Morgunblaðið - 06.05.1973, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAl 1973
Mænusótt-
arbólu-
setning
ÁRLEG mænusóttarbólusetning:
Heilsuverndarstöðvarinnar stend
ur að þessu sinni frá 7. til 30.
maí, alla virka daga, nema laug-
ardaga, kl. 16—18, og er inngang
ur frá baklóð stöðvarinnar.
Ónæmisaðgerðin er ætluð
fóllki frá 18 ára aldiri sem ékki
hefur látið bólusetja sig sl. 5 ár
eða lét bólusetja sig sl. vor og
var sagt að koma aftur að ári.
Bólusetnmgin er ó'keypis. Sterk-
ar líkur eru á, að slík bólusetn-
ing veit'í ekki vörn gegn sjúk-
dómnum nema í 5 ár, og er þvi
talin hætta á, að þó nokkur hluti
almennings sé óvarinn fyrir veik
inni, þar sem hún hefur ekki
gengið hér síðan 1955, þar sem
það tók hana hvorki á unga
aldri né hefur nægilega vöm
vegna bólusetninga.
Kaffisala
í Grensás-
sókn
FÁ ORÐ hafa fegurri hljóm í
islenzkri tungu en orðin vor og
sumar. Saga þjóðarinnar geymir
margar frásagnir af erfiðleikum
vegna óblíðrar veðráttu og ógur-
legra náttúruhamfara. Liðinn vet
ur hefur enn minnt á þessar
gömlu staðreyndir. En þjóðin
'hefur aldrei látið bugast. Á hverj
um vetri hafa menn horft fram
til vorkomunnar og ieitað vor-
boðanna. Og þegar þeir komu,
lyftist brúnin á mörgum bóndan
um, bjartsýnin jókst og hann
fékk nýtt afl til átaka.
Við, sem nú lifum, eigum að
mörgu leyti auðveldari Mfsbar-
áttu en forfeðurnir. I>ó lifir þessi
tilfinning enn með þjóðinni. Enn
er glaðzt yfir sumarkomu, sum-
ardagurinn fyrsti er einn af há-
tíðisdögum ársins. Og enn þykja
það fréttir, er fyrstu faríuglar
vorsins birtast. Þá er vorið ör-
uggiega í nánd.
Seinustu árin hefur nýr vor-
boði bætzt í hóp hinna gömlu
hér í borginni. Það eru kaffisöl-
tu- hinma margvíslegustu félaga:
samtaka, og auðvitað fara kven-
félögin þar í f ararbroddi eins og í
flestu öðru félagsstarfi. Ein'k-
um munu það vera kvenfélög
hinna ýmsu safnaða og Mknar-
félaga, sem hér láta að sér
kveða.
Tilefni þessara Mna er það, að
á morgun, sunnudaginn 6. mal,
býður Kvenfélag Grensássóknar
sóknarfólki og velunnurum safn-
aðarins til kaffidrykkju eins og
undanfarin vor, en að þessu sinni
á nýjum stað. Eftir að safnaðar-
heimilið var tekið i notkun, hefur
starfsemi félagsins færzt þang-
að. Þess vegna verður kaffisalan
í safnaðarheimilinu og stendur
miili kl. 3 og 6 síðdegis. Guðs-
þjónustutíminn breytist jafn-
framt og verður kl. 11 i sumar.
Ég veit, að ég þarf ekki að fara
mörgum orðum um gildi þess
starfs, sem Kvenfélag Grensás-
sóknar vinnur í sókninni. Það
þekkja kunnugir. Aðeins langar
mig til þess að hvetja fólk ti'l
þess að sækja kaffisöluna og
styrkja starf félagsins, um leið
og það nýtur hinna alþekktu veit
inga. Með þvi leggið þið lið því
starfi að fuliigjöra hið nýja safn-
aðarheimili. Jónas Gíslason.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
UM kl. 11.30 á föstudagsmorgun
var bakkað á bláa Ford-sendibif-
reið, G-2578, við svæði Bifreiða-
eftirlitsins í Reykjavík, Stein-
túnsmegin, og dælduð vinstri
hlið hennar aftán til. Þéir, sem
kynnu að geta gefið upplýsingar
uim ákeyrsluna, eru beðnir að
láta rannsóknarlögregliuna vita.
Skákmót
í Hafnarfirði
NÝLOKIÐ er skákmóti, sem hið
nýstofnaða Skákfélag Hafnar-
fjarðar gekkst fyrir. Sigurveg-
ari varð Sigurður Herlufsen.
Hann hlauf 8 vinninga. 1 öðru
og þriðja sæti urðu þeir Garðar
Ástváldsson og Grimur Árssels-
son með 7 vinn. hvor. Helgi Elen
tinusson hlaut 6 vmninga, Jón
Jóhannsson 514, Bjarni Linnet og
Júlíus Karlsson 5 vimininga hvor.
Haraldur Magnússon, Jóhann
Jónsson og Ársæll Gunnarsson
hlutu 4% vinn. hvor.
Þátttakendur voru 20 og tefld
ar voru 9 umferðir eftir svo-
nefndu Monrad-kerfi.
Hraðskákmót á vegum skák-
félagsins fer fram í dag i sal
Iðnaðarmannafélags Hafnarfjarð
ar við Linnetsstig og hefst kl.
