Morgunblaðið - 17.11.1973, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÖVEMBER 1973
23
margir dagar frá þvf við kynnt-
umst að mér var það fyllilega
ljóst, að Þorvaldi var ekki að
skapi að taka neinum vettlinga-
tökum þá hluti er honum var trú-
að fyrir. Hann hóf að samræma
hina ýmsu þætti, knúði fast á þá
er höfðu dregizt aftur úr, og var
ómyrkur í máli við hvern þann, er
honum fannst ekki sýna verkefni
sínu nóga ræktarsemi. Var
þá aldrei farið í mann-
greiningarálit, hvort sem þar
var við að eiga höfund
eða framleiðanda. Eftir að þess-
um framkvæmdum lauk, störf-
uðum við lítillega saman.
Hann hafði starfað hjá Loftleið-
um h/f svo að segja frá stofnun
þess. Hann þurfti að sinna mörg-
um verkefnum hér heima og er-
lendis, vera í stöðugum ferðalög-
um, undirbúa verk eða hafa eftir-
lit með þeim. Það var 1 einni slfkri
ferð erlendis, er hann átti
skammt eftir ófarið heim til sinn-
ÞEG AR ég frétti andlát Magnúsar
Jochumssonar, fyrrverandi póst-
meistara, skaut upp í huga mín-
um mörgum góðum endur-
minningum frá fyrstu árum mín-
um í póstþjónustunni.
Mér ritsnjallari menn munu
rita um líf og starf Magnúsar
Jochumssonar, en ég get ekki
látið hjá líða að senda nokkur
kveðjuorð.
Ég kynntist Magnúsi og fjöl-
skyldu hans fljótt eftir að ég hóf
störf mín hjá póstinum. Þetta var
samstillt og samhent fjölskylda,
og ég minnist margra góðra
sumardaga í sumarbústað hennar
við Elliðavatn. Einnig man ég
framkomu og umhyggju frú
Guðrúnar fyrir mér og öðrum
ungum samstarfsmönnum min-
um, sem áttu erindi á heimili
þeirra hjóna. Magnús gat sér
góðan orðstír meðal erlendra
stéttabræðra í fjölmörgum ferð-
um fyrir póststjórnina, og mér er
það minnisstætt, hvað póstmenn á
Norðurlöndum mátu hann mikils.
Einn af ráðamönnum sænskra
póstmála sagði mér eitt sinn, að
það hefði verið unun að vera á
póstmálaráðstefnum ásamt
Magnúsi, þvi hann hefði verið
hrókur alls fagnaðar, jafnframt
þvf sem hann var manna
kunnugastur um allt, er varðaði
póstmál. Fór svo, að hann
hlaut viðurnefnið „íslenzki vík-
ingurinn" meðal starfsbræðra
á Norðurlöndum.
Magnú.s bar alla tíð hlýhug til
póstmannastéttarinnar og sýndi
hann oftar en einu sinni f verki.
Hann var farsæll f starfi sem
póstmeistari og hafði nauðsyn-
lega hæfileika til að bera i þvf
embætti. Hann var einnig maður,
sem allir póstmenn báru virðingu
fyrir sem húsbónda, enda var gott
að leita til hans með ýmis vanda-
mál í sambandi við starfið.
Ég vil leyfa mér fyrir hönd
allrar póstmannastéttarinnar að
færa eftirlifandi ekkju Magnúsar,
frú Guðrúnu, og börnum þeirra
Stjarnan
Aðalfundur Ungmenna-
félagsins Stjörnunnar í Garða-
hreppi verður haldinn í Gagn-
fræðaskóla Garðahrepps á
sunnudaginn og hefst klukkan
13. Venjuleg aðalfundarstörf.
ar ástríku konu og barna, að
kallið kom svo óvænt.
Þorvaldur var maður í hærra
lagi, samsvaraði sér vel, kvikur í
hreyfingum, viðbragðssnar og
öruggur. Hann var afburða maður
til orðs og æðis, traustur og heil-
steyptur og frá honum andaði hlý-
hug og góðvild til allra er honum
kynntust. Greiðvikinn var hann
og bóngóður svo að nálgaðist að
vera úr hófi fram.
Allir þessir meðfæddu eigin-
leikar voru þættir í trú hans á hið
góðaí lffinu.
Valdi minn: Það er svo margs
að minnast, þegar leiðir skiljast
um sinn. Það er svo erfitt að trúa
því, að þú skulir ekki ennþá vera
á meðal okkar. Mér finnst ég þó
heyra ennþá glaðværan hlátur
þinn og finna nærveru þín, þótt
ég skynji ekki hvaðan það kemur
úr fjarlægðinni. Það er af svo
mörgu að taka og fyrir svo margt
að þakka. Ég veit að þú varst ekki
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Ég veit, að minningin um
góðan dreng mun lifa.
Reynir Ármannsson.
