Morgunblaðið - 17.11.1973, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÖVEMBER 1973
• •
Ogri og Vigri
fengu 21 millj.
Tveir togarar seldu f fyrradag 1
Þýzkalandi, og fengu báðir sæmi-
legt verð fyrir aflann. Reyndar
má kannski segja, að heildarverð-
mætið f krónum sé ekki eins gott
og það hefði verið fyrir nokkrum
vikum, en ástæðan fyrir því er
einfaldlega sú, að gengi þýzka
marksins lækkar svo til daglega
gagnvart fslenzku krónunni.
Fyrir nokkrum vikum kostaði eitt
mark 36 kr., en f gærmorgun kost-
aði það rúmlega 31 kr.
Togarinn Hjörleifur. seldi 112.5
lestir f Cuxhaven fyrir 164.189
Búizt við
feikiháu
síldarverði
Engar sfldarsölur áttu sér stað f
Danmörku f gær, en f dag áttu
nokkrir bátar að selja þar sfld.
Miklar brælur hafa verið á
Norðursjávarmiðum sfðustu
daga, á fimmtudagsnóttina lægði
aðeins, og fengu þá nokkrir bátar
afla. Eru það þeir bátar, sem selja
f dag.
Bátarnir, sem selja í dag eru:
Víðir NK með 800 kassa, Isleifur
4. VE með 600 kassa, Asgeir RE
800 með kassa, Héðinn ÞH með
700 kassa og Rauðsey AK með
1400 kassa.
Samkvæmt upplýsingum Niels
Jensen, umboðsmanns islenzku
bátanna í Hirtshals, er búist við,
að verðið á sfldinni verði mjög
hátt í dag. „Kaupmennirnir munu
rífast um sfldina, því síldar-
skortur er nú mikill," sagði hann.
mörk eða 5.2 millj. Meðalverðið er
kr. 46.60. Ekki tókst að selja eitt
tonn af aflanum og tæpt tonn var
ónýtt.
Þá seldi skuttogarinn Vigri í
Bremenhaven 225 lestir fyrir
240.900 mörk eðatæpar 10.9 millj.
Meðalverðið er kr. 48.43. 400 kg.
voru ónýt. Sala Vigra er með
hæstu sölum íslenzkra togara
fram aðþessu.
Hinn togari ögurvfkur ögri,
seldi sem kunnugt er í Þýzkalandi
á miðvikudag fyrir 10.5 millj.
Hafa þvf togarar ögurvíkur selt
fyrir 21.4 millj. á tveim dögum.
ÉT
Arekstur
Vélhjól og bifreið lentu í
árekstri á Armúla í gærmorgun,
með þeim afleiðingum að piltur-
inn, sem ók vélhjólinu, kastaðist í
snjóruðninginn. Hann mun ekki
hafa hlotið alvarleg meiðsli.
Stærsta olíumálverk á stríga á Islandi
SVEINN Björnsson listmálari
hefur nú lokið við stórt olfumál
verk fyrir JL-húsið, húsgagna-
verzlun Jóns Loftssonar hf., og
hefur málverkið verið sett upp
f verzluninni. Það er 2x6
metrar á stærð, málað á striga á
blindramma. „Þeir sögðu mér
það f Málaranum, að þetta
myndi vera . stærsta olfumál-
verk á striga, sem gert hefði
verið á Islandi," sagði Sveinn f
viðtali við Mbl. f gær. Hann
kvaðst hafa haft mikla ánægju
af að mála þess mynd, það væri
erfiðara og meira spennandi að
mála svona stórt en minni mál-
verk. „Ég mátti ráða mynd-
efninu sjálfur," sagði Sveinn,
„og valdi að mála frá sjónum.
Verkið heitir „Að kippa“, sem
sem sjómenn nota um það að
færa skipin til á miðunum.“
Hann lýsti hrifningu sinni yfir
framtaki fyrirtækisins að gefa
listamönnum kost á að vinna
slfk verk. Hann hefur unnið að
verkinu frá þvf f maf sl. og
kvaðst vilja koma á framfæri
þökkum til skólastjóra
Öldutúnsskóla, sem hefði leyft
sér afnot af skólastofu við gerð
verksins.
Sakadómsrannsókn
á rekstri BS AB?
NÓKKRIR aðilar munu nú hafa í
hyggju að kref jast sakadómsrann-
sóknar á bókhaldi og starfsemi
Byggingasamvinnufélags at-
vinnubifreiðastjóra, að þvf er
Mbl. er kunnugt um. Höfðu þeir
áður óskað eftir því við félags-
málaráðuneytið, að það krefðist
Könnun á framfærslu-
kostnaði námsmanna
NU STENDUR yfir á vegum
Lánasjóðs fsl. námsmanna könn-
un á framfærslukostnaði náms-
manna og hafa gögn verið send til
allra námsmanna, hérlendis og
erlendis, sem eru f lánakerfi
sjóðsins, um 3.200 einstaklinga.
