Morgunblaðið - 09.12.1973, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1973
19
Ógnvekjandi frásögn, sem veikiað fólk
ætti ekki að lesa.
Per Hansson: TRÚNAÐARMAÐUR
NAZISTA NR. 1
„Ttu byssuhlaup beindust að manninum, sem á að skjóta.
Tíu vtsifingur kreppast um gikkina . . . Það er ntstandi kalt
og bjart veður . . . Aftökusveitin stendur kyrr og jörðin er
auð, grjóthörð og úfin af langvarandi frosti." Þannig hefst
þessi bók, sem er skjalfest og sönn frásögn um föðurlands-
svikarann Henry Rinnan, Norðmanninn, sem varla átti sinn
Itka meðal þýzkra Gestapomanna, sakir grimmdar og
mannvonzku, manninn, sem skrikaði fótur á götu samfé
lagsins fyrir stríð og á hernámsárunum hugsaði aðeins um
hefnd. — Og Gestapo veitti honum f æri á hefnd.
EAUDÓK
jP]TKTU]R.SS©N
SÓl
a.f lofti
liöur.b.
Skapföst og þrekmikil, hreinskiptin og
svarahrein.
Halldór Pielursson:
SÓL AF LOFTI LÍÐUR
Minningar Þorbjargar Guðmundsdóttur. Ijósmóður, frá Ól-
afsvtk.
Ltfsreynslusaga Þorbjargar Guðmundsdóttur er saga mikill-
ar og strangrar baráttu við áföll og erfið kjör, saga
mikilhæfrar og gáfaðrar konu, sem af óvenjulegu þreki,
skapfestu og sálarró barðist llfsbaráttu sinni, konu, sem
voru ætlaðir þyngri baggar að bera en flestum samferða-
mönnum öðrum. Þorbjörg kemur víða við í sögu sinni og
segir sögur af merkum samttðarmönnum, svo sem stór-
bóndanum og sveitarhöfðingjanum Óla á Stakkhamri, séra
Árna Þórarinssyni og Einari Þorkelssyni, og fagur þáttur er
um ekkjuna Steinunni Kristjánsdóttur, móður Jóhanns
Jónssonar skálds.
Dulrænn spekingur og mannvinur
segir frá.
Óiaiur Tryggvason:
HINN HVÍTI GALDUR
Höfundur segir um efni og tilgang bókarinnar: „í bók
þessari er sagt frá fleiri furðulegum atburðum en t fyrri
bókum mtnum, atburðum, sem ég hef sjálfur lifað . . . Ég
hafði skráð þessa atburði af ýmsum ástæðum, en ekki
hugsað mér að þeir yrðu prentað mál . . . Efni bókarinnar er
að hálfu leyti frásagnir af staðreyndúm, gæddar Iffsmætti
lifandi reynslu, þar sem tveir heimar eru t eðli sínu ein
óskipt heild . . . Tilgangur bókarinnarog ætlunarverk erað
vekja menn til umhugsunar ..." Þetta er fögur bók að efni
og hollt lesefni leitandi sálum.
SIGVALDI
HJALMARSSON
=sh== AD
Hvass penni, hispurslaus og sanngjarn.
Slgvaldl Hjálmarsson:
AÐ HORFA OG HUGSA
Úrval greina ihuguls manns um margvtsleg efni: Lifsspeki
og pólittk, alþjóðamál og umhverfisvernd, dýr og dýra-
vernd, ný lifsviðhorf. sem skapazt hafa vegna uppgötvana t
visindum og tækni og hið svo kallaða unglingavandamál.
AÐ HORFA OG HUGSA á erindi við alla |já, sem horfa
opnum augum á umhverfi sitt. hafa löngun til að sjá
hlutina i réttu Ijósi og bregðast við vandamálum af mann-
dómi og góðvild. Höfundurinn er hvass penni, sem hirðir
litt um vinsældir eða óvinsældir, en flettir miskunnarfaust
ofan af hégómaskap, grimmd og sjálfsblekkingu.
í
ORFA
OG
HUGSA
'Wtóa'öiiatílsbé'
’ ....................
•V------•
Ástarsagan fagra og skemmtilega.
Theresa Charles:
HÆTTULEGUR ARFUR
Brennt barn forðast eldinn, — og Lavinía Fernleigh bjóst
ekki við að hun mundi nokkurn ttma upplifð ástina eftir
þau miklu vonbrigði, sem hún hafði orðið fyrir. En svo kom
þessi leyndardómsfulla auglýsing, sem öllu breytti. „Ef ég
hef erft peninga, þarf ég ekki að snúa aftur til sjúkrahúss-
ins og hitta Pétur lækni", hugsaði Lavinia. — en það var
gífurlegt áfall fyrir hana að frétta um arfinn og hið
dularfulla hús, Tröllaskóg. — og F Tröllaskógi, þessu húsi
leyndardómanna, hlóðust ævintýrin upp, æsileg og spenn-
andi
Hið rauða lífsblóð góðs skáldskapar.
Þóroddur Guómundsson:
LEIKID Á LANGSPIL
„Þóroddur Guðmundsson er þegar kominn i fremstu röð
islenzkra Ijóðskálda", segir Jakob Jóh. Smári, skáld.
„Hann á í Ijóðlist sinni undraþýðan og mjúkan streng, sem
snertir lesandann notalega. er hugljúfur og angurvær og
býr yfir duldu seiðmagni," segir séra Benjamin Kristjáns-
son.
„Fáa veit égsem ganga á vit hennar hátignar listgyðjunnar,
af slikri lotningu", segir Guðmundur Böðvarsson, skáld.
„Undir hringabrynju rims og hátta slær trútt hjarta, i
Ijóðum höfundar streymir hið rauða lifsblóð góðs skáld-
skapar og fagurrar listar," segir Gestur Guðfinnsson,
skáld.
Ofanritað er úr ritdómum um Sólmánuð Þórodds Guð-
mundssonar, — en hið sama má með sanni segja um hina
nýju Ijóðabók hans, Leikið á langspil.
Metsölubók ársins er umtöluð og umdeild.
RAGNHEIDUR BRYNJOLFSDOTTIR
Frá mlðllssambandl Guðrúnar Slgurðardótlur á Akureyrl
R A G N H E I Ð U R
B RYNJÓLF S D ÖTT
Um margt í lífi Ragnheiðar Brynjólfsdóttur
hefur menn greint á og mörgum spurningum
hefur verið ósvarað. Svörin er að finna í
þessari bók, því nú hefur Ragnheiður sjálf
rakið áhugaverðasta þáttinn í ævi sinni, í
sérstæðurstu bók, sem gefin hefur verið út á
íslandi. Saga Ragnheiðar er saga átaka og
ásta, átakanlegra þjáninga og dýpstu sorgar,
sannfærandi frásögn um mátt hins mikla
kærleika, sem einskis krefst, en fórnar öllu,
— jafnvel lífi og sálarheill.
RAGNHEIÐUR BRYN JÓLFSDÓTTIR er
þegar seld í fleiri eintökum á þessu hausti en
nokkur önnur íslenzk bók, — og verður
trúlega uppseld löngu fyrir jól.
FRA MIÐILSSAMBANDi
GUÐRÚNAR
SIGURÐARDÓTTUR
/