Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NOVEMBER 1973 Lokið við spreng- ingar jarðgangna undir Oddsskarð Eskifirði, 22. nóv. í DAG var lokið við að sprengja jarðgöngin undir Oddsskarð, og eru göngin þá orðin um 441 m á lengd. Ekki verða göngin þó opn- uð alveg að norðanverðu, heldur skilið eftir mjótt haft, 2—3 m, og er það aðallega gert til að vetrar- veður og snjór nái ekki til að komast inn i göngin. Byrjað var á verkinu vorið 1972 og þá unnið fram í desember, og síðan var byrjað aftur s.l. vor Ekki verður unnið meir við göng in í vetur, en væntanlega verðui hafist handa við að ganga frí þeim næsta vor. Unnið hefur ver- ið á tveimur vöktum og er þaS verktakafélagið Istak, sem hefur séð um sprengingar og borun. Yf- irverkfræðingur við verkið hefur verið Ölafur Gíslason. — Fréttaritari. SATTA LEITAÐ I MEIÐYRÐAMÁLI SAMKVÆMT stefnu, sem útgefin var í Borgardómi sl. mánudag, átti í gær að þingfesta í Bæjar- þingi Reykjavíkur meiðyrðamál það, sem dætur Arna heitins Páls- sonar prófessors hugðust höfða á hendur Sverri Kristjánssvni sagnfræðingi, fyrir ummæli hans um föður þeirra í útvarpsþætti í júlí sl. Af þvf varð þó ekki, að málið væri þingfest í gær. Lögmaður systranna, Hörður Einarsson hrl., sagði í viðtali við Mbl. i gær, að málinu hefði verið frestað í bili, þar sem verið væri að vinna að samkomulagi í málinu Fundi flýtt á Patreks- og „sæmilegar likur“ væru á því, að það næðist. — Ef samkomulag næst hins vegar ekki, verður að byrja á málshöfðuninni að nýju frá grunni og fá útgefna nýja stefnu. Rauði krossinn og kirkjan veita 40 milljónir til sjúkrahússins í Eyjum firði AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé- lagsins Skjaldar á Patreksfirði verður haldinn í samkomuhúsinu Skjaldhorg n.k. laugardag kl. 16. A fundinn kemur Þorvaldur Garðar Kristjánsson alþingismað- ur. Aætlað var, að fundurinn yrði á sunnudag kl. 14, en honum verð- ur sem sagt flýtt. MORGUNBLAÐIÐ hafði fregnir af því, að Rauði krossinn og Hjálparstofnun kirkjunnar hefðu veitt stóra fjárupphæð til nýja sjúkrahússins í Vestmannaeyjum og fékk senda eftirfarandi frétta- tilkynningu um málið. Rauði kross Islands og Hjálpar- stofnun kirkjunnar hafa átt fundi í Vestmannaeyjum með fulltrú- um Vestmannaeyjakaupstaðar og heilbrigðismálaráðherra Magnúsi Kjartanssyni og Páli Sigurðssyni ráðuneytisstj. um, hvernig hægt væri að bæta úr heilbrigðismálum Vestmannaeyjakaupstaðar á sem skemmstum tíma. Það er augljóst, að sem stendur vantar verulegar fjárhæðir upp á, að hægt sé að fullljúka við bygg- ingú nýja sjúkrahússins í Vest- mannaeyjum. Til að endar mætist vantar ná. 40 milljónir króna. Ef þeir fjármunir væru fyrir hendi ætti að vera hægt samkvæmt at- hugunum forráðamanna Vest- mannaeyjakaupstaðar að ljúka verkinu á um 10 mánuðum. R.K.I. og Hjálparstofnunin lita á það sem höfuð nauðsyn, að þetta mál komist í höfn, og að það sé forsenda uppbyggingarstarfs í Eyjum og byggð þar, að læknis- þjónusta sé í fullkomnu lagi. Á það ber að líta að framkvæmdin á lögum samkvæmt að kostast af opinberum aðilum að öllu Ieyti. Hins vegar vantar talsvert upp á, að fjármagn sé tryggt. Framhald á bls. 20. ALVARLEGT umferðarslys varð á Grindavíkurveginum f gærmorgun, er ung stúlka ók bifreiðlsinniþar út af veg- inum á hættulegri beygju, sem ekki er merkt. Bilinn mun hafa stungizt út af veginum og oltið nokkrar veltur. Lá stúlkan utan við hílinn, þegar að