SVO gæti virzt, sem borið væri í
bakkafullan lækinn að ætla að
leggja orð í belg um enn einn
basarinn hér í borg. Orðið sjálft,
— basar — kemur þér víst kunn-
uglega fyrir sjónir og það lætur
ekki mikið yfir sér, en hvílíka
sögu segir það þér ekki, þegar þú
ert kominn á staðinn og sérð þann
veruleik, sem að baki orðinu býr,
gómsætar, heimabakaðar kökur
og fjölbreyttan og listilega gerðan
varning að mestu til orðinn með
margra vikna þrotlausu starfi,
fyrir iðjusemi fórnfúsra kven-
handa, sem lagt hafa hug sinn
allan í að gera basarinn, sem
glæsilegastan úr garði. —
Ég var ekki hár í loftinu, er ég
heyrði setningar sem þessar:
Hún situr aldrei auðum hönd-
um, eða henni fellur aldrei
verk úr hendi. Og hér
var ævinlega átt við konur og
hvílíku starfi hafa þær ekki skil-
að með iðni handa sinna. Aldrei
verður metið til fulls eða til fjár
allt það starf, sem þær hafa unnið
heimilum sínum eða búum, og
ekki verður heldur lagður kvarði
á þau verðmæti, sem þær hafa á
sama hátt aflað til hvers konar
menningar- og líknarmála. Þáttur
kvenna í byggingarmálum safnað-
ÉG SPYR vegna þess, að lög-
reglustjórinn í Reykjavík er
fyrsti opinberi aðilinn, sem hikar
við að láta að óskum „ásatrúar-
manna“, svo að mér sé kunnugt
um, en hann hefir ekki veitt til-
skilið leyfi til samkomu, sem þeir
vilja halda til að blóta Frey.
Eins og flestir vita, hefir heiðni
nú verið löghelguð á tslandi, með
því að hópur heiðinna manna,
sem kalla sig „ásatrúarmenn“
hefir fengið löggildingu, sem
kirkjufélag. Löggiltur hefir verið
forstöðumaður þess „safnaðar",
og má hann skíra, ferma, greftra
og vígja hjón í hjónaband, á sama
hátt og prestar þjóðkirkjunnar og
forstöðumenn kirkjufélaga utan
þjóðkirkjunnar.
Getur það verið: að biskup
Islands horfi, að því er virðist
aðgerðarlaus, á það, að hin heil-
ögu sakramenti kristninnar,
skírn, ferming, greftrun og hjóna-
vígsla, verði dregin niður 1 svaðið,
með því að heiðnir menn til-
einki sér þau og framkvæmi í
nafni ásatrúar? Mér vitanlega
fyrir það að borið væri á þig oflof,
og skal það þvf ekki gert hér.
Ég minnist allra ánægjustund-
anna er við áttum saman á þinu
dásamlega heimili bæði á Háaleit
isbraut og í Kjalarlandinu. Ég
minnist samverustundanna í
starfi er aldrei bar skugga
á. Þó verða líklega ógleym-
anlegastar stundirnar er
við áttum saman norður i
Hrútafirði, eigi alllangt frá þinu
æskuheimili, þar sem við í nokkur
sumur gátum eftir dagsins önn
rennt fyrir fisk í Guðlaugsvíkurá.
Skipti þá ekki alltaf svo miklu um
aflabrögð, sólskin eða regn, held-
ur hitt, að fá að vera til og njóta
hvíldar á vatnsins bakka.
Þorvaldur Daníelsson var sinn-
ar eigin gæfu smiður en þó hefði
sú gæfa aldrei orðið nema hálf ef
ekki hefði komið til hans ágæta
og mikilhæfa kona, er nú syrgir
mann sinn ásamt börnum þeirra
fjögurra og tengdasyni. Hjördís
mín, þinn söknuður er sár en þó
er sú huggun harmi gegn, að
minningin um þinn ágæta mann
og hversu góður og mikill heimil-
isfaðir hann var, verður aldrei frá
þér tekin.
Eg og fjölskylda mín sendum
þér og börnunum okkar dýpstu
samúðarkveðjur um leið og ég bið
algóðan guð að styrkja þig og fjöl-
skyldu þina i ykkar sáru sorg.
Blessuð sé minning góðs vinar.
Þórður Kristjánsson.
anna er mér að sjálfsögðu efst i
huga og þarf ekki um það blöðum
að fletta, hvernig ástandið væri í
þeim efnum hér í höfuðborginni
og úti á landsbyggðinni, hefðu
þær ekki haft frumkvæði og lagt
gjörva hönd að. í þessum málum
hafa safnaðarkvenfélögin unnið
ótrúleg þrekvirki á sinn hljóðláta
og óeigingjarna hátt. Þessi störf
konunnar eru ekki ævinlega færð
f annála eða skráð á spjöld sögu,
en þess í stað standa þau skráð
óafmáanlegu letri i hjörtum
þeirra, er handaverkaþeirra nutu.
