Morgunblaðið - 19.05.1973, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1973
Eliszabet Ferrars:
Samferrfa i darjriann
ið heim og saman. Hafi þessi
ungi maður verið Roderick, hlýt
ur hann að hafa ekið þaðan
beint heim til Meredith. Hann
hefði alls ekki haft tíma til
neinna útúrkróka. Og ef Mere-
dithhjónin báru það, að hann
hefði alls ekki farið þaðan að
heiman fyrr en næsta morgun,
þá var Creed reiðubúinn að
trúa því. Hvenær hefði Roder-
ick þá getað gefið frænku sinni
rósirnar? Var það hugsanlegt
að hún hefði beðið í bílnum með
an hann keypti rósirnar, og
hann svo gefið henni þær strax
síðan sleppt henni einhvers stað
ar á leiðinni og hún farið heim
til sín ein, eða kannski með ein-
hverjum öðrum? Væri svo,
hvers vegna hafði Roderick þá
ekki sagt frá því ?
Allt í einu datt Creed nokk
uð nýtt í hug. Hafði Margot Dal-
ziel verið dauð í bíl frænda síns
þegar hann keypti blómin?
Hafði hann fleygt líkinu i ein-
hverja tjöm eða skóg skömmu
SJÍnna og svo einhvern veginn
getað komizt í húsið hennar og
gengið þar frá öllu þannig, að
það liti út eins og þar hefðu ein
1./er átök átt sér stað? Blóm í
stofunni gerðu þetta sennilegra
af þvi að vitað var, að henni
þótti vænt um blóm. En uvenær
hefði hann bara getað komið
öllu þessu af? Um hánóttina
kannski? Nei, ekki nema því að
eins að unga konan hans væri í
vitorði með honum. Nú, það var
ekkert óhugsandi, að hún hefði
verið það, en það var bara erf-
itt að hugsa sér nokkum til-
Tilboð óskast
í Le Roy loftpressu, 600 cubic-fet, er verður sýnd
að Grensásvegi 9 næstu daga.
Tilboð verða opnuð í skrifstofu vorri, fimmtudaginn
24. maí kl. 11 árdegis.
SALA VARNARLIÐSEIGNA.
STJÖRNUGRÓF 18 SÍMI 84550
TRJÁPLÖNTUR
Brekkuvíðir og
birki í limgerði.
gang með þessu. En það væri nú
samt réttara að athuga það.
Hefði hún ekki verið i vitorði
með honum væru tvær mínútur
eini tíminn, sem Roderick var
einn 'i húsinu. Það voru þessar
t/ær mínútur eða svo, sem hann
halði verið inni, meðan Jane tal-
aði við ungfrú Hardwicke. Þá
hafði hann tekið eftir óreiðunni
inni. Og þeirri óreiðu hefði eng-
inn maður getað Komið i kring
á tveimur minútum.
Var þá rétta skýringin sú, að
Roderick hefði keypt þessi blóm
handa tengdamóður sinni? Eða
var kannski um tvo blómvendi
að ræða?
Creed nísti tönnum. Hvers
vegna hafði honum eiginlega
dottið þetta í hug? Rétt eins og
ekki væri nóg af blómum fyrir i
málinu, krýsantemum og dalí-
um, þó að ekki þyrftu að vera
tveir rósavendir í stað eins. En
þetta var bara svo einföld skýr-
ing og miklu liklegri en nokkur
önnur. Og nú, úr þvi honum
afði dottið hún í hug, þá varð
hann að rannsaka hana, hann
þyrfti að spyrja gömlu gribbuna
spjörunum úr og kannski verða
fyrir aðhlátri og aðfinnslum,
sem hún var vís til að hella yfir
hann, hvort sem hann hefði á
réttu eða röngu að standa. Hefði
1-ann á réttu að standa, mundi
hún ha >ast að honum fyrir að
hafa ekki séð þetta strax, en
hefði hann á röngu að standa,
þá fyrir það að hafa nokkurn
tíma látið sér detta þetta í hug.
Creed greip símann þreytu-
lega og sagði, að nú gæti hann
talað við hr. Dalziel.
Ungi maðurinn, sem hafði áð-
ur verið með Creed, kom nú
inn með Dalziel. Creed gaf hon-
um bendingu um að vera kyrr
inni, og bauð Dalziel stól.
