Morgunblaðið - 18.12.1973, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.12.1973, Qupperneq 24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1973 52 of víða vegu Hringsjá: Horft Framskrið fávizkunnar „Ösnotr ma5r,/ ef eignask getr/fé eða flj<55s mun- u3./Metnaðr hánum þróask,/en mannvit aldrigi./Fram gengur hann drjugt í dul.“ Þá skriðjöklar færast í aukana, hrannast upp, velta yfir næsta nágrenni, sem gróið hafði á und- anförnu hlýindaskeiði, boðar það harðnandi veðráttu, þó enn sé tíð mild. Þau harðindi vara venju- lega mörg ár, jafnvel áratugi. Vegna samleiks elds og íss hafa komið ferleg jökulhlaup, er lagt hafa blómlegustu sveitir í auðn. Á kuldaskeiðunum margfaldast haf- ísinn við Grænland. Hefur hann tíðum nær umlukt landið okkar og bannað alla björg. Þjóðin hef- ur bognað, en ekki brotnað. A góðu árunum rétti hún furðu fljótt úr kútnum. I rúmlega hálfa öld hafa ekki komið harðindi yfir Island. Þá hafa jarðfillur skriðið fram úr fjöllum. grafið undir sig frjó- söm gróðurlönd og bvggð býli, stundum fólk og fénað. Allt þetta hefur þjóðin þolað möglunar- laust. Mötmælagöngur voru þýð- ingarlausar, og útifundir einskis megnugir, hvort sem þeir vrðu haldnir á Lækjartorgi, Austur- velli, eða Arnarhóli. Þjóðin varð að þola og þre.vja. Hún reyndi eftir beztu getu að búa sig undir harða vetur, meðan vel áraði. Sú örugga vissa, að öll él birtí upp um síðir, gaf þjóðinni kjark. Re.vnsla liðinna kynslóða var haustur grunnur. Isana leysti, afli barst á land, grasið lagðist í legu á túnum og engireitum. Skriðurnar greru, og bæir, sem fallið höfðu. risu að nýju. Oftast gróa svarðar sárin. Þó svo að mennirnir spilli ekki, með fá- vizkulegum aðgerðum. Þrátt fyrir hlýindaskeiðið, er byrjaði 1921 syrti efnahagslega í álinn. Útflutningsvörur okkar féllu gífurlega í verði, sumar um 70 —80%. Þetta mikla áfall þoldi þjöðarfleyið. Vitrir menn og góð- gjarnir héldu um stjórnvölinn. Valdir menn skipuðu og sæti Iög- gjafarþingsins, sem allir voru ein- huga um bjargráðin. Þá voru rauðu refirnir eigi komnir til sög- unnar. Þjóðskörungar voru í far- arbroddi. og alþingismennirnir, er voru förnfúsir hugsjónamenn. en ekki hálaunað „setulið". fylgdu fast eftir. Flestir voru fá- tækír á þessum dögum, en bjarg- ráðin re.vndust svo vel, að jafnvel heimskreppan mikla, í byrjun þriðja tugar aldarinnar, og, sem líka snerti fjárhag okkar Is- lendinga, stöðvaði ekki markvissa en hægfara framþróun þjóðarinn- ar. Og líkt gerist árin 1967—1968, þegar saman fór mikill aflabrest- ur og um 50% verðfall útflutn- ingsvara: Skynsamlegum ráðum var beitt til björgunar, auðvitað gegn hörku mótmælum núver- andi stjórnarflokka. Þá varðar ekki um þjóðarhag. Margir eldri menn muna krepputímabilið: 1921 —1932. Ef þeir hugleiddu hvað gerst hefði þá, ef slík stjórn er nú situr við völd á landi hér hefði haldið stjórnvellinum, mundi þáhr.vllavið. V.irið 1071 v :ir bjari hlýH Þj<íðin leit blikandi vonaraugum fram á veginn. Sjávarafli hafði glæðst og verð útflutningsvöru farið hækkandi. Spádómar um vaxandi velsæld virtust öruggir. Alit í einu dró upp ferlegt ský á himní stjórnmálanna. Hannibal, gamli vinur, nýkominn frá gegn- ingum í sauðahúsi komma, lagði út veiðigildrur, með gulhvítum yfirbreiðslum. Hann aflaði svo vel, að lykillinn að Stjörnarráðinu var þegar í hans höndum. Fáum kjósendum Hannibals og Co mun Itafa dottið í hug, að hann að loknum kosningasigrinum héldí beint upp í flatsængina meðplag- endum sínum og framsókn. Mikið skal til valdanna vinna, og hýr- unnar. Nú grunar Hannibal, að fylgið sé ótryggt, og leggur á ofur- kapp, að tæla Alþýðufl. til