Morgunblaðið - 06.09.1973, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.09.1973, Qupperneq 17
MORGLTNBLAÐIÐ — FIMMTUÐAGU’R 6. SEPTEMBER 1973 17 Vika á Vestfjördum: Margt aðkomufólk, en lítið húsnæði Rætt við Gunnar Pálsson, sveitarstjóra á Suður- eyri og Þorbjörn Gissurarson í frystihúsinu Suðure.yTÍ við Súgandafjörð mun nú stærsta kauptún í Vestur-ísafjarðarsýslu, en þar bjugfgu 1. des. sl. 518 manns. Af þessum íbúafjölda eru börn undir sex ára aldri 91 talsins, en börn 7-14 ára eru 84. Þess ar uppl. kuniu m. a. fram í samtali sem i>lm. Mbi. átti við Gunnar Pálsson sveitar- stjóra á Suðureyri nýlegra. Gunnar sagði, að til jafnaðar væru 40-50 manns annars stað ar að af landinu í vinnu á Suðureyri og færi sú tala að vetrinum í um 100 manns. Kvað hann það bagalegt fyrir hreppinn, að þetta fólk skyldi ekki setjast þar að og greiða sin gjöld til hreppsins, sem veitir því þjónustu jafnt sem öðrum. — Við höfum undanfarin ár orðið að byggja mikið á aðkomufólki við fiskvinnsluna hér á Suðureyri, en húsnæðis . vandræðin hér eru mjög mikil og standa okkur fyrir þrifum. Aðkomufólki er hoiað niður út um allt i þorpinu, hvar sem smuga finnst. 27 HEILSUSPILLANDI IbCðir. Hér hefur verið það langt hlé á ibúðabyggingum, að þetta veldur okkur miklum vandræðum nú. Húsnæði hér er yfirleitt orðið gamalt og margt af því illa farið. Sam- kvæmt ósk Húsnæðismálastofn unarinnar var gerð könnun á þvi hve mikið húsnæði hér væri talið heilsuspillandi og kom í ljós að 27 íbúðir eða um þriðjungur alls ibúðarhús næðis hér, er i þannig ástandi. Ætlazt er til, að þessu hús- næði verði útrýmt og á sveit arfélagið að bera helming kostnaðar við það, en ríkið hinn helminginn. Þetta yrði þvi mjög dýrt fyrir okkar sveitarfélag og er okkur raun ar ofviðe. BLOKK I BYGGINGU. Nú eru 5 einbýlishús i byggingu i þorpinu og auk þeirra er hreppurinn nú að fara út i byggingu 12 ibúða biokkar, og er fyrirhugað að ljúka við botnplötuna I haust. Við höfum sótt um að fá að byggja 25 íbúðir í leiguhús- næði i samræmi við lög um það efni frá síðasta þingi og höfum hugsað okkur að byggja þær í tveimur blokk- um til viðbótar þeirri sem nú er í byggingu. En það háir okkur mikið hér í sambandi við byggingar, að erfitt er að fá faglært vinnuafl til starfa. Iðnaðarmenin fást aðeins að sunnan, ef geysihá laun eru í boði og ferðir og uppihald trttt. NYR BRIMBRJÓTUR. — Hverjir eru aðrar helztu framkvæmdir á vegum hrepps ins? — Verið er að vinna að hafskipabryggj una og byggja nýjan grjótgarð framan við hana. Þessu verki á að ljúka i haust og er gert ráð fyrir að það kosti um 7 milljónir króna, sem ríkið greiðir að þrem fjórðu hlutum. Öll fjár- hagsáætlun hreppsins hljóðar upp á 14 milljónir króna. Hér er fyrir gamall brim- brjótur, sem nú er farinn að láta mikið á sjá og við höfum lengi barizt fyrir að í þessar framkvæmdir yrði ráðizt. Hafnarmálin hjá okkur hafa verið óviðunandi, héðan eru gerðir út 5 stórir bátar og 15 smábátar og aðstaða er ekki fyrir hendi fyrir þá alla, þeg ar þeir eru inni og þarf að ráða þar bót á. ÖNNUR VERKEFNI. Við byrjuðum í fyrra á því að skipta um dreifiikerfi fyrir Gunnar Páisson sveitarstjóri á Suðureyri. Úr vinnslusal Fiskiðjunnar Freyju. iWHi ' Þorbjöi-n Gissurarson hjá Fiskiðjunni Freyju. 