Morgunblaðið - 03.07.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.07.1973, Blaðsíða 2
MORGUNÍBLAÐiÐ, URÍÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 1973 Kópavogur: Andrés Kristjánsson ráðinn fræðslustjóri Lætur af starfi ritstjóra Tímans innan tíöar BÆ-IABSTJÓRN Kópavogs hef ur samþykkt að ráða Andrés Kristjánsson, ritstjóra Tímans, í stiiðu fræðslustjóra Kópavofrs. Andrés sagði í viðtati við Mbl. í gær, að hann myndi væntan- lega taka við hinn nýja starfi itnnan tíðar og þá jafnframt láta af starfi ritstjóra hjá Tíman- um. Hann hefur um rvokkurt skeið ritstýrt Sunnudagsiblaði Tímans. — Andrés verður fræðslustjóri í stað Karls Guð- jónssonar, sem Uéat fyrir nokkr- um mánuðum. ' ' • 1 Jon i. x y' i;- ; 'X’.y Friðjón Magnús Þorvaldur >» Islandsvinir í Þýzkalandi: Söfnuðu um 800 þús. kr. til Vestmannaeyja OSWALD Dreyer-Eimbcke, nýskipaður ræðismaður ís- lands í Hamborg, afhenti i gær bæjarsjóði Vestmanna- eyja um 23.700 þýzk mörk, eða nni 800 þúsund íslenzkar kr., sem söfnuðust í söfnun fslandsvinafélagsins í Þýzka- landi vegna hamfaranna í Vestmannaeyjum. í viðtali við Mbl. sagði ræðjgm aðu rinn, að félags- menn hefðu með þessu vilj- að sýna, að þjóðirnar væru bundnar frilðarböndum og að íslendingar ættu rni'kla samúð meðal Þjóðverja, eins og alltaf áður. íslandsvinafélagið var stofn að 1952 og eru nú í því um 200 féiagsmenn. Það hefur gengizt fyrir fyrirlestrahaldi um fsland og sýningum og einnig ferðum til fslands. Hef ur félagið átt góð samskipti við félagið Germaníu í Reykja vík. 03wald Dreyer-Eimbcke er sonur Enrst Dreyer-Eimbcke sem verið hefur ræðismaður fslands í Hamborg um langt skeið. f hófi, sem Ernst hélt í tilefni af þjóðhátíðardegi ís- lands, færði dr. Sverrir Schopka, formaður Félags ís WSiss Oswald Dreyer-Eimbcke, ræðisniaður lendinga í Hamborg, honum bókina ís og eldur eftir Hjálm ar R. Bárðarson að gjöf frá. íslendingum, búsettum í Ham borg, og þakkaði honum fyrir stuðning við félagið. Jafn- framt bauð hann hinn nýja ræðismann velkominn til starfa. Héraðsmót Sjálfstæð- isflokksins hefjast um næstu helgi Verða þá í Breiðabliki, Tjarnarlundi og Sævangi Héraðsmót Sjá 1 fstæðiisflokksi ns UM næsitu helgi hefjast héraðs- mót Sjál fstæðils flók)ks ins á þesisu su/mri og verða þá haldin þrjú mót seim hér segiir: Breiðabliki, Snæf. föstudaginin 6. júlí kl. 21:00. Ræðuimenn verða: Gunmar Thoroddsen, alþm., Jón Árnason, alþm. og Sigþór Sigurðsson, fulltrúi, Tjarnarlundi, Sauirbæ, Dal.: laugardaginm 7. júlí kil. 21:00. Ræðumenn Gunnar Thoroddsen, ailþm., Friðjón Þórðarson, alþm. og Helgi Kristjánsson, verstj. Sævangi, Strandasýslu: sunmu- dagimn 8. júlí kl. 21:00. Ræðu- menn: Magnús Jónsson, alþm., Þorvaldur Garðar Krisitjánsson, alþm. og Ólaifur H. Guðbjarts- son, form. Kjördærmisráðs. Skemmtiatriði á héraðsmótun- uim annast hljómisvei't Ólafs Gauks ásarnt Svanhiídi, Jörundi Guðmundssyni og Þorvaildi Hall- dórssyni. Hljómsveitiinna sktpa Ólafur Gauibur, Carl Möller, Br- lendur Svavarsson og Krfetinn Sigmarsson. Að loknu hvérju héraðsimóti verður hatdinn dansleikur, þar sem hljómsveit Ólefs Gauks leikur fyrir dansi og söngvarar hljámsveittarinnar