Morgunblaðið - 24.07.1973, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.07.1973, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 1973 21 Magmús Ölafsson sjúkraþjálfari stendnr hér við „skuttogar- ann“, eins og einn af stillanlegu hekkjunum á endurhæfing- arstöðinni er kallaður, en hlutverk hans er m. a. að styrkja hryggjarliði og bakvöðva. (Ljásm. Mbl.: Steiniunin) Endurhæfingarstööin á Bjargi: Afköst fatlaðra ekki minni en heilbrigðra SJALFSB-IÖRG á Akureyri hefur i l»rjú ár starfrækt mjög nierkilega st<»fnun, end- urhæfingarstöð og verksmiðju fyrir fatlaða. Verksmiðjan sjáif liefur verið starfrækt í 6 ár, og vinna um 12 sjúkling- ar i henni í einu. Biaðamaður Morgunblaðs- ins lieimsótti Bjarg fyrir akömmu og ræddi við Heið- rúnu Steingríinsdóttiir, sem er formaður Sjálfsbjargar á Akureyri, Magnús Ólafsson sjúkralijálfara og Gunnar Helgason framkvæmdastjóra. þjAlfun OG ENDURHÆFING Magnús er eini sjúkraþjálf- arinn á staðnum, og hann sagði, að mikið hefði verið reynt að fá fleiri, en aliar tilraunir í þá átt hefðu reynzt árangurslamsar. Flestir, sem fara í nám, eru búnir að ráða sig til tveggja ára, strax og þeir heija námið. Magnús þjáilfar um 20 sjúklimga á dag, en 35 til 40 sjúklinigar eru á s'krá hverju sinni. Allis hafa 736 sjúkling- ar verið skráðir frá því að endurihæfingarsíöðin tók til starfa. Sjúklingar um allt Norðurland leita lækninga á Bjargi. Mjög misjaifnt er, hversu marga tíma sjúklingamir þurfa að sækja, allt frá þrem- ur, og þá einungis tiil að læra æfingar, upp í 20 til 30 tima. Margir hverjir þurfa alltaf að koma reglulega á árs frosti. Tækjakostur endurhæfing- arstöðvarinnar er þrír stillan- legir befckir, hiljóð- og ör- bylgjutæki, heitlr bakstar, rimlar, dýnur og þrekhjól. Þrekhjólið er m. a. notað af húsmœðrum, sem þjást af þrefcleysi, en Magnús sagði það mjög áberandi hjá þeirri stétt. Jafnframt hefur Magnús lyftingartæfci, sem aðallega er notað af mönnum, er vinaia erfiðisvinnu og þurfa að lyfta þungum byrðum. Marg- ir kunna ekki að beita Idfcam- anium rétt. Magnús tekur þá í tíma og leiðbainir í þess- um efnum. Magnús kvaðst ánægður með tækjakostinn, og sagði að aðalatriðið væri, að sjúklingarnir notuðu tækin rétt og vel og væru áhuga- samir. Oft er hægt að senda fatlaða út i atvinnulSfið og kesnur árangur þjálfunarinn- ar bezt í ljós á vinnustöðun- um. Bjarg lánar út stafi, hjóla- stóla og önnur hjálpartæki fyrir slasaða og fatlaða. HAGNÝT FRAMI.KIÐSI.A í verksmiðjunni vinna 12 manns í einu, eins og áður sagði, og sjúfcldngamir starfa allt frá tveimur tímum upp í átta tíma á dag, allt eftir þvi hvað þrekið leyfir. Á sdðasta ári unnu alls 23 í verksmiðj- unni, þó ekki eingöngu ör- yrkjar, því ekki er talið æsfcilegt að einungis öryríkjar vinni saman. í verksmiðjunni er framleitt raflagnaéfni, bakkar, mottur, og allt, sem þarf í eitt frystihús af slík- um áhöldum, einnig bakkar fyrir gróðurhús og-kapalrenn- ur úr plasti. Skiltagerð er á staðnum og mierkir Bjarg öll skip fyrir fjórar skipasmáða- stöðvar. Bjarg va-rð fyrsta verksmiðjan í V-Evrópu tU að framleiða raflagnaefni, sem ekki er eldtflmt. Gerði verk smiðjan samniing við fyrir- tæki á Italíu og lánaði hún mótin, sem framleiðslan er steypt i. Plastefnið, sem haft er í fiskbökkunum og öðrum ílát- um, hefur hlotið viðurkenn- ingu erlendra aðiia fyrir gæði. Þetta er eina piastefnið, sem hægt er að þrifa það vel, að öll fita hverfi. Öll fram- leiðsla fer fram í tveinrur vélum, spraufcsteypuvél, og vél, sem mótar raflagnaefni. Mi'kil eftirspurn er eftir framleiðsLunni og getur verk- smiðjan ekki sinnt nærri öil- um pöntunum, sem berast. Ef svo ætti að vera, yrði nauðsynlegt að vinna allan sólarhringinn. GÓÐ AFKÖST Heiðrún Steingrímsdóttir formaður Sjálfisbjargar sagði, að það hefði tekið