Eiga námsmenn að halda dag-
bók um búreikninga sfna frá 11.
nóv. til 10. des. og tfunda öll út-
gjöld og einnig eiga þeir að gera
yfirlit yfir útgjöld sfn á sfðasta
ári.
Ámi Ólafur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðs, sagði í
viðtali við Mbl. í gær, að slíkar
kannanir hefðu verið gerðar
tvisvar áður, árin 1964 og 1967 og
væru núgildandi áætlanir um
framfærslukostnað miðaðar við
niðurstöðurnar frá 1967, með
leiðréttingum og lagfæringum í
samræmi við verðlags- og gengis-
breytingar. Væri stefnt að því, að
hægt yrði að nota niðurstöður
þessarar könnunar, sem nú
stendur yfir, við gerð fjárlaga
fyrir árið 1975, þannig að niður-
stöðurnar verða að liggja fyrir í
maí á næsta ári.
Dr. Benjamin Spock
Bókin um barnið
— hin víðfræga bók dr. Spocks á íslenzku
BÓKAUTGAFAN Skarð hefur
sent á markaðinn hina vfðfrægu
bók bandarfska læknisins dr.
Benjamins Spock um barnið. Er
hún ný endurskoðuð og aukin.
Halldór Hansen, yngri, læknir,
skrifar formála fyrir fslenzku út-
gáfunni, en Bjami Bjarnason
læknir þýddi.
1 formála sínum segir Halldór
Hansen m.a.:
„Fáir læknar hafa gert sér jafn-
mikið far um að uppfræða al-
menning um eðli og hætti barna
og dr. Benjamín Spock. Rit hans
| hafa haft áhrif á uppeldi barna
um allan heim, og tel ég það vel
farið, þar eð rit hans einkennast
af djúpum skilningi, ekki ein-
ungis á börnum, heldur einnig á
foreldrum þeirra."
„Bókin um barnið“ er mikil að
vöxtum, eða á níunda hundrað
blaðsfður, og er gefin út í vönd-
uðu bandi. Henni fylgir efnisyfir-
lit og nafnaskrá. Hún er mynd-
skreytt.
Utgefandi tileinkar bókina ís-
lenzkum mæðrum. Hún er prent-
uð í Prenthúsi Hafsteins Guð-
mundssonar.
slfkrar rannsóknar. I gærmorgun
boðaði ráðuneytisstjóri félags-
málaráðuneytisins til fundar með
framkvæmdastjóra félagsins og
fulltrúum þessara aðila, þ.e. ein-
staklinga, sem hafa látið BSAB
byggja fyrir sig fbúðir í fjölbýlis-
húsum f Breiðholti. Voru á fund-
inum bornar fram þungar ásak-
anir og mikill ágreiningur ríkj-
andi milli framkvæmdastjórans
og fbúðaeigendanna, að sögn Hall-
gríms Dalberg ráðuneytisstjóra, f
viðtali við Mbl. i gær.
Kvaðst Hallgrimur hafa bent
deiluaðilum á, að um tvenns kon-
ar meðferð þessara mála gæti orð-
ið að ræða. Samkvæmt lögum
settu slík félög sér samþykktir,
sem síðan væru staðfestar af
ráðuneytinu. Ef félagsmenn
teldu, að brotið hefði verið í bága
við þessar samþykktir, myndi
ráðuneytið taka málið til rann
sóknar. Ef hins vegar félagsmenn
teldu, að stjórnin hefði í skýrslum
sínum og reikningum gefið
rangar upplýsingar, þá ætti sam-
kvæmt lögum að fara með slík
mál að hætti opinberra mála, þ.e.
fyrirsakadómi.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér, beindist
gagnrýni íbúðareigendanna eink-
um að tveimur atriðum. I fyrsta
lagi hefði jafnan orðið óeðlilega
mikil hækkun á verði íbúða, sem
BSAB byggði, frá áætlunarverði
við upphaf byggingar, mun meiri
en hjá öðrum byggingaraðilum, í
sumum tilvikum allt upp i
40—70%. I öðru lagi hefði stjórn
félagsins dregið úr hófi að leggja
fram lokauppgjör fyrir
byggingarkostnaði fbúðanna, i
sumum tilvikum í 2—4 ár eftir að
byggingu íbúðanna hefði verið
lokið. Auk þess hafa mörg önnur
atriði verið gagnrýnd.