koma fram. Sjúkrabíll í árekstri SJÚKRABÍLL og fóiksbíll lentu í alHhörðum árekstri á mótum Milklubrautar og Grensásvegar um kl. 22 á i a u g a rd a gsik völd. Var sjúkrabíllinn á lieið í útikaU og vair með rautt ljós og sírenu í gaingi. Ók hann yfir gatna- mótin á rauðu ljósi og lenti þá aftan á fóilksbílnum. Litlar skemimdir urðu á sjúkrabilnuim. en talsverðar á fólkabílnum. Annar sjúkrabíll var sendur í útkallið, sem var vegna veiks manns í Þiingvallasveit. Enn reynt að leigja aðra þotu ENN heflur Loftlieiðum ekfci tefc- izt að fá aðra ftugvél á leigu i stað þeirrar, sem hlekktist á í lendingu á Kennedy-flugvelili i New York, en haldið er áfrana. að reyna að fá leigða vél, að sögn Alfreðs Elíassonar, for- stjóra Ivoftleiða. Véhn, sem hiiekktfet á, hafði veæið notuð í Norðurl'andafHugið og hafa leigu- vélar verið fengnar til að fara eina og eina ferð og einnig haflla aðrar vélar Loftleiða hlaupið í skarðið. Júní farinn til veiða KR vann KR sigraði Bre ðablik í fyrri leik liðanna í 1. deild Islandsmótsins í fenattspyrnu, sem háður var á Laugardalsvellinum í gærkvöidi. KR skorað 2 mörk gegn engu, en í hálfleik var saðan 1:0. — Nánar i blaðinu á morgun. VÍDIDALSÁ Þyngsti iaxinn sem í sumar hefur komið úr Víðidalsá, veíddist á sunnudag, og var þ*ð Björn Hjartarson, útibús stjóri í Útvegsbankanum, sem l«ndaði honum. Fengurinn var 24 punda hrygna, sem Bjöm veiddi á maðk í hylnum Kæli. Gunnlaug ráðskona í veiði- húsinu, sagði, að fram til þessa hefði verið nokkuð jöfn og góð veiði í Víðidaisá, og hefði hún farið batnandi síð- ustu daga. Alls væru nú komn ir 210 laxar á land. Laxinn væri óvenju vænn, eða um 12 pund að meðalvigt. Mest væri ennþá veitt á maðk, en flugu- veiði væri nú mjög farin að aukast. Veður hefur verið fremur leiðinlegt við Víðidalsá að undanförnu að sögn Gunnla'Jg ar, — þokusúld og norðan nepja. ÞVERÁ 750 laxar eru nú komnir á land úr Þverá, en það er að sögn Magnúsar Kjartansson- ar, „blaðafulltrúa" á Guðna- bakka, um 100% meiri veiði en var á sama tíma í fyrra. Sagði Magnús, að mest væri um vænan lax í ánni, og hefðu fjölmargir veiðzt, sem vegið hefðu milli 20 og 22 pund. Undanf arnar vikur hafa eingöngu Bandaríkjamenn verið við veiðar í Þverá, og sagði Magnús, að þeir hefðu einungis notað flugu. Væru Black Doctor og Blue Sharm sýnu vinsælastar. Aðspurður um það hverjar ástæður hann teldi liggja að baki hinni miklu veiðiaukn- ingu, svaraði Magnús því til, að þeirra væri vafalaust að leita í því að keypt hefðu verið upp öll net í Hvítá milli Þverár og Gríms ár. Þar hefðu að undanfömu veiðzt um milM 1 og 2 þúsund laxar í net á ári hverju, en sá 1-ax færi nó augljóslega í Þverá. NORÐURÁ 740 laxar eru nú komnir á land úr Norðurá, að sögn Þór- eyjar ráðskonu. Sagði hún, að veiði hefði verið ágæt undan fama daga, t.d. hefði einn veiðimaður sett í 8 á þremur tímum þá um morguninn. Þá hefði Bandaríkjamaður einn haldið heimleiðis á sunnudag með 60 laxa eftir viku dvöl við ána. Hefði sá afli eingöngu fenigiat á flm gu, en niú væru menn almennt famir að snúa sér meir að flugunni heldur en verið hefði í vor. LANGÁ Fyrir nokbrum dögum gerð ist það við Langá, að