Morgunblaðið - 01.08.1973, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1973
Minning;
Páll Skúlason
fyrrverandi ritstjóri
1 DAG verður gerð, frá Dórn-
kirkjunni, útför míns gamla vin-
ar og skólabróður, Páls Skúla-
sónar, fyrrverandi ritstjóra og
kennara, en hann andaðist i
Borgarspítalanum 24. þ. m.
Hafði hann um nokkur ár
þjáðst af illkynjuðu sári á fæti,
sem ekki fákkst bót á, og nwn
það hafa orðið banamein hans.
Með Páli er horfinn okkur
góður drengur, mikilhæfur
gáfumaður og sérstæður per-
sónuleiki, sem lengi mun minnzt
verða, enda var hann þjóðbunn-
ur maður fyrir margvísleg rit-
störf á langri ævi og kennshi í
mörgum skólum.
Páll Skúlason fæddist í Odda
á Rangárvöllum 19. september
1894 og var því tæpra 79 ára
er hann féll frá. Foreldrar hans
voru merkishjónin Skúli prófast-
ur Skúláson og kona hans Sig-
ríður Helgadóttir. Faðir Skúla
prófasts var Skúli Gíslason pró-
fastur að Breiðabólstað í Fljóts-
hlíð, en móðir hans Guðrún Sig-
ríður dóttir híns glæsilega og
gáfaða prests, Þorsteins Helga-
sonar i Reykholti. Faðir Skúla
Gis-lasonar prófasts, var séra
Gísii Gíslason, síðast prestur að
Gilsbakka, en móðir Skúla var
Ragnheiður Vigfúsdóttir sýslu-
manns Þórarinssonar og því
systir Bjama amtmanns og
skálds Thorarensen. Sigríður
móðir Páls var dóttir Helga
lektors Hálfdánarsonar og konu
hans Þórhildar, dóttur Tómasar
Sæmundssonar, prófasts á
Breiðabólstað, sem var einn af
Fjölnismönnum og mikill vinur
Jónasar Hallgrímssonar, en dó
um aldur fram.
Af því, sem: hér hefur verið
sagt, má sjá, að merkir og
sterkir stofnar stóðu að Páli í
báðar ættir, enda hlaut hann
að erfðum marga kosti þeirra.
Starfoþrek hans og starfsgieði,
sem hann hélt til hinztu stund-
ar, minna á starfsmanninn og
áhugamanninn mikla, Tómas
Sæmundsson, og rithæfni hans
á snillinginn, afa hans, Skúla
prófast Gíslason, sem ritað hef-
ur margar þjóðsögur og gevin-
týri í Þjóðsagnasafni Jóns
Ámasonar, af meiri frásagnar-
snilld og á fegurra máli en aðrir,
er lögðu hönd á plóginn að því
mikla og merka verki.
Páll stundaði nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík og lauk
þar stúdentsprófi vorið 1913.
Um haustið, það ár, hélt hann
til Danmerkur ti-1 náms við há-
skólann í Kaupmannahöfn. —
Hann lauk þar prófi i forspjalls-
vísindum vorið 1914 og stundaði
þar jafnframt nám í máltfræði
á árunum 1913—’19. Einnig
hafði hann þar á hendi kennslu
við menntaskóla árið 1918.
Páll kom heim frá námi við
Hafnarháskóla árið 1919 og hóf
þegar kennslu við marga sikóla
hér í borg, svo sem Stýrimanna-
skólann, Vélskólann, Gagnfræða-
skóla Reykjavikur og Mennta-
skólann og hafði þá jafnframt
mörg önnur jám í eldinum.
Árið 1926 stofnaði hann skop-
blaðið ,,Spegil'inn“. Var hann
fyrst ritstjóri blaðsins með öðr-
um, en síðan einn til ársioka
1960, en þá hætti hann útgáfu
blaðsins. Spegiliinn varð þegar
mjög vinsælt blað, enda bráð-
fyndið og skemmtilegt eins og
útgefandinn, en aldrei rætið,
hins vegar á stundum nokkiuð
neyðarlegt, einkum ef um há-
vaðasama pólitíkiusa var að
ræða, svo sem vcra ber í skop-
blaði. En þó ýkt væri, mátti
jafnan kenna megindrættina í
fari þeirra manna, sem fyrir
framan spegilinn stóðu, enda
var Páil mikill mannþekkjari.
En athafnaþrá Páls var ekki
fullnægt með kennslustörfunum
og útgáfu Spegilsins. Hann
þýddi auk þess erlend sikáldverk
í tugatali svo og leikrit og samdi
einnig nokkra gamanleiki í sam-
vinnu við aðra. Þá vann hann
um margra ára skeið við Morg-
umblaðiið, aðallega sem prófarka-
lesari. Minnist ég þess, að tneð-
an ég vann við blaðið, var ég
jafnan öruggur ef ég vissi hand-
rit mitt í höndum Páls.
Árið 1933 kvæntist Páll efitir-
lifandi konu sinni, Halltióru
Jóhönnu Elisdóttur kaupmanns
í Reykjavík Jónssonar, hinni
ágætustu konu, sem verið hefur
mikil húsmóðir á fjöLmennu
heimili og manni sínum ómet-
anlegur og traustur lífsföru-
nautur. Heyrði ég það oft á
Páli, sem þó var frábitinn þvi
að tala um einkahagi sina, að
hann unni mjög konu sinini og
mat mikils þann styrk og þá
stoð, seim hún veitti honum í
annasömu l'ífi hans. Þau eign-
uðust sex böm, sem öll eru á lífi,
en þau eru: Ari, útvarpsvirki,
kvæntur Auði Haraldsdóttur,
Guðlaug, gift Grétari Hjartar-
syni, stýrimanni, Skúli lögfræð-
ingur, kvæntur Kristrúnu Ólafs-
dóttur, Sigriður, gift Olav Bayer,
sem er við nám erLendis, Eiríkur,
útvarpsvirki, ókvænturj og Elín,
gift Þorláki Þorlákssynd, skrif-
stofumanni.
