Morgunblaðið - 17.11.1973, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NOVEMBER 1973
25
félk í
fréttum
Onassis deilír við Ron Galella.
□ MALAFERLI JACKIE
OGLJÓSMYNDARANS
Áfrýjunardómstóll í Bandarikjunum hefur synjað ósk Jaequeline
Onassis um endurskoðun þeirrar ákvörðunar dómstóls, að leyfa
ljósmyndaranum Ronald Galella að koma nær henni og börnum
hennar en áður hafði verið ákveðið með dómi. Galella þessi hefur
sérhæft sig i myndatökum af Jackie og börnum hennar og elt þau út
um allar trissur.
Tveir af þremur dómurum dómstólsins komust að þeirri niður-
stöðu, að málið væri ekki nægilega mikilvægt til að fjalla um það að
nýju.
Sú ákvörðun dómstóls, sem Jackie var óánægð með, var tilkynnt
13. sept. sl., og fól hún í sér, að Ron Galella mætti koma í allt að 7,5
metra fjarlægð frá Jackie og 9 metra fjarlægð frá börnum hennar,
án þess að það væri talið rof á friðhelgi einkalífsins. Ari áður hafði
dómstóll ákveðið, að fjarlægðin mætti minnst verða 45 metrar.
□ ÞAÐER
RIGNING!
„Hvernig er veðrið þarna
uppi?“ sagði Mike Upton
byggingaverkamaður við fram-
reiðslustúlkuna Susan Ander-
son, sem er 190,5 cm. á hæð.
Hún var eldsnör, hellti úr
bjórglasi yfir höfuðið á honum
og sagði: „Það rignir, sir.“
Þetta gerðist annað kvöldið,
sem hún vann sem barstúlka á
hótelinu Load of Mischief i
Bristol i Englandi. Um þetta
sagði Mike eftir á: „Ég býst við,
að ég hafi verið að biðja um
svarið, sem ég fékk. “ Susan
sagði: „Brandarar um hæð
mína geta orðið þreytandi á
stundum." Hún er 32 ára
gömul. Hóteleigandinn sagði:
„Mike var ekkert að kvarta. Ég
borgaði fatahreinsun fyrir
hann.“
□ MARK VERÐUR AÐ
SKIPTA UM BÍL
Mark Phillips, höfuðsmaður
og eiginmaður prinsessunnar,
neyðist Iiklega til að skipta um
bifreið, þar sem hann er nú
kvæntur inn í brezku konungs-
fjölskylduna. Hann á þýzka
BMW-bifreið. Það er brezka
blaðið Daily Express, sem hef-
ur bent á þetta, og bendir blað-
ið á, aðdrottningin, tengdamóð-
ir hans, noti Roverbifreið, mað-
ur hennar Philip noti Range
Rover, Karl prins noti bifreið
af gerðinni DB 6 og Anna prins-
essa bifreið af gerðinni
Scimitar — allt brezkar bif-
reiðar.
□ BROSIÐ!
Þegar nýjasta plata jass-
leikarans brezka, Kenny Ball,
kom á markað á dögunum, bauð
hann tuttugu manns, sem allir
höfðu eftirnafnið Smile (Bros,
brosið), til hádegisverðar,
ásamt blaðamönnum og aug-
lýsingameisturum. Enda var
það vel viðeigandi, því að plat-
an hans heitir „Smile, Smile“.
En aðeins átján af tuttugu
Bros-gestum mættu. Er sagt, að
hinir tveir þoli ekki hvor ann-
an!
D ÁHYGGJUR
IJAPAN
Salernispappírsskortur gerir
nú vart við sig í Japan, og einn
daginn lá við pappirsstríði i
verzlunum í Japan, er hús-
mæður reyndu eftir megni að
ná sér í nokkrar rúllur til að
hafa til taks heima á erfiðum
stundum.
Svo alvarlegt var ástandið
orðið, að einn af ráðherrunum
kom fram opinberlega til að
fullvissa húsmæður um, að
óttinn við skort á þessari nauð-
synjavöru væri algerlega
ástæðulaus og þær þyrftu ekki
að hamstra. Jafnframt hét hann
bví, að gert yrði stórátak til
eflingar salernispappirsfram-
leiðslu og sá iðnaður efldur (og
komust ýmsir að þeirri niður-
stöðu, að með þessum ummæl-
□ BARNSRÁN
Litla stúlkan á myndinni
heitir Pia Marianne Schjödt
Hansen og er tveggja ára. Það
er móðir hennar, sem heldur á
henni, og var myndin tekin,
skömmu eftir að Pia litla komst
aftur til móður sinnar eftir að
hafa verið rænt daginn áður.
