Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1973 ni i. t > 22-0-22* RAUÐARÁRSTIG 31 BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 iTel. 14444*25555 w BlLALEIGA CAR RENTAL Æb BILALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL 'W'24460 í HVERJUM BÍL PIONŒŒR ÚTVARP OG STEREO Kasettutæki Hverf isgötu 18 [T| 86060 „ Haust- ferming” Ný skáldsaga eftir Stefán Júlíusson „HAUSTFER1VIING“ nefnist ný skáldsaga eftir Stefán Júlfusson. A kápusíðunni segir, að hún fjalli um hið svokallaða unglinga- vandamál; sé þjóðlffslýsing, Reykjavfkursaga, sem gerist á lið- andi stund. Aðalpersónan er 14 ára stúlka, „óefað vandræðaunglingur f venjulegri merkingu þess orðs, en í henni munu speglast margir þættir í gerð og skaplyndi upp- vaxandi kynslóðar yfirleitt, vandamál unglinga og lífsvið- horf.“ Sagan greinir frá viðskiptum hennar við ættmenni og kunn- íngja, en meðal annars neitar hún aðganga til prests vegna ferming- arundirbúnings. Setberg gefur bókina út. Sjáifur Meistarinn mikli lét sig hafa það að tala um f jársjóð og gildi hans. Hann lét sfna fylgismenn hafa fjársjóð, sem var sízt tóm- ur. Einu sinni ætlaðist hann til, að eytt væri i einu úr honum meira en ársiaunum vinnandi manns. Og í Fjallræðunni telur hann fjársjóðinn vera hjartanu næst. Segja má, að allt slíkt séu andlegar líkingar. En of langt má ganga í slíkum skilningi. Og þannig hefur kristinn dómur orðið f jærri lífi hversdagsins og um leið fjarlægur Meistara sín- um og mótara, sem biður um Guðs ríki á jörðu. Vart mundi hann taka fjár- sjóð til iíkingar á svo frjáls- legan hátt, nema af því að hann skildi svo vel mannlega sál og mannlega tilveru, að hann vissi, hvers virði hann var. En hvar stöndum við hér úti við Dumbshaf á þessu sviði nú? Er hugsað um nokkuð annað en tóma fjársjóði og einskis- verða bréfpeninga í verðbólgu- kapphlaupi, þar sem kaup- hækkun og krónutala ganga í augun á fólki, sem á tóman hugsunarbanka og rykfallin hjartahólf? „Meira kaup fyrir minni vinnu" er kjörorð tfmans. Samt ættu allir að vita, að bak við háu tölurnar er tóm, en ekki fjársjóður. Sömuleiðis hitt, að það er vinnan, en ekki talan, sem skapar verðmæti sannra fjársjóða. Minni vinna þýðir því minni fjársjóður. Meira kaup, sem ekki á vinnu og verðmæti að bakhjarli, er því ekki annað en svik, falsaður grundvöllur að lífsnauðsynjum manna. Og sé þar gengið langt, hverfur atvinnan einnig, og eftir verður iðjulaust fjársafn, sem elst á féleysi öreigans, sem sveltur. Eldra fólkið þekkir þetta fyrirbirgði: Kreppuna, atvinnu- leysið, allsieysið — þegar til- veran verður án fjársjóðs, byggir mannlff á sandi, heil samfélög. Dýrtíð, húsnæðisvandræði og verðgildisleysi peninga, sem nú er nöldrað um, eru hégómi einn við það, sem var í kreppunni. meira að segja talinn „luksus" að fá að vera f skóla og njóta námstíma. Engum mundi ég óska slfkra tíma, samt hefði kannski ein- Fjársjóður þinn — framtíð þín En kröfurnar stefna í átt til þess, sem var. Og nái atvinnu- leysið tökum, loki atvinnu- veitendur fjársjóðum sínum í frjálsu viðskiptalffi, þá fyrst mun syrta að, og fjársjóðir hjartans líka tæmast út f tóm haturs, öfundar og ófriðar, nema eitt komi til, sem er þó vart betra: Afneitun