Morgunblaðið - 17.11.1973, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÖVEMBER 1973
31
Söfnunarfé afhent
SAMTÖK íþróttafréttamanna
efndu í sumar til söfnunar til
styrktar Brynju Guðmundsdóttur,
ekkju Hauks Haukssonar knatt-
spyrnumanns úr Armanni, er lézt
af völdum meiðsla, er hann varð
fyrir f knattspyrnukappleik í
sumar. Hlaut söfnunin góðar und-
irtektir. í vikunni var Brynju af-
hent söfnunarféð og gerði það
Jón Ásgeirsson, formaður Sam-
taka íþróttafréttamanna. Alls
söfnuðust og var lofað 1 söfnunina
kr. 1.577.029,10. Hefur íþrótta-
bandalag Reykjavíkur heitið
stærsta framlaginu: kr.
500.000.00.
Samtök fþróttafréttamanna
vilja þakka öllum þeim, sem lögðu
hönd á plóginn við söfnunina,
bæði einstaklingum og starfshóp-
um svo og íþróttafélögum, sem
komu meðmyndarleg framlög.
Þessa mynd tók Kristinn
Benediktsson, er söfnunarféð var
afhent. Talið frá vinstri: Jón
Ásgeirsson, formaður Samtaka
fþróttafréttamanna, Lúðvík
Vilhjálmsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Ármanns, Haukur
Bjarrxason, varaformaður
Ármanns, Gunnar Eggertsson,
formaður Armanns, Brynja
Guðmundsdóttir og ung dóttir
hennar: Steinunn Hauksdóttir.
Kunnir kappar 1 landsliðið
Landsliðið í handknattleik
leikur á þriðjudaginn við Svía f
Laugardalshöllinni og hafa verið
gerðar fjórar breytingar á lands-
liðinu, sem lék við Frakka og
vann svo eftirminnilegan sigur
fyrir mánuði síðan. Eru það allt
kunnir kappar sem fara úr lands-
liðinu og þeir, sem inn koma eru
heldur ekki neinir nýgræðingar í
handknattleiknum.
Ólafur H. Jónsson og Geir Hall-
steinsson geta ekki leikið við Sví-
ana, Ólafur er meiddur og Geir í
Þýzkalandi. Auk þeirra eru svo
þeir Hjalti Einarsson og Einar
Magnússon settir út í kuldann. 1
þeirra stað koma Ólafur Bene-
diktsson, Stefán Gunnarsson,
Guðjón Magnússon og Sigurberg-
ur Sigsteinsson. Liðið sem leikur
við Svía á þriðjudaginn verður
því þannig skipað:
Markverðir: Gunnar Einarsson
Haukum og Ólafur Benediktsson
Val.
Aðrar leikmenn: Gunnsteinn
Skúlason Vai, fyrirliði, Björgvin
Björgvinsson Fram, Axel Axeis-
son Fram, Hörður Sigmarsson
Haukum, Viðar Símonarson FH,
Auðunn Öskarsson FH, Ágúst Ög-
mundsson Val, Guðjón Magnús-
son Víkingi, Stefán Gunnarsson
Gott skautasvell
- engin kennsla
NlJ er skautasvell gott á Tjörn-
inni í Reykjavík og mikið not-
að af ungum sem eldri. 1 gær
komu fjölmargir að máli við
íþróttasfðuna og mæltust til
þess að forráðamenn Skauta-
félags Reykjavíkur eða ÍBR
önnuðust kennslu fyrir byrj-
endur. Þessari ósk er hér með
komið á framfæri og vonandi
verður hún uppfyllt nú um
helgina.
Val og Sigurbergur Sigsteinsson
Fram.
Ekki er því að neita, að íslenzkt
handknattleikslandslið virðist
hálf vængbrotið án þeirra Geirs
og Ólafs, en við því verður ekki
gert, þeir geta ekki leikið gegn
Svíum á þriðjudaginn. Þeir, sem
nú koma inn i liðið eftir nokkra
fjarveru, eru allir góðir leikmenn
og Sigurbergur reyndastur lands-
liðsmannanna í leiknum. Alltaf
Skipuð hefur verið ný landsliðs-
nefnd í handknattleik, en sem
kunnugt er sagði Jón Erlendsson,
formaður nefndarinnar, af sér
störfum fyrir skömmu síðan.
