Morgunblaðið - 16.08.1973, Page 16

Morgunblaðið - 16.08.1973, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1973 JBargimWaMt* Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjlad 300,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 18,00 kr. eintakið. ¥ málefnasamningi núver- andi stjórnarflokka, sem birtur var við valdatöku stjórnarinnar um miðjan júlí 1971 voru gefin ákveðin fyr- irheit um kjarabætur til handa láglaunafólki. Þessi fyrirheit voru m.a. fólgin í styttingu vinnuviku og l,eng- ingu orlofs. Auk þeirra kjarabóta kvaðst vinstri stjórnin mundu beita sér fyrir því, að kaupmáttur láglaunafólks yrði aukinn um 20% á tveimur árum. Hinar miklu kjarabætur, sem vinstri stjórnin taldi þegar í upphafi stjórnarferils síns, að unnt yrði að tryggja, fólu að sjálfsögðu í sér mjög jákvæðan dóm núverandi stjórnarflokka um viðskilnað fyrrverandi stjórnarflokka. Auðvitað hafa þessi fyrir- heit ekki verið gefin að óat- huguðu máli, stjórnarflokk- arnir hafa væntanlega kann- að ástand þjóðarbúsins, þeg- ar unnið var að gerð mál- efnasamningsins og komizt að þeirri niðurstöðu, að þeir tækju við svo góðu búi úr hendi Viðreisnarstjórnarinn- ar, að svigrúm væri af þeim sökum til svo mikilla kjara- bóta. Það er því ljóst, að það er sök vinstri stjórnarinnar sjálfrar, að því marki, sem hún setti um kjarabætur hef- ur ekki verið náð. Vinnuvik- an hefur að vísu verið stytt og orlof lengt, en stjórnin hefur haldið þannig á mál- um, að þrátt fyrir góðærið mikla, sem nú ríkir, hefur kaupmáttur vikukaupstaxta verkafólks ekki aukizt nema um 7%. Það er auðvitað langt frá því marki, sem vinstri stjórnin setti. Þessi misheppnaða tilraun vinstri stjórnarinnar til þess að ná settu marki um kaup- máttaraukningu vekur að sjálfsögðu upp þá spurningu, hvað valdi. Eins og að framan greinir var það dómur stjórn- arinnar sjálfrar, að hún hefði tekið við svo góðu búi, að verulegt svigrúm væri til kjarabóta. Viðskilnaður Við- reisnarstjórnarinnar getur því ekki skýrt mistök ríkis- stjórnarinnar í þessu efni. Þá má spyrja, hvort aðstæð- ur í efnahags- og atvinnumál- um hafi verið svo erfiðar á þeim tveimur árum, sem stjórnin hefur setið, að þar sé að finna skýringuna á þessum mistökum. Allir vita, að svo er ekki. Þvert á móti hefur vinstri stjórnin átt því láni að fagna, að í hennar stjórnartíð hefur árferði ver- ið einstaklega gott til sjáv- ar og sveita. Verðlag á sjáv- arafurðum hefur hækkað ótrúlega ört eins og allir vita og aflamagn slíkt, að mikil fólksekla er í flestum ver- stöðvum. Skýringin getur því ekki verið önnur en sú, að óðaverðbólgan, sem hefur geysað í tíð vinstri stjórnar- innar, hafi í raun étið upp mestan hluta þess ávaxtar, sem góðærið hefði átt að færa okkur. Nær 19% verð- bólga á sama tíma og hún er að meðaltali um 8% í helztu nágranna- og viðskiptalönd- um hlýtur að segja til sín, enda er hún nær tvöfalt meiri en hún var að meðaltali á stjórnarárum Viðreisnarinn- ar og þótti núverandi stjórn- arflokkum nóg um þá verð- bólgu. Verkalýðssamtökin í land- inu hljóta að líta þá stað- reynd mjög alvarlegum aug- um, að ekki hefur tekizt að auka kaupmátt launa lág- launafólks nema um 7% á tveggja ára tímabili við þær einstaklega góðu aðstæður, sem ríkt hafa á þessu tíma- bili. Þess vegna hlýtur það óhjákvæmilega að vera krafa þeirra á hendur ríkisvaldinu, að þannig verði á stjórn efna- hagsmála haldið, að svo alvarleg mistök verði ekki gerð á nýjan leik. Framundan eru nýir kjara- samningar. Það var mat nú- verandi ríkisstjórnar, að við lok Viðreisnartímabilsins hefði verið mikrð svigrúm til kjarabóta. Þá var þjóðarbúið að byrja að rétta við eftir áföll áranna 1967—1969. Erfitt er að trúa því, að stjórnarflokkarnir telji að- stæður verri nú að loknu tveggja ára tímabili vinstri stjórnar í því einstaka góð- æri, sem ríkir. Við íslendingar höfum langa reynslu af því, að í efnahags- og atvinnumálum okkar skiptast á skin og skúrir. Sjávaraflinn og verð- lag sjávarafurða erlendis skiptir sköpum í þeim efn- um. Við þekkjum afleiðingar áfallanna og þess vegna skiptir höfuðmáli, að góðærið nýtist sem bezt til þess að bæta kjör almennings í land- inu og þá ekki sízt þeirra, sem lægst eru launaðir. Það