Morgunblaðið - 21.06.1973, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 21.06.1973, Qupperneq 20
 20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 1973 íbúð til sölu 4ra herb. íbúð til sölu í Álfheimum. (búðin er laus nú þegar. Upplýsingar í sima 30246 eftir kl. 5 í dag. Roðhús í neðro Breiðholti Höfum í sölu bráðskemmtilegt raðhús á 2 hæðum í Breiðholti I. Húsið skiptist í stofur, 4 svefnherbergi, húsbóndaherbergi, fallegt eldhús, glæsilegt bað, gestasnyrtingu, þvottahús og geymslur, bílskúr, auk óráðstafaðs pláss í kjallara. Frágengin lóð. Mögu- leiki á 2 íbúðum í húsinu. Góð eign á hagkvæmu verði. Nánari uppl. í skrifstofunni, ekki í síma. PÉTUR AXEL JÓNSSON lögfræðingur, Öldugötu 8. Tilboð óskast i að grafa fyrir nýbyggingu við Fjórð- ungssjúkrahúsið á Neskaupstað, steypa upp neðri kjallara hennar og gólf efri kjallara, ásamt pípu- lögnum fyrir rafmagn. Útboðsgögn verða afhent á eftirtöldum stöðum gegn 5.000,00 kr. skilatryggingu: Skrifstofu Inn- kaupastofnunar ríkisins, Borgartúni 7, Rvík og á skrifstofu sjúkrahússins á Neskaupstað. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, þriðjudaginn 10. júlí kl. 15.00. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Norsku skuttogararnir Á ÞJÓDHÁTÍÐARDAGINN 17. júrní sl. birtist frétt í Mbl. um skuttogara Þormóðs ramma á Siglufirði, sem nú er veirið að smíða hjá Stálvik hf. í Garða- hreppi. í fréttinni eru hafðar eftir forstjóra Stálvíkur hf., Jómd Sveiinssyni, rangar og vill- andi upplýsingar um stærð, verð og búnað norsku skuttog- aranna, som undanfarið hafa kornið til Vestfjarða. Af þessu tiiefni óskum við að taika fram eftirfarandi, til þess að leiðrétta helztu missagnir forstjórans: 1. í fréttinini kali'ar Jón Sveins- son norsku skuttogarana „systurskip Stálvikurtogar- ans“. Það er heldur óveinjulegt og nánast nýmæli, að kalla skip „systurskip", sem ekki eru byggð eftir sömiu .teikn- ingu og hafa þar að auiki ekki sömu stærðarhliutföll. Norsku togaramir eru 9,5 metra breiðir, en Stálv i.ku rtogarinn 9,0 metra breiður. Norsku tog- aramir eru þvi verulega stærri. 2. í fréttinni staðhæfir Jón Sveinsson, að norslkiu togar- amir kosti 155 milijónir króna. Stálví’kurtogarinn kosti aftur á móti 147 mildjónir króna og sé þvi 5% ódýrari en þeir norsku. Sannleikur málsins er, að meðalverð þeirra þriggja norsku togara, sem komnir eru til landsins, er 9.070 þús. norskar krónur með lántölkuikostnaði og öðrum út- gjöldum erlendis eða með núv. gengi 1624,00 á norskri krónu 147 millj. króna. 1 þessu sam- bandi er rétt að taika fram, að 20% af verði skipanna var yfirfært á lægra gengi. Læfck- ar byggingarkostnaðurinn um 5 millj. króna af þeim sökum, an við bætist heimsiglinigar- kostnaður um 1,5 millj. króna. Raunverulegt kostnaðarverð sicipanna í dag er þvi 143,5 miffljómir króna eða 11,5 mállij. kr. lægra en Jóm Sveinsson staðhæfir. 3. Þá er haft orðrétt eftir for- stjóranum: „Þessi skuttogari er jafn stór og þeir norsku og tækjabúnaður sá sami.“ Eins og fram kemtur hér að framan er Stálvíkurtogarinn V? metra mjórri en þeir norsku. 1 norsku togurunum er einnig ýmis búnaður og tæflri, sem eklki verður í Stáiví'kurt.ogar- anum. Má í þvi sambandi nefna, að í norsku togurunum eru sérstakir veltitankar, sem draga mjög mikið úr veltu skipsins og gera því öil vinnu- slkilyrði betri um borð í slkip- unum. Þeir eru búnir sérstakri vindu fyrir flottroliið, sem gerir mikllum mun auðveldara að skipta um veiðarfæri. 1 norsku togurunum er eimari, sem eimar vatn úr sjó. m. a. til ísframleiðslunnar, isgeymir og blásiturskerfi, sem flytur ísinn um lestina. Vafalaust mætti telja til fleiri atriði, en þetta verður látið nægja. Elkilri sýnist óvariegt að áætla, að Stáflviiburtogarirun hefði orðið 25—30 millj. krónum dýrari en norsku togaramir, ef hann hefð: orðið „jafn stór og þeir norslcu og tækjabúnaður sá sarni". 