Morgunblaðið - 22.09.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.09.1973, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 22: SEPTEMBER 1973 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarssoo. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100. Auglýsingar Aðaistræti 6, sími 22-4-80. Áskriftargjald 360,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 22,00 kr. eintakið. Fins og greint hefur verið frá hér í blaðinu, gerðist það á ríkisstjórnarfundi sl. þriðjudag, að ráðherrar Al- þýðubandalagsins kröfðust þess, að sérstakir eftirlits- menn yrðu sendir með Ein- ari Ágústssyni, utanríkisráð- herra, á Allsherjarþing Sam- einuðu þjóðanna í New York. Tillaga þeirra Magnúsar Kjartanssonar og Lúðvíks Jósepssonar var á þá leið, að tveir ráðherrar yrðu sendir með utanríkisráðherranum. Fram að þessu hefur utan- ríkisráðherra að sjálfsögðu sótt þingið einn ráðherr- anna. I»að vakti athygli, að hvorki forsætisráðherra né utanrík- isráðherra kom í veg fyrir, að tillaga þessi væri sam- þykkt á ríkisstjórnarfundi, heldur var það Bjöm Jóns- son, ráðherra frjálslyndra og vinstri manna, sem barði í borðið og sagði, að slíkt kæmi alls ekki til mála. Kommúnistar hafa að und- anförnu stöðugt verið að færa sig upp á skaftið í yf- irgangi sínum gagnvart for- sætisráðherranum og utan- ríkisráðherranum. Þeim hef- ur venjulega tekizt að koma sínu fram og niðurlægja sam- ráðherra sína. Ljóst er, að nú hafa þeir talið, að þeir væru búnir að koma ár sinni svo vel fyrir borð, að for- sætisráðherra og utanríkis- ráðherra mundu beygja sig fyrir þessari síðustu kröfu, eins og líka kom á daginn. Hins vegar áttuðu kommún- istar sig ekki á því, að Björn Jónsson mundi sjá, hvert þeir stefndu. En Björn var um langt skeið samflokks- maður þeirra Magnúsar Kjartanssonar og Lúðvíks Jósepssonar og þekkir klæki þeirra allra manna bezt. Þeir reyndu heldur ekki svo lítið til að eyðileggja Björn og raunar líka Hannibal Valdi- marsson, þegar þeir störfuðu með kommúnistum. Tilgangur Magnúsar og Lúðvíks var tvíþættur, ann- ars vegar að niðurlægja ut- anríkisráðherra og Fram- sóknarflokkinn, en hins veg- ar að „passa“ utanríkisráð- herrann, þannig að hann „talaði ekki af sér“, hvorki í ræðustól né einkaviðræðum við þá ráðamenn, sem hann kynni að hitta að máli. Ut- anríkisráðherra fær yfirleitt aldrei að taia einslega við út- lenda ráðamenn, honum við hlið situr annað hvort Lúð- vík Jósepsson eða Magnús Kjartansson, og svo er menntamálaráðherrann hafð- ur eins og nokkurs konar punt með. Þannig vasr það auð vitað beinlínis hjákátlegt, að ráðherramir þrír skyldu fara til Þýzkalands . vegna samningaumleitana í land- helgismálinu, enda afrekaði ríkisstjórnin þá að gera land- ið stjórnlaust í bókstaflegum skilningi, því að enginn ráð- herra var nærri stjórnarráð- inu, 5 voru erlendis og 2 aust- ur á landi. Vissulega ber að fagna því, að þessari síðustu aðför að ráðherrum Framsóknar- flokksins var afstýrt. En hins vegar hljóta menn um allt land að spyrja: Hvenær renn ur það upp fyrir ráðamönn- um Framsóknarflokksins, hvernig þeir eru að leika flokkinn? Gera þeir sér enga grein fyrir því, að kommún- istar hafa þá að leiksoppi í einu máli af öðru? Halda þeir, að hinn almenni flokks- máður í Framsóknarflokkn- um sjái ekki hvert stefnir? Það sér landslýður allur, þótt frekja og ofríki komm- únista komi að vísu ekki nema tiltölulega sjaldan fram opinberlega, miðað við allt það ofríki, sem þeir beita — og komast upp með vegna undanlátssemi framsóknar- ráðherranna. Þannig starfar t.d. herfor- ingjanefndin svonefnda, ráð- herranefndin í utanríkismál- um, þó að utanríkisráðherrA hafi gefið úm það opinber- lega yfirlýsingar, að hann hygðist