Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1973 7 Kvikmyndir Eftír Bförn Vigni Sígurpálsson Ingmar Bergman lætur vel að Ingrid Thul Móður- ímyndir Bergmans ÞAÐ var orðið tfmabært að sjá eitthvað til meistara Bergmans að nýju. Hafnarbfo hefur að undanfbrnu sýnt The Toueh eða Beröningen við bærilegar undirtektir reykvískra kvik- mvndahúsgesta. Myndin er líka á margan hátt aðgengi legasta verk Bergmans hin sfðari ár, slétt og felld saga úr hversdags- Iffinu, og kannski er það ein- mitt þess vegna, að myndin nær ekki áþekkum tökum á manni og fyrri mvndir hans. Sögusviðið er ekki ósvipað þvf, sem menn hafa att að venjast í sjönvarpsleikritum Bergmans að undanförnu — og það gefur að líta millistéttar- fjölskylduna, sem býr við öryggi og efnahagslega velsæld. Aytra borði virðist fjölskyldan lifa fullkomlega hamingjusömu lifi, en fljötlega kemur í ljós, að brestur er í innviðum hjóna- bandsins. Innihaldslaust lif húsfreyju sem hefur slævt til- finningar hennar f gegnum árin, og hún stendur þvf ber- skjölduð, þegar útlendan gest ber að gerði og hann játar henni ást sfna. Bergman dregur upp skýra mynd af konunni — í senn við- felldna og óvægna lýsingu á lífi hennar. Uann deilir á lífshlaup hennar og ádeilan nær hámarki listrænnar túlkunnar í lok myndarinnar, er konan hafnar elskhuga sínum. „Gagnrýnin er ekki framleidd af birturð eða hatri, heldur er þetta gagnrýni sem sprettur sjálfkrafa út úr efninu,“ segir Bergmann sjálf- ur. „1 lokin reynir konan að leita ástæðunnar fyrir því, að hún ákveður að vérða um kyrrt hjá eiginmanni sfnum og á heimili þeirra. Hún telur það skyldu sina og allt það, sem vel getur verið rétt hjá henni. Þá segir elshugi hennar: „Þú lýgur" og hann endurtekur þetta í þrígang fyrir framan hana. Siðan er það áhorfandans að ákveða með hvorum hann stendur. Lýgur hún eða segir hún satt? Er það skylduræknin ein, sem knýr hana til að hafna tilfinningaþrungnu og ævin- týralegu en lifandi lífi og hverfa f þess stað aftur inn í „Fegurðarblundsheiminn" sinn? Eða ákveður hún að dveljast um kyrrt í ást, sem henni tókst aldrei að láta fylli- lega rætast? Lýgur hún eðaseg- ir hún sannleikann? Mér finnst þaðekki skipta máli.“ Við megum eiga von á þvf að sjá meira til Bergmans, áður en langt um líður. Ekki alls fyrir löngu lauk hann við Viskninger och rop — að sögn hina mögnuðustu kvikmynd, sem væntanlega verður sýnd í Háskólabíói. „Nýja myndin mfn er til heið- usrs móður minnar," segir Bergman. I viðtölum hefur hann síðan látið þau orð falla, að f myndinni leitisthann viðað sýna fjóra þætti i fari móður sinnar, sem var yfirþyrmandi kona og hann elskaði ákaflega. Með kvikmyndinni segist hann hafa ætlað sér að draga eitt- hvað nýtt fram í dagsljósið um hana. Bergman kaus ekki að beita hefðbundnum aðferðum í fyrirætlan sinni — að hafa myndina í ævisöglegum stíl — heldur valdi einu leiðina, sem þá var fær; hann lætur fjórar konur túlka hina ýmsu þætti hennar. I nýlegu hefti tímarits sæsnku kvikmyndastofnunar- innar má lesa útdrátt úr bréfi, sem Bergman reit til leikenda, áður en takan hófst, en þar gerir hann stutta grein fyrir hverri þessara fjögurra kven- persóna. Þar eð þessar persónu- lýsingar bregða nokkuð skýru ljósi á efni kvikmyndar- innar, ætla ég að láta þær flakka hér — í eilitið styttri endursögn. AGNES (Harriet Anderson) er eigandi