Morgunblaðið - 17.11.1973, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.11.1973, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1973 11 Skóli fyrir fjölfötluð börn MIÐVIKUDAGINN 14. nóvember sl. birtist í Morgunblaðinu viðtal við Bryndísi Vfglundsdóttur. t viðtali þessu er vikið að mennt unaraðstöðu fjölfatlara barna. Fjölmargt af þvf, sem fram kemur í þessu viðtali, er rétt, en það, sem brenglazt hefur og rang- lega er frá skýrt, má ef til vill rekja til réttlátrar reiði þessarar dugmiklu og greindu konu. Astandið í málefnum fjölfatl- aðra barna og reyndar f málefn- um allra barna, sem ekki geta stundað nám í almennum skólum, er mjög bágborið. Það er ekki f yrr en nú á allra síðustu árum, sem menn eru almennt farnir að fall- ast á þá skoðun, að það sé skylda þjóðfélagsins að sjá öllum börn- um, heilbrigðum eða afbrigðileg- um, fyrir menntun og þroskaað- stöðu við sitt hæfi. Meðan læknis- fræðin og hinar ýmsu fræði- greinar, sem fjalla um uppeldi og þroska barna, höfðu ekki bent á leiðir til þess að koma afbrigðileg- um börnum til aukins þroska, voru það fyrst og fremst hópar áhugamanna og styrktarfélög ýmiss konar, sem stofnuðu og starfræktu skóla fyrir afbrigðileg börn. Þannig hafa þessi mál verið bæði hér á landi og erlendis allt fram á sfðustu áratugi og er svo enn hér á landi að verulegu leyti. En eins og áður er sagt, er það nú orðin nokkuð almennt ríkjandi skoðun, að skólar og stofnanir fyrir afbrigðileg böm skuli starf- ræktir af ríki eins og aðrir skólar. Á þessu ári var gerð, á vegum menntamálaráðuneytisins, nokk- uð ftarleg könnun á starfsemi þeirra sérskóla, sem starfræktir eru hér á landi fyrir afbrigðileg börn. Hér er um að ræða yfir 30 skóla og stofnanir með rúmlega 1100 börn og unglinga. Starfs- menn ráðuneytisins hafa heim- sótt alla þessa skóla og unnið er markvist að þvf að bæta starfsað- stöðu skólanna eftir því, sem aðstæður leyfa. Málefni fjölfatlaðra hafa ekki verið undanskilin. Skólinn var starfræktur f fyrra í mjög lélegu húsnæði í Stakkholti. Þessu hús- næði var sagt upp, enda var ráðu- neytið sammála þeirri skoðun Bryndísar, að húsnæðið væri óvið- unandi. Reynt var að fá húsnæði fyrir skólann hjá Blindrafélaginu og voru lengi bundnar vonir við að það fengist, sem ekki varð. Á sama tfma voru til meðferðar í ráðuneytinu tilmæli frá Styrkt- arfélagi lamaðra og fatlaðra um að ráðuneytiðtæki'viðrekstriskól- ans í Reykjadal. Þessí tvö mál, þ.e. húsnæðisvandamál fyrir fjöl- fötluð börn og rekstur skólans í Reykjadal, tengdust þannig í framkvæmd. Með aðstoð sérfræðinga og lækna var síðan tekin sú ákvörð- un að sameina starfsemi þessara tveggja skóla, sem nú eru starf- ræktir undir sama þaki í Reykja- dal, en skólastjóri þar er Svan- hildur Svavarsdóttir. Starfsaðstaða f Reykjadal er langt frá því að vera fullkomin, en fólkið, sem starfar þar, er allt valið úr hópi þeirra, sem bezta menntun og starfsreynslu hafa á þessum sviðum. Ég get vel skilið hug Bryndfsar Víglundsdóttur um seinagang á afgreiðslu mála hjá ráðuneytinu. Báknið hefur aldrei fengið orð fyrir skjóta afgreiðslu, en þó held ég, að sjaldan eða aldrei hafi ver- ið unnið eins markvisst að fram- gangi þessara mála í menntamála- ráðuneytinu og einmitt nú. Sjálfur hefur menntamálaráð- herra sýnt mikinn áhuga á upp- byggingu þessara skóla. Reykjavík, 15. nóvember 1973 Bragi Jósepsson. IESIÐ '---------- ------------------ t'JjMultwn*j. '■= DHCIECn Öllum þeim, sem glöddu mig með heimsóknum, kveðjum, gjöfum, sýndu mér hlýhug og heiðruðu mig á margan annan hátt á áttræðisafmæli mínu 9. nóvember s.l., sendi ég hjartanlegustu kveðjur og þakkir. María Albertsdóttir. HÚSBYGGJENDUR - HÚSEIGENDUR Húsgagna- og byggingameistari, með vandvirka og dug- lega menn, getur bætt við sig inniverkum. Sími 82923. Leigufbúð óskast 5 herb. íbúð óskast sem fyrst á Stór-Reykja- víkursvæðinu. Reglusemi. Uppl. í símum 38- 414 — 34472 kl. 1 — 5 í dag og eftir kl. 6 næstu daga. Sunbeam Arrow Vel með farinn Sunbeam Arrow árg. 1970, sjálfskiptur. til sölu. Uppl. í síma 52485. BATAR OSKAST í viðskipti á komandi vetrarvertíð. Straumnes h.f., Selfossi. Sími 99 — 1326. Aðalfundur Aðalfundur ísfélags Vestmannaeyja h/f. fyrir árið 1972 verður haldinn laugardaginn 17. nóv. næstkomandi kl. 2. eftir hádegi, í húsakynnum félagsins á Kirkjusandi í Reykjavík. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórnin. HANNYRÐAVÖRURFRÁ „RYAGARN" Glæsilegt úrval af GOBELIN útsaumavörum. Ryateppi, mottur og púðar. Munið Hannyrðavörurnarfrá „RYAGARN" Verzl. HOF Þingholtsstræti 2. Bílasalan Höfóatuni 10 s.18881&18870 Bílar Toyota Carina '71. Landrover '64, '67 og '68. Cortina '71, '70, '69, '68. '64. Volkswagen 1200 '70, '67, '62. Moskvitch '70, '66. Mercury Comet '71. Ford Galaxie '68, '66. Skoda 1000 MB de Luxe '68. Fiat 1100 Station '67. opió9-19& ld. 10-18 Bílasalan VIÐTALSTÍMI Alþingismanna og borgarfullfrúa Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í Galtafelli Laufásvegi 46, á laugar- dögum frá kl. 1 4 00 til 1 6 00 Laugardaginn 17. nóvember verða til viðtals: Pétur Sigurðsson, alþingismaður, Gfsli Halldórsson, borgarfull- trúi og Baldvin Tryggvason, varaborgarfulltrúi. óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST Upplýsingar í síma 16801. ÚTHVERFI S keiðarvogur Vatnsveituvegur AUSTURBÆR Sjafnargata — Ingólfsstræti Hraunteigur Freyjugata 28 — 49 Þingholtsstræti GARÐAHREPPUR Böm vantar til að bera út Morgunblaðið á Flatirnar Uppl. hjá umboðsmanni t síma 52252. GARÐUR Umboðsmaður óskast i Garði. — Uppl. hjá umboðsmanni, sími 7164, og i síma 10100. KÓPAVOGUR Blaðburðarfólk óskast i Bræðratungu. Upplýsingar hjá umboðsmanni í sima 40748.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.