var komið. Billinn endaði á hjól- unum og sést á myndinni, hvernig hann var staðsettur utan vegar eftir slysið. Stúlkan var talin úr lífs- hættu í gærkvöldi. Verður rannsóknarnefnd sett til höfuðs ráðherra? • • HORGULL A JOLA TRÉSLJÓSUM INNFLUTNINGUR á jólatrés- Ijósum hefur stórlega dregist saman á síðustu árum vegna þess, að þegar reglur um sérstakan gildleika rafmagnsleiðslna í ljósunum, tóku gildi, varð að hætta innflutningi á slikum Ijós- um frá Hong Kong, Japan og Kína, en þaðan voru þessar ljósa- samstæður mjög ódýrar. Verð á jólaljósasamstæðum frá þessum löndum var um 500 kr., en ef þær eru keyptar frá Þýzka- landi eins og nú er helzt, kosta þær yfir 3000 kr. Pétur Pétursson heildsali sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að segja mætti, að hörgull væri á jólaljósasamstæðum. Sagði hann, að jölaljósasam- stæður frá Þýzkalandi kostuðu sex sinnum meira en frá Austur- Asíulöndunum, en 24—36 Ijósa seríur þaðan kostuðu um 500 kr. Nú er hins vegar ólöglegt að selja ljósasamstæður, sem hafa grennri Seðlabankinn ósk- ar rannsóknar I FRÉTT Morgunblaðsins í gær um deilu þjóna við eigendur veit- íngastaðarins Oðal kom m.a. fram, að farið hefði verið upp á 3. hæð hússins, sem Seðlabankinn hefur á leigu. I tilefni þessa hefur Seðlabank- inn óskað eftir þvf við lögregluna, að rannsókn fari fram á þessum mannaferðum um húsakynni hans. vír i leiðslum en 0.75 mm, en Hong Kong ljósasamstæðurnar hafa 0,50 mm. Þá sagði Pétur, að einnig hefði dregið mikið úr innflutningi á jólatrésskrauti á síðustu árum, vegna þess að mikil afföll væru á slíkum innflutningi; varan væri svo brothætt. Þó væri alltaf tals- vert úrval á markaðnum samt sem áður og slík verzlun gengi oft í bylgjum. A fundi deildar Alþingis í gær var til umræðu tillaga, sem þeir Karvel Pálmason (SFV) og Hannibal Valdimarsson (SFV) fl.vtja um, að skipuð verði rann- sóknarnefnd, skv. ákvæðum stjórnarskráarinnar, sem rann- saka framkvæmd landhelgis- gæzlunnar úti fyrir Vestfjörðum frá 15. október s.l. Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, sem til máls tóku við umræðuna, bentu á, að tillaga þessi beindist fyrst og fremst að dómsmálaráðherra, þar sem hann væri æðsti yfirmaður Landhelgis- gæzlunnar. Ólafur Jóhannesson taldi tillög- una skv. orðum sínum ekki bein- ast að sér eða ráðuneytinu, heldur að þvf, sem í daglegu tali er nefnt landhelgisgæzlan. Kvaðst hann þó ekki vilja skorazt undan ábyrgð og sagði, að ef einhver mistök hefðu átt sér stað við framkvæmd „Þýðir ekki annað en halda dansiball” Þjónar herða verkfallsaðgerðir t I)AG herða þjónar á verkfalls- aðgerðum sínum og verður hætt að bera fram mat fyrir hótelgesti. Konráð Guðmunds- son hótelstjóri á Hótel Sögu sagöúf viðtali við Morgunblaðið í gær, að hótelgestir myndu framvegis geta fengið mat á herbergin, en enginn matur yrði framreiddur í veitingasöl- unum. Konráð sagðist telja, að þar sem eigendur hótela ættu í hlut, gætu þeir sinnt þessum verkefnum sjálfir, en hins vegar kvað Konráð það ákveðið, að dansleikur yrði í Súlnasal í kvöld og er það í fyrsta skipti sem almennur dansleikur er haldinn þar, án þess að vín- veitingar og matur séu á boð- stólum. „Við erum að reyna að fara út í það að breyta alveg rekstrinum verðandi dans- salina,“ sagði Konráð, „því þetta gengur ekki, að verkföll geti stöðvað hjá okkur oft á ári. Það verður söngur, grín, gleði og dans framvegis á venjuleg- um