Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.11.1973, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1973 11 laide. Þar handtaka Gestapo- menn hann, án þess þó að komast að raun um hver hann er. Hann er fluttur til starfa í verksmiðju, sem framleiðir hergögn fyrir þýska flugherinn. Hann kemst brátt á snoðir unt, að þar er verið að vinna að til- raunum með mjög hernaðar- lega mikilvæga hluti, en til þess að kornast á brott með þessar upplýsingar verður hann að svíkja þrjá félaga sína í hendur Gestapo. 22.40 Dagskrálok L4UG4RD4GUR 1. desember 1973 17.00 Iþróttir Meðal efnis er ntynd frá Norðurlandamóti kvenna í handknattleik og mynd frá leik ensku knattspyrnulið- anna Goventry og Sheffield United, og hefst hún unt klukkan 18.15. Umsjónarmaður Ömar Ragn- arsson. 19.15 Þingvikan Þáttur unt störf Alþingis. Umsjónarmenn Björn Teits- son og Björn Þorsteinsson. 19.45 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veðurog auglýsingar 20.30 Söngelska f jölskyldan Bandarískur söngva- og gamanmy ndaflokkur. Þýðandi Guðrún Jörunds- döttir. 20.55 Vaka Dagskrá um bókmenntir og listir. U m s j ön ar m aðu r 01 a f u r Haukur Simonarson. 21.45 Uxa skal með arði reyna Stutt, kanadísk kvikmynd um dráttarkeppni uxa. Þýðandi Gylfi Gröndal. 22.00 Mærin frá París (Joan of Paris) Bandarísk bfómynd frá ár- inu 1942, byggð á frásögnum eftir Jacques Théry og Georges Kessel. Leikstjöri Robert Stevenson. Aðalhlutverk Michéle Morgan. Paul Henreid og Thornas Mitchell. Þýðandi Heba Júlíusdóttir. Myndin gerist í Frakklandi átið 1941. Landið er hersetið af Þjóðverjum, en Bretar halda uppi stöðugum loft- árásunt. Bresk orrustuflug- vél er skotin niður. Ahöfnin kemst lífs af. en gengur erfiðlega að felast fyrir Þjóð- verjum. Loks tekst ungri Parísarstúlku að konta Bret- ununi í samband við frönsku neðanjarðarhreyfinguna. 23.30 Dagskrárlok FÖSTUDKGUR 30. nóvember 1973 20.00 Fréttir 20.25 Veður og auglýsingar 20.35 Tónar frá eynni grænu Norskur þáttur um írska al- þýðutónlist. Sungnar eru ballöður og þjöðkvæði ýmiss konar og leikið á írsk alþýðuhljóðfæri. Einnig eru sýndir írskir dansar og loks er rætt við rithöfundinn Mihail Mac- Liammoir. Þýðandi Öskar Ingimarsson. (Nordvision — Norska sjón- varpið) 21.15 Landshorn Fréttaskýringaþáttur um innlend málefni. Umsjönarmaður Svala Thorlacius. 21.50 Mannaveiðar Bresk framhaldsmynd. 18. þáttur. Skriftamál Þýðandi Kristmann Eiðsson. Efni 17. þáttar: Jimmy er í felum í íbúð Ade- Einstaka sinnum sýnir sjónvarpið stuttar kvikmyndir úr daglega lifinu I fréttatimum. myndir, sem hafa e.t.v. ekkert fréttagildi, en geta þó verið mjög skemmtilegar og upplifgandi. Ég er viss um, að það yrði vel séð af sjónvarpsáhorfendum ef sjónvarpið gerði meira af þvi að sýna slikar myndir án sérstaks tilefnis Það er svo oft, sem einu og öðru bregður fyrir sem gaman vaeri að fá á filmu i sjónvarpinu. Nokkur dæmi um slika kvikmyndun má nefna Suður i Skerjafirði voru börn að gefa nokkr- um hestum br^uð Það var leikur i hestunum og börnunum Fuglager við höfnina i