ættaróðalsins. Hún hefur búið þar alt frá þvf að foreldrar hennar létust. Hún hefur aldrei fengið sig til að flytjast þaðan á burtu; hún hef- ur heyrt þarna til allt frá því hún fæddist og leyft lífinu að streyma frá sér — hægt og sígandi — án tilgangs og skakkafalla. Hún er meðdálitla listræna tilburði; hún málar svolitið og spilar pínulitið á píanó allt ósköp snoturt. Hún hefur aldrei verið við karl- manna kennd. Ástin er henni dularfullur huliðsheimur. Og 37 ára að aldri hefur hún fengið krabbamein og er reiðubúin að hverfa burtu úr þessum heinii jafn hljóðlega og hún lifði í honum. Hún er Iengstum f rúminu; í stóra rúminu sínu í fallegu en ofskreyttu herbergi foreldra sinna. Hún hefur þó fótaferð alltaf öðru hverju, þar til kvalirnar buga hana. Hún kvartar ekki að ráði og ásakar ekki Guð. í bænum sínum leitar hún til Krists í blúgri eftir- væntingu. KARIN (Ingrid Thulin) er systir hennar, tveimur árum eldri, sem giftist inn íauðuga fjölskyldu og fluttist í annan landshluta. Hún komst von bráðar að því, að hjónaband hennar var glappaskot. Eigin- maður hennar (George Arelin- sem er 20 árum eldri, stenzt henni hvergi á sporði, hvorki andlega né líkamlega. Hún er móðir fimmbarna og tryggð hennar við hjónabandið er ó- röskuð. Ilún eins og óhaggan- legur vegg”-- og virkar frá- hrindandi og hrokafull. Djúpt undir yfirborði sjálfstjórnar- innar leynist máttvana hatur til eininmar.ns og reiði hennar út í lífið magnast eftir því sem árin líða. En þessar kenndir og ör- væntingin koma þó aldrei upp á yfirborðið nema í draumum hennar. Maria (Liv Ulmann) er yngst systranna: Hún er einnig gift inn Ivelstæða fjölskvldu og lifir í traustu hjónabandi með geðþekkum og velmetnum manni (Hennig Moritzen) úr tilhlýðilegum þjóðfélagsstiga. Hún á fimmm ára dóttur og er sjálf eins og dekrað barn, blíð, kankvís og brosandi og haldin óseðjandi forvitni og lífsnautn. Hún er mjög upptekin af eigin fegurð og af möguleikum líkama síns til lífsins lysti- semda. Hana skortir allan skilning á veröldinni, sem hún lifir í; hún er sjálfri sér nóg og gerir sér engar grillur út af viðteknum siðferðishugmynd- um. Hennar einasta takmark er að vera aðlaðandi. ANNA (Karl Sylwan) er þjónusti tstúlkan í húsinu. Hún er um þrftugt. Ung stúlka hafði hún orðið fyrir því að eignast barn og Agnes tók hana og barnið upp á arma sér. Fyrir bragði taldi hún sig skuld- bundna Agnesi. Þögul, orðlaus vinátta tókst síðan með þessum tveimur einmana konum. Barn- ið dó þegar það var á þriðja ári, en sambandið milli Agnesar og Önnu hélzt eftir sem áður. Anna er mjög hljóðlát kona, óframfærin og ómannblendin. En hún er alls staðar nálæg, hún sér, leitar og hlustar. Hún talar ekki. Kannski hugsar hún ekki heldur. Síðan segir Bergmann einungis: „Þegar myndin hefst eru aðstæður þannig, að veikindi Agnesar hafa ágerzt og að sögn læknisins (Erland Josephson) mun hún ekki lifa miklu lengur. Systur hennar tvær (einu vandamann henn- ar) eru komnar til að vera hjá henni á dauðastundinni." Að endingu má kannski geta þess, að enn ein myndin mun vera í f;eðingu hjá Bergman. Eftir því sem manni skilst, mun það verða söngvamynd, b.vggð á óperettunni Kátu ekkjunni, en Bergman ku lengi hafa gengið með þetta viðfangsefni í mag- anum. Hann mun hafa ráðið Barbra Streisand í aðal kven- hlutverkið og vera að leita fyrir sér hvort