Árangur þeirrar kvenlegu iðju-
semi sem hér er að framan lýst,
færð þú að sjá, Iesandi góður,
sunnudaginn 18. nóv. kl. 2 i
hátíðasal Arbæjarskóla og ég veit,
að þú verður ekki fyrir vonbrigð-
um fremur en fyrri daginn, er þú
hefur lagt leið þína til þess að'
kynnast fjölþættu starfi og styðja
mikilvægt framtak kvenfélags
Arbæjarsóknar að kirkju- og
menningarmálum hverfisins.
Arbæingar og aðrir Reykvíking-
ar.
Fjölmennið kl. 2 í Árbæjarskóla
á sunnudaginn kemur. Sjón er
vissulega sögu ríkari.
þekktust þessar athafnir ekki í
heiðni, en eru tilkomnar með
kristinni trú. Var biskupinn ekki
hafður með i ráðum, þegar sú
ákvörðun vartekin af kirkjumála-
ráðherra, að veita heiðnum mönn-
um löggildingu, sem kirkjufélag?
Getur það verið: að prestar
landsins horfi aðgerðalausir á,
það, að forstöðumaður þessa „ása
trúarsafnaðar“ skfri lítil börn til
heiðinnar ásatrúar, búi
fermingarbörn undir heiðna stað-
festingu, vígi hjón í nafni Freys
og greftri í nafni Óðins?
'Getur það verið: að kirkjumála-
ráðherra misskilji svo ákvæði
stjórnarskrárinnar um trúfrelsi og
ákvæði laga um kirkjufélög utan
þjóðkirkjunnar, að hann telji sér
skylt að veita heiðnum félögum
sama rétt og kirkjufélögum, eða
hvar í lögum er að finna heimild
til þeirra óhæfu, að löghelga
heiðni á íslandi, eftirþúsund ára
kristindóm?
Égspyr.
Sigríður Ásgeirsdóttir,
lögfræðingur.
Minning:
Magnús Jochumsson
_ r
Basar í Arbæjarskóla
Guðmundur Þnrsteinsson.
Er lögreglustjórinn í Reykjavík
kristnari en biskupinn, prestar
landsins og kirkjumálaráðherra?
Brezka sendlráðlð
óskar eftir íbúð sem næst miðbænum (þrjú svefnher-
bergi) án húsgagna, helzt með bílskúr.
Uppl. í síma 1 5883-4.
TilboÖ óskast
í nokkrar fólksbifreiðar, sendiferðabifreiðar, jeppa og
Pick-Up bifreið með framhjóladrifi, er verða sýndar að
Grensásvegi 9, þriðjudaginn 20. nóv. kl. 12 — 3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5.
Sala varnarliðseigna.
Til sölu
Volvo De luxe 1971. Skipti á Volkswagen eða Cortinu
möguleg. Upplýsingar í síma 37490.
LAXNES
Lóðir í Laxneslandi til sölu. Tilboð eða óskir um frekari
upplýsingar sendist blaðinu merkt: 5.000 x 150 4695
fyrir 1. desember.
LISTAMENN
— KAUPMENN
Á götuhæð í gamla miðbænum verður ca 1 50 ferm. salur
til leigu um áramótin er henta mundi fyrir sýningar og
útsölumarkaði. Þeir, sem áhuga hefðu fyrir slíku hús-
næði, gjöri svo vel og sendi nafn, símanúmer og
heimilisfang til afgr. Mbl. merkt: „Bílastæði — 5041".
AUGLÝSING
Styrkir til íslenzkra vísindamanna til námsdvalar og
rannsóknarstarfa í Sambandslýðveldinu Þýzkalandi.
Þýzka sendiráðið i Reykjavík hefur tjáð islenzkum stjórnvöldum. að
boðnir séu fram nokkrir styrkir handa islenzkum visindamönnum til
námsdvalar og rannsóknastarfa i Sambandslýðveldinu Þýzkalandi um
allt að þriggja mánaða skeið á árinu 1974 Styrkirnir nema 1 000
mörkum á mánuði hið lægsta, auk þess sem til greina kemur, að
greiddur verði ferðakostnaður að nokkru.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1 febrúar n.k — Sérstök umsóknar-
eyðublöð fást i ráðuneytinu
Menntamálaráðuneytið,
12. nóvember 1 973.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
VIÐ LANDSPÍTALANN:
HJÚKRUNARKONUR og SJÚKRALIÐAR
óskast til starfa við hinar ýmsu deildir spítal-
ans. Starf hluta úr degi kæmi til greina.
einnig einstakar vaktir.
HJÚKRUNARKONA óskast í hálft starf v.ið
göngudeild fyrir sykursjúka.
Nánari upplýsingar veitir forstöðukonan,
sími 24160.
Reykjavík, 15. nóvember1973
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765