vindgjólu, þar sem fuglarnir svifa og svifa Menn að vinnu hér og þar Börn að leik, t.d. á skautum, i iþróttum eða öðru Dæmin, sem eru nefnd, eru ósköp venjuieg, en slíkar svipmyndir gætu lifgað mikið upp á ef þær eru teknar af góðum kvikmyndatökumönnum eins og sjónvarpið hefur Það er svo oft, sem kvikmyndatökumennirnir hafa möguleika á að filma stemmn- ingsglefsur, sem eru utan við venju- legt dægurþras þeirra og eltingaleik við misjafnlega skemmtilegt frétta- efni, en auðvitað kostar allt slikt vinnu og ekki eru kvikmyndatöku- mennirnirof margir Allt er þó hægt ef viljinn er fyrir hendi. Eitt er það i okkar þjóðfélagi. sem sjónvarpið hefur ekki farið varhluta af og er ókostur mikill. Á ég þar við, að oft koma hingað erlendir gestir, ágætir gestir, sem hafa eitthvað á boðstólum fyrir fjölmiðla. Svo til undantekningalaust geta þeir komið efni sinu á framfæri i útvarp; sjón- varp og blöð, Sjónvarpið hefur tekið upp fjölmarga, sérstaka þætti um erlenda listamenn i heimsókn á ís- landi Sumir þessara manna eru frá- bærir listamenn og það er kostur að fá þá i sjónvarprð en margir eru aðeins kunnir hjá sjálfum sér þótt þeir kynni sig heimsfræga Á sama tíma er engin áherzla lögð á, að kynna .islenzka listamenn og hvetja þá þannig um leið og stutt er við islenzka menningu Þarna þarf að verða algjör stefnubreyting og þeir, sem skammta sjónvarpinu fjármagn verða að gera sér grein fyrir þvi, að þeir eru að handfjatla islenzka menningu en ekki eitthvað rumpu- roð Það er kominn timi til. að kliku- skapurinn i islenzku menningarlifi minnki, þessi ótti við að einn verði móðgaður ef annar er kynntur og svo öll andstæðingafélögin, sem gera ekki annað en gæta hagsmuna sinna á kostnað liflegra menningar- tilþrifa íslandi til heilla. — á.j. 21.00 Nýjasta tækni og vfsindi Nýjungar 1 kcnnsluháttum Gervihandleggir Hús úr sorpi Umsjónarmaður Örnólfur Thorlacius. 21.25 Geðveikrahælið (Bedlam) Bresk biómynd frá árinu 1946. Aðalhlutverk Boris Karloff og Anna Lee. Þýðandi Ellert Sigurbjörns- son. M.vndin gerist í Lundúnum á 18. öld. Aðalpersónan er ung stúlka, Nell Brown að nafni. Hún kynnist ástandinu á geð- veikrahæli, þar sem frentur er litið á sjúklingana sem skynlausar skepnur en fölk. Hún reynir sem hún getur að bæta hag vistfólks á hælinu, en óvildarmenn hennar svíf- ast einskis til að eyðileggja starf hennar. 22.45 Dagskrárlok Sigurður A. Magnússon SJALDAN lætur sá betur er eftir hermir, heitir þáttur, sem Jón B. Gunnlaugsson annast og er á dagskrá n.k. sunnudags- kvöld kl. 19.35. Hér er um að ræða þátt þar sem þjöðkunnir menn koma fram í túlkun ann- arra. Jón Hjartarson leikari, Ieikritahöfundur og fleira mun aðstoða við samningu handrita i þessum þáttum, en fast form á þáttinn er ekki ákveðiðennþá. Að loknum hermilátum skeiða útvarpsmenn fram á öldur ljósvakans og kynna verk Guðmundar Frímanns. Hjörtur Pálsson mun ræða við skáldið, lesin verður smásaga og skáldið les úr ljóðum sínum. Á mánudagskvöld mun Ragnar Ingimarsson verkfræð- ingur ræða Um daginn og veginn. Ragnar er einn af