4. Um fráganginn hefir forstjór- inn þetta að segja: „Frágang- ur á íslenzkum skipum er al- menmt vandaðri en gerist á skipum, sem smiðuð e-ru fyrir okkur erlendis." Því m:ður hafa komið fram gaiiar á nokkrum þeirra skipa, sem smíðu’5 hafa verið fyrir okbur erlendis, en það verður að teijast hæpið, að teija það al- menna regBiu að svo sé. Til þess að geta fullyrt siikt, þurfa menn a. m. k. að hafa skoðað hlutina, sem þeir eru að bera saman. Okkur vitan- lega hefir Jón Sveinsson aldrei skoðað norsku togarana, sem honum verður svo tíðrætt um, og getur því ekkert staðhæft í þessu efni. 5. Rétt er það hjá Jóni Sveins- syni, að „oft þarf að gera viðamiklar breytingar á skip- uim smiðuðum erlendis, þegar þau koma til iandsins og því fyligir oft mikil'l kostnaður". Við viljum hins vegar benda honum á, að norsbu togar- amir hafa aMi r farið á veiðar tveim sóla'rtirin'gum eftir að þeir komu tl heimahafnar eða strax og afgreiðstiu þeirra hefir verið lokið. Þeir hafa því ekki tafizt frá veiðum vegna breytinga og endurbóta. Rétt er, að það komi fram, að áður en gengið var frá samning- um um smíði norsbu togaranna var leitað eftir tilöoði frá Stái- víik hf. Því miður reyndist það tiliboð verulega óhaigstæðara en hið norska. Það er áreiðaniega einlæig von alllra, að islenzikum skipasmíðaiðnaði vaxi svo fiskur um hrygg á komamdi árum, að hann verði samkeppnisfær um verð við erliendar skipasmíða- stöðvar. I sambandi við þær skipasmíðar, sem hér hefir verið rætt um, virðist vanta nokkuð á; að svo sé. Sá munur er ennþá meiri en svo, að m:ssagnir Jóns Sveinssonar geti brúað það bil. Honum væri hollara að hafa að leiðarljósi ískenzika spa'kmælið: Lofaðu svo einn, að þú lastir ekki annan, næst þegar hanin skýrir blað&mönnuim frá verk- um sínum. Isafirði, 18. júní 1973 Birgir Vaidimarsson Jón Páll Halldórsson Börkur Ákason. - Siðvæðing og fuglar Framhald af bls. 17. vaxandi eiturlyfjaneyslu áfengisdrykkju og glæpi að dómi höfunda, á að koma þetta nýja samfélag „myndað úr félagslega sjálfstæðum og sér nógum einingum." Til að fullnægja andlegum þörfum þegnanna á fólk að vinna skammt frá heimilum sínum og „bera sjálft ábyrgð á e gin stjórn, skó’akerfi, rekstri sjúkrahúsa og almannatrygg- inga.“ Ekki gefst tækifæri til að rekja hinar mörgu Oig for- vitnilegu tillöigur höíunda He'ms á helvegi, sem telja hóflausan hagvöxt hina miklu meinsemd. Ségja má að þeir brjóti til mergjar marga þætti nútíma lifnaðarhátta og finni þar fátt til fyr'rmyndar. Til þess að hugsjónir þeirra verði að veruleika þarf hugarfars- breyting að eiga sér stað, kapphlaupið mikla um ver- aldleg gæði að stöðvast. Heim ur á helvegi er bók, sem á það skilið að vera lesin af öllu hugsandi fólki. Vamaðarorð höfundanna eru ekki töluð út í bláinn. Fuglabók AB er kom'n út í nýrri og handhægri útgáfu. Þessi bók er svo gagnleg öll- ura, sem vilja þekkja um- hverfi sitt, að óþarft ætti að vera að benda á gildi hennar. Ég vil aðeins gera þá játn- ingu að þetta er sú bók, sem ég vildi einna sist missa úr bókaskápnum og á ferðalöig- um er hún uppspretta margra áinægjustunda. Rithöfundar hafa sótt í hana ómetanlegan fróðleik ag leiðbe ningar. Þeir, sem yrkja stundum um fugla, eða þýða ljóð um fugla, eru ekki síst þakklátir fyrir þessa bók Iðnaðarhúsnæði óskost 100 — 110 ferm. með góðri innkeyrslu. Upplýsingar í síma 11539 eftir kl. 7. 4rn herb. íbúð í Hafnar' rði til sölu, um 100 ferm íbúð á jarðhæð í tvíbýlishúsi (steinhúsi) við Háukinn. Sérhiti, sérinngangur og sérþvottahús. Ibúðin er um 15 ára gömul. Hag- kvæmt lán áhvílandi. Verð um kr. 2,5 millj. ARNI GUNNLAUGSSON, HRL. Austurgötu 10, Hafnarfirði. Sími 50764. Vesturbœr Húseignin Túngata 39 er til sölu. Húsið er 65 fm, 2 hæðir, kjallari og bílskúr. Nánari upplýsingar gefur MALFLUTNINGSSKRIFSTOFA Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar, Guðmundar Péturssonar, Axels Einarssonar. Aðalstræti 6, III. hæð. Sími 26200.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.