Marlon karlinn Brando sé ekki til i að taka að sér karlhlutverkið. Þetta gæti þá orðið nógu forvitninsleg kvikmynd. KONAÓSKAR EFTIR 2ja — 3ja herb. íbúð til leigu Um einhverja fyrirframgreiðslu, getur verið að ræða. Upplýsingar í síma 331 63 FIAT 125 '72. Lítið keyrður Fallegur bill. til sölu í dag. Má borgast með 2—5 ára skuldabr. eða eftir samkomul. Sími 22086 BAKARI óskar eftir vinnu æskilegt að hús- næði fylgi. Má vera úti á landi. Tilboð sendist augl.d Mbl. merkt: ..601 ” TILSÖLU rúmlega 220 000 kr. veð- skuldabréf, (10 ára bréf) með hæstu fáanlegum vöxtum. Tilboð merkt: Strax — 4840 sendist afgr Mbl BAKARI . 30 ára bakari óskar eftir vinnu. Tilboð merkt: ..3046”, sendist afgr Mbl. fyrir fimmtudag. TILSÖLU Ford Escort árg 73 Simi 93 — 7298 TILSÖLU Trabant station de luxe '6 7, skemmdur eftir árekstur. Bíllinn er með uppgerða vél frá í fyrra. Til sýnis og sölu að Heiðagerði 14. Sími 38457. KEFLAVÍK NÁGRENNI. Jólatrén eru komin Sölvabúð, sími 1 530 ATVINNA ÓSKAST. Tvítugan pilt vantar vinnu á kvöld- in og um helgar (laugard. — sunnud.). Uppl. í síma 1 1 73, Keflavík, eftir kl. 7 á kvöldin. TILSÖLU. 5 fm ketill, 3 stk. dælur, 2 stk. Spiral hitarar, 1. stk. kinditæki. Öll kontrol tæki. Upplýsingar hjá Jóni Bergssyni hf., Laugavegi 1 78. Reykjavík 3JA HERB. IBÚÐ óskast til leigu í Hafnarfirði eða Garðahreppi. Upplýsingar I síma 52 73, mánu- dag — föstudag HÚSBYGGJENDUR— LÓÐAHAFAR Húsasmiðir óska eftir verkefnum Geta unnið sjálfstætt. Tilboð merkt: ,,640”, sendist Mbl. sem fyrst. KEFLAVÍ K — SUÐURNES Gardinuefni. nýir litir, nýjar gerðir. Saumaþjónusta, afborgunarskil- málar. Verzlun Sigriðar Skúladóttur. JÓ LADÚ KAEFNI, straufrí. Tilbúnir jóladúkar Tilbúnar svuntur. Hannyrðaverzlunin Erla. Snorrabraut. TIL SÖLU Dodge power Wagon með 6 manna húsi. Upplýsingar í síma 33591 HÚ SASMÍÐI Reglusamur og duglegur piltur óskastí byggingavinu Nám í húsasmíði kemurtil greina Upplýsingar í síma 82579. GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS í Keflavlk. Hefi til sölu glæsilegt einbýlishús i Keflavík Uppl. gefur Garðar Garðarsson lögmaður, Tjarnargötu 3, Keflavík, simi 92- 1 733. Nýjasta heklublaðið frá MARKS 64 Garnið er komið sem upp- skriftirnar eru af. BIANCA og LENACRYL Hannyrðaverzlunin Erla. Snorrabraut. JÓN S. BERGMANN Ferskeytlur og farmannsljóð Fáein eintök i fallegu skinnbandi Bókabúð Máls og menningar Laugaveg 18. BROYTx2 EÐA x2B Vil kaupa Broyt x2 eða x2B gröfu. Tilboð um sölu ásamt aldri, ástandi, verði og greiðsluskilmál- um léggist á afgr. Mbl fynr 15. des. merkt: .,3040". LEIKJATEPPIN með bilabrautum, sem fengust í Litlaskógi, fást nú á Nökkvavogi 54 Opið frá kl. 13—20 simi 34391 Sendum gegn póstkröfu ÍBÚÐ TiL LEIGU 4ra herb. í Háaleitishverfí Tilboð sendist Mbl. merkt: íbúð — 79- 21. EIGNIZT VINI UM ALLAN HEIM Gangið i stærsta pennavinaklúbb i Evrópu. Sendum ókeypis bækl- ing HERMES. Box 1 7, Berlin 1 1, Germany. lESIfl JHertjtmíilíiþilþ DRGLEGR Hafnfir&ingar athugiál Efnalaug Vesturbæjar hf., hefur selt útibú sitt að Reykjavikurvegi 16. Jörundi Jónssyni, Kópavogsbraut 4 1, og mun hann reka þar áfram sömu starfssemi, undir nafninu Fatahreinsunin, Reykjavikurvegi 16 Samkvæmt framanskráðu mun ég reka Fatahreinsunina. Reykjavíkur- vegi 1 6, frá og með 1 des. 1973. Jörundur Jónsson BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.