Morgunblaðið - 17.11.1973, Blaðsíða 32
SÍMAR: 26060 OG 26066
ÁÆTLUiyARSTAOIR:
AKRANES.
FLATEYRI, HÓLMAVÍK, GJOGUR, STYKKISHÓUVIUR,
RIF, SIGLUFJORÐUR, BLONDUÓS, HVAMMSTANGI.
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1973
fNipripiHMaMfr
nuGivsmcnR
«g.«-*22480
Kauplagsnefnd hefur nú reikn-
að vfsitölu framfærslukostnaðar í
nóvemberbyrjun 1973 og reyndist
hún vera 226 stig eða 16 stigum
hærri en f ágústbyrjun á þessu
ári, eða 7,67% hærri. Var um
verðhækkanir að ræða á mörgum
innlendum vörum og ýmissi þjön-
Hitaveita
í Hrísey
HITAVEITA var í gær tekin f
notkun í þorpinu f Hrfsey. Kl. 18
var opnuð borhola og 67° heitu
vatni dælt úr henni inn f kerfið,
sem tengt er við um 60 fbúðarhús,
auk atvinnufyrirtækja.
Ólafur A. Bergsveinsson,
sskipasmfðameistari f Hrfsey,
sagði í viðtali við Mbl. f gær-
kvöldi, að lagning hitaveitunnar
hefði að mestu verið unnim af
heimamönnum og þeirra hlutur
stærstur í þessu máli. Ættu þeir
miklar þakkir skilið frá hrepps-
nefnd og hreppsbúum.
„Það var stórkostleg og
ólýsanleg tilfinning,“ sagði
Ólafur, „að standa þarna f
frostinu úti í móa, norður undir
heimskautsbaug, skrúfa frá
krana og finna heitt vatnið
streyma um hendur sínar og
finna það sfðan frjósa á eftir,“
Asmundar
Síðasta sýningarvika er nú á
Ásmundssýningunni hjá Lista-
safni Islands. Verður sýningin
opin frá 1.30 til kl. 10 á laugardag
og sunnudag. Margir myndlistar-
unnendur hafa lagt leið sfna í
Listasafnið þessar sex vikur, sem
sýningin hefurstaðið.
JÓHANN Hafstein, fyrrverandi
formaður Sjálfstæðisflokksins,
var hylltur með langvarandi lófa-
klappi er fundarmenn á flokks-
ráðsfundi Sjálfstæðisflokksins
risu úr sætum að lokinni stuttri
ræðu hans, skömmu eftir
setningu flokksráðsfundarins f
gær. „Ég á ykkur öllum svo margt
að þakka frá fyrstu tíð,“ sagði
Jóhann Hafstein, „og ég þakka
Geir Hallgrfmssyni hlý orð f
minn garð.
Ég vona, að með hækkandi sól
komi batnandi heilsa og að við
getum átt langt og mikið samstarf
innan vébanda Sjálfstæðisflokks-
ins. Ósk mfn er sú, að gifta Sjálf-
stæðisflokksins vaxi og að lífs-
þróttur íslenzku þjóðarinnar
megi aukast."
I upphafi ræðu sinnar á flokks-
ráðsfundinum í gær ræddi Geir
Hallgrímsson þá breytingu, sem
orðið hefur, þar sem Jóhann Haf-
stein sagði af sér formannsstörf-
um af heilsufarsástæðum. „Okkur
þykir öllum leitt, að Jóhann Haf-
stein hefur talið sig knúinn til að
taka þessa ákvörðun, og við álít-
um það mikinn missi fyrir flokk-
inn, að hann hverfur nú frá for-
mannsstörfum. Jóhann Hafstein
hefur starfað í Sjálfstæðisflokkn-
um, frá því hann var ungur við
nám og verið erindreki og fram-
kvæmdastjóri hans, borgarfull-
trúi, þingmaður, ráðherra, for-
sætisráðherra, miðstjórnarmaður,
varaformaður og formaður varð
Framhald ábls. 18
Lánamál námsfólks fá lítinn
hljómgrunn 1 vinstri stjórn
MEGN óánægja rfkir nú meðal
námsmanna með fjárveitingu
ríkisins til Lánasjóðs fsl. náms-
manna fyrir næsta ár. 1 fjárlögum
rfkisstjórnarinnar er gert ráð fyr-
ir 456,6 milljóna króna framlagi
til Lánasjóðsins, og halda náms-
menn því fram, að þessi upphæð
ásamt lántökum og eftirstöðvum
frá fyrra ári nægi aðeins til þess
að veita lán, sem nema 78% um-
framf járþarfar að jafnaði.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi í gær með fulltrúum
stúdentaráðs Háskóla islands,
Sambandi fsl. námsmanna erlend-
is og nemendaráði Tækniskóla is-
lands, þar sem lánamál náms-
manna voru til umræðu. Stefna
fyrrgreindra aðila hefur verið og
er sú, að umframprósenta lána
skyldi hækka í 88,5% á síðasta ári
og ná 100% á yfirstandandi náms-
ári, þ.e. 1974/74. Einnig hefur
Stjórn Lánasjóðsins (LÍN) lagt
áherzlu á og fylgt þeirri stefnu í
Framhald á bls. 18
ustu, svo og á mörgum innfluttum
vörum.
Þriðjungur af hækkun vísitöl-
unnar stafaði af hækkun búvöru-
verðs í september sl., en þá tók
gildi nýr verðlagsgrundvöllur og
jafnframt var lækkuð niður-
greiðsla á kjötverði og kartöflu-
verði. Frá októberbyrjun voru
fjölskyldubætur lækkaðar úr 18
þúsund krónum í 15 þúsund með
hverju barni á ári, og olli það 2,2
stiga vísitöluhækkun.
