Morgunblaðið - 30.08.1973, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.08.1973, Qupperneq 16
10 MORGÖISrBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1973 JMragmtKrfa&ifc Cltgefandi hf. Árvakur, Reykjavík, Framkvasmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson, Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Askriftargjlad 300,00 kr. á mánuði innanlands. 1 lausasölu 18,00 kr. eintakið. AT ú þegar senn er ár liðið frá útfaerslu fiskveiðitak- markanna, verðum við að horfast í augu við þá ömur- legu staðreynd, að þau mark- mið, sem að var stefnt, hafa ekki náðst. Tilgangurinn með útfærslunni var tvíþættur, annars vegar að auka friðun- arráðstafanir og hins vegar að auka hlutdeild okkar í heildaraflanum á íslandsmið- um. Um fyrra atriðið er það að segja, að gegndarlaus rán- yrkja er stunduð bæði af hálfu Breta og Þjóðverja. Þeir veiða nú eftirlitslaust á miðunum og eiga ekki á hættu að varðskipin athugi veiðarfærin. Sannanir liggja fyrir um það, að þeir hafi klætt vörpur sínar og drepið allt kvikt. Og heilu og hálfu skipsfarmarnir, sem landað er erlendis úr brezkum tog- urum, er smáfiskur. Líklega hefur rányrkjan því aldrei verið meiri en einmitt nú. Um afla togaranna er það að segja, að afli íslenzku tog- aranna hefur rýrnað miklu meir en hinna brezku. Fyrstu 8 mánuðina eftir útfærsluna, þ.e.a.s. frá 1. september 1972 til 30. apríl 1973 nam afli ís- lenzku togaranna 26.600 tonnum, en á sama tímabili ári áður var hann 40.000 tonn og hafði því minnkað um réttan þriðjung. Á tímabilinu 1. september 1972 til 30. apríl 1973 fisk- uðu brezku togararnir 101. 500 tonn. En á sama tímabili árið áður 113.700 tonn og hafði afli þeirra því minnk- að um tæp 12%. Hlutdeild Is- lendinga í togaraaflanum var því minni eftir útfærsluna en áður. Þess er rétt að gæta, að togaraverkfall var hér á þessu tímabili, en hins vegar bættust við tveir nýir togar- ar, Ögri og Vigri. Ef litið er á heildaraflann á sama tímabili og að fram- an greinir, þá var bolfisk- afli íslendinga 1. september 1972 til 30. apríl 1973, 244. 000 tonn, en á sama tímabili árið áður 264.000 tonn. Afla- rýrnunin var því tæp 10% eða örlítið minni en aflarým- un Breta. En þá er þess að gæta, að tveir stórir togarar höfðu bætzt í flotann, 5 litl- ir skuttogarar og margir bátar. Niðurstaðan er því sú, því miður, að Bretum virð- ist hafa tekizt að halda fylli- lega þeim hlut, sem þeir höfðu í heildaraflanum. Þegar togveiðarnar eru skoðaðar sérstaklega kemur í ljós, að afli íslenzku togar- anna hefur farið sífellt versnandi. Þannig var með- alveiði á togtíma íslenzku síðutogaranna árið 1971 998 kg árið 1972 871 kg og árið 1973, þ.e.a.s. frá áramótum til júlíloka, 827 kg á hvern togtíma. Aflarýrnunin á þessu tímabili er því um 17%. Fregnir hafa einnig af því borizt, að hagur brezku tog- aranna, sem sækja á íslands- mið, sé mjög góður, enda er verð aflans gífurlega hátt, að nokkru leyti vegna þess, að íslenzku togurunum er meinað að landa í brezkum höfnum. Flestir trúðu því áreiðan- lega, og þ. á m. Morgunblað- ið, að Bretum mundi reynast erfitt að fiska undir her- skipavemd og brátt gefast upp á þeim veiðum. Því mið- ur hefur raunin ekki orðið sú, og það er engum