— Mér þykir leitt, að við
skyldum farast á mis, sagði
hánn, —- og þvi miður höfum
við engar góðar fréttir að færa
af systur yðar.
— Hafið þér yfirleitt nokkrar
fréttir? spurði Dalaiel. Hann
horfði rannsakandi á Creed.
Svo krosslagði hann fæturna
og horfði á tána á öðrum skón-
um sínum.
— Ekkert ákveðið, er ég
hræddur um, sagði Creed.
— Þessi hræðilegi atburður
með Applinkrakkann. . .
— Já, hvað um það?
— Það getur vist ekki staðið
í neinu sambandi hvort við
annað ?
— Hvers vegna ætti það ekki
að geta verið? sagði Creed.
— Það er þá eitthvert sam-
band. . . ?
í þýóingu
Páls Skúlasonar.
til kynferðisglæps, ef þér eigið
við það, sagði Creed — og það
gefur vitanlega ástæðu til að
halda. . . Hann yppti öxlum.
Dalziel leit snöggvast upp og
síðan aftur á skóinm. — Ég skil,
sagði hann. — Já. . . Jæja, vilj-
ið þér ekki spyrja mig einhvers,
fulltrúi? Ég var þarna á staðn-
um, skiljið þér. Ég var í húsinu,
þegar það gerðist. Það er að
segja, þannig er mín saga. . . .
En enginn getur víst sagt yður,
hvenær ég kom þangað. —
Þetta er gengið beint að efninu,
sagði Creed og brosti ofurlítið
vandræðalega. Hann var alltaf
varkár gagnvart mönnum, sem
vildu láta allt koma heim og
saman, enda þótt enginn spyrði
þá. — Getið þér útskýrt þetta
eitthvað nánar?
— Já, til þess kom ég hingað,
sagði Dalziel. — Ég vildi segja
yður hvers vegna ég kom þang-
að. Mér datt í hug að líta dálít-
ið nánar á bækur systur minn
ar. Sumar þeirra eru talsvert
verðmætar, svo að það er hæp-
ið að skilja þær eftiir í húsi,
sem er oftast mannlaust. En þær
eru þar nú samt. Svo að mér
datt í hug, að það væri ómaks-
ins vert að athuga, hvort þær
væru þar enn — aliar. Mér datt
ekki í hug að gera þetta í leyni,
en þar sem enginn svaraði, þeg-
ar ég hringdi og ég fann, að
dyrnar voru ekki læstar, þá
þótti mér það ekkert miður. Ég
gekk bara inn og íór að athuga
bækurnar. Ég sá strax, að
nokkrar þeirra vantaði. M.a.
tvær bækur eftir Newton. Verið
getur að fleiri séu horfnar, en
ég athugaði það ekki nánar. Ég
athugaði þær bara eftir minni,
en svo var ég truflaður von
bráðar. Fyrst kom frú Dalziel ut
an úr garðinum. En hún kom
inn bakdyramegin og dokaði
eitthvað í eldhúsinu, svo að ég
vakti ekki athygli hennar á þvi,
— Það er ekkert, sem bendir
Hestomannolélagið Mdni
heldur sína árlegu firmakeppni, laugardaginn 19.
maí 1973 á Mánagrund við Garðveg.
Hefst hún klukkan 14.00.
DAGSKRÁ:
1. Hópreið Mánafélaga.
2. Keppni í A-flokki um Kaupfélagsbikarinn.
3. Keppni i B-flokki um Sörlabikarinn.
4. Keppni unglinga innan 16 ára.
Verðlaunapeningar.
Fjáröflunarnefnd MÁNA.
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
0 Sala
prestsseturshúsa
Hér er bréf frá séra Þorbergi
Kristjánssyni, presti í Kópa-
vogi:
„1 Lesendaþjónustu Morgun
blaðsins í dag, 17. maí, er fyr-
irspum varðandi sölu prests-
seturshússins við Garðastræti,
svo og svar stjómarráðins, þar
sem sala þess er boðuð.