Eins hefur kauplagsnefnd
reiknað kaupgreiðsluvísitölu
fyrir tímabilið 1. desember 1973
til 28. febrúar 1974, samkvæmt
ákvæðum kjarasamninga og í
samræmi við fyrirmæli í lögum
um neyðarráðstafanir vegna jarð-
elda í Heimaey. Er þessi kaup-
greiðsluvísitala 149,89 stig og skal
samkvæmt þvf greiða 49,89%
verðlagsuppbót á grunnlaun á
nefndu tímabili. Kemur þessi
verðlagsuppbót í stað 39,54%
verðlagsuppbótar, sem gildir til
30. nóvember 1973.
Sýning
68%
olíu-
hækkun
MJÖG mikil hækkun
hefur orðið á verði
þeirrar olíu og bensíns,
sem íslendingar kaupa
frá Rússlandi, á undan-
förnum dögum. Hefur
Mbl. þær upplýsingar
frá áreiðanlegum heim-
ildum, að 10. nóv. sl. hafi
verð á gasolíu og svart-
olíu, miðað við afhend-
ingu í höfn í Rússlandi,
hækkað um 68% og 15.
nóv. sl. hafi verð á bens-
fni hækkað um 30%.
Þessar hækkanir hafa
orðið á grundvelli
þeirra samninga, sem í
gildi eru um olfukaup
íslendinga frá Rússum,
og eru til komnar vegna
þess, að olíuverðið er í
samningum bundið
heimsmarkaðsverði á
ákveðinn hátt.
Erlendur Haraldsson
Spíritismi inn í Háskólann?
Fyrsti lektor sálfræðideildar sérfræðingur í para-sálfræði
MIÐLAR og spfritismi eru tals-
vert til umræðu hérlendis um
þessar mundir, ekki sízt vegna
útkomu bókarinnar um Ragn-
heiði Brynjólfsdóttur. Sýnist
sitt hverjum f þeim efnum,
eins og vænta má. Sumir telja,
að bókin sé einungis fölsun, en
aðrir telja það með ólfkindum.
1 útvarpsþætti fyrir nokkru,
þar sem umrædd bók var til
umræðu, hölluðust flestir þátt-
takenda að því, að hér væri
ekki um fals að ræða, þó að þeir
drægju sannleiksgildi hennar f
efa.
Meðal þeirra var Sigurjón
Björnsson, eini prófessor sál-
fræðideildar Háskóla íslands,
en hann kvaðst hins vegar ekki
geta skýrt, hvað hér væri á
ferðinni, enda væru rannsóknir
á þessu sviði á frumstigi hér-
lendis. 1 því tilefni sneri
Morgunblaðið sér til Sigurjóns
og spurði hann, hvernig
vísindalegum rannsóknum
spíritisma væri háttað hér-
lendis og hvort nokkuð væri
framundan f þeim efnum innan
Háskólans.
Sigurjón svaraði því til, að
innan sálfræðideildarinnar
væri hvorki aðstaða til slíkra
rannsókna né annarra. Þetta
væri aðeins þriðja árið, sem sál-
fræði væri kennd innan Háskól-
ans og þá aðeins til BA-prófs.
Deildin hefði ekki yfir neinni
rannsóknarstofu að ráða,
aðeins litlu herbergi og einni
kennslustofu.
Sigurjón sagði ennfremur, að
þar til í haust hefði hann verið
eini kennarinn við deildina, en
í vor sem leið hafi verið skip-
aður lektor við deildina. Er það
dr. Erlendur Haraldsson, og
hans sérsvið er einmitt parasál-
fræði, en hún spannar yfir
ofangreint fyrirbæri. Dr.
Erlendur skrifaði doktorsrit-
gerð um þetta efni og vann að
henni í Duke University, þar
sem þessi fræðigrein er hvað
Iengst komin. Auk þessa hefur
dr. Erlendur unnið að 2—3
smærri rannsóknum á þessu
sviði og er nú f leyfi frá
Háskólanum fram í janúar til
að ljúka rannsóknarstörfum,
sem hann hefur unnið að með
bandarískum sérfræðingum.
Sigurjón tók fram, að þessi
rannsókn dr. Erlends væri al-
gjörlega á hans eigin vegum og
kæmi Háskólinn þar ekkert við
sögu. Hann sagði, að sér vitan-
lega hefði Erlendur enn ekki
birt neitt af rannsóknum sín-
um, en kvaðst vita til þess, að
hann hefði í þeim fengist
nokkuð við athuganir á miðlum
hérlendis.
„Skapist einhvern tíma ein-
hver rannsóknaraðstaða hér
hjá deildinni," sagði Sigurjón,
„tel ég alveg vfst, að Erlendur
muni vinna á þessu sviði. Enn
sem komið er er þó ekkert farið
að fást við þetta svið hérlendis,
svo að orð sé á gerandi. Að vísu
má segja, að rannsóknir
Erlends séu fyrsti vísirinn að
slíku, enda er hann fyrsti mað-
urinn, sem við fáum á þessu
sviði, sem þó er ekkert minni
visindagrein en hvað annað.“
Þessi mynd var tekin við setningu flokksráðsfundar Sjálfstæðisflokksins sfðdegis f gær. Geir Hallgrfms-
son flytur ræðu um stjórnmálaviðhorfið.
Jóhann Hafstein hyllt-
ur á flokksráðsfundi
Vísitalan
hækkarört