til góðs að reyna að blekkja sjálfan sig. Við verðum að horfast í augu við staðreyndirnar. Sumir reyna að vísu að hugga sig með því, að ekkert sé að marka það, sem segir í skýrslum um veiðar Breta. Það er einnig haldlaust, því að þeir yrðu bæði að falsa veiðiskýrslur og markaðs- skýrslur, ef svo ætti að vera. En einmitt vegna markaðs- kerfisins, þar sem fiskurinn er boðinn upp, liggja fyrir ömggar upplýsingar um afla- magnið, og raunar líka sölu- verðið, sem hefur verið svo gífurlega hátt, að fyrir einum mánuði seldi togarinn For- ester rúm 150 tonn fyrir hvorki meira né minna en 8 milljónir króna. Þessar staðreyndir skyggja því miður mjög á gleðina nú þegar við minnumst árs af- mælis útfærslu landhelginn- ar. ÞVÍ MIÐUR MISTEKIZT 8 dauðasyndir KONRAD Lorenz hefur ný- leg-a sent á niarkaðinn bók um þau vandamá) nútimans, sem ógna mest framtíð mann kynsins. Bókin ber heitið „8 dauðasyndir siðmenningarinn- ar“, 112 bls., Pieper Verlag Múnchen. Þessar 8 dauðasynd ir eru „syndir mannkynsins gegn sjálfu sér og náttúr- unni“, sem hann telur að mtmi gera jörðina óbyggilega og jafnvel tortíma mannkyn- inu. Konrad Lorenz er löngu heimskunnur visindamaður og rithöfundur. Hann er dýra fraeðingur að mennt og helzti frumherji atferlisfræðinnar. Hann er nú prófessor við Max Plank stofnunina í Vest- ur-Þýzkalandi. Hann hefur samið nokkrar bækur við hæfi leikmanna um heim dýranna, sem leiftra af iífsþrótti og frásagnargleði. Senniiega eru þekktastar bók hans um hundinn og „Ággress ion, das sogenannte Böse“, sem fjallar um árásarhneigð- ina. „Árásarhneigð" er raunar mjög viUamdi þýðing á al- þjóðaorðinu aggression. Aggr- ession felur í sér framsækni, sem getur beinzt inn á ýmsar brautir, þ. á m. gegn öðrum einstaklingum. Lorenz sýnir fram á, að árásarhneigðin er meðfæddur eiginleiki manns- ins og gegnir á margan hátt jákvæðu hlutverki. Lorenz játar fúslega, að hin nýútgefna bók hans sé ekki vísindalega unnin. Hann kveðst fylgja þeirri reglu, sem mæiir svo um, að vísinda- menn skuli aðeins skrifa og segja það sem þeir eru hand vissir um og geti lagt fram vlsindalega, með einni und- antekningu: þegar vara þarf við aðsteðjandi háska. „Þessi bók heyrir til und- antekningunni," segir hann í samtali við Newsweek 6. ágúst. Hann gefur þar ör- stutta skýringu á dauðasynd unum átta. Hér á eftir fylg- ir þessi grein þýdd og end- ursögð. Offjölgun. „Þegar allt er saman dregið, verður ljóst að offjölgun mannkynsins er grundvallarmeinsemdin". Lor- enz uggir ekki sérlega um fæðuöflunina, heldur hitt, að lifsrýmið (Lebensraum) þverr stöðugt. Atferlisfræðingar hafa upp- götvað hvemig náttúrlegar umgengnisvenjur og siðaregl ur dýranna lenda i handaskol um ef þröngt er búið. Árás- arhneigð þeirra keyrir úr hófi og ófremdarástand mynd ast. Svipuðu máli virðist gegna um mannskepnuna og má til þess rekja að nokkru leyti andfélagslega hegðun í stór- borgum. Andfélagsleg hegðun er nú þegar gífurlegt vandamál i mörgum löndum, en Lorenz telur að offjölgunin muni leiða til neyðarástands. Mengain. „Okkur stafar svo augljós hætta af menguninni að valdhafamir verða að láta til skarar skríða sem allra fyrst. Innst inni held ég, að nú náligist sú stund, að mann- fólkið sjái svart á hvítu, að það hefur brennt allar brýr að baki sér.