Nefndin, sem var fyrir, skipuð
Jóni, Páli Jónssyni og landsliðs-
biálfaranum Karli Benediktssyni,
Lið vikunnar er nú valið í
annað skipti á vetrinum og eins
og venjulega eru valdir í það þeir
leikmenn sem að mati blaða-
manna Morgunblaðsins stóðu sig
bezt í leikjum síðastliðinnarviku.
Markverðir: Ragnar Gunnars-
son Ármanni og Ólafur Guðjóns-
son Val.
Aðrir leikmenn: Viðar Símon-
arson FH, Hörður Sigmars-
son Haukum, Gísli Blöndal Val,
Agúst Svavarsson IR, Björgvin
Björgvinsson Fram, Gunnsteinn
Skúlason Val, Axel Axelsson
Fram, Auðunn Óskarsson FH,
Ólafur Friðriksson Víkingi og
Gunnar Einarsson FH.
má deila um val einstakra leik-
manna. Þannig virðast bæði
Ágúst Svavarsson og Gísli
Blöndal sóma sér vel í liðinu eftir
góða frammistöðu í síðustu leikj-
um sínum. En hverjir hefðu þá
átt að fara út 1 þeirra stað?
Landsleikurinn á þriðjudaginn
hefst klukkan 20.30, en forsala
verður 1 Laugardalshöllinni frá
klukkan 17.00.
hefur verið lögð niður og ný sett á
laggirnar. Verður hún skipuð
tveimur mönnum, þeim Páli Jóns-
syni og Reyni Ölafssyni, þjálfara
Valsmanna. Það vekur athygli, að
landsliðsþjálfarinn, Karl Bene-
diktsson, er ekki i nefndinni, og
kom það einnig greinilega fram á
vali landsliðsins, sem leika á við
Svía, en í því liði eru leikmenn,
sem ekki hafa verið 1 náðinni hjá
Karli.
Jón til Svíþjóðar?
Jón Hjaltalfn Magnússon
landsliðsmaður og stórskytta
úr Víkingi lék ekki með Vík-
ingum á móti FH á miðviku-
daginn og spurðu menn þvi
hver annan, hvort Jón væri
farinn alfarinn til Svíþjóðar.
Við lögðum þessa spurningu
fyrir einn af stjórnarmönn-
um 1 handknattleiksdeild
Víkings og sagði hann, að það
væri ekki öruggt, en talsverðar
líkur væru á þvf. Jón er nú að
ljúka sfnu síðasta prófi í raf-
magnsverkfræði og hefur boð-
izt ágætt starf að þvf loknu í
Svíþjóð. Hvort hann tekur því
er ekki vitað, en fari svo, að
hann komi ekki, verða ekki
„nema“ átta menn eftir í Vfk-
ingsliðinu, er hafa leikið með
landsliðinu.
Tveir 1 landsliðsnefnd
NM í þremur greinum
Þrjú íslenzk landslið verða f baráttu á Norðurlandamótum um þessa
helgi, landslið í badminton, borðtennis og handknattleik kvenna. Það
verður að segjast eins og er, að ekki eru miklar líkur á að þessi landslið
komi heim með mikið af verðlaunum. róðurinn verður erfiðari en svo,
að íslendingar verði þar f efstu sætum.
í borðtennislandsliðinu, sem keppir í Randers í Danmörku, eru 11
manns, og eru stúlkur nú í fyrsta skipti meðal keppenda frá íslandi i
borðtennis. Islenzku keppendurnir í borðtennis eru Guðrún Einars-
dóttir Gerplu, Sólveig Sveinbjörnsdóttir, Gerplu, Margrét Rader, KR,
Gunnar Finnbjörnsson, Erninum, Jón Sigurðsson, ÍBK, Hjálmar Aðal-
steinsson, KR, Ragnar Ragnarsson, Erninum, Ólafur H. Ölafsson,
Erninum, Birkir Þ. Gunnarsson, Erninum og Jón A. Kristinsson,
Erninum.