er með eindæmum lélegur árangur, að ekki skuli hafa tekizt að auka kaupmáttinn nema um 7% á þessum tveim- ur árum og náttúrlega alger svik á þeim loforðum, sem „stjórn hinna vinnandi stétta“ gaf í upphafi stjórnarferils síns, þegar hún lofaði 20% aukningu kaupmáttar. Verka- fólk getur ekki unað svo lé- legum árangri, þegar öll skil- yrði eru til þess að kjörin batni mjög verulega. AÐEINS 7% - EKKI 20% EFTA ekki lagt niður á næstunni — segir Bengt Rabbeus, framkvæmdastjóri þess Elnar Benediktsson wndiherra, Þórhallur Ásjfeirsson ráðuneytisstjóri og Bengt Rabbeus framkvæmdastjóri EFTA. HÉRLENDIS dvelst nú Svi- inn Bengt Rabbeus fram- kvæmdastjóri Fríverzlunar- samtaka Evrópu, EFTA, og hefur hann rætt við islenzka ráðamenn um íslenzk efna- hagsmál ng málefni samtak- anna. Rabbeus hefur verið framkvæmdastjóri samtak- anna í eitt og hálft ár, en gegndi áður starfi aðstoðar- framkvæmdastjóra. Þar áður starfaði hann í sænsku utan- ríkisþjónustunni og var m. a. sendiherra Svía í Alsír á ár- unum 1963—66. Rabbeus hélt fund með fréttamönnum í gær ásamt Þórhalli Ásgeirssyni ráðuneyt isstjóra í viðskiptaráðuneyt- inu og Einari Benediktssyni sendiherra íslands hjá EFTA. Hann var m. a. spurður um helztu framtíðarverkefni sam takanna. Rabbeus sagði, að aðstæður hefðu. breytzt í Evr- ópu og væri staða samtakanna önnur nú, eftir að England, Danmörk og Irland væru gengim i Efnahagsbandalag Evrópu og öll hin meðlima- ríki EFTA að Finnlandi und- anskildu gert viðskiptasamn- inga við bandalagið. Höfuð- verkefni samtakanna yrði nú samræming á útfærslu þeirra samninga sem ríki EFTA hafa gert hvert fyrir sig við EBE, og lausn þeirra vandamála á sameiginlegum grundvelli, cem þeir samningar kunna að hafa í för með sér. EFTA ríkin hafi samræmt stefnu gagnvart EBE áður en þau gengu hvert um sig til tvíhliða samninga við bandalagið og yrði EFTA áfram samræmingaraðili fyr- ir ríkin gagnvart EBE. Um samninga Islands við EBE sagði Rabbeus, að þar sem að formi til semdi hvert EFTA riki fyrir sig við bandalagið hefðu samtökin ekki lagagrundvöll til að grípa beinlínis inn í slíka samningagerð eða beita sér sem heild gegn EBE, en hins vegar hefðu fyrirvarar þeir, sem íslandi voru settir vegna landhelgisrnálsins verið rædd ir hjá EFTA. Annað höfuðverkefni EFTA taldi Rabbeus vera að við- halda og annast framkvæmd á því tollasamkomulagi, sem fyrir er miHi EFTA-ríkj- anna, enda væri sú totl- frjálsa verzliun, sem komið hefói verið á mjög mikilvæg fyrir aðiMarrikin. Einnig væri mikilvægt verkefná fyr- ir EFTA, að vinna að afnámi amnarra vi ðski pt at álmama en tolla og hefðu EFTA-ríkin gert með 9ér ýmsa samninga tæknilegs eðlis um vöru- staðla, — prófun og mat, sem orðið hefðu öðrum til eft- irbreytni. öil þessí mál hafa verið til umræðu í viðræðum Rabbeus ar við íslenzka ráðherra og embættismenn. Auk þess hef- ur verið rastt um tolla á nokkrum sjávarafurðum, sem nú falla ekki undir samkomu- lag Islands við EFTA, en íslendiingar hafa farið fram á að yrðu felldir niður í EFTA-ríkjunum. Hér er um að ræða nýjan fisk, saltfisk og fHeiri ffekafurðir, en tollar á þeim hafa verið óverutegir, þótt ístendingar vi'lji af grund vallarástæðum fá þá niður- fellda. Þetta mál hefur verið í athuigun hjá EFTA, en maett andstöðu einstakra rikja og var málið lít iiitega rætt við Rabbeus, þóti ekki hafi verið um beinar samminigaviðræður að ræða. Rabbeus lagði áherzlu á hvern hag Norðurlöndin hefðu haft af þátttöku í EFTA, þvi innan þess hefði loks tekizt að koma á tollfrjálsri verzlun milli landanna. Hann var spurðmr hve lengi hann héldi að EFTA mundi verða starf- amdii og svaraði hann því til, að samtökin myndu örugg- lega starfa til ársins 1977, þegar samningar ríkja samtak aruna við Efnahagsbandlag Evrópu verða að fullu komnir til framkvæmda. Um það sem síðar kynni að gerast vildi hann engu spá, það byggðist mjöig á því, hver yrði þróun mála i Evrópu, þótt hann teldi persónutega að samtökin mundu ekki leysaist upp í ná- inni framitíð 1. júlí 1977 yrðu 350 milljónir manina á einu fríverzliunarsvæði í Evr- ópu ag kvað Rabbeus ekki ástæðu til að óttast, að »ú heild girti siig toUmúrum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.