“ Hömlulaus hagvöxtur. Lor- enz álítur að þau iðnríki, sem aðhyllast taumlausan hag- vöxt, horfi visvitandi fram- hjá afleiðingum þessarar stefnu. Hann kveður algert hrun fyrirsjáanlegt ef ekkí verði söðlað um. Hann svárar stuttur i spuna hinni sígildu viðbáru, að slökun á hagvextinum leiði til atvinnuleysis: „Það verður atvinnuleysi hvort sem er, sannaðu til.“ Sljóleiki andans. Hin vel heppnaða barátta tæknivís- indanna og iyfjafræðinnar fyrir veröld án sársauka, erfiðis og fyrirhafnar hefur slævt tilfinningar okkar og skynjun i svo rikum mæli, að hæfileikinn til innilegrar gleði, hreystilegs átaks og sannrar hrifningar er allur í molum. „Björtustu stundir lifsins eiga sér oftast forsögu barn- ings og þrauta,“ segir Lor- enz. Konrad Ixrenz. Baldur Hermannsson — Fólk og vísindi Siðferðileg ringulreið. Lor- enz varar við sivaxandi virð- ingarleysi fyrir grónum hátt um og menningarlegum verð mætum. Losaraleg fjölskyldutengsl er eitt af óheUlavænlegustu fyrirbrigðum nútima þjóðfé- iags. Þetta bitnar harðast á ungviðinu, sem fyrir vikið get ur ekki lengur dregið dám af fjölskyldu sinni og átt þar traustan, siðferðilegan bak- hjarl. „Það er háskaleg firra, að varpa fyrir róða grónum sið- venjum, þótt nytsemd þeirra liggi ekki í augum uppi. Iðulega verður hið eiginlega hlutverk siðvenjunnar í þjóð- félaginu þá fyrst ljóst, þegar búið er að afnema hana, en þá er það Iika um seinan." Úrkynjun. Lorenz víkur að þeirri gamalkunnu staðreynd, að þeir æxlast örast sem sízt skyldi. Hann bendir á, að þetta leiði smám saman til úrkynjunar mannfólksins. Hann telur að sú forheimsk un sálarinnar sem einkennir hiina hortugu hjörð byltingar- sinnaðra ungmenna, eigi sér meðal annars erfðafræðilegar forsendur. Áróður. Lorenz ber saman þá stjórn mannshugans á Vesturlöndum, sem gerist fyr ir tilstilli augiýsinga, skoð- anakannana og fjölmiðla, við samsvarandi aðfarir í komm- úni'stalöndunum. Niðurstaða hans er sú, að bæði kerfin fljóti að sama feigðarósi: frumkvæðið er sogið úr ein- staklingnum og honum breytt í þægt, stýrilátt tannhjól í félagsvélinni. „Viðgangur nasistanna á sinum tíma var talandi tákn um að unga fólkið vildi láta skipa sér fyrir verkum. Þess ir nytsömu sakleysingjar, sem nú skríða í einfeldni að íljum hlnnar marxísku kreddu, eru nákvæmlega sama manngerð og sú, sem féH í móðurætt fyrir nasism- anum.“ Kjarnavopn. Lorenz telur kjarnavopnin svörtustu synd mannkynsins, en jafraframt þá, sem hsagast megi varast. Hann kveðst frekar bjartsýnn á að þetta vandamál verði bráðlega leyst á skynsamleg- an hátt. Margra úrlauisna er völ, en hann minnir á að i raun réttri er málið harla einfalt: „Allt sem þarf, er að stöðva fram- leiðslu kjarnavopnanna og forðast að beita þeim. En sakir hinnar voðalegu heimsku mannfólksins mun hvort tveggja svo sem reyn- ast nógU örðugt viðfangs.“ Þessi bjartsýnisvottur nær ekki tii hinna dauðasyndanna, en Lorenz áréttar að bók hans sé engin dómsdagsprédikun. „Ég myndi ekki hreyfa þessum málum, ef ég héldi að orrustan væri töpuð. Þá myndi ég heldur skrifa um gæsirnar mínar og láta mann skepnuna afskiptalausa."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.