Þetta er annað húsið i
Reykjavík, sem bótalaust
er tekið af kirkjunni nú á
skömmum tíma. Þótt öðrum
standi það ugglaust nær, finnst
mér ekki unnt að láta þetta við
gangast, án þess að mótmælt sé
opinberlega þessari eignaupp-
töku.
0 Prestssetur hafa
sérstöðu
Allar eigur kirkjunnar eru
að vísu í umsjá ríkisins, en á
móti leggur það henni nokkurt
rekstrarfé. Prestsseturshúsin
eru byggð fyrir hluta
þess rekstrarfjár, sem rlkið hef
ur lagt kirkjunni til. Séu þau
af henni tekin gegn vilja henn-
ar virðist mér um beina vald-
niðslu að ræða. Hér skal ekki
orðlengt um þetta mál, en að-
eins undirstrikað, að prestsset-
urshús hafa algera sér-
stöðu meðal embættisbústaða —
eru þýðingarmikill hluti af
starfsaðstöðu prestsins. Einstak
ir prestar kunna að vera svo
efnum búnir, að þeir geti lagt
sér þessa starfsaðstöðu til, en
ég trúi því ekki, að söfnuðim-
ir á Reykjavíkursvæðinu ætl-
ist til þess, að prestar þeirra
reki embætti sin á eigin kostn-
að, þannig að það verði raun-
verulega ekki öðrum fært en
efnamönnum að þjóna þeim.
0 Embættismannabústaðir
í nágrannalöndunum
Við vitnum oft til þess, sem
gerist með öðrum þjóðum, og
þá ekki sízt á Norðurlöndum.
Af því er skemmst að segja, að
þar eru sóknarprestum alls
staðar lagðir til embættisbú-
staðir og sums staðar hafa þetr
þó sérstakar skrifstofur að
auki. Að vísu mun nokkuð á
það skorta nú, að Kaupmanna-
hafnarprestar hafi allir eigin-
lega embættisbústaði, en þeim
útvega söfnuðimir þá hæfileg
hús. Húsaleigustyrk hafa þeir
að sjálfsögðu.
1 Danmörku hefur nú annars
um sinn verið rætt nokkuð um
endurskoðun á lögum um emb-
ættisbústaði almennt, en eng-
um ábyrgum aðila mun hafa
komið til hugar að hrófla við
prestsseturshúsum i þvi sstm-
bandi.
Séra Þorbergur Kristjánsson."
0 Á að kaupa köttinn
í sekknum?
Maður nokkur, sem sagðist
vera gagnrýninn neytandi,
hringdi. Hann sagðist hafa les-
ið spumingu og svar við henmi
í þættinum „Spurt og svarað“
hér í blaðinu síðastliðinn
fimmtudag. Þar hefði verið innt
eftir því, hvers vegna kartðíl-
ur væru ekki hafðar i glær-
um plastpokum svo að kaup-
andinn gæti séð vöruna áður
en hann festi kaup á henni.
Svar forstjóra Grænmetis-
sölunnar var það, að kartöfl-
ur geymdust Mla í slíkum um-
búðum, sem auðvitað er alveg
hárrétt. Það, sem bæði spyrj-
andi og svarandi virðast þó
ekki hafa komið auga á í þess-
um bollaleggingum er það, að
auðvitað á neytandinn skilyrð
islausa kröfu á að fá
að sjá vöruna áður en hann
kaupir hana, þótt ekki sé hún
seld í plastpokum. Kaupmanm-
inum ber sem sé skylda til
þess að opna hina rammgerðu
pappírspoka og sýna kaupand
anum innihaldið óski hann
þess.
Til sölu Camaro '72
mjög fullkominn.
Upplýsingar í síma 83874 milli kl. 19-—20.
Skósmiðir — útvarpsvirkjar
og fleiri
Um 50 ferm. húsnæði til sölu eða leigu í verzlunar-
húsinu Hólmgarði 34.
Upplýsingar í síma 34129.
Humarbátur
Til leigu er mb. Reykjaröst GK 17 104 tonn.
Upplýsingar í símum 8086 og 8043, Grindavík.
íbúð til sölu
Til sölu er 3ja herbergja sólrík og skemmtileg íbúð
á 3. hæð við Skúlagötu. Selst milliliðalaust.
Uppl. í síma 16890 eftir kl. 5 í kvöld og næstu kvöld.