dögum í Súlnasalnum og gosdrykkir að sjálfsögðu. Það þýðir ekki annað en halda dansiball." gæzlunnar, gætu þau alveg eins átt rót sína aðrekja til sín, eins og annarra. Sagði ráðherra, að þetta væri köld kveðja til starfs- manna landhelgisgæzlunnar, nú að loknu löngu og ströngu strfði, þar sem þeir hefðu staðið sig mjög vel. Karvel Pálmason mælti fyrir tillögunni, sem er svohlóðandi: „Neðri deild Alþingis ályktar að skipa nefnd samkvæmt 39. gr. stjórnarskrárinnar til að rann- saka framkvæmd landhelgis- gæslu frá 15. október s.l. og kanna, hvort ásakanir, sem fram hafa verið bornar um, að gæsla landhelginnar á Vestfjarðamiðum hafi ekki verið með eðlilegum hætti, hafi við rök að styðjast. Skulu nefndarmenn vera fimm, einn tilnefndur af hverjum þing- flokki. Nefndin skal hafa rétt til að heimta skýrslu, munnlegar og bréflegar, bæði af embættismönn- um og einstökum mönnum. Að loknum störfum skal nefndin gefa neðri deild skýrslu um niður- stöður sínar.“ Sagði hann, að ekki bæri að skoða tillöguna sem árás á einn eða neinn. Pétur Sigurðsson (S) benti á, að dómsmálaráðherra væri æðsti maður Landhelgisgæzlunnar og því beindist þessi tillaga gegn honum. Kvaðst hann styðja tillög- una, þó með þeim breytingum, að rannsóknarnefndin yrði 7 manna og kosin hlutfallskosningum, að rannsóknin tæki ekki bara til tímans frá 15. okt., heldur næði hún til alls yfirstandandi árs, og ekki væri ástæða til að binda rannsóknina við Vestfirði. Jónas Arnason (Ab) kvaðst styðja tillöguna, þó með svipuð- um breytingum og Pétur hafði Iagt til. Sagði Jónas fulla ástæðu til að ætla, að ábyrgðin á slæ- legri landhelgisgæzlu hvíldi á öðr- um yfirmönnum Landhelgis- gæzlunnar en forsætisráðherra. Kynnu þeir e.t.v. að hafa gefið honum rangar og villandi upp- lýsingar um framkvæmd gæzlunnar. Matthías Bjarnason (S) sagði, að tillaga þessi væri auðvitað beint eða óbeint vantraust á dómsmálaráðherra, hvað sem Karvel reyndi að segja um það. Rakti hann þær tillögur, sem á undanförnum árum hafa komið fram um skipanir rannsóknar- nefnda, og sagði að í öllum tilfell- um væri um tillögur, bornar fram af stjórnarandstæðingum að ræða, og væri tilgangurinn ein- att að koma höggi á viðkomandi ráðherra. Olafur Jóhannesson dómsmála- ráðherra sagði tillögur sem þessa mjög fátíðar. Sagði hann ummæli Matthíasar sjálfsagt rétt um, að yfirleitt væru það stjórnarand- stæðingar, sem slíkar tillögur bæru fram. Ráðherra sagði, að skv. orðalagi tillögunnar væri henni stefnt gegn landhelgisgæzlunni, en kvaðst ekki hafa geð í sér til að skjóta sér bak við undirmenn sína. Ráðherra sagðist hafa beitt sér fyrir dómsrannsókn vegna ásakana vestfirzkra skipstjórnar- manna á hendur landhelgis- gæzlunni. Skýrslur, sem teknar hefðu verið, yrðu afhentar alls- herjarnefnd þingsins, sem fengi málið til meðferðar. Einnig fengi hún að sjá skýrslur, sem til stæði að taka af starfsmönnum Land- helgisgæzlúnnar. Ef nefndinni þætti að þeirri skoðun málsins lokinni ástæða til að skipa sér- staka rannsóknarnefnd og Al- Framhald á bls. 20. Aðalfundur SVS AÐALFUNDUR Samtaka um vestræna samvinnu verður hald- inn n.k. miðvikudag, 28. nóvemb er, f Tjarnarbúð, kl. 18.30. At- hygli félagsmanna er vakin á því, að fundurinn hafði áður verið boðaður mánudaginn 26. nóv., en hefur verið frestað um tvo daga. .nM'iriibiu •)(;() .6óci|ivé ' -iíii8Ö.1Í0 nBlnGiio-il

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.