Morgunblaðið - 01.08.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.08.1973, Blaðsíða 16
16 MORGU'NBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1973 flfaKgtiitirliiMfe Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavlk. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Rítstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Kor.ráð Jðnsson. Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúl Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóri og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80, Askriftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. einíakið. T ýðveldi hefur nú verið sett á fót í Grikklandi og konungdæmi afnumið að undangenginni þjóðarat- kvæðagreiðslu. Konstantín II, sem erfði konungdæmið í Grikklandi árið 1964, hefur á þinn bóginn lýst yfir því, að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið skammarlegt sjónarspil og hann telji sig áfram kon- ung Grikkja. Sennilega hefur hinn af- setti konungur lög að mæla, þegar hann bendir á, að þjóð- aratkvæðagreið&lan hafi ver- ið sjónarspil eitt. En í þessu sambandi er þó rétt að líta á þá staðreynd, að konung*- dómurinn er arfleifð gamals tíma, allt annarra þjóðslífs- og stjórnarhátta en vestræn- ar þjóðir búa við í dag. Af þeim sökum vekur það ekki furðu, þó að konungi sé nú vikið til hliðar að fullu og öllu og lýðveldi stofnsett. Einnig er á það að líta, að Konstantín beitti þjóðhöfð- ingjavaldi sínu á sínum tíma á annan veg en talið er sam- rýmast þingræðishugmynd- um Vesturlanda. Um hann verður því ekki sagt, að hann hafi virt til hlítar leikreglur lýðræðisskipulagsins, þó að hann hafi síðustu árin verið Að hinu leytinu verður að líta á þjóðaratkvæðagreiðsl- una um lýðveldisstofnunina og forsetakjör Papadopoulos- ar eins og hvern annan sjón- leik. Þegar áður en byrjað var að telja atkvæði sökuðu and- stæðingar stjórnarinnar hana um kosningasvik. Þeir héldu því m.a. fram, að fólk hefði ekki fengið að greiða leyni- lega atkvæði, og víða hefðu kjósendur fengið atkvæða- seðla, er gerðu þeim einungis kleift að greiða atkvæði með stjórninni. Þar sem einræðis- stjórnir sitja við völd, er sjaldnast unnt að taka mark á úrslitum atkvæðagreiðslna af þessu tagi. Athygli hefur þó vakið, að opinberar niður- stöðutölur kosninganna sýna, að rúmlega ein milljón manna hefur greitt atkvæði einræðisins séu ekki eins sterk í Grikklandi eins og í ríkjum sósíalista, fer því víðs- fjarri, að Grikkir búi í dag við þess háttar mannréttindi, sem talin eru sjálfsögð á Vesturlöndum. Og eflaust á gríska þjóðin langa baráttu fyrir höndum til þess að end- urheimta lýðræði og óskorað skoðanafrelsi í landi sínu. Að vísu má segja, að lýðræðið hafi ekki staðið sérlega föst- um fótum í Grikklandi frem- ur en víða annars staðar. Eigi að síður eygja menn vonir til þess að gríska þjóðin end- urheimti lýðræðisskipulagið og herforingjastjórnin víki. Grikkir eru aðilar að At- Iantshafsbandalaginu, sem m.a. var stofnað til þess að standa vörð um lýðræðislega stjórnarhætti aðildarríkj- anna. Bandalagið getur á SJONARSPIL GRISKU HER- FORINGJASTJÓRNARINNAR í andstöðu við herforingja- stjórnina. Með hliðsjón af þessum sjónarmiðum er ekki unnt að áfellast grísku herforingja- stjórnina fyrir afnám kon- ungdæmisins. Sú ákvörðun ein út af fyrir sig er í fullu samræmi við nútíðar hug- myndir um