í gærkvöldi fór fram landsleikur í badminton við Finna og f dag
hefst svo Norðurlandamótið, sem að þessu sinni fer fram i Helsinki.
Þegar hefur verið greint frá því, hverjir hinir sex þátttakendur frá
íslandi verða og við hverja þeir leika.
1 Finnlandi fer einnig fram um helgina Norðurlandamót í hand-
knattleik kvenna, í gærkvöldi var leikið við Svía, f dag gegn Dönum og
Norðmönnum og á morgun við Finna. Tveir islenzkir dómarar þeir
Björn Kristjánsson og Óli Olsen dæma á mótinu.
Mikilvægur leikur á
Akureyri ftta 'eik,ir.‘
" 1. og 2. deild
Landsliðsmaðurinn Axel Axelsson verður f sviðsljósinu á sunnudaginn
í leik Fram og fR og það verður landsliðsmarkvörðurinn Gunnar
Einarsson einnig f leik Hauka og Víkings.
ÞAÐ verður mikið um að vera í handknattleiknum um þessa helgi og
sömuleiðis alla næstu viku. í dag og á morgun fara fram þrír leikir í 1.
deild karla og fimm í annarri. í næstu viku verður svo Ieikið við Svía
og sterkt júgóslavneskt handknattleikslið kemur hingað í heimsókn,
auk þess sem keppnin í 1. deild verður væntanlega á sínum stað.
Á Akureyri leika í dag Þór og Ármann, er það afai’áríðandi leikur
fyrir báða aðila, sem að líkindum munu berjast nær botni en toppi 1.
deildar í vetur. Þórsarar töpuðu sínum fyrsta leik í 1. deild fyrir Fram
og það gerðu Ármenningar einnig, en að vísu mjög naumlega fyrir
Haukum. Leikurinn í iþróttaskemmunni hefst klukkan 17.30 i dag.
Annað kvöld fara svo fram tveir leikir í 1. deildinni f LaugardalShöll-
inni, ÍR — Fram og Víkingur — Haukar. Framarar eru sigurstrang-
legri í fyrri leiknum, en ÍR-liðið er óútreiknanlegasta liðið f 1. deild,
getur unnið sterkustu lið og svo aftur tapað fyrir liðum, sem sam-
kvæmt öllum eðlilegum reikningsaðferðum ættu að vera lakari.
Víkingum er alveg óhætt að fara að sýna getu sina, það hafa þeir svo
sannarlega ekki gert hingað til á keppnistímabilinu. Ef þeir ætla sér
sigur gegn Haukunum verða þeir að taka á honum stóra sínum.
Fimm fyrstu leikirnir f 2. deild fara fram um þessa helgi, allir i
Laugardalshöllinni. Ekki virðast það ætla að verða neinir sviptinga-
leikir — sterku liðin í deildinni leika við þau, sem telja verður til
slakari helmingsins. Fylkir leikur við KA og Þróttur fær Völsunga í
fyrsta leik Norðanmanna i 2. deild klukkan 19.30 á laugardaginn í
Laugardalshöllinni. Breiðablik — KA og Grótta — Völsungur leika
klukkan 14 á sunnudag á Seltjarnarnesi, og klukkan 19 á sunnudag
hefst leikur KR og ÍBK i Höllinni.
Ársþing FRÍ og FSÍ
ARSÞING Frjálsíþróttasambands íslands FRÍ, verður haldið nú um
helgina. Hefst það klukkan 14.00 f dag og verður fram haldið á sama
tfma á morgun á Hótel Loftleiðum.
Fimleikasamband íslands, FSÍ, þingar einnig um þessa helgi, og
hefst ársþing sambandsins i Leifsbúð, Ho’tel Loftleiðum, klukkan 14 í
dag.
Annan laugardag verður svo ársþing Körfuknattleikssambandsins,
KKÍ, haldið í Snorrabúð, Hótel Loftleiðum, og hefst klukkan 10.00.