Morgunblaðið - 17.11.1973, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1973
7
Hungurs-
neyðí
Eþíópíu
UM TÆPLEGA eins árs skeið hefur hungursneið
herjað f Wolio-héraði f Eþfópfu, og telja fulltrúar
Sameinuðu þjóðanna, sem þangað hafa komið, að
um 100 þúsund manns hafi dáið þar hungur-
dauða.
Tvennt er það, sem valdið hefur þessum hörm-
ungum. 1 fyrsta lagi uppskerubrestur f desember
f fyrra, og sfðan úrkomuleysi á regntfmanum f
aprfl.
HARMSÖGUR
Fréttamaður Observer, David Martin, var um
síðustu helgi staddur í bænum Dessie í Wollohér-
aði, en þar hefur verið komið upp skýlum fyrir
þá, sem flúið hafa heimili sin í leit að mat. Eru
þar nú um 18 þúsund flóttamenn. Martin segir
meðal annars svo frá: „Lík gamals, gráskeggjaðs
manns Iá á veginum skammt frá bænum, og sneri
andlitið, þakið flugum, upp í loft. Fótgangendur,
sem áttu þar leið um, Iitlu vart við líkinu. 1
Wollo-héraði er fátt hægt að gera fyrir þá, sem
lifa, og engin skiptir sér af þeim látnu. Gamli
maðurinn hafði gefizt upp rétt hjá hjálparstöðv-
unum. Margir komast þangað of seint. Þegar ég
kom þarna var 12 ára stúlka nýlátin í sóðalegu
skýli innan umþröng tötrum búinna flóttamanna,
sem sátu eða sváfu á strámottum á berri jörð-
inni.“
Martin segir, að þegar verst lét I júni, júlí og
ágúst í sumar hafi um 100 manns látizt þarna á
degi hverjum. Með matargjöfum og annarri að-
stoð er dánartalan komin niður í um 20 á dag, en
þeim, sem lifa, er enn mikil hætta búin vegna
sjúkdóma, því viðnámsþrek þeirra er svo til ekk-
ert eftir Iangvarandi hungur. Átakanlegar sögur
eru sagðar af þjáningum íbúanna í Wollo-héraði.
Argashe Abate er þritug bóndakona, sem misst
hefur fjölskyldu sína. Hún segir svo frá, að þegar
uppskeran brást í desember og svo úrkoman í vor,
hafi Hassan maður hennar selt landspilduna
þeirra og fengið sér svo vinnu sem kaupamaður.
Hann var þá orðinn svo máttfarinn vegna hung-
urs, að hann veiktist og lézt skömmu síðar. Fjöl-
skyldan stóð uppi matarlaus, og viku seinna voru
fjögur elztu börnin, á aldrinum tveggja til níu
Móðir á leið til hjálparstöðvanna meðbarn sitt.
Flóttamaður f Wollo betlar mat handa börnum
sfnum.
ára, látin. Eftir var aðeins Argashe og eins árs
dóttir hennar. Hélt Argashe þá af stað til hjálpar-
stöðvarinnar, og tók það hana þrjá daga að ganga
þangað með litlu dótturina. Skömmu eftir kom-
una þangað lézt svo sfðasta bamið.
Abraham Kasa er 32 ára, og á mælikvarða landa
hans var hann talinn vel efnaður. Efnin gátu þó
ekki tilengdar bægt hungursneyðinni frá dyrum
hans. Hann seldi hvern skikann á eftir öðrum úr
landareign sinni. 1 vor drápust fimm nautgripa
hans, og þá seldi hann þá fimm, sem eftir voru.
Stuttu seinna seldi hann svo síðasta jarðarskik-
ann á hálfvirði. Nokkrum dögum eftir þetta lézt
Lete, konan hans. Svo synirnir tveir. Hélt þá
Abraham með átta ára dóttur sína, Sindayu, til
hjálparbúðanna, og voru þau hálfan mánuð á
leiðinni, gangandi að sjálfsögðu. Nú hafa þau náð
svo til fullri heilsu á ný eftir matargjarirnar, og
vinna bæði að hjúkrun annarra f lóttamanna.
HRÆFUGLAR
Harmsaga þeirra Abrahams og Argashe hefur
enn sýnt, að hræfuglar safnast þangað, sem dauð-
inn herjar, segir David Martin, og margir þeirra
eru mennskir. Sveltandi bændurnir neyddust til
að selja jarðir sínar, húsdýr og jafnvel uppsker-
una, sem von er á i desember, fyrir hálfvirði til að
draga úr sultinum. Ofan á það bættist svo, að
sumir starfsmenn hjálparþjónustunnar seldu
matarskammtana, sem þeir áttu að dreifa að
kostnaðarlausu til bágstaddra og kaupmenn tvö-
földuðu verið á kornvöru í búðum sínum.
Haile Selassie keisari vék Sololeman Abraham
héraðsstjóra í Wollo úr embætti síðla sumars,
þegar í ljós kom vanræksla hans á að grípa til
nauðsynlegra varúðarráðstaf ana í tæka tið. Er þvi
haldið fram, að ef héraðsstjórninn hefði látið
yfirvöldin í Addis Abeba vita um ástandið strax
eftir uppskerubrestinn i desember í fyrra, hefði
mátt bjarga þúsundum mannslifa. Fyrstu fréttir
af hörmungunum bárust hins vegar ekki til
höfuðborgarinnar fyrr en í marz. Var þá óskað
eftir frekari upplýsingum frá héraðsstjóranum,
en hann svaraði ekki. Urðu yfirvöldin að senda
fulltrúa frá fimm ráðuneytum til Wollo, og gáfu
þeir stjórninni í Addis Abeba skýrslu sex dögum
síðar. Tveimur sólarhringum eftir heimkomu full-
trúanna var hjálparstafið hafið, en þá var það
orðið of seint.
