Morgunblaðið - 18.12.1973, Síða 8

Morgunblaðið - 18.12.1973, Síða 8
44 MORCiUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1973 FORVITNILEG BÓK UM PÓLITÍSKA VIÐSJARTÍMA Á MILLI WASHINGTON OG MOSKVA MINNINGAÞÆTTIR EMILS JONSSONAR FYRRUM RAÐHERRA Emil Jónsson, fyrrum ráðherra, var um ára- tugaskeið einn svipmesti stjórnmálamaður þjóðarinnar. Hann segir hér sögu sína, sem án efa er mörgum forvitnileg og vís til að vekja deilur, því alltaf stóð styrr um Emil. Hann segir frá störfum í Hafnarfirði, á Al- þingi og í ríkisstjórnum, frá kynnum af inn- lendum og erlendum ráðamönnum og fjallar ítarlega um utanríkismál, sem nú eru ' brennipunkti. Það verða ekki allir sáttir með það, sem Emil Jónsson hefur að segja, en allir, sem einhver afskipti hafa af stjórnmál- um eða hafa áhuga á þeim málum, verða að eignast þessa bók og lesa, hvar í flokki sem þeir standa. Þjóðleg, fróðleg og skemmtileg. Oscar Glausen: SÖGN OG SAGA Þetta annað bindi safnritsins Sögn og saga geymir margar minnisverðar frásagnir. Hér er langur þáttur um séra Sigurð Gunnarsson á Hallormsstað, náinn vin og samherja Jóns Sigurðssonar forseta, þáttur er um fyrstu innlendu kaupmennina í Reykjavík og upphaf verzlunar i Stykkis- hólmi, langur þáttur er um Ólaf Árnason sýslumann í Barðastrandarsýslu, sem var ríkur maður og dómharður og fróðlegur þáttur er um dætur og tengdasyni Skúla fógeta. Galdramannaþáttur er úr Grímsey og f rásagnir eru af ríkum Breiðfirðingum, auk fleiri frásagna og þátta. — Sögn og saga á þvi erindi við alla, sem þjóðlegum fróðleik unna. II Sjófróður og skemmtilegur sögumaður. Ragnar Ásgelrsson: SKRUDOA II Þetta annað bindi af Skruddu hefur að geyma sögur, sagnir og kveðskap úr Húnavatns- til Rangárvallasýslu og skemmtilegt og fróðlegt, svo sem við er að búast, þvi Ragnar var mikill smekkmaður á íslenzkt mál, prýðilega ritfær og með næma eftirtekt og skarpskyggni á þjóðleg einkenni. Hann var sjófróður sögumaður, sem safnaði að sér miklu magni sagna og sérstæðra visna á ferðum sínum sem erindreki Búnaðarfélags íslands. Fyrsta bindi af Skruddu kom út i fyrra, en lokabindið kemur út á næsta ári. Þessi nýja útgáfa á Skruddu Ragnars Ásgeirssonar er stóraukin og endurbætt. Horfnir atvinnuhættir og mannlíf á Suðurlandi. Jön Glsiason: ÚR FARVEGI ALDANNA í þessari bók kennir margra grasa: Hér er m.a. þáttur úr sögu sunnlenzkra höfuðbóla og eru þar skráðar sagnir úr Laugardalshverfi í Hraungerðishreppi ( Flóa, þáttur er um árfióðíð mikla i Hvitá 1889 og fróðlegur þáttur er um örnefni og horfna atvinnuhætti á Suðurlandi. Þá er hér einnig að finna valdar þjóðsögur úr safni séra Steindórs Briem, prests í Hruna, og er bókin góður viðauki við áður útgefin sagnasöfn, — kjörbók þeirra, er þjóðlegum fróðleik unna. IÓN 6ÍSUS0N # TÍm irAjR,vaa3C3-i -A.XJ3D-A.3>T3Sr-A. Öndvegisverk í nýjum búningi. Ellnborg Lárusdðtllr: FðRUMENN l-ll Förumenn