Morgunblaðið - 23.11.1973, Síða 33

Morgunblaðið - 23.11.1973, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. NÖVEMBER 1973 33 Konur úr kirkjunefnd undirbúa basar á kirkjuioftinu f Ddmkirkjunni. Kaffisala kirkjunefndar kvenna Dómkirkjunnar Hálfrar aldar félags starf í Hafnarfirði Á sunnudaginn kemur, 25. nóv. kl. 2.30 verður hin áriega kaffi- sala kirkjunefndar kvenna Dóm- kirkjunnar í Tjarnarbúð, í ná- grenni kirkjunnar, þar sem vinum hennar og velunnurum er gefinn kostur á að styrkja starf nefndarinnar, með þvi að kaupa kaffi með góðum og ljúffengum kökum og brauði, en þessi kaffi- sala kirkjunefndarinnar hefur jafnan notið mikilla vinsælda meðal Reykvíkinga. Þá verður kaffigestum einnig gefinn kostur á að kaupa hand- unna muni, sem konur í kirkju- nefndinni hafa unnið og gefið á þennan árlega bazarsinn. Allur ágóði af kaffisölu og bazar rennur til starfsemi nefnd- Kvenfélag Hallgríms- kirkju heldur basar Kæri lesari.- Ég er með kveðju til þín frá heilu kvenfélagi. Þær biðja allar að heilsa þér, konurnar í kvenfélagi Hallgrimskirkju með þökk fyrir gamla og góða viðkynningu. Þær vita af gamalli reynslu, að þú bregzt vel við, þegar þær eiga erindi við þig — því að smeykur er ég um, að eitthvað væri ógert enn, sem unnið hefir verið fyrir Hallgrímskirkju, ef almenningur i Reykjavík — og víðar — hefði ekki brugðizt vel við, þegar kven- félagið hefir óskað aðstoðar. En hvað er nú um að vera? kannt þú að spyrja. Málið er ofureinfalt: Basar í félagsheimili kirkjunnar laugardaginn 24. nóv., hefst klukkan tvö eftir hádegi og held- ur áfram fram eftir deginum, — og meira að segja eftir kvöldmat, ef þörf gerist. Fallegir hlutir verða á boðstólum, leikföng og heimaunnir munir af ýmsu tagi, arinnar og miðar að því að prýða Dómkirkjuna og afla henni kirkjugripa og styrkja safnaðar- lífið yfirleitt. Það sem af er þessum vetri hafa konurnar i kirkjunefndinni komið saman á kirkjuloftinu, hvert fimmtudagskvöld og unnið þar að gerð muna fyrir bazarinn og átt þar um leið sameiginlegar ánægjustundir. Myndin hér að ofan er frá einu sliku vinnukvöldi nefndarinnar. Dómkirkjan á vissulega sterk ítök i hugum margra Reykvík- inga, og þangað hafa leiðir þeirra oft legið á liðnum árum. Ég vona, að sem flestir komi til þess að drekka kaffi hja kirkjunefndar- konunum á sunnudaginn kemur ýmiss konar jólavarningur kerti o.fl. Allt, fyrsta flokks. — Kon- urnar telja sannarlega ekki eftir sér erfiðið, fremur en vant er. Til sölu verða einnig falleg kort og nokkrar bækur. — Nú eru í aðsigi tímamót i starfi Hallgrímskirkju. Áður en varir verður þakið tekið ofan af þeim hluta kirkjunnar, þar sem nú er messað, og þá tilheyrir hún lið- inni sögu. En i hennar stað verður vígð kapella í suðurálmunni, út frá turninum. Og kvenfélagið hef- ir sett sér það mark að sjá um altari, ræðustól og skírnarfont í þennan nýja kirkjuhluta. Og ef að vanda lætur, verða þær ekki látn- ar einar um þessi verkefni. Þess vegna á ég að láta fylgja kveðj- unni