Pia á heima í Kaupmanna-
höfn, og einn daginn fór hún
með móður sinni i bæinn. Á
meðan móðir hennar fór inn í
verzlun, beið Pia fyrir utan í
kerru sinni. En þegar móðirin
kom út aftur, var Pia horfin.
Hófst þá þegar mikil leit, sem
bar ekki árangur fyrr en árla,
næsta morgun, þegar Pia og
konan, sem hafði rænt henni,
fundust f hverfinu Kristjaníu í
Kaupmannahöfn. Var Pia
ómeidd og var strax flutt til
foreldra sinna á ný.
Konan, sem rændi henni, er
23 ára gömul og á sjálf sjö ára
gamla dóttur, sem býr hjá
ömmu sinni. En eiginmaður
hennar vill ekki leyfa henni að
umgangast sitt eigið barn, og
því var það, að hún, niðurbrotin
á taugum og gjörsamlega
örvingluð, rændi Piu litlu til
þess að fá að annast hana og
sýna henni elsku. Hún vissi
hins vegar ekkert, hvert hún
átti að fara með Piu litlu og fór
þvi í Kristjaníu-hverfið og fékk
inn i húsi kristinna æskulýðs-
samtaka. Er hún fannst þar
morguninn eftir, var hún færð
á lögreglustöðina til yfir-
heyrslu, en það eina, sem hún
gat sagt, var, að hún hefði ekki
ætlað sér að halda barninu, það
hefði hún aldrei getað.
Japanskeisara, llirohito, var
skýrt frá skortinuni.
um hefði ráðherrann viður-
kennt, að um raunverulegan
skort væri að ræða).
Varaformaður húsmæðra-
sambandsins í Japan notaði þvi
tækifærið i garðveizlu
keisarans á dögunum og sagði
við keisarann, er hann spurði
um hag húsmæðra:
— Það er erfitt að ná i
steinolíu, hrísgrjón og sal-
ernispappfr. Auk þess hækkar
verðlagið stöðugt.
Utvarp Reykjavlk ^
LAUGA RDAGUR
17. nóvember
7.00 Morgunútvarp
VeðUrfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kL
7.30, 8.15 (ogforustugr. dagbl ), 9.00 og
10.00. Morgunbm kl. 7.55. Morgun-
stund Barnanna kl. 8.45: Olga Guðrún
Ámadóttir heldur áfram að lesa sög-
una „Börnin taka til sinna ráða“ eftir
dr. Gormander (3). Morgunleíkfimi kl.
9.20. Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög
milli liða Morgunkaffið kL 10.25: Páll
Heiðar Jónsson oggestir hans ræða um
útvarpsdagskrána; auk þess sagt frá
veðri og vegum.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttirog veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 óskalög sjúklinga
Kfistín Sveinbjörnsdóttir kynnir.
14.30 Iþróttir
Umsjón: Jón Ásgeirsson.
15.00 tslenzkt mál
Dr. Jakob Benediktsson flytur þáttinn.
15.20 (Jtvarpsleikrit barna og unglinga:
„Siskó og Pedró“, sagaeftir Estrid Ott
í leikgerð PétursSumarliðasonar.
Fjórði þáttur.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson.
Persónur og leikendur:
Pedró .........ÞórhallurSigurðsson
Siskó..............Borgar Garðarson
Bensínafgreiðslumaður......Knútur
Magnússon
Tollvörðurog ökumaður .......Arni
Trvggvason
Sögumaður.......Pétur Sumariiðason
A skjánum
LAUGARDAGUR
17. nóvember 1973
17.00 lþróttir
Meðal efnis f þættinum er
mynd frá fyrstudeildar-
keppninni í körfubolta og
enska knattspyrnan (WBA
Notts Country), sem hefst
um kl. 18.00. Umsjónarmaður
Ömar Ragnarsson.