Það versta er nú loks yfirstaðið, og fjöldi flótta-
manna hefur þegar snúið aftur heim. Hefur rfkis-
stjórnin ákveðið að endurgreiða þeim, semkeyptu
jarðir og búsmala á hálfvirði, og fyrirskipa
þeim að skila jörðunum til fyrri eigenda. Margir
standa þó uppi með jarðir sfnar, en án dráttar-
nauta til að plægja akrana eða frækorna til að
tryggja næstu uppskeru. Hafa yfirvöldin því einn-
ig ákveðið að lána bændum hvorttveggja til langs
tíma.
Alls voru um 283 þúsund flóttamenn skráðir f
hjálparbúðum f Wollo, og hafa um 220 þúsund
þeirra snúið heim til sín. Ýmsar erlendar hjálpa-
stofnanir, eins og kaþólska kirkjan og brezka
Oxfam-stofnunin (Oxford Committee for Famine
Relief), hafa sent hjálparsveitir á vettvang til
aðstoðar þeim, sem enn þurfa hjálpar við. Segja
talsmenn þessara hjálparstofnana, að þótt fjöldi
f lóttamanna hafi snúið heim, séu þeir enn ekki úr
hættu, þar sem margir þeirra hafi enn ekki náð
sér að fullu, og því sé óttazt, að farsóttir eigi eftir
að fella marga þeirra.
Nú bfða menn í Wollo-héraði næstu uppskeru
með eftirvæntingu og biðja þess, að regnguðirnir
verði þeim hliðhollir í vor. Á því veltur framtíð
þeirra.
(Aðallega úr Observer).
PARTÝSTÓLAR
frá Spáni nýkomnir. Hagstætt
verð. Takmarkaðar birgðir.
Rammaiðjan, Óðinsgötu 1.
ÚRVALS SÚRMATUR
Súrsaðir lundabaggar, hrútspung-
ar, sviðasulta, svinasulta. Úrvals-
hákarl, slld og reyktur rauðmagi.
Harðfiskur, bringukollar.
Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2,
simi 35020
VANTAR HERBERGI
Ungur maður óskar eftir herbergi
strax. Upplýsingar i síma 52247
milli kl. 1 9—22.
NÝ4RA HERB.
ibúð i Norðurbæ, Hafnarfirði, til
leigu frá 1 5. jan. n.k. Fyrirfram-
greiðsla Tilboð leggist inn á afgr.
Mbl. merkt: 4694.
HALLÓ — HALLÓ !
Sá, sem tók Hondu 50 nr. 206 við
Fordskálann á þriðjudagskvöld,
góðfúslega skili henni á sama
stað, eða hringið i sima 20805
TILSÖLU
Benz 230, innfluttur, árg 1970.
Skráður '69, til sýnis að Espilundi
2, frákl. 1— 6ídag.
TIL SÖLU
Volkswagen 9 manna árgerð
1971, ekinn 60 þúsund km. Ný-
leg vél.Upplýsingar gefur Sigurð-
ur, simi 21 240
BÍLAVARAHLUTIR
Varahlutir í Cortinu. Benz 220,
'62, og eldri, Taunus 17 M '62,
Opel '60—'65 og flest allar gerð-
ir eldri bila.
Bilapartasalan, Höfðatúni 1 0,
sími 1 1397.
ÍBÚÐ ÓSKAST
3ja herb. ibúð óskast til leigu
Örugg mánaðargreiðsla. 2
fullorðnir i heimili. Uppl. i sima
40488.
BODDÝ-HLUTIR
Höfum ódýrar hurðir, bretti,
húdd, skottlok og rúður á flestar
gerðir eldri bila.
Opið til kl. 5 i dag
Bilapartasalan, Höfðatúni 10.
simi 1 139 7.
MÚRARI
Múrari getur tekið að sér að pússa
ibúð i aukavinnu. Upplýsingar i
sima 1 7647
HAFNARFJÓROUR —
GARÐAHREPPUR
Mann, sem vinnur úti á landi,
vantar herbergi. Upplýsingar í
sima 99—3757 e.h
TVEIR RAFVIRKJAR
með full réttindi óska eftir atvinnu
Vanir viðhalds og viðgerðarvinnu
auk allra almennra rafvirkjastarfa.
Geta unnið sjálfstætt.
Tilb. sendist Mbl. merkt „5044"
fyrir miðvikudag.
KIR BUKfl
uiesKiPTin sim
flUGLVSII í
Frá STAPA
Hin vinsæla hljómsveit Gissurar Geirssonar frá Sel-
fossi, skemmtir I kvöld.
Stapi.
Mijur
Þér eigið nú kost
á að fá þiljur til
klæðningar. Á
hurðir og veggi
með
=====
— -=
Iformica
laminated plastic
áferð.
Varanlegar og
fallegar.
Ótal litir og mynstur að velja ur.
Ef þér eruð að byggja eða endurnýja, þá ættuð þér að
líta inn og sjá hve FORMICA er fallegt til þessara
hluta.
G. ÞORSTEINSSON & JOHNSON HF.
Ármúla 1, sími 85533.