frá kvenfélaginu kæra þökk og sýni þannig hug sinn og rækt- arsemi til sinnar gömlu kirkju og styrki starf kvennanna. Kirkjulegt starf þarf á fórnfýsi sem flestra að halda, bæði f rjálsri vinnu, fjárframlögum og upp- byggjandi félagsstarfi. Á kaffidegi kirkjunefndarinnar fær fólk í söfnuðinum einnig gott tækifæri til þess að hittast og rabba saman yfir kaffibolla. Sunnudaginn 2. des. kl. 8.30 verður svo hið árlega aðventu- kvöld Dómkirkjunnar, sem kirkjunefndin er nú að undirbúa. Þar verður aðventunni fagnað og hugsað um hinn sígilda fagnaðar- boðskap jólanna. Óskar J. Þorláksson. fyrir alla hjálp undanfarinna ára, — og þar á meðal þá aðstoð, sem veitt hefir verið í sambandi við þennan basar, sem nú er verið að halda. Það skaðar kannski ekki að minna á, að eitt af guðspjöllum næstu helgar er sagan af hinni örlátu konu, sem raunar hafði ekki miklu úr að spila, — en gaf samt ríflega í guðskistu musteris- ins. Sú saga hefir margoft verið gerð að veruleika í sambandi við Hallgrímskirkju I Reykjavík og á eftir að gerast aftur og aftur um alla framtíð. Kæri lesari — kvenfélagið bfð- ur að heilsa með óskum um gæfu og Guðs blessun í bráð og lengd. Jakob Jónsson. Á FUNDI, sem Landsmálafélagið „Fram“ hélt nú nýverið í veit- ingahúsinu Skiphól, lét form. félagsins, Stefán Jónsson bæjar- fulltrúi, þess getið, að stjórnir félaganna Landsmálafélagsins „Fram“ og „Vorboðans" félags sjálfstæðiskvenna, hefðu ákveðið að gangast fyrir sameiginlegum kvöldfagnaði í tilefni þess, að 50 ár væru liðin frá stofnun félags- skapar, sem hefði verið undanfari framangreindra félaga. Af þessu tilefni leitaði blaðið nánari upplýsinga hér um hjá for- manni „Fram“ og lét hann blaðinu í té eftirfarandi upplýs- ingar: Samkvæmt fyrirliggjandi göngum eru í dag, 23. nóv., liðin 50 ár frá þvi, að nokkrir Hafnfirð- ingar gengust fyrir stofnun stjórnmálasamtaka í hafnarfirði á meðal kvenna og karla. Nefndist félagið „Borgarafélagið". I undir- búningsnefnd að félagsstofnun- inni voru Ágúst Flygenring, Guð- mundur Helgason, Ölafur Daviðsson, Þórarinn Böðvarsson og Sigurgeir Gíslason. Stofnfundur var haldinn 23. nóv. 1923. Gengu þegar á stofn- fundinum 100 manns, konur jafnt sem karlar, f félagið. Á öðrum fundi þess gengu 50 manns í félagið. Þegar litið er til þess hversu íbúatala Hafnarfjarðar var lág á þeim tfma, sést bezt hversu ríkur áhugi hefir verið á meðal bæjar- búa fyrir félagsstofnun þessari, en hún var undanfari síðari félagsmálasamtaka sjálfstæðis- manna. Ástofnfundi voru samþykkt lög fyrir félagið og mörkuð stefna þess í megin atriðum, en hún var sú, að starfa á þjóðlegum grund- velli að frelsi þjóðar og einstakl- inga og almennum framförum og „Vinna gegn útlendum böl- stefnum, sem nú á siðustu tfmum hafa gert vart við sig og að hafa áhrif á kosningar á mönnum til bæjarstjórnar og alþingis“ eins og segir í fyrstu fundargerð félagsins. Stjórn var kjörin á stofnfundi félagsins og skipuðu hana þessir menn: Formaður Ágúst Flygenring. Ritari