'i vatn og skolp og eru götumar hjá okkur núna tilbúnar und ir varanlegt slitlag, sem vænt anlega kemur næsta sumar. Við viljum helzt að lagt verði á attt þorpið, en alla vega 800 metra frá brimbrjötnum og inn fyrir kauptúnið. Lengi hefur verið fyrirhug- að að byrja á stækkun bama skólans og byggja stofur fyrir verklega kennslu, handiavinnu og eðlisfræðistofur. íþrótta- aðstaða hefur engin verið í þorpinu en nú er verið að vinna í uppfyllingu fyrir iþróttavöll, sem við vonum að verði tilbúinn í ágúst. Þá er hreppurinn að byggja stórt áhaldahús fyrir tæki hreppsins, brunabíl og snjó- bíl. Við höfum haft hér snjó- bíl til öryggis i samgöngu- leysinu að vetrinum, þvi hér er mikið snjóavíti. Hann hef- ur verið notaður til sjúkra- flut.ninga en einnig hafa verið farnar fastar ferðir á honum á flugvöUinn við Isafjörð tvisv ar i viku. Landleiðin er vana- lega lokuð hingað að öðru leyti 4-5 mánuði á ári og gef ur auga leið, hve bagalegt það er fyrir íbúana. Við fáum því allar okkar nauðsynjar með skipum og erum ekki of ánægð hér með þjónustu Skipaútgerðar rík'sins því ferðir eru strjálar og vöru- skortur hefur orðið. FISKIÐ.IAN FREYIA. Síðast liðið haust tók til starfa á Suðureyri nýtt frysti hús Fiskiðjunnar Freyju. Hús ið er nýtt og hið glæsilegasta í öllu tilli'ti, þar eru rúm- góðar vistarverur fyrir starfs fólk, stór matsalur og húsið allt byggt samkvæmt ýtrustu hreinlætiiskröfum. Fram- kvæmdastjórar fyrirtækis- ins eru Páll Friðbjöms- son og Þorbjöm Gissurarson. Þorbjörn er húsasmíðameist- ari og sá um byggingu nýja frystihússins áður en hann tók að sér að stjórna því. Þorbjöm sagði blaðamanni, að eigendur frystihússins væru flestir einstaklingar, en emnig hefði hreppurinn og kaupfélagið lagt fram hlutafé. í nýja hús'.nu fer næstum öll starfsemd frystihússins fram, en i eldri áfastri byggingu er grófari vinnsla, heilfrysting og saltfiskverkun. Á efri hæð eldra hússins eru f jórar starfs mannaíbúðir, sem ætlaðar eru fyrir aðkomufólk, og kvað Þor björn vera mikl-a nauðsyn á að hafa slika aðstöðu fyrir utanbæjarfólk. í frystihúsinu vinna um 120 manns og auk þess rekur Fiskiðjan fjóra stóra báta. Hjá Fiskiðjunni leggja fleiri bát- ar upp. I sumar hefur frysti- húsið einnig tekið fsk af öðrum aðlum, m. a. af hin- um nýju skuttogurum Súð- víkinga og Isfirðinga. Sam- hliða frystihúsnu rekur Freyja beinavinnslu og vél- smiðju. I fyrra var frystihús- ið í u. þ. b. 12. sæti að fram leiðslumagni yfir landið og framleiddi þá 5400 tonn af freðfiski að verðmæti 115 millj ónir króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.