einn fjalla um þau mál. Magnús Kjartansson kemur með nafna sinn, menntamálaráðherrann, á fund utanríkisráðherra, þeg- ar honum sýnist, og þar eru þessi mál öll rædd. Menn geta rétt ímyndað sér, hver þremenninganna hef ur frumkvæði á þeim fund- um og hver ræður ferðinni, þegar hliðsjón er höfð af þeim atvikum, sem upp á yfirborðið hafa komið, þar sem þeir Magnús og Lúðvík hafa farið sínu fram, hvað sem skoðunum meðráðherr- anna hefur liðið. Magnús tók sér meira að segja fyrir hend ur að niðurlægja forsætis- ráðherrann beint, er hann tók til við að skipa raforku- málum kjördæmis forsætis- ráðherrans að eigin vild og þvert gegn vilja æðsta manns ríkisstjórnarinnar. Ekki veit Morgunblaðið, hvað kommúnistar taka sér næst fyrir hendur í herferð- inni gegn framsóknarráð- herrunum, en víst er það, að ekki sitja þeir aðgerðalaus- ir héðan í frá fremur en hingað til. Það er mál til komið, að staðið sé gegn þeim. FREKJA LUÐVIKS 0G MAGNÚSAR KOSNINGA- BARÁTTAN í SVÍÞJÓÐ EFTIR ANDRES KUNG „NÚ EÐA aldrei“ var slagorð margra við kosningarnar í ár. Skoðanakannanir höfðu und- anfarið ár sýnt að borgara- flokkarnir ættu stöðugan stuðning meirihluta kjósenda. Aldrei voru eins góðar likur á að stöðva hálfrar aldar gamla einokun jafnaðar- manna á stjórn ríkisins. Nú gat stjómarandstaðan tekið og haldið forustunni í kosningabaráttunni. Þeim heppnaðist að gera hið mikla atvinnuleysi og hina háu skfctta að aðalatriðum kosn- ingan-na. Ríkisstjómin varð að berjast úr varnarstöðu. Á síðustu tveimur árum hefur atvinnuleysi verið meira en nokkru sinni frá síðari heims styrjöld. Æ fleira fólk kvart- ar yfir skattabyrðinni. Verð- hækkanir hafa étið upp launa hækkanir, og einnig hefur þar haft áhrif skattpíning meðaltekjufólks. Sænskur verkamaður borgar í dag að meðaltali 35% af launum sín um í beinan tekjuskatt, en vinni hann sér Lnn hundrað kall til viðbótar þarf hann að greiða 60% skatt af þeirri tek j uaUkningu. Meðalverka- maður greiðir meir en 60% af öllum tekjum sínum í skatta ef miðað er við alla óbeina skatta og gjöld. Það versta sem komið get ur fyrir jafnaðarmannastjórn er atvinnuleysi, og þess get um við líka minnzt í sambandi við íslenzku kosningarnar 1971 og efnahagsvandann ár- ið eftir. Stærsti stjómarand- stöðuflokkurí.nn í Svíþjóð, Miðflokkurinn ögraði jafnað- armönnum með því að lofa að skapa 100.00 nýjar atvinnu- stöður á einu ári. Ríkisstjóm jafnaðarmanna með Olof Palme, forsætisráð- herra í broddi fylkingar neydd ist alla kosningabaráttuna til Palme — forystumaður sósíalista. að verja sig gegn þeim ásök- unum stjórnarandstöðunnar að hún hefði vanrækt atvinnu lífið. Þanniig varð eitt af hin- um gömlu slagorðum jafnað- armanna, „atvinnuöryggi", að púðri fyrir stórskotalið stjóm arandstöðunnar. Ríkisstjórn- in reyndi að verja sig með því að atvinnuleysi væri líka mik ið í öðrum löndum, að at- vitnnuleysið stafaði að nokkru leyti af því að fleiri konur leituðu út á vinnumarkaðinn, og að bjartara væri nú yfir framtíðinni eftir því sem efna hagsástandið færi batnandi. Stjórnarandstaðan fór létt með að skjóta röksemda- færslu ríkisstjórnarinnar sundur og saman. Víst er það rétt að gróska var i atvinnu- lífinu, en það hjálpaði ekki þeim 100.000 sem ekki tókst að fá neina vinnu. Vissulega var það gott að ríkisstjómin lofaði að leggja meiri áúerzlu á að berjast við atvinnuleysið í framtíðinni, en til hvaða nýrra aðgerða ætlaði Palme að grípa nú þegar hin gamla stefna jafnaðarmanna í at- vinnumálum dugði ekki til lengur? Ef ríkisstjórnin ætl- aði að berjast meir gegn at- vinnuleysinu í framtíðinni, fól það þá ekki i sér að menn hefðu ekkí gert allt sem í þeirra valdi stóð á undaníörn um árum? Slikum spuming- um var svarað með