Sigurð- ur Jónsson úr Reykjavlk, 9etti í 19 punda lax, en svo stór lax hefur ekki veiðzt í Langá um áraraðir. Var þessi lax nákvæmlega jafn þungur þeim tveimur löxum, sem þyngstir hafa veiðzt úr ánni, og nú setja svip sinm á stof- una í veiðihúsinu, en þar hangir tréskurðarmynd af þeim. Er tíðindamaður þáttarins leit við í veiðihúsinu um helg ina höfðu rúmlega 250 laxar veiðzt á neðsta svæðóniu, og um 100 á svæðunum þar fyriir ofan. 444 laxar höfðu farið um laxastigann frá því 1 vor. Þess má geta, að aðeins 4 lax ar hafa veiðzt á flugu i sum- ar. JÚNÍ, hinn nýi skuttogari Bæj- arútgerðar Hanfarfjarðar, hélt í fyrstu veiðiferðina í gær, fjórum vikurn eftir að skipið kom til Hafnarfjarðar fyrsta sinni. Að sögn Einairs Sveinssonar, framkvæmdiastjóra Bæjarútgerð- ariinnar, er nú lokið öll'um breyt- ingum og umbótum á vinmu- dekki og ffekmóttöku og komin loftstýring á annað grandara- spi-Mð. Sagði Einar, að skipið færi liíklega á karfamiiðin vestur aif landinu. Skiipstjóni á Júní er Hailidór Halldórsson, sem áður var með togarann Mai. Erun er unnið að viðgerðum á skutJtogaranum Bjarna Bene- diktssynii, en að sögn Þorsteins Arnalds, forstjóra Bæjarútgerð- ar Reykjavíkur, er vonazt til, að togariinn komist á veiðar í þessum mánuði. — Búizt er við, að maitsmenn þeir, sem skipaðSr voru af Borgardómi til að meta skemmdirniar á vélum skipsins, að ósk BÚR, skili matsgjörðinni í dag eða næstu daga. Magnús J. Brynjólfs- son kaupmaður látinn MAGNÚS J. Brynjólfsson, kaup- maður lézt s.l. sunnudag á heim- iLi sínu i Reykjavík, 73 ára að aldri. Magnús var um langt skeið einn af forystumönnum íslenzkr ar verzlunarstéttar, en hann var eigandi og forstjóri leðurverzlun ar Jóns Brynjólfssonar. Jafn- framt átti hann hlut að ýmsum öðrum fyrirtækjum, svo sem nið ursuðuverksmiðj unni Ora og Austurstræti 3 h.f. Magnús Sinnti ýmsum féiagsstörfum, var eiitt sinn formaður verzlunarráðs, og formaður skólanefndar Verzlun- arskólans um árabil. Þá var hann um skeið einn af forkólfum með al áhugamanna um skíðaiþrótt- ina, og sá m.a. um byggimgu skíðaskálans í Hveradölum. Koma 60 km veg — til mannfræðirannsókna GEYSILEG þátttaka hefur verið I mannfræðirannsókn- um þeim, er nú standa yfir í S-Þingeyjarsýslu. Jens Páls- son mannfræðingur, sem stjórnar rannsókninni, sagði i samtali við Morgunblaðið i gær, að áhugi Þingeyinga á rannsólaiiinum væri ótrúleg- wr og yrði hann seint fullþakk aður. Mannfræðirannsóknirnar fara fram á Húsavík, én Jens sagði, að að undanförnu hefði verið lögð áherzla á að rann saka íl-úa suðursýslunnar. — Sem dæmi um þátttökuna gat Jens þess að iðulega væru rannsakaðir um 4Q manos á dag, sem þætti góð útkoma, en þó hefðu sérfræðingarnir einn daginn kom'zt upp í að rannsaka 71 mann. Sagði Jens að þess væru dæmi að menn kæmu akandi 60—70 km veg til að láta athuga sig. Gert er ráð fyrir, að mann fræðirannsóknunum ljúki að þessu sinni eftir um tvær vik ur, en alls hafa þá verið gerð ar rannsóknir á um 500 Þing eyingum í þéssum 'áfanga. — Hins vegar gerir fannsóknar- áætlunin ráð fyrir að alls verðl um 1300 Þingeýingar skoðað- ir. - ' •»

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.