félögum Bandalags háskóla- manna og vafalítið mun hann ræða eitthvað um launakröfur og aðrar tertuskreytingar. Annars minnist ég þess að dr. Broddi Jóhannesson rektor Kennaraháskólans sagði einu sinni við mig, að hann hefði sömu laun og togarasjómaður á Halamiðum. Ekki svo vitlaust kerfi. Guðmundur Frfmann A venjulegum tíma verður svo Eyjapistill, en hann mun nú vera að renna skeið sitt, því líklega fellur hann niður um áramót. Væri þó æskilegra að hafa hann áfram að einhverju leyti f vetur, því það fólk, sem ekki kemst til Eyja vegna hús- næðisskorts þar á það alveg skilið að fá einhver tíðindi, afla fréttir og mannlífshjal f bæ, sem er að rísa úr ösku. Annars eru flestir Eyjamenn að leggja af stað heim, svo fljótt sem auðið er og vekur það bæði gleði meginlandsmanna og Eyjaskeggja. Á þriðjudagskvöld er þáttur, sem heitir Kona í starfi. Þaðer nú það. Maður fer nú að verða langþreyttur á þessum bless- uðum pistlum, sem öllum er það sameiginlegt, að fyrir- lesarar halda, að enginn skilji stöðu og mikilvægi konunnar nema hann hafi sótt námskeið hjá rauðsokkum eða hvað það nú heitir. Ég veit ekki betur en starf konunnar hafi verið það Árni Gunnarsson mikilvægasta, sem um getur síðan svokölluð menning kom til sögunnar. Það þarf ekkert að vera að afsaka konuna, þessi gullkorn. Annars eru þessir þættir hinir merkustu út af fyrir sig og i þessum þætti mun María Pétursdóttir skólastjóri flytja hugleiðingu um hjúkrunarmenntun. Á miðvikudagskvöld verður Bjarni Guðnason á beinu lín- unni hjá Áma Gunnarssyni og Einari Karli Haraldssyni og það er skrautleg kvöldvaka síðar um kvöldið, Horft um öxl til heiðarbýlis, ástir sýslumanns- ins og Jörfagleðin með meiru. Á fimmtudagskvöld er leikritið Pappfrsfuglinn. Hér er um að ræða leikrit frá Chile, samið af Jorge Diaz, leikhús- manni, sem einnig hefur stundað húsagerðarlist eins og íslenzki leikstjórinn Þorsteinn Gunnarsson. Ólafur Haukur Sfmonarson þýddi verkið nýlega, en það var sérstaklega Birgir Sigurðsson 0 laf ur Haukur Sfmonarson samið fyrir útvarp. Verkið fjallar um mann, sem rifjar upp bernsku sína allt frá því að hugmyndaflugið sofnaði. Helgí Skúlason er sögumaður, en fjöl- margir leikarar koma fram i verkinu. Leikstjórinn sagði. að það væri ekki alvanalegur tónn i verkinu, umhverfið napurlegt að vísu, en þráðurinn með gamansemi. Sigurður A. Magnússon er með bókaspjall þetta kvöld kl. 19-10.[ þættinum verður rætt um Fornritaútgáfuna og munu dr. Jóhannes Nordal, dr. Jakob Benediktsson og dr. Jónas Kristjánsson ræða um hana við Sigurð. A föstudagskvöld hefst ný framhaldssaga i útvarpinu, Ægisgata, eftir skáldið Stein- beck. Birgir Sigurðsson ljóð- skáld og leikritahöfundur les söguna f þýðingu Karls ísfelds. Á laugardagskvöld hefst þáttur, sem heitir Frá Bretlandi. Er hann í umsjá Ágústs Guðmundssonar leikara, sem stundar nám ytra. Mun hann flytja pistla frá Bretlandi hálfs mánaðarlega. GLUGG I HVAÐ EB AÐ HEYRA? Sjónvarp og útvarp dagsins er á bls. 23 í blaðinu í dag . .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.