Morgunblaðið - 16.08.1973, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1973
Vika á Vestfjöröum;
*
„Aframhald háskóla
að búa í Bolungarvík“
Rætt vid Veronicu og sr. Gunnar Björnsson
Frú Veronica og sr. Gunnar Björnsson.
Fyrir u.þ.b. ári fluttust ung
prestshjón til Bolungurvíkur,
Veronica og sr. Gunnar
Björnsson, sem þar er nú sett
ur prestur. Sr. Gunnar út-
skrifaúist úr guðfrajðideild
Háskóians skömmu áður en
hann fiuttist vestur og er nú
með yngstu starfandi prest-
um í landinu. Frú Veronica
kona hans er ensk og starf-
aði í Hafnarfirði áður
en þau fluttust vestur.
Þau hjón hafa tekið mikinn
þátt í félagslifi Bolvíkinga
eftir að þau fiuttust þangað.
Sr. Gunnar hefur kennt í tón
listarskólanum, barna- og mið
skólanum og er formað-
ur skólanefndar, en frú-
in, sem áður söng í söngsveit
inni Fílharmoníu hefur sung-
ið með kirkjukórnum. Sr.
Gunnar er mikill tónlistar-
maður og lék í sinfóníuhljóm-
sveitinni með Birni R. Ein-
arssyni föður sinum í mörg
ár, áður en hann fiuttist frá
Reykjavík.
Sellóleikur i smfóníu-
hljómsveitinni er skemmtileg-
asta starf sem ég get hugs-
að mér, að prestsstarfmu und
anskildu," sagði sr. Gunnar
við blaðamann frá Morgun-
blaðinu, sem leit við hjá þeim
hjónum einn sumardag í Bol-
ungarvík fyrir skömmu. Tón
listaiiifinu í Bolungarvik er
áreiðanlega mikili fengur 1 að
fá þau hjónin í bæitnn, enda
hefur sr. Gunnar fengið fé-
laga sína úr sinfóniuhljóm-
sveitinni til að koma vestur
og spila með sér í kvartett.
Þá hefur hann einnig kennt
liti'ls háttar við tónlistarskól-
ann á Isafirði.
Sr. Gunnar var úti í garði
að mála, þegar okkur bar að
og frúin var í frystihúsinu að
vinna. Hún sagðist gera það
við og við og ekkert sjá at-
hugavert við það að prestsfrú
ynni í fiski. Þegar frúin var
komin heim og við höfðum
komið okkur fyrir þægiiega
í stofunni í prestsbústaðnum
yfir teboila, spurðum við sr.
Gunnar hvernig það væri fyr
ir ungan prest úr Reykjavík
að taka við starfi í dreifbýl-
inu.
— Það er mjög gott að vera
hér I Bolungarvík og lærdóms
ríkt fyrir Reykvíkinga að lifa
í návígi við útgerð og fisk-
vinnsiu, þau störf, sem eru
undirstaða þessa þjóðfélags.
Ég geng hér inn í safnaðar-
starf, sem hefur verið unnið
af mikilli rækt af fyrirrenn-
ara mínum sr. Þorbergi
Kristjánssyni, og það er
þakkarvert fyrirr mig að
flytja inn i söfnuð, þar sem
svo mikið og gott starf hef-
ur verið unnið. Þá hefur frú
Sigríður Norðquist organisti
stjómað hér góðum kirkju-
kór, sem gott er að vinna
með.
Frúin bætti því við, að hún
kynni aíar vel við sig í Bol-
ungarvík og þar væri gott
fyrir börnin þeirra tvö að al-
ast upp, Ingi'björgu, sem nú
er 5 ára og Björn Ólaf, sem
er 3 ára. Frú Veronica tal-
ar mjög góða isflenzku, en
hún er frá Blackpool I Eng-
iandi, en er pólsk í föðurætt-
ina.
Við spurðum sr. Gunnar,
hvort hann hygðist taka
upp nýjungar í sáfnað-
arstarfi eða messuhaldi.
Hann kvaðst ekki gera ráð
fyrir því, a.m.k. ekki í bráð,
enda væri kirkjusókn góð og
jöfn. Messað er í Bolungar-
vík á hverjum sunnudegi að
vetri til, annan suinnudaginn
er almenn guðsþjónusta, en
hinn er fjölskylduguðsþjón-
usta, þar sem börnin koma
með foreldra sina í kirkjuna.
„Það er mjög ánægjulegt að
hafa góða kirkjusókn, það
gerir sáningarstarf orðs-
ins auðveldara og það er orð
ið eitt, sem getur bjargað fólk
inu i heiminum. En við meg-
um ekki leggja allt upp úr
kirkjusókn. Fólk leitar mik-
ið til mín persónulega og við
höfum helgisíund vikulega í
sjúkraskýlinu og það er mjög
ánægjulegt að geta orðið
fólki að liði þannig á per-
sónulegan hátt.“
En hvað firnnst ungum
presti um prestskosningar?
— ,Mér finnst tími til kom-
inn, segir sr. Gunnar
að reyna annað fyrirkomulag
og er fylgjandi því, sem
stungið er upp á í frumvarpi
því, sem lagt var fram á
Alþingi í fyrra. Gallinn við
núverandi fyrirkomulag er
sá, að það gefur mörgu fólki,
sem kannski er ekki hið trú-
rækna fólk í , söfnuðin-
um, tækifæri til að beita sér
fyrir frambjóðendum og
skapa kosningaspennu, sem
er frambjóðandanum oftast
ekki að skapi.
— Það erindi, sem presti
er falið að flytja er hið mik-
ilvægasta í Ufinu, markmiðið
með prestsstarfinu er að leiða
menn til trúar á Jesúm Krist.
Eina ráðið til að ná árangri
í því starfi er að lesa Guðs
orð og biðja drottin
að standa með sér í sáningar-
starfinu. Fyrirkomulag kosn-
inga er miklu minna atriði,
sagði sr. Gunnar.
Þar með lukum við samtal
inu og kvöddum þau hjón, og
hugsuðum um orð sr. Gunn-
ars þegar við ókum úr Bol-
ungarvík: „Það er áframhald
andi háskóli að búa á stað
eins og þessum, þar sem býr
bráðduglegt, sístarf-andi og
vel gefið fólk.“ — GHH.
Volga '73
dökkgrænn að lit. Einkabíll. Ekinn 26 þús. km.,
til sölu og sýnis að Bjarkargötu 10.
Geymsluhúsnœði
Gott upphitað 115 ferm. geymsluhúsnæði á jarð-
hæð í Austurborginni til leigu. Góð aðkeyrsla.
Uppl. í síma 20416 eftir kl. 17.00.
UTSALA
3 DAGAR
✓
EFTIR
Seljum frd deginum í dug
eitthvuð mugn of góðum 1/D (íkn _
skóm ú uðeins: l\l\i JJUi
Einnig úrvul uf ferðuskóm og skóluskóm ú
kr. 995.- 1,595,- og 1,750.-
Skóverzlun Þórður Péturssonur
Kirkjustræti 8, við Austurvöll — Sími 14181