19.15 Þingvikan
Þáttur um störf Alþingis.
Umsjónarmenn Björn Teits-
son og Björn Þorsteinsson.
19.45 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyidan
Bandariskur söngva- og
gamanmyndaflokkur.
Þýðandi Guðrún Jörunds-
dóttir.
20.50 Vaka
Dagskrá um bókmenntir og
lft#0 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
Tfu á toppnum
öm Petersen sér um dægurlagaþátt.
17.15 Framburðarkennsla í þýzku
17.25 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir. 18.55
Tilkynningar.
19.00 Veðurspá.
Fréttaspegill
19.20 Framhaldsleikritið: „Snæbjörn
galti“ eftir Gunnar Benediktsson
Þriðji þáttur. Leikstjóri: Klemenz
Jónsson.
Persónur og leikendur.
Jórunn ....Guðbjörg Þorbjarnardóttir
Hallgerður........Kristbjörg Kjeld
Hallbjöm .........Gunnar Eyjólfsson
Oddur ....................Jón Aðils
Teitur.................ValurGíslason
Tungu-Oddur ......Jón Sigurbjömsson
Þorfinnur ...Guðmundur Magnússon
Svarthöfði .......Sigurður Karlsson
MaðurTungu-Odds .......HákonWaage
Sögumaður ........Gísli Halldórsson
19.55 Vfnarhljómar
Strauss-hljómsveitin i Vinarborg
leikur lög eftir Johann Strauss (Frá
austurriska útvarpinu).
20.15 (Jr nýjum bókum
21.15 Hljómplöturabb
Þorsteinn Hannesson bregður plötum á
fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Danslög
23.55 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
*
listir. Umsjónarmaður
ölafur Haukur Símonarson.
21.40 Billy Bud
Bandarisk bfómynd frá árinu
1962, byggð á samnefndri
sögu eftir Herman Melville.
Aðalhlutverk Terence
Stamp, Robert Ryan og Peter
Ustinov, sem jafnframt er
leikstjóri. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
Myndin gerist laust fyrir
aldamótin 1800. Ungur
sjómaður, Billy Budd að
nafni, skiptir um skiprúm og
tekur til starfa á einu af her-
skipum breska flotans, sem
nú á í höggi við Frakka. Billy
kemur sér strax vel meðal
félaga sinna, en einn af yfir-
mönnum skipsins lítur hann
hornauga og bfður færis að
koma honum fyrir kattamef.
23.40 Dagskrárlok.
félk í f£kLP#4
fjclmiélum
! kvöld kl. 21.40 sýnir sjónvarp-
ið bandarfska mynd um Billy
Budd, og er Terence Stamp f
titilhlutverkinu. Leikstjóri er
enginn annar én Peter Ustinov,
oe fer hann jafnframt með
hlutverk höfuðsmannsins f
myndinni.
Til hægri á myndinni hér að
ofan er Robert Rayan, en hann
fer með hlutverk „vonda
mannsins“ f myndinni. Hefur
sá horn í sfðu Billys og reynir
að greiða götu hans inn f ei-
lifðina.
í dag kl. 16.15 er öm Peter-
sen í útvarpinu með „tíu á
toppnum", en þátturinn hóf
göngu sina f marz síðastliðnum.
öm Petersen er 22 vetra, og
stundar nám f öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlfð.
Hann sagði okkur, að hann
hefði rnjög gaman af að vinna
við þættina, en vinsældalistinn
verður þannig til, að hlustend-
ur geta greitt þremur lögum
atkvæði, og jafngildir hvert at-
kvæði einu stigi. Samanlögð
stigatala laganna segir svo til
um röðun þeirra á vinsældalist-
ann, en þau fimm lög, sem
neðst eru af fimmtán efstu á
vinsældalistanum, falla sjálf-
krafa úr af honum og koma
fimm ný i staðinn.
Öm kvaðst vera ánægður
með þessa tilhögun, og telur, að
hún gefi betri mynd af hinum
raunverulegu vinsældum lag-
anna en þegar miðað er við sölu
á hljómplötum, eins og gert er
víða erlendis. Hann segist fá
misjafnlega mikið af bréfum,
en telur, að til jafnaðar taki um
þrjú hundruð manns þátt i
þessari atkvæðagreiðslu.