Morgunblaðið - 17.11.1973, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 17.11.1973, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÖVEMBER 1973 19 Frá afhendingu svissnesku fjárframlaganna — t.v. Magnús Magnús- son, bæjarstjúri, Hans-Jörg Gerschwyler og Björ.n Tryggvason, for- maður RKI. Rausnarlegt framlag til Eyjauppbyggingar Fyrir nokkru kom hingað til lands Hans-Jörg Gerschwyler á vegum samtakanna „Freunde Is- lands“ f Sviss. Samtök þessi voru stofnuð fyrir skömmu eftir að eld- gosið hófst á Heimaey i vetur, og "hafa þau staðið fyrir víðtækri fjársöfnun i Sviss til styrktar Vestmannaeyingum. Að þessu sinni færði Ger- schwyler bæjarsjóði Vestmanna- eyja um 150 þúsund franka og Rauða krossi íslands 115 þúsund franka, en áður höfðu samtökin sent bæjarsjóði 100 þúsund svissneska franka. Nemur fjár- söfnun þessi því tæpum 10 millj- ónum króna. í samræmi við óskir stjórnar- samtakanna verður fé því, sem Rauði krossinn fékk afhent, varið til að byggja barnaheimili í Eyj- um. Hins vegar verða framlögin Cromer hættir London, 15. nóvember. AP. BREZKA stjórnin skipaði í dag Sir Peter Ramsbotham, sendi- herra í Iran, eftirmann jarlsins af Cromer sem sendiherra í Washington. Cromer var bankastjóri Englandsbanka áður en hann var skipaður sendiherra 1971 og snýr sér aftur að fjármálastarfsemi. Ramsbotham hefur verið í utan- ríkisþjónustunni siðan 1947 og starfað í Berlín, New York, Paris og Kýpur. til bæjarsjóðs notuð til þess að byggja í Vestmannaeyjum ibúðir fyrir aldrað fólk. Hefur bæjar- stjórn Vestmannaeyja samþykkt að leggja fram tvöfalda þessa upphæð á móti til að málið fái framgang. Flugvéla- bók frá Fjölva FLUGVÉLABÓKIN, heitir stór og mikil ný bók, sem Fjölvi hefur sent frá sér. I henni er saga flugs- ins rakin í máli og myndum, og er sérstakur kafli um sögu flugsins á tslandi. Bókin er samin af Enzo Angelucci, en Þorsteinn Thorar- ensen þýddi hana úr Itölsku. Bókin er prentuð á Italíu. Flugvélabókin er í stóru broti og er 288 blaðsiður. I henni er að finna myndir og nákvæmar tækni legar upplýsingar um meira en 1000 flugvélar frá ýmsum lönd- um, gamlar og nýjar, herflugvélar og atvinnuflugvélar. Meginhluti Flugvélabókarinnar skiptist í tólf kafla. I þeim fyrsta er fjallað um brautryðjendur fluglistarinnar, allt frá Leonartto da Vinci, um loftbelgi og loftskip og um þrot- lausa baráttu þeirra ótal hug- sjónamanna, sem sáu fyrir, hvaða framtíð flugið átti sér. Að sjálfsögðu er sagt frá Wright bræðrunum og bernsku flugsins og svo kemur stór kafli um tækniframfarir i fyrri heimsstyrjöldinni, og er þar fjallað um þær vélar, Pálmi Jónsson: Engin yfírlýsing um framhald aðgerða í landhelgismálinu Pálmi Jónsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins f Norður- landskjördæmi vestra, vareinn af þeim, sem greiddu atkvæði gegn landhelgissamningunum við Breta við afgreiðslu málsins i þinginu sl. mánudag. Pálmi gerði grein fyrir atkvæði sfnu við at- kvæðagreiðsluna og fer greinar- gerð hans hér á eftir: „Herra forseti. Að mínum dómi er samkomulagsgrundvöllur þessi á mörkum þess, sem hugsanlegt Plugvékibók sem mesta frægð hlutu i heimsstyrjöldinni, og er _þar fjallað um þær vélar, sem mesta frægð hlutuí þeim hildarleik, svo sem Sopwith, Fokker, Albatros og Nieuport. Þá er og sagt frá flug- köppum eins og von Richthofen, Fonck og Gyunemer. Millistríðsárunum eru gerð góð skil, sagt frá flugköppum eins og Lindbergh og Balbo og lýst stofnun flugfélaga og upphafi at- vinnuflugsins og gullöld flugbát- anna ekki gleymt. Einn stærsti kaflinn fjallar um örar framfarir á sviði flugsins í siðari heims- styrjöldinni og kynntar vélar eins og Spitfire, Hurricane, Thunder- Framhald á bls. 18 er að samþykkja, og þess vegna með öllu óaðgengilegur. Kostir samkomulagsins eru fólgnir