Morgunblaðið - 22.09.1973, Page 10

Morgunblaðið - 22.09.1973, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1973 1974 árgerðin frá Volvo og Saab Eins og áður leggja sænsku bnaframleiðendurnir megin áherzlu á sterka bfla og trausta. öryggisbúnaður bílanna frá Saab og Volvo er einhver sá bezti sem völ er á. Hvorugur þessara framleiðenda hefur gert miklar áberandi breyt- ingar, en ýmislegt hefur þó verið bætt ogstyrkt. Volvo höggdeyfarnir hafa enn verið styrktir og eiga nú að þola árekstur á allt að 5 km/klst. hraða án þess að bíll- inn skemmist. Ökumannssætið er nú með hitara, eins og fram kom hjá Saab i fyrra. Upp- hitunin er tengd hitastillí, þannig að, þegar sætið er kaldara en 14 gráður fer hita- kerfið af stað og hitar upp í 26 gráður. Upphitunin frá 0 til 26 gráður tekur um 3 minútur. Benzíngeymirinn hefur verið fluttur framar og er komið fyrir undir gólfplötunni. Þannig er minni hætta á, að geymirinn skaddist við aftan- ákeyrslu. Rúmmál geymisins hefur verið aukið um tvo lítra, í 60 lítra. 1 mælaborði er auk venju- legra viðvörunarljósa, Ijós, sem kviknar ef bilun verður á stöðu- Ijósum, aðalljósum og bremsu- eða bakkljósum. Stýrisstöngin er einnig endurbætt og enn öruggari en áður. Volvo 144 de luxe er eins og áður með 90 hestafla (SAE) standard-vél, en fáanlegur tveggja blönd- unga, 118 hestöfl (SAE) . Þá er Volvo 142 Grand Luxe með 135 hestafla (SAE) vél. Volvo 144 de luxe kostar rúml. kr. 700 þúsund. Umboðið EFSTA MVNDIN: Saab 99 EMS, sem er sérgerð af Saab 99, hefur tveggja lítra vél með rafstýrðri innspýtingu. Krafturinn er 110 hestöfl (DIN). TEIKNINGIN: Þver- hefur Veltir hf, Suðurlands- braut 16. 1974 gerðirnar af Saab 99L hafa hina sænsku 2-lítra vél, sem með blöndungi er 95 hest- öfl (DIN). En með rafmagns bensín-innspýtingu er hún 110 hestöfl (DIN). Bíllinn er fáan- legur bæði tveggja og fjögurra dyra. Hnakkapúðar eru inn- byggðir í bök framsætanna. Stýrishjólið er nýtt og mjúkt. Þægilegt er að halda um það og miðja stýrishjólsins tekur sér- lega mjúklega við höggi. Mæla- borðið er þannig hannað, að endurskin út frá því er í lág- marki. Öllum stjórntækjum er þannig fyrir komið, að ökumaður nær auðveldlega til þeirra þó að hann sé með ör- yggisbeltin spennt. höggdeyf- arnir bera nafn sitt með réttu og taka við höggi allt að 8 km/klst. hraða án þess að skemmdir verði. Þessir högg- deyfar eru upphaflega hannað- ir til að koma I veg fyrir smá- skemmdir við að leggja bíln- um. Framsætin eru ný og þrýsta betur að líkamanum en áður. Hita- og loftræstikerfið er einnig nýtt og býður upp á meiri loftstraum á hliðar- og afturglugga til að minnka móðumyndun. Saab 99 kostar 2ja dyra L gerðin, kr. 703 þúsund tilbúinn á götuna. Haldið er áfram fram- leiðslu á minni gerð Saabbil- anna, Saab 96 eins og áður og kosta þeir nú rúml. kr. 550 þús- und. Saab-umboðið hefur Sveinn Björnsson og Co, Skeifunni 11. skurður af helzlu hreytingunum á 140 gerðunum hjá Volvo. NEÐSTA MYNDIN: Volvo 140. Litlar sýnilegar breytingar að innan. FJORÐA STARFSAR KOR- SKÓLA PÓLYFÓNKÓRSINS Kórskóli Pólýfónkórsins byrjar fjórða starfsár sitt um næstu mánaðamót. A fimmta hundrað nemendur hafa stundað nám í kórskólanum, siðan hann hóf göngu sína fyrir þremur árum. Margir af fyrri nemendum kór- skólans syngja nú i Pólyfón- kórnum og taka virkan þátt f starfi hans. Segja má, að kórskólinn hafi bætt úr brýnni þörf, því að almenningur á lítinn kost á söng- eða tónlistarkennslu, nema þá dýrrar einkakennslu. Fjölda fólks iangar til að syngja og iðka tónlist en hefur fá tækifæri til þess eða kemur sér ekki að því sökum óframfærni, jafnvel þótt það sé gætt góðum hæfileikum. Þessu fólki veitir kórskólinn gott tæki- færi til að reyna getu sína og leggja grundvöll að söngnámi og hollri tónlistariðkun. Rétt beiting raddarinnar er öllum mikilsverð, bæði f tali og söng. Kennslan fer fram í smáhópum, og eru engar kröfur gerðar til fyrirfram kunnáttu. Hins vegar verður starfræktur framhaldsflokkur fyrir þá, sem stundað hafa nám I kórskólanum áður eða hafa nokkra reynslu og kunnáttu fyrir. Meðal kennara kórskólans eru Rut Magnússon, Einar Sturluson, Lena Rist og Ingólfur Guðbrands- son, söngstjóri Pólýfónkórsins. Kennsla fer fram í Vogaskóla á mánudagskvöldum, og verður kennt 2 stundir í senn, raddbeit- ing, söngur, heyrnarþjálfun, tón- heyrn og taktæfingar og nótna- lestur. Námskeið það, sem nú hefst, stendur til jóla, og hafa margir þegar látið innrita sig. Starfsemi Pólýfónkórsins er einnig að hefjast, og er f ráði að taka eitt af stórverkum J.S. Bachs til flutnings í vetur með kórnum, hljómsveit og einsöngvurum. Allir, sem hafa hug á að taka þátt f starfsemi kórsins í vetur, eru beðnir að hafa samband við stjórn kórsins eða söngstjóra hið allra fyrsta. Eins og kunnugt er, fór Pólý- fónkórinn i mikla söngför til Sví- þjóðar og Danmerkur í sumar, þar sem hann hélt opinbera tón- leika og hlaut mikið lof þekktra gagnrýnenda í stærstu dagblöðum Norðurlanda. 1 þeirri för var fyrsta hljómplata kórsins hljóðrit- uð, hjá sænska útvarpinu í Stokk- hólmi. Á henni kemur út úrval þeirrar efnisskrár, sem flutt var f söngförinni, bæði íslenzk og erlend tónlist, og kemur hún á markað hjá hinu þekkta hljóm- plötufyrirtæki R.C.A. bæði hér heima og erlendis í næsta mánuði. Munu hinir mörgu aðdáendur kórsins hugsa gott til að fá þetta sýnishorn af söng kórsins til jóla- gjafa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.