stjórnarhætti. gegn herforingjastjórninni eða rúmlega 20% kjósenda. Niðurstöðurnar eru því ekki á sama veg og jafnan á sér stað. í sósíalísku ríkjunum, þar sem yfir 99% kjósenda eru sagðir greiða atkvæði með einræðisstjórninni. Þó að þessar kosningar gefi til kynna, að heljartök hinn bóginn ekki hlutast til um innanríkismál þeirra ríkja, sem aðild eiga að því. I því efni greinir m.a. á milli Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins. íslend- ingar eiga því aðeins aðild að bandalaginu, að það getur ekki hlutazt til um innanrík- ismál okkar, þó að við tækj- um ákvarðanir, er brytu í bága við hagsmuni eða sjón- armið meirihluta aðildarríkj- anna. Sama regla hlýtur að gilda gagnvart öllum áðild- arþjóðunum. í umræðum um stjórnar- faríð í Grikklandi hafa ýms- ir bent á, að hvergi nærri allar þjóðir væru undir það búnar að búa við lýðræði í vestrænni mynd. Að vísu verður ekki fallizt á, að þetta eigi við um Grikkland. En hitt er þó alveg ljóst, að lýð- ræðið á sér langa þróunar- sögu að baki, og stjórnkerfi, sem á því byggist, verður ekki úr garði gert á einum degi. í raun réttri búa mun færri ríki við lýðræði en ein- ræði. Flest nýfrjáls ríki í Afríku, sem brotizt hafa und- an nýlenduokinu, búa þannig við einræðisstjórn. Mönnum kemur ekki til hugar, að vestrænu lýðræði verði kom- ið þar á fót í einu vetfangi. Menning þjóðanna er í svo mörgu frábrugðin vestrænni menningu, að lýðræðisþróun- in í þessum ríkjum hlýtur óhjákvæmilega að taka lang- an tíma. í þessu sambandi er þó rétt að líta á þá staðreynd, að næst fjölmennasta ríki heims, Indlandi, auðnaðist að tileinka sér lýðræðishefðir brezka nýlenduveldisins og hefur haldið þeim í þann ald- arfjórðung, sem landið hefur búið við sjálfstæði. Landkynningin þýðingarmikill þátt- ur í starfinu Rabbað við Flugfélagsfólk í London um starfsemina og áhrif þorskastríðsins Oxford í júlí. ÍSLAND hefur verið mikið í fréttum hér í Bretlamdi s.l. ár, eins og reyndar í mörg- um öðrum löndum. Skákein- vígið, fiskveiðideiian, Heima- eyjargosið og fundur Nixons og Pompidou hafa dregið erlenda fréttameran til ísianda og þeir hafa sent fréttir af þessum viðburðum til blaða sinina og fréttastofniaara. I>ótt meginverkefni þeirra hafi verið að afla frétta, sem geta dregið að sér iesendur með fyrirsögnum eins og „íslend- iragar skjóta á óvopnaðan brezkan togara“ eða „Árás á brezka sendiráðið í Reykja- vík“, þá hafa þeir notað tækifærið til að afla al- menmra upplýsiinga um ís- laind, bæði fólkið og landið. Þammig hefur verið meira um alimennar íslandsgreinar í blöðum og íslandsþætti í sjónvarpi hér í Bretlandi en ég mámmist að hafa séð áður, og þótt upplýsingamar, sem þar hafa komið fram, hafi ekki alltaf verið jafn réttar, þá hefur heildarmyndin jafnan verið íslandi í hag. Minmist ég sérstaklega sjónvarpsþátt- ar, sem sýndur var i vor og nefndist „Hin hliðin á fs- landi“ (The other Iceland). Var þar farið viða um land og sýndair gullfallegar lltkvik- mymdir af landslagi, fólki og dýralífi. Held ég að þótt allir ferðamálaspekingar íslands hefðu lagzt á eitt hefðu þeir ekki getað gert betri auglýs- ingamynd fyrir ísiland/ Þegar fréttir koma af átök- um á íslandsmiðum og sýnd- ar eru í sjónvarpi myndir af unglingum að grýta brezka sendiráðið, setur að fólki augnabliks óhug, rétt eirns og þegar fréttir berast af enn einu morðimu á