Guðmundur Helgason. Gjaldkeri Sigurgeir Gíslason. Meðstjórnendur: Ólafur Daviðsson og Finnbogi J. Arndal. Varastjórn: Varaform. Þórarinn Böðvarsson. Varagjaldkeri Sig- urður Kristjánsson. Varagjald- keri Björn Þorsteinsson. Isafoldarprentsmiðja hefur sent frá sér 5. bókina f bóka- flokknum menn í öndvegi og fjallar hún um Brvnjólf biskup Sveinsson. Hefur Þórhallur Guttormsson ritað sögu hans og stuðzt við gnægð ritaðra heim- ilda, sem til eru um þennan mikla kirkjuhöfðingja, m.a. úrval úr bréfum hans f útgáfu Jón Helga- sonar. Saga biskups er rakin frá æsku- árum til dauðadags, en öðrum þræði er hún samtíðarsaga hans, enda hafði hann afskipti af flest- um meiriháttar innanlandsmálum um daga sfna. Bókin skiptist f 10 kafla og fjallar hver kafli um nokkuð afmarkað svið, m.a. er sérstakur kafli um menningarvið- leitni Brynjólfs og handritasöfn- Fyrsta verkefni félagsins var undirbúningur að kosningum til bæjarstjórnar, sem fram fóru í ársbyrjun 1924. I undirbúnings- nefnd kosninganna voru þessir félagar kjörnir: Guðrún Einars- dóttir, Ölafur Böðvarsson, Pétur Snæland, Þorleifur Jónsson og Ölafur Þórðason. Agúst Flvgenring — fvrsti for- maður „BorgaraféIagsins“. Stofnendur og félagsmenn „Borgarafélagsins" stóðu síðar að stofnun Landsmálafélagsins „Fram“ í nóvembermánuði 1926, en það félag hefir starfað óslitið siðan. Hefir sá grundvöllur, sem lagður var af frumherjum „Borg- arafélagsins" leitt til þróttmikils og árangsrfks félagsstarfs sjálf- stæðismanna allt til þessa dags eða I hálfa öld. Borgarafélagið var jöfnum höndum félag kvenna sem karla og hafa því framangreind félög ,,Fram“ og „Vorboðinn" ákveðið að minnast sameiginlega þessara limamóta með kvöldfagnaði i Félagsheimili iðnaðarmanna að Linnetsstíg 3, laugardaginn 1. des. n.k. Ilefst kvöldfagnaðurinn kl. 8'4 siðd. Sérstök undirbúningsnefnd annast allan undirbúning sam- komunnar. Stutt ávörp verða flutt og úrvals skemmtikraftar munu skemmta og hinir færustu hljóðfæraleikarar leika fyrir dansi en aðgangseyri mjög í hóf stillt. Vænta stjórnir félaganna þess. að sjálfstæðisfólki sé það einkar ljúft að minnast þessara tima- móta svo og starfs frumherjanna á verðugan hátt og að það fjöl- menni á væntanlegan kvöld- fagnað félaganna. Verður hann nánar auglýstur i blöðum og á annan hátt. un og annar um eflingu dansks valds á íslandi. I einum kafla er fjallað um einkamál biskups og fjölskyldu hans, og segir höf- undur þar, að af samtímaheimild- um verði ráðið, að Ragnheiður Brynjólfsdóttir hafi ekki svarið eiðinn óspjölluð. Áður hafa komið út í þessum bókaflokki rit urn Gissur jarl. Skúla fógeta, Jón Loftsson og Jón biskup Arason, en sú siðast- nefnda er einnig skrifuð af Þór- halli Guttormssyni. Bókin er 114 bls. að stærð, prentuð f ísafoldarprentsmiðju. Ilún er prýdd ýmsum myndum m.a. af Skálholti fyrr og nú og gömlum menjum. Bókarkápu og bókarskraut gerði Hilmar Helgason. Sagnfræðirit um meistara Brynjólf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.