þögninni af hálfu ríkisstjórnarinnar. Palme varð aðeins að vona að hinar gömlu birgðir trausts hjá kjósendum til velferðar- rikisins væru ekki alveg upp- urnar þrátt fyrir mistökin á síðustu árum. Ríkísstjórnin reyndi að kenna áhrifum erlendis frá um „glötuðu árin tvö“, —■ 1971—72 — í sænsku efna- hagslífi. Stjómarandstaðan svaraði með því að vitna til helztu efnahagssérfræðinga verkalýðshreyfingarinnar. Þeir sendu frá sér skýrslu vorið 1973 þar sem þeir segja að þessi efnahagsvandamál væru í aðalatriðum heimatil- búin, og þar með sök jafnað- armannastjómarinnar. Hinn pólitíski armur verkalýðs- hreyfingarinnar, þ. e. Jafnað- armannaflokkurinn, fékk þannig bylmdngshögg af stéttararmi hennar, þ.e. verka lýðshreyfin.gunni með lands- samtökin LO í fararbroddi. LO studdi einnig kröfu stjóm arandstöðunnar um að rikis- stjórnin ætti að láta gera áætl un um atvinnumálastefnu til langs tíma. í örvæntingu sinni lét rik- isstjórnin leiðast út í að halda þvl fram að atvinnuleysið staf aði af „hinu Lnnflutta vinnu- afli“. Mörgum þótti það dap- urlegt að hinn mikil alþjóða- sinni, Palme, skyldi grdpa til frumstæðrar útlendingagrýiu I flokkspólitískum tiilgangi. Palme var sakaður um að tala um hina innfluttu verka menn sem verzlunarvöru, „inn flutt vinnuafl" fremur en manneskjur. „Innflytjenda- grýlan“ var um tíma mitkið rædd í kosninigabaráttunni unz Palme sá að sér og hætti að kenna henni um atvinnu- leysið. Stjórnarandstaðan einbeitti sér að því í kosningabaráttu sinni, að sýna fram á mistök stjórnarinnar á síðasta kjör- tímabili, frá 1970. Stjómin hafði lofað fullri atvinnu, en í staðinn fékk þjóðin mesta atvinnuleysi frá stríðslokum; stjómin hafði lofað hraðri efnahagsþróun, en þjóðarbú- skapurinn og einkaneyzlan stóðu í stað. Rikisstjórnin varði siig eins og áður Segir með því að halda þvi fram að vandamál in væru ekki af hennar völd- um, með þvi að lofa að stefn- ain yrði „enn betri“ í framtið- inni og alla vega betri en borgaraflokkarnir gætu boð- ið upp á ef þeir kæmust til valda. Hún fól einstaklingum, fyrirtækjum og héruðum að taka Sig á í athafnasemi. Borg ararflokkarnir kröfðust hins vegar nýs andrúmslofts þar sem betur væri hlúð að fyrir- tækjunum. Ekki var talið æskilegt að auka almennt haignaðarmöguleika fyrir- tækja. Mörg þeirra höfðu þeg ar góðan hagnað. Því var tal in hætta á að verðbólgan yk- ist enn meir ef meiri áherzla yrði lögð á vöxt þjóðarbúskap arins í heild, heldur en vöxt á takmörkuðum sviðum. Hin borgaralega stjórnar- andstaða samanstendur af þremur flokkum: Hægra flokknum (Moderata saml- inigspartiet, -—- sem næstum samsvarar Sjálfstæðisflokkn- um en hefur þrengri félags- iegan grundvöll), hinum frjálslynda Þjóðarfiokki sem vinnur með Miðflokknum (en hann minnir um margt á Framsóknarfiokkinn á ís- landi). Jaf naðarmenn hafa alla tíð notfært sér þessa þri- skiptingu stjórnarandstöðunn ar, og nefnt hana klofna og kraftlausa, óhæfa til að mynda starfhæfa samsteypu- stjórn. Og sem andstöðu við þetta hafa þeir bent á að jafn aðarmenn hafi reynslu aif stjórnarstörfum allt frá 1932. Ástandið breyttist er Þjóðar flokkurinn oig Miðflokkurinn komu sér samain um sameigin lega stefnuáætlun í lok sjö- unda áratugarins. Þeir hófu náið samstarf í þinginu í því augnamiði að skapa traust- vekjandi valkost gegn jafnað- armönnum. Og enn var stjórn imni gerður klofningsáróður- inn erfiður er Hægri flokkur- inn lýsti sig samþykkan sam- komulagi hinna andstöðu- flokkanna tveggja sem grund vallar fyriir stjómarsamstarf:. Leiðtogar andstöðuflokkanna hófu samræmdan málflutning, gaignrýndu næstum aldrei hverjir aðra og lýstu þvi ótví- rætt yfir að þeir stefndu að Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.