langan tíma að koma fóiki í skilning um, að fatlað fólk getur unn- ið eins vel og heilbiigðir. Mi'kiJ breytimg hefur þó orðið á viðhorfi almennings, og má þar næ.stum eingöngu þakka dugnaði og bjartsýni hinna fötluðu. Ótrúlegt er, hve mifcil fram- Þreklijólið er niikilvægpir þáttnr í endnrhæfingn fatlaóra. Einn af starfsniönniini á Bja rgi sefur liér sa.nian sjúkrabörur. leiðsla er á Bjargi, ef miðað er við, að salurinn, sem verk- smiðjan er starfrækt í, er varla stærri en 100 fermetrar, og einnig að þar starfar meira og minna bæ'klað fölk. Könon- un hefur verið gerð á afköist- um faöaðra í starfi, og niðurstöður sýndu, að ef sjú'klingarnir fá starf við sitt hæfi, og ef þeim er efcki ofboðið, eru afköst efcki mimni og oxt jafnvel meiri en hjá heilbrigðu fólki. Má þar að einhverju leyti þafcka metn- aði, því fatlaðir vilja sýna, að þeir geta staðið sig vel, og hefur þeim svo sanmarlega teildzt að sarmfæra almenm- ing. Atvinmiurekendur veigra sér eklki lengur við að taka fatiaða í vinmiu, og margir hringja á Bjarg og bjóða vinniu. Margir sjúklingar eru ebki færir um að vinna meira en 1—3 tím.a á dag, en þó ekki sé unnið lengur, er vinn- an mikil hjállp fyrir sjúkling og þá ekki sizt sálræn hjálp. Mikil nauðsyn er fyrir fatl- aða, að þeir finmi að þörf sé fyrir þá. Meðferð, endurhæf- ing og vinna verðe að fara saman, því litið þýðir að end- urhæfa Ukamann, ef sálin gleymist. Heiðrún sagði, að bæjarfé- lagið og bæjarbúar á Akur- eyri sóu ákaflega hjálpsamir og skilmingsríkir og hafi stutt veil við bakið á þeim, og m. a. tefcur bærinn ábyrgð á ölium þeirra lánum. GRETTISTAKI EVI’T Árið 1958 var félagið Sjálfsbjörg á Akureyri stofn- að í Reykjavik og setfcu fé- lagsmemn sér þá það mark- mið að vera komnir í eigið húsnæði áður en næsta þing yrði haldið ári síðar. Voru félagsnjemr. álitndr draumóra- fólk, og enginn trúði því, nema þeir sjálfir, að þeim myndi takast það. En sú varð þó raunin á, að í júní 1959, hálfum mámuði áður en stofn- þingið var haldið á Akureyri, var húsið vígt, og í þessu sama húsi eru nú verksmiðj- an og endurhæfingarstöðin. Gunnar Hciga.son fram- kvæmdastjóri verksmiðjumn- ar sagði, að nú væri draumur þeirra hjá Sjáltsbjörg að ræt- ast, því Akureyringar hafa stígið merkilegt skref i fram- faraátt í þágu fatlaðra. Áætll- un hefiur verið gerð um að reisa sérstakt hverfi, jxar sem fatlaðir og heilbrigðir búa saman. 1 þessari miðistöð verður byggt verksmiðjiuhús- næði og endurhæfingarstöð fyrir fatlaða, þrjár blokikir, eim fyrir fatlaða og tvær f-yrir heilbrigða. Allar aðstæður verða miðaðar við fólik í hjðlastiólium, og m. a. verða engar gangsféttarbrúnir, að- eims hahi, þröskuidar hverfa og dyrnar opnast, þegar kom- ið er að þeim. Er hér um að ræða eina hehdarskipulagið í þessum dúr á landinu. Er þetta mikil bót, því verfesmiðjuhúsnæðið er orðið aht of lítið, og þegar komið verður í nýja húsnæðið, stend- ur til að stórauka vélakost- inn. Verksmiðjan, sem er 1100 fermetrar, verður tilbúin næsta vor, ef allt gemgur að óskum. Endurhæfingarstöð, sundiaug og sturtur verða síðar byggðar i áföngum, og einnig verður gert ráð fyrir gistiaðstöðu fyrir fatlaða, sem koma langt að og geta ekki farið he'm á hverjum degi. Pramkvæmdirnar eru að rnestu borgaðar af hálfu hins opinbera, og r þetta í fyrsta skipti, sem slíkt á sér stað. Áður fyrr voru það styrktar- félagar, eigin firamtak félag- anna, ásamt erfðasjóði, sem veittu fé til framkvæmda og ammairrar starfsemii. Steinnnn. Verzlunarhúsnæði ósknst KJARTAN JÓNSSON BYGGINGAVÖRUVERZLUN, sími 1-3184 verzlunin, 1-7769 heima. Blað allra landsmanna 3M$t^ttttM$tM§r Bezta auglýsingablaðið Peugeot station árgerð 1971 til sölu. Bifreiðin er í mjög góðu standi. Upplýsingar í síma 41265.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.