði og síðar í Þúfum í sömu sveit, og ólst því Halldór upp á báðum þessum bæjum, unz hainm hvarf þaðan til náms og starfa annars staðar. Þessi fátæklegu orð eru kveðja frá vinuim og jafnöldrum Halildórs í Vaflnisfjarðarsveit, frá systkinunum í Þúfum, systkto- um hans og öðrum, sem hann ten-gdist v-ináttuböndum. Það e.r kveðja frá sveitinni, sem ól hamn, þar sem ha-nn steig sín fyrstu spor, lærði til verka og bókar og þar sem hann við lok veru sinnar þar, átti sumariangt tiihugalíf m-eð uinnustu sinni, en það er Helga Alfonsdót-tir frá H-niífsdal, sem lifir miann sin-n, ásam't þrem börnum þeirra hjóna, þei-m Þorgerði, Grétari og Bryn- dísi. Æskuvinir og jafnaldrar Hall- dórs í Vat-msifj arðarsvei-t mtonast etostalkrar tryggðar hans og manndyggða og verður vart of fast að orði kveðið um miann- kos-ti- hans. Þeim bar allt dagfar hans og framkom'a fagurt vitn-L Hann var sannarlega bæði hóg- vær og lítillátur. Honum var fátt simmi fjær en að láta á sér be<ra og fliíkaði sízt hæfiLeilkum sinum. En þeir munu hafa birzt í rík- um mæli í störfum hans, en hann var um langt skeið kemniairi við Langholtss-kóla og eignaðist þair tryggð og virðtogu nemenda s-taina. Munu aðrir hæfari mimn- ast starfa han-s þar. Við, sem kynintuimist Halldóri Þórarinissyni, mnnum lengi mton- asit h-ans og fágætra mannkos-ta hainis. Við þökkum fyrir að hafa miáíflt verða homum samferða um skeiið, þótt nú hafi ífkilið leiðir. Leið o'kkar, sem eftir er, verður mú ekki söm og áöur. á. s.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.