Norður-ír- landi. En svona fréttir virðast gleymast fljótt. Fallegar sjón varpsimyndir af jöklum og vel sferifaðar greinar um hvað íslamd getur boðið ferðamanminum upp á, eru líklegri til að festast fólki í minml. Þótt fréttir af átökum á mið- unum hafi eitthvað dregið úr ferðum Breta til íslands í sumar, má ætta að sú aug- lýsing, sem Island hefur feng- ið hér síðasta árið, muni, er fram líða stundir, hafa já- kvæð áhrif á gang ferðamála og laða til íslands fólk, sem annars hefði kannski aldrei látið sér ísland til hugar koma sem stað, þar sem eyða mætti sumarleyfinu. Sú er að minnsta kosti skoðun Jóhanns Sigurðs- sonar, sem veitt hefur skrif- stofu Flugfélags Is'Jands i London forstöðu í 20 ár og þekkiir manna bezt tii þess- ara máia. Nú er hálft þriðja ár lið- ið slðan sknifstofa Flugfélags islands flutti úr umferðinni á Piccadilly yfir á Grosvenor- street og þar rabbaði ég við Jóhann einn sólsfeinsdaginn fyrir skömmu. „Þegar við fluttum frá Picea diJly voru margir hræddir um að við myndum missa talsvert af viðskiptum," sagði Jóhann „Á PiccadiiUy vorum við í hjarta borgarinniar og stöðug ur straumur fólks framhjá skrifstofunni. En þrengslin voru mikil og við þurftum að vera með skrifstofuna á tveim ur stöðum og möguleifear iitlir til flestra hluta. Hér erum við aftur á rnóti fjær aðalumferð- inni, en i góðu húsnæði, sem gerir okkur kleiít að haida uppi m-args konar kynningu á landinu, en landkynning er mjög þýðingarmikill þáttur í starfinu. Fólk kemur nefni- 1-ega ekkí inn í skrifstofuna og segist vilja fá eiran far- miða til Islands, eftir það eitt að hafa séð íslands- myndir í glugga skrif- stofunnar. ísiandsferð er oftast ekki ákveðim fyrr en fólk er búið að lesa ser th um landið, fá upplýsingar hjá vinum, sem hafa verið á is- landi, ræða við starf sf ólk ferða skrifstofa o. s. frv. Hér höfum við góðar geymslur og getum því haft á iager mikið af bæk- lingum um ísland og reynum við að senda þá út jafnóðum og okkur berast fyrirspumir. 1 vetur fengum við tiil dænais mllli 20 og 30 þúsund fyrir- spurnir f rá almenningi og þeim var svarað jafnóðum. 1 kjállaranum erum við með rúmgóðan sal, þar sem hægt er að koma fyrir um 60 marnis í sæti. Þar höfum við Is- landskvöld tvisvar í viku yfitr vetrarmánuðina, þar sem sýndar eru Ísliandskvikmyndir og veittar upplýsingar. Þamg- að eru allir velfeomnir og aug- lýsum við þessi kvðld í blöð- um og litlum bæklingum, sem við sendum ferðaskrifstofum og einstakiingum. Þarna höld um við einnig öðru hverju kynningar- og móttökukvöld títi fyrir skrifstofu F.í. í I.on- don. frá v: Friðjón Sæmunds- son, Alan Dickson, Wenche Georgiadis, Halla Aradóttir, Robcrt Miller, Nigel Lander og Jóhann Sigurðsson. Á myndina vantar Karitas Guð- mundsdóttur og Celiu Good- ridge, sem voru í sumarfríi er myndin var tekin og einnig vantar Mariu Wright. fyrir ferðaskrifstofustarfsfólk og eitnnig fyrir ferðaskrifara blaðanna, þvi það hefur mikið að segja að minna á okkur. Bjóðum vlð þá upp á smá hressingu og skrifstofustúlk- urnar okkar smyrja og bera fram brauð með ísienzkri síld. Verða því þessi kyraniinga- kvöld því þægilegri og ódýr- ari og huggulegri en ef við þyrftum að leigja sál út í bæ. — Ef ferðaskrifstofur hafa áhuga á að kynna Islands- ferðir sínar stendur þeim kjall ariinn okkár alltaf til boða. Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.