einstak- lingseðlis og persónufrelsis. Er það kannski orðið tak- mark á íslandi? Talað er um af framsýnum mönnum erlendis, að nú stefni eftir örfá ár til sama ástands og var á Vestur- löndum um 1930. Eitt er víst, að þá dugði lftt ungu fólki að öskra á náms- styrki og námslaun. Þá var hver gott af að sjá sjálfan sig í þeirri skuggsjá. En væri samt ekki rétt að stanza, meðan ennþá eru tök til, á leið niður hjarnið og svipast um eftir heppilegum leiðum til að varðveita fjársjóði einstak- linga og samfélags, áður en allt verður um séinan. Fyrirhyggja er nauðsynleg, ef fjársjóðir eiga ekki að glatast. Hvað verður um þjóð og sjóð hinnar taumlausu kröfu? Hvað verður um eftirlætisbarnið, þegar fjársjóðir foreldra eru tómir? Hvað verður um litla þjóð, sem ekki fær lengur lán eða getur ekki greitt skuldir sfnar? Hvort mun þá ekki bæði sjálfstæði og frelsi í voða, nema þá einnig sem innantóm orð án gullgildis sannra lífsverðmæta. IDutverk þessarar litlu þjóðar er: Að verða fyrirmynd meðal þjóðanna og eignast fjár- sjóðu anda og handa, sem hjörtun geta unað og unnað. Litlar þjóðir eins og Hellenar, Rómverjar, ísraelar og Armenar hafa orðið ljós á vegum lýða um aldaraðir. En — aðeins meðan þær kunnu að meta fjársjóði sína og varðveita þá. Starf, forsjá, hugsun, sparnaður voru hornsteinar þeirrar forystu, frumtákn efna- legra og andlegra framfara. En þegar slakað var á með kröfunni, „minni vinna, meiri laun“, sem hét þá meiri leikur — meira brauð — þegar ábyrgðartilfinningin hvarf, var þagað við ræðum og áminning- um og stefnt út í auðn stríðs og sundrungar. Jafnvel orð frægasta og mesta ræðusnillings allra tíma, sjálfs Demosþenesar urðu sem „hljómandi málmur og hvellandi bjalla" í eyrum hug- stola múgs yfir tómum fjár- sjóðum tómra hjartna. Arelíus Nfelsson. BRIDGEFÉLAG KVENNA; Eftir 4 kvöld, 16 umferðir í „Baromoter“tvímennings- keppni félagsins, eru eftirtald- ar konur efstar: A — riðil; Halla Bergþórsdóttir og Kristjana Steingrfmsdóttir 1279 Ingunn Hoffmann og Ölafia Jónsdóttir iMEÐALSKOR: 1152 stig. 1244 Elín Jónsdóttir og Rósa Þorsteinsdóttir 1278 Steinunn Snorradóttir og Þorgerður Þórarinsdóttir 1247 Ingunn Bernburg og Gunnþórunn Erlingsdóttir 1238 Guðríður Guðmundsdóttir og Kristín Þórðardóttir 1213 B — riðill: Petrína Færseth og Sigríður Bjarnadóttir 1491 Sólveig Kristjánsdóttir og Viktoría Ketilsdóttir 1303 Margrét Ásgeirsdóttir og Kristín Kristjánsdóttir 1265 Charlotta Steinþórsdóttir og Sigríður Guðmundsdóttir 1262 Þrjá síðustu umferðirnar verða spilaðar í Domus Medica sunnu- daginn 9. desember n.k. bg hefst kl. 1,45 e.h. X x x Frá Bridgefélaginu Ásarnir Kópavogi Úrslit í 6. umferð sveitarkeppni félagsins, sem var spiluð s.l. mánudag, urðu þessi: Sveit Jóns vann sveit Kristjáns 20:0 Sveit Þorsteins vann sveit Einars 15:5 Sveit Lárusarvann sveit Guðmundar 20:0 Sveit Hrólfs vann sveit Vilhjálms 18:2 Sveit Eyjólfs vann sveit Baldurs 19-1 Röð efstu sveita er nú þessi: 1. Sveit Jóns Andréssonar 103 stig 2. Sveit Þorsteins Jónssonar 93 stig 3. Sveit Lárusar Hermannsson- ar 77 stig. Firmakeppni félagsins hefst í dag, sunnudag, f Félags- heimilinu Kópavogi, kl. 13.00. Yfir 100 firmu taka þátt í keppninni og eru félagar hvatt- ir til