14.00. Öll'um er heimil þátttaka.
(Prá stjóm Skákfélags Hafnar
f jarðar).
Framhald af bls. 1
mílna markanna. Er haft fyr-
ir satt í London, að flotinn
hafi tilbúna áætlun um það,
hvernig eigi að bera sig að á
íslandsmiðum, verði herskip
send þangað. Ein ráðagerðin
gengur út á það, að sagt er,
að senda þangað freigátur, er
stöðugt fýlgist með varðskip
unum íslenzku — og reyni
þau að náigast togara, skuli
freigáturnar sigla milli og
draga á eftir sér stálvíra, sem
eiga að fanga skrúfur varð-
skipanna. Ekki hafa þessar
sögusagnir fengizt staðfestar.
Ðagblaðið ,,Guardian“ sagði
Tónleikar
í kvöld
TÓNLEIKAR verða í dag haldn-
ir á veguim Tónskólans í Reykja-
vík í Háteiigskirkju og hefjast
þe:r kiukkan 21. Á efnisskrá tón-
leikainna verða sembalverk eftir
WiMiam Byrd og J. PH. Rameau
og leikur Elin Guðmrindsdóttir
á sembal. Síðan verða sónata í
c-mioll eftir Telemamn fyrir
fla'utu, fiðlu, fagot og sernbal.
þar leáka Freyr Sigurjónsson,
Liiija Hjaltadóttir, Rúnar H. Vil-
bergsson og Elín Guðmu ndsdótt-
ir. Eftir hlé verða leifcnir sex
þættir úr Oratoriunni eftir
Messías eftir G. F. Hándel, kór
og hljómsveit Tónlistarsikólans
flytja. Stjórnendur hinna sex
þátta eru Elínborg Sigurgeirs-
dótt'r, Ágúst Ármann Þorláks-
son, Áslaug Bergsteinsdóttir,
Anma Stefánsdóttir og Jón Krist-
imn Cortez.
í morgun, að vandséð væri
hvernig brezka stjórnin fengi
lengur staðizt kröfur þing-
manna um íhlutun flotans.
Patrick Kethley skrifar:
„Verði manntjón meðal brezku
sjómannanna má búast við
því, að flotinn grípi til gagn-
aðgerða og þá getur þessi
„striðsleikur“ orðið alvara."
Aðrar heimildir herma þó,
að brezka stjórnin muni halda
áfram að reyna að leysa mál-
ið eftir diplómatískum leiðum.
Er gert ráð fyrir, að Sir Alec
Douglas-Home, utanrikisráð-
herra, taki það til athugunar
og endurskoðunar í næstu
viku.
Athugíð
Hjón með tvö stálpuð börn óska eftir að komast út
á land, margt kemur til greina.
Til greina kemur skipti á íbúð í Reykjavík.
Tilböð merkt: „Framtíð — 8446“ sendist Mbl. fyrir
15. maí n.k.
Skíðafélag Reykjavíkur og íþróttafélag kvenna skipulögðu
skíðagöngu fyrir trimmara uni páskana. Þrátt fyrir að þoka
væri til fjalla og veður ekki hið bezta létu þó 350 áhugasamir
trimmarar veðrið ekki aftra sér. Göngubrautirnar voru vel
merktar með trinunkarlinuni eins og sést á meðfylgjandi mynd.
— Hert á kröfum
Skálatúnsheimilið
í Mosfellssveit.
Sýning Skálatúns verður í Norræna husinu 6. maí.
Opið frá 2-—10.
Verið velkomin.
V erz/unarstjóri
Óskast í varahlutaverzlun. Framtíðarstarf með góð-
um launum fyrir réttan mann.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um fyrri
störf sendist Mbl. fyrir 12. þ.m. merkt: „8100“.
Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem algjört trún-
aðarmál.
HUN HEFUR
GRENNZT!!
og það meira
en lítið
Fjöldamargir islertdingar hafa
sannreynt notagildi D. I.
grenningarfatanna og árang-
urinn orðið stórkostlegur á
tiltölulega stuttum tíma.
BEZTU MEÐMÆLIN
Stöðugt berast okkur bréf frá
kunningjum þeirra, sem notað
hafa grenningarfötin, með ósk
um grenningárföt til kaups,
enda séð árangurinn með
berum augum.
Látið ekki hjá líða að senda
okkur afklippinginn hér að
neðan og munum við senda
yður rtánari upplýsingar um
hæl.
Vinsamlegast sendið mér litmyndabækling yöar og nánari
upplýsingar um D. I. GRENNINGARFÖTIN mér að kostn-
aðarlausu og án skuldbindinga frá minni hálfu.
Nafn:
Heimilisf:
Sætaáklæði (cover)
á allar tegundir bifreiða
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem,er.
Fyllið út meðfylgjandi miða og fáið póstsent
sýnishorn og verð.
CANDELA H/F.,
Höfðatúni 4
Pósthólf 5161 R.
Nafn:
Heimilisfang:
Pósthús:
Tegund og árg. bifreiðar:
KOMIÐ -SKRIFIÐ - HRINGIÐ
Candela hf.
Höfðatúni 4.
Pósthólf 5161
Simar 10470 — 12465