Elinborgar verður ávallt talið eitt helzta ritverk þessarar mikilvirkju og vinsælu skáldkonu. Uppistaða sög- unnar er sveitarlífslýsing frá síðustu öld, þættir úr sögu Efra-Ás-ættarinnar, skapgerð hennar og lifsskoðanir, en inn á milli er ofið myndum úr lífi sérkennilegra förumanna er hátternis vegna og umkomuleysis urðu utanveltu við samfélag annarra manna. Þegar Förumenn komu fyrst fyrir almenningssjónir fékk þetta mikla ritverk Elfnborgar mjög lofsamleg ummæli og var skáldkonunni Ifkt við Selmu Lagerlöf og Sigrid Undset. FÖRUMENN ÍSLENDINGA SÖGUR MEO NÚTÍMA STAFSETNINGU Eina heildarútgáfa íslendinga sagna og þátta, sem prentuð hefur verið með lögboðinni nútímastafsetningu og auð- veldar því öllum að njóta bókanna til fulls. Út eru komin 8 bindi af þessari vönduðu heildarútgáfu og þar með er lokið útgáfu allra sagnanna, en á næsta ári kemur lokabindið, sem hefur að geyma nafnaskrá við sögurnar og atriðisorða- skrá, en slík skrá er alger nýlunda við útgáfu íslendinga- sagna. Eftir áramót verðum við að láta binda nýtt upplag sagnanna og þá hækkar verð þeirra. Frestið því ekki að kaupa þessa veglegu heildarútgáfu, en bækurnar er einnig hægt að fá með afborgunarkjörum, kr. 1.000.00 á mánuði. (SLENZKAR I'ORNSÖGUR Skemmtilegar mannlýsingar og skyndi- myndir af atburðum. Magnús Geslsson: úr vestur- DYGGDUM DARDASTRANDARSYSLU Sagt er frá sérstæðum og eftirminnilegum mönnum, t.d. Helga í Raknadal, Erlendi ríka á Látrum, Niels Björnssyni frá Hvallátrum, Þórði Guðbjartssyni á Patreksfirði, Guð- mundi Jónssyni, með auknefnið vinnumaður, Gunnlaugi Kristóferssyni frá Brekkuvelli, Eiríki á Konungsstöðum og Jóni bónda i Breiðavík. Einnig koma við sögu Björn i Sauðlauksdal, Snæbjörn í Hergilsey og séra Þorvaldur Jakobsson. Auk þess er hér að finna óvenju kjarngóðar og magnaðar draugasögur, svo sem þær gerast svæsnastar á Vestfjörðum og frásagnir eru af álagablettum, sjóskrímsl- um og merkum draumum. — Þetta er bók, sem allir hafa gaman af að lesa. 8 HLUTiR UM SKALDfO , Á ÞRÖM Úr dagbókum mannsins, sem varð kveikjan að Heimsljósi Halldórs Laxness. Gunnar M. Magnúss: ÓSAGÐIR HLUTIR UM SKÁLDIÐ A ÞRÖM Áður óprentaðar og forvitnilegar frásagnir frá samtíð Magnúsar Hj. Magnússonar af persónu- legum kynnum hans af merkum mönnum og sérkennilegu fólki. Stórfróðlegir þættir um fræði- manninn Sighvat Grímsson Borgfirðing stórbónd ann Þorvald á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, gáfumanninn Friðbert í Hraunakoti og Steindór í Botni, síðasta útilegumanninn, sem var á Vest- fjörðum, — auk margvíslegs annars efnis. Skáldið á Þröm var alþýðuskáld og sístarfandi fræðimaður, sem Halldór Laxness hefur gert ódauðlegan. SKUGGSJA STRANDGÖTU 31 — SÍMI 50045 — HAFNARFIRÐI t m h n e n im 111111 i 111«t f 111 i li 1111111111111 • 11111«111«* • * 11 • i * 11 • **« iuiiimnisi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.