f fyrsta lagi í útilokun á hluta af aúfkastamestu fiskiskipum Breta og þar með nokkurri minnkun á afla þeirra. I öðru lagi í óbeinni viðurkenningu Breta með samn- ingsgerð þessari og þriðja lagi friði á miðunum og eðlilegum samskiptum milli þjóðanna. Ókostirnir eru aftur á móti þeir að minum dómi, að í fyrsta lagi virðast dagsetningar varðandi hólfaskiptingu sniðnar við hæfi Breta. I annan stað er lítillækk- andi framkvæmd á lögsögu innan islenzkrar fiskveiðilandhelgi og loks er ekki að finna neinar yfir- lýsingar með fyrirvara um fram- hald aðgerða okkar Islendinga í landhelgismálinu, hvorki _á samn- ingstimabilinu né að þvi loknu. Samkomulag þetta er eins konar vopnahlé, sem að ýmsu má kalla uppgjöf. Nærri lagi að sitja hjá við slíka atkvæðagreiðslu, en ég kýs ekki þann hlut að taka ekki afstöðu í slíku máli. I mfnum huga vega ókostirnir þyngra heldur en kostirnir, og segi ég því nei. Innilegar þakkir, sendi ég öllum, er sýndu mér vinsemd á 90 ára afmæli minu, þ. 1 . nóvember s.l. Heill og hamingja fylgi ykkur. Elínborg Gísladóttir frá Laufási, Vestmannaeyjum. Beztu þakkir til ættingja minna og vina fyrir góðar gjafir og aðra vinsemd mér auðsýnda í tilefni af 90 ára afmæli mínu 26. okt. s I Þorsteinn Stefánsson. LOFTPRESSUR - SPRENGINGAR Loftpressur — sprengingar Tökum að okkur sprengingar í húsgrunnum og holræs- um, einnig alla fleygavinnu og múrbrot. Vélaleiga Simonar Símonarsonar, Simi 19808. 100 TONNA BÁTUR Höfum til sölu 100 tonna stálbát með nýrri aðalvél og nýrri Ijósavel. Báturinn er i fyrsta flokks standi og getur verið til afhendingar hvenær sem er. Fasteignamiðstöðin, Hafnarstræti 11, sími 14120 — 20424. Basar Kvenfélags Grensássóknar FYRIR rúmu ári síðan rann upp langþráður dagur f Grensássókn, en þá var vfgt Safnaðarheimili sóknarinnar og þar með fengið eigið húsnæði fyrir helstu starf- semi hennar. Það var hátíðis- dagur. Safnaðarheimilið er að vísu að- eins önnur byggingin af tveimur, sem þar eiga að rfsa, hitt er sjálf kirkjan, sem bíður enn um stund. Og þótt safnaðarheimilið hafi ver ið vígt, þá skortir enn nokkuð á, að það sé fullklárað og fullfrágengið. Margir hafa lagt holla hönd á plóginn, að þessum áfanga hefur 1 verið náð og það ber að þakka, og þar áttu kvenfélagskonurnar stóran þátt. Tóku þær m.a. að sér að kosta alveg glæsilegar inn- réttingar í eldhúsi og hefur það nú verið framkvæmt. En þær láta ekki staðar numið, enn á ný hafa þær undirbúið og bjóða uppá basar, sem haldinn verður í nýja Safnaðarheimilinu að Háaleitisbraut 66, laugar- daginn 17. nóvember og hefst hann kl. 14:30. Á boðstólum verður að vanda margt góðra muna og margir nyt- samlegir hlutir, sem geta komið sér vel fyrir jólin, og auk þess verða glæsilegar tertur og kökur og eitthvað í pokahorninu fyrir börnin. Að baki slíkum basar liggur mikil vinna og óþreytandi áhugi, sem maður hlýtur að dást að og þakka af alhug. Konurnar hafa komið reglulega á fundi í margar vikur, og þar hafa þær unnið að hannyrðum og ýmiss konar undir- búningi, og nú er árangurinn kominn í ljós, nú er það okkar að þakka þetta fórnfúsa starf með því að koma og kaupa á basarn- um. Allt er þetta gert fyrir kirkjuna og safnaðarstarfið í Grensássókn, og ég leyfi mér að skora á safnaðarfólk að fjölmenna í Safnaðarheimilið á laugardaginn 17. nóvember kl. 14:30 á BASAR Kvenfélagsins. Hafið þökk fyrir og Guð blessi starf ykkar. þýzk eldhúsinnrétting. Tilvalin í stóra íbúð eða einbýlis- hús. Uppl. í síma 83760 milli kl. 14—18 3|a — 4ra herb. íbúÓ óskast til kaups Milliliðalaust. Upplýsingar í dag kl. 14.00 — 19.00 Sími: 17933. Manst þú mig man þig Blóm og gjafavörur Ó&insgata 4. Slmi 22815 Þannig verður safnaðarheimili Grensássóknar fullgert. HalIdórS. Gröndal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.