Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 09.12.1973, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1973 19 Ógnvekjandi frásögn, sem veikiað fólk ætti ekki að lesa. Per Hansson: TRÚNAÐARMAÐUR NAZISTA NR. 1 „Ttu byssuhlaup beindust að manninum, sem á að skjóta. Tíu vtsifingur kreppast um gikkina . . . Það er ntstandi kalt og bjart veður . . . Aftökusveitin stendur kyrr og jörðin er auð, grjóthörð og úfin af langvarandi frosti." Þannig hefst þessi bók, sem er skjalfest og sönn frásögn um föðurlands- svikarann Henry Rinnan, Norðmanninn, sem varla átti sinn Itka meðal þýzkra Gestapomanna, sakir grimmdar og mannvonzku, manninn, sem skrikaði fótur á götu samfé lagsins fyrir stríð og á hernámsárunum hugsaði aðeins um hefnd. — Og Gestapo veitti honum f æri á hefnd. EAUDÓK jP]TKTU]R.SS©N SÓl a.f lofti liöur.b. Skapföst og þrekmikil, hreinskiptin og svarahrein. Halldór Pielursson: SÓL AF LOFTI LÍÐUR Minningar Þorbjargar Guðmundsdóttur. Ijósmóður, frá Ól- afsvtk. Ltfsreynslusaga Þorbjargar Guðmundsdóttur er saga mikill- ar og strangrar baráttu við áföll og erfið kjör, saga mikilhæfrar og gáfaðrar konu, sem af óvenjulegu þreki, skapfestu og sálarró barðist llfsbaráttu sinni, konu, sem voru ætlaðir þyngri baggar að bera en flestum samferða- mönnum öðrum. Þorbjörg kemur víða við í sögu sinni og segir sögur af merkum samttðarmönnum, svo sem stór- bóndanum og sveitarhöfðingjanum Óla á Stakkhamri, séra Árna Þórarinssyni og Einari Þorkelssyni, og fagur þáttur er um ekkjuna Steinunni Kristjánsdóttur, móður Jóhanns Jónssonar skálds. Dulrænn spekingur og mannvinur segir frá. Óiaiur Tryggvason: HINN HVÍTI GALDUR Höfundur segir um efni og tilgang bókarinnar: „í bók þessari er sagt frá fleiri furðulegum atburðum en t fyrri bókum mtnum, atburðum, sem ég hef sjálfur lifað . . . Ég hafði skráð þessa atburði af ýmsum ástæðum, en ekki hugsað mér að þeir yrðu prentað mál . . . Efni bókarinnar er að hálfu leyti frásagnir af staðreyndúm, gæddar Iffsmætti lifandi reynslu, þar sem tveir heimar eru t eðli sínu ein óskipt heild . . . Tilgangur bókarinnarog ætlunarverk erað vekja menn til umhugsunar ..." Þetta er fögur bók að efni og hollt lesefni leitandi sálum. SIGVALDI HJALMARSSON =sh== AD Hvass penni, hispurslaus og sanngjarn. Slgvaldl Hjálmarsson: AÐ HORFA OG HUGSA Úrval greina ihuguls manns um margvtsleg efni: Lifsspeki og pólittk, alþjóðamál og umhverfisvernd, dýr og dýra- vernd, ný lifsviðhorf. sem skapazt hafa vegna uppgötvana t visindum og tækni og hið svo kallaða unglingavandamál. AÐ HORFA OG HUGSA á erindi við alla |já, sem horfa opnum augum á umhverfi sitt. hafa löngun til að sjá hlutina i réttu Ijósi og bregðast við vandamálum af mann- dómi og góðvild. Höfundurinn er hvass penni, sem hirðir litt um vinsældir eða óvinsældir, en flettir miskunnarfaust ofan af hégómaskap, grimmd og sjálfsblekkingu. í ORFA OG HUGSA 'Wtóa'öiiatílsbé' ’ .................... •V------• Ástarsagan fagra og skemmtilega. Theresa Charles: HÆTTULEGUR ARFUR Brennt barn forðast eldinn, — og Lavinía Fernleigh bjóst ekki við að hun mundi nokkurn ttma upplifð ástina eftir þau miklu vonbrigði, sem hún hafði orðið fyrir. En svo kom þessi leyndardómsfulla auglýsing, sem öllu breytti. „Ef ég hef erft peninga, þarf ég ekki að snúa aftur til sjúkrahúss- ins og hitta Pétur lækni", hugsaði Lavinia. — en það var gífurlegt áfall fyrir hana að frétta um arfinn og hið dularfulla hús, Tröllaskóg. — og F Tröllaskógi, þessu húsi leyndardómanna, hlóðust ævintýrin upp, æsileg og spenn- andi Hið rauða lífsblóð góðs skáldskapar. Þóroddur Guómundsson: LEIKID Á LANGSPIL „Þóroddur Guðmundsson er þegar kominn i fremstu röð islenzkra Ijóðskálda", segir Jakob Jóh. Smári, skáld. „Hann á í Ijóðlist sinni undraþýðan og mjúkan streng, sem snertir lesandann notalega. er hugljúfur og angurvær og býr yfir duldu seiðmagni," segir séra Benjamin Kristjáns- son. „Fáa veit égsem ganga á vit hennar hátignar listgyðjunnar, af slikri lotningu", segir Guðmundur Böðvarsson, skáld. „Undir hringabrynju rims og hátta slær trútt hjarta, i Ijóðum höfundar streymir hið rauða lifsblóð góðs skáld- skapar og fagurrar listar," segir Gestur Guðfinnsson, skáld. Ofanritað er úr ritdómum um Sólmánuð Þórodds Guð- mundssonar, — en hið sama má með sanni segja um hina nýju Ijóðabók hans, Leikið á langspil. Metsölubók ársins er umtöluð og umdeild. RAGNHEIDUR BRYNJOLFSDOTTIR Frá mlðllssambandl Guðrúnar Slgurðardótlur á Akureyrl R A G N H E I Ð U R B RYNJÓLF S D ÖTT Um margt í lífi Ragnheiðar Brynjólfsdóttur hefur menn greint á og mörgum spurningum hefur verið ósvarað. Svörin er að finna í þessari bók, því nú hefur Ragnheiður sjálf rakið áhugaverðasta þáttinn í ævi sinni, í sérstæðurstu bók, sem gefin hefur verið út á íslandi. Saga Ragnheiðar er saga átaka og ásta, átakanlegra þjáninga og dýpstu sorgar, sannfærandi frásögn um mátt hins mikla kærleika, sem einskis krefst, en fórnar öllu, — jafnvel lífi og sálarheill. RAGNHEIÐUR BRYN JÓLFSDÓTTIR er þegar seld í fleiri eintökum á þessu hausti en nokkur önnur íslenzk bók, — og verður trúlega uppseld löngu fyrir jól. FRA MIÐILSSAMBANDi GUÐRÚNAR SIGURÐARDÓTTUR /

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.