Við Páll kynntumst ekki mik-
ið í Menntaskólanum, enda var
hann þremur bekkjum á undan
mér, þó að hann væri ekki nema
einu og hálfu ári eldri en ég.
Fn síðar varð með oktour góður
kunningsskapur, og því betur
sem ég kynntist honum, varð
hann mér æ hugþekkari, enda
var hann maður dagfarsprúður,
hispursiiaus en jafnframt hátt-
vís svo að af bar. Seinna varð
kunningsskapur okkar Páls að
einlægri og traustri vináttu og
er ég þakklátur fyrir það. Við
vorum saman, ásamt nokkrum
öðrum góðum mönnum, borð-
félagar við morgunkaffið á
Hótel Borg. Voru það skemmti-
legar stundir, margt skrafað um
menn og málefni og mikið
hlegið, enda lá Páll þá ekki á
liði sínu við að halda uppi
skemmtilegum samræðum. —
Nú eru borðfélagamir fliestir
horfnir af sjónarsviðinu og
sakna ég þeirra allra, og þá
ekki sízt Páls. En lögmáli ldfs
og dauða verður ekki haggað.
Vinirnir njóta saman daglega,
svo lengi sem leyft er, góðra
stunda, en svo kemur óumiflýj-
anlega að því, ao þeir fara
smám saman að týna tölunni,
og að lokum situr maður einn
við borðið, — og bíður.
Við hjónin vottum eikkju vin-
ar míns, börnum þeirra og öðr-
um ástvinum okkar innilegustu
samúð.
Sigairður Grímsson.
t
Þakka auðsýnda samúð vegna
fráfalils og útfarar
Guðjóns Jónssonar,
Miðstræti 10.
Fyrir hönd sysitkinana,
Helga Guðjónsdóttir.
SKILTI A GRAFREITI
OG KROSSA.
Flosprent s.f. Nýlendugötu 14
sími 16480.
Bróðir okkar,
Hallfreður Jón Oddsson,
Hátúni 10A,
andaðisit 29. apríi.
Fyrir hönd systkina,
Pétnr J. Oddson.
Eiginmaður minn og sonur,
Haukur B. Hauksson,
bílamálari,
lézá atf slysförum 30. þ.m. í
Lands pítalanum.
Fyrir hönd bama og annarra
aðstadenda,
Brynja Guðmundsdóttir,
Ásta Kristinsdóttir.
SIGURBJÖRG GlSLADÓTTIR,
Kirkjubraut 48,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness þann 30. 7. 1973. Jarðarför-
in auglýst síðar. Fyrir hönd vandamanna,
Elisabet Sigurðarcfcttir.
Eiginkon mín, móðir okkar og amma,
SIGRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR,
lézt að heimili sínu, írabakka 4, þriðjudaginn 31. júlí.
Magnús Jónsson, börn og bamaböm.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LILJA SAMÚELSDÓTTIR,
Garðavegi 11,
lézt 27. júlí sl. í Sjúkrahúsi Keflavíkur. — Jarðarförin fer
fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 3. ágúst klukkan 2.
Böm, tengdaböm og barnaböm.
Bróðir minn,
HARALDUR SVEINBJÖRNSSON,
iþróttakennari í Ameríku,
andaðist 15. júli i sjúkrahúsi í Washington, 72 ára að aldri.
Þetta tilkynnist ættingjum og vinum hins látna.
Valdemar Sveinbjömsson.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
UNNUR EINARSOÓTTIR,
Skúlagötu 70,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 2. ágúst
klukkan 1.30.
Þeir, sem vildu. minnast hennar, vinsamlega láti Krabba-
meinsfélags Islands njóta þess.
Eiríkur Eriksson,
Katrín Eríksdóttir,
Guðbjöm Eiríksson,
Sigríður Sumarliðadóttir
og bamaböm.
t
Hjartkær bróðir okkar og mágur,
GUÐJÓN ÞORVARÐARSON,
endurskoðandi,
Geitlandi 31,
lézt 29. þ. m. Jarðarförin auglýst siðar.
Baldur Þorvarðarson,
Elín Þorvaldsdóttir, Haukur Zophoniasson.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
KRISTJAN h. ZOEGA,
Grenimel 41,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 2. ágúst
klukkna 13:30.
Asta Zoéga,
Helgi Zoéga, Sheila Zoéga,
Kristín Zoéga, Ágúst Geirsson,
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORLEIFUR EYJÓLFSSON,
Gautlandi 11,
verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 2. ágúst
klukkan 3.
Blóm afbeðin, en þeir, sem vildu minnast hins látna,
láti liknarstofnanir njóta þess.
Ólöf Diðriksdóttir,
börn, tegndaböm og barnaböm.
t
öllum þeim, er sýndu okkur samúð og virðingu við andlát
og jarðarför eiginmanns míns, föður og tengdaföður,
JÚNS HEIÐBERG,
þökkum við af alhug.
Þórey Eyþórsdóttir Heiðbetg,
böm og tengdaböm.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
KRISTJÖNU SIGURÐARDÓTTUR MUTCH
og
JON MUTCH.
John Mutch,
Sigurveig Ásvaldsdóttir, Friðrik Fridriksson,
Sigurður Jörgenson, Sigrún Gissuradóttir.