Mbl. sneri sér til Öskars Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra félags-
ins, og spurði hann um þessi
deilumál. Hann sagði, að eins og
oft vildi verða í stórum hópi,
leyndust nokkrir gikkir innan um
og væru það þeir, sem stæðu fyrir
þessu málavafstri. Stjórn BSAB
væri þó orðin vön þessum mönn-
um og t.d. hefði undirréttur nú
þegar dæmt f einu innheimtumáli
vegna þessara manna. Hefði
BSAB unnið það mál og mennirn-
ir verið ávítaðir fyrir að reyna að
vera með blekkingar í sambandi
við málið. Hann sagði, að
mennirnir hefðu á fundinum
borið fram svo þungar ásakanir,
að full ásæða væri fyrir þá að
krefjast sakadómsrannsóknar í
framhaldi þar af. Það væri
ábyrgðarhluti að bera fram
þungar ásakanir, ef þær ættu
ekki við rök að styðjast, og því
væri sakadómsrannsókn eðlilegt
framhald. „Við höfum ekkert á
móti henni,“ sagði Óskar.
Varðandi tvö helztu gagnrýnis-
atriðin, sem getið er hér á undan,
sagði Óskar, að hækkun á fbúðar-
verði hjá BSAB væri nákvæmlega
jafn mikil og hækkun á vísitölu
byggingarkostnaðar, hvorki meiri
né minni. Reikningar félagsins
væru allir til, endurskoðaðir af
löggiltum endurskoðendum, svo
og öll fylgiskjöl þar að lútandi, og
stjórnin hefði ekkert að fela.
Styðjum nemendur
Fiskvinnsluskólans
— segja nemendur Sjómannaskólans
Nemandaráð Stýrimanna-
skólans og Vélskólans f Reykja
vfk komu saman til fund
ar f gær, og gerðu ráðin sam-
þykkt um ástand það, sem skapast
hefur vegna verkfalls nemenda
Fiskvinnsluskólans f Hafnarfirði.
I fréttatilkynningu frá nem-
endaráðunum segir, að rædd hafi
verið sú hætta, sem nú steðji að
skólum þeim, er snerta sjávarút-
veginn og því ófremdarástandi,
sem skapast hefur á undan-
förnum árum, vegna gegndar-
lausra undanþáguveitinga til
skipstjórnar og vélstjórnar.
Nýjasta dæmið í þeim málum sé
sú ráðstöfun að halda 3ja vikna
námskeið á vegum Fiskmats ríkis-
ins, og láta það jafngilda 3ja ára
námi við Fiskvinnsluskólann í
Hafnarfirði.
„Því lýsa nemendur Stýri-
mannaskólans og Vélskólans yfir
fullum stuðningi við kröfur nem-
enda Fiskvinnsluskólans f
Hafnarfirði og þá sérstaklega
kröfu þeirra um, að þeir menn,
sem koma til með að sækja fyrir-
hugað námskeið Fiskmats rfkis-
ins, öðlist ekki löggildingu sem
fiskmatsmenn, heldur fái þeir
einungis tímabundin réttindi.
Þess má geta, að þær undanþág-
ur, sem veittar hafa verið til skip-
stjórnar og vélstjórnar, hafa
ávallt verið tímabundnar, lengst
tilfjögurra mánaðaí senn.“
Athugasemd vegna ummæla um
fiskiðnaðarnámskeið
sjAvarUtvegsraðuneytið
hefur sent frá sér fréttatilkynn-
ingu vegna þess, sem fram hefur
komið f fjölmiðlum, um að sjávar-
útvegsráðherra hafi skýrt rangt
eða villandi frá fyrirspurn um
Fiskvinnsluskólann f Hafnar-
firði. Fréttatilkynning þessi er
undirrituð af þrem mönnum, sem
vinna á vegum sjávarútvegsráðu-
neytisins og segjast þeir hafa gef-
ið ráðherranum þær upplýsingar,
sem hann lét f té á Alþingi og
reynst hafa rangar.
I fréttatilkynningunni segir
m.a.: „Svar ráðherra var byggt á
upplýsingum, er við undirritaðir
starfsmenn gáfum ráðherra, en
þær upplýsingar voru gefnar í
beinu framhaldi af fundi, sem
haldinn var með skólastjóra og
skólanefndarformanni Fisk-
vinnsluskólans, nokkrum yfir-
mönnum Fiskmats ríkisins, svo og
undirrituðum. Á þessum fundi
var samþykkt, að stefnt skyldi að
því, að Fiskmat ríkisins og Fisk-
vinnsluskólinn skyldu hafa sam-
vinnu um tilhögun og fram-
kvæmd fiskiðnaðarnámskeiða
sem þeirra, er haldin hafa verið á
vegum ráðuneytisins undanfarin
26 ár. Að því er tekur til þess
námskeiðs, sem þegar hefur verið
auglýst, var það sameiginlegt álit
allra fundarmanna, að réttast
væri að það yrði haldið með þeim
hætti, sem ákveðið hafði verið.
Fullyrðingár um, að sjávarútvegs-
ráðherra hafi farið með rangt mál
um niðurstöður fundarins, eru
því ekki réttar.
Þar sem skólastjóri og skóla-
Framhald á bls. 18