að mæta og taka með sér gesti. XXX Nú er lokið fjórum umferð- um í Butlerkeppni Bridge- félags Reykjavíkur og eru nú þeir félagar Antpn og Sigtrygg- ur orðnir efstir en feðgarnir Ólafur og Lárus fylgja þeim fast eftir. RÖð og stig efstu para er þessi: Hermann Lárusson Sverrir Ármannsson 403 Vilhjálmur Pálsson og Sigfús Þórðarson 393 Guðlaugur Jóhannsson og ÖmArnþórsson 390 Ásmundur Pálsson og Stefán Guðjohnsen 388 Gunnar Guðmundsson og öm Guðmundsson 387 Jakob Bjarnason og Hilmar Guðmundsson 386 Jón Baldursson og Sigurður Sverrisson 382 Vilhjálmur Sigurðsson og Benedikt Jóhannsson 382 Næst umferð verður n.k. mið- vikudagskvöld í Domus Medica og hefst kl. 20. X X X X Frá Bridgefélagi Kópavogs Sveitakeppni félagsins er ný- lokið með þátttöku 14 sveita. Keppni þessi er undanúrslit til meistara- og fyrsta flokks, þannig að 7 fyrstu sveitirnar fara í meistaraflokk, en hinar f fyrsta flokk. Röð sveitanna var þessi: Bjarna Péturssonar 211 Helga Benóníssonar 190 Ánnanns Lárussonar 172 Guðmundar Jakobssonar 170 Kára Jónssonar 169 Bjarna Sveinssonar 153 Páls Sigurjónssonar 142 Ragnars Halldórsson 137 Gunnars Sigurbjörnssonar 131 Þorsteins Þórðarsonar 122 Kristmundar Halldórssonar 104 Þorleifs Jónssonar 48 Margrétar Ámadóttur 11 Keppni þessari verður haldið áfram síðar. xxxx Staðan f sveitarkeppni Bridgefélags Breiðfirðinga er nú þessi: Sveit: Hans Nielsen 105 Jóns Stefánssonar 94 Ingibjargar Halldórsdóttur 93 Þórarins Alexanderssonar 84 Sigurleifs Guðjónssonar 83 Elísar Helgasonar 80 Esterar Jakobsdóttur 78 Guðrúnar Jónsdóttur 59 A.G.R. TÍU vinsælustu lögin á Islandi þessa dagana, samkvæmt útreikn- ingum þáttarins „Tfu á toppnum" 1 (2) Broken down angel 2 (1) Candv girl 3 (9) I got a name 4 ( —) Muscleoflove Alice Cooper 5 (3) Sorrow David Bowie* 6 (4) Daydreamer David Cassidy* 7 (6) Areyou lonesome tonight Donnv Osmond 8 (5) I shall sing Art Garfunkel 9 (—) Knockin’on heaven’s door....................Bob Dylan 10 ( —) Justyou and me..............................Chicago Af listanum féllu fimm lög: Photograph — Ringo Starr (7), My music — Loggins & Messina (8), Why me — Kris Kristofferson (10), Sweet Desiree — Family (—) og Leave me alone (Ruby Red Dress) — Helen Reddy (—). Nýju lögin fimm eru: 11 Whenlamakid ...............................DemisRoussos 12 Lifðu .................................Bjarki Tryggvason 13 Why.oh why oh why ......................Gilbert O’Sullivan 14 HelenWheels .....................Paul McCartney & Wings 15 Step into Christmas .........................EltonJohn. Merkin aftan við nöfn Davids Bowie og Davids Cassidy tákna, að lögin séu nú búin að vera sex vikur á listanum og falli því sjálfkrafa út. — Um nýju lögin er það helzt að segja, að Demis Roussos er grískur að uppruna, var eitt sinn í hljómsveitinni Andromeda’s Child, sem átti vinsældum aðfagna á meginlandinu, en er nú einn á báti og nýtur vaxandi vinsælda á meginlandinu; lag Bjarka er eftir hann sjálfan, en textinn er eftir Jónas Friðrik; Elton John er með jólalag, en vitað er um fleiri jólapopplög á markaðnum, m.a. frá John Denver og Slade, sem rjúka upp vinsældalistann í Bretlandi með sína jólaplötu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.