fylgi- lags. Glámskyggnir eru Alþýðu- flokksmenn, ef þeir sjá ekki gildr- una. Framskrið fávizkunnar fer víða yfir. Það var girnilegt veizluborðið. sem vinstri stjórnin settist við um mitt sumar 1971. Tekjuafgangur ríkissjóðs röskar 500 millj., allir varasjóðir barmafullir, gullið eða þess ígildi streymdi inn I landið, velsæld hvar sem litið var. Ríkis- stjórninni hló hugur í brjósti. Hver getur láð henni það? Ilún vissi að með fé má fylgi afla. Þegar daginn eftir vfgsluna tók hún að ausa gulli á báða bóga. Dæmi: Ilækkun ellilauna, er lög- um samkv. átti að verða þá um næstu áramót, lét stjórnin þegar framkvæma. Þá lét stjórnin af- nema söluskatt á hitaveitugjöld- um, og m. fl. líkt þessu átti að auka vinsældir hennar. Stjórnin skipulagði fjöldaframleiðslu á launuðum nefndum, gat þann veg komið hundruðum manna sinna á jötur. Hnossgætið var ekki skoríð \ið nögl. Sjóðirnir, þó miklir væru, gengu fljótt til þurrðar, og tekjur rfkisins það ár hrukku ekki tíl gjaldanna. Stjórnin fann ráð: yfirdráttur hjá Seðlabank- anum aukinn um nær 2000 millj. Settur var söluskattur á símgjöld öll, þannig náði stjórnin af fólk- inu meiri upphæð en hún hafði rétt á, með afnámi söluskatts, þá hitaveitugjöldin. Þetta er að leika a' fólkið. Þá varð að ná aftur hækkun ellilaunanna, það var gert með tekjuskatti á þurftar- laun gamla fólksins. Og svo var skattlagningin ferleg, að stjórnin sá þann kost vænstan að lækka skattana nokkuð, þegar stjórnar- andstaðan krafðist þess. Flaustrið og fávizkan einkenna athafnir stjórnarinnar. Rjúkandi ráð fjármálaráðh. er orðið þjóðkunnugt: Einn daginn eru fjölskyldubætur hækkaðar, næsta dag lækkaðar, einn daginn ellilaun hækkuð hinn tekin aftur með sköttum. Munaðarvara sett inn í vísitöluna og numin úr henni á víxl. Vísitalan fölsuðeftir þvf er hentar hverju sinni. Skatta- lög, sem hann veit ekki hvernig verka. Fjárlög eru rekin gegnum þingið, tekjulaus fjárlög einníg. Tekjurnar átti að setja inn í lögin næsta ár. Endemi, áður óþekkt. Um þessi frumvörp til laga, sagði einn þingmaður, samflokksmaður Halldórs E.: Þessi frumvörp eru í alla staði snarvitlaus, en ég sam- þykki þau samt. Aðrir stjórnar- iiðar þögðu, en vafalaust hafa sumir þeirra hugsað þessu líkt. Mikill er máttur flokksins. Hvers vegna er þessum manní, þó prúð- ur sé, falin aðalstjórn fjármál- anna? Eitt af mörgum einkennum nú- verandi ríkisstjórnar er, að ráð- herrarnír hafa ekki verið valdir eftir hæfni. Það er kraftaverk að snúa velsæld veltuáranna í „Móðuharðindi". ER NIXON EIN.V BITBEINIÐ? Kjóll ferr norðan/koma munu Heljar/of lög lýðir,/en Loki stýirir./Fara ffflinegir/með freka allir. Þaðer sljór maður, sem ekki er búinn að nema mest allt um Wat- ergatemálið, eftir nokkur hundr- uð námstíma í hljöðvarpi, sjón- varpi. Ég hefi ekki talið tímana, vegna þess að ekki þarf að borga þessa stundakennslu sérstaklega, en fróðlegt væri að vita stunda- fjöldann. Blöðin hafa og líka reynt að troða í mann blöndu af sannleika og lygi, um mál þetta. Ósannindin eru líka eins konar andlegt fjörefni, er enginn má án vera, sem fræðimenn vilja heita. Mörgum þykir þetta fjörefni besta kryddíð, sem þeir fá. Þegar maður hefur stundað svo lengi nám, er skylt að leggja fram einhvers konar skýrslu um hæfni, og það ætla ég aðgera hér. Kosninganjósnir munu hérvera að ferðinni, líklega i nokkuð stierri stíl en tíðkast austan At- lantshafs, nema fyrir austan „tjald". Þar eru kjósendur hlust- aðir og gegnlýstir um leið og þeir kjósa. Eigi virðast fjölmiðlar vor- i r telja það hneyksli. Þeir um það. Ég mæli engum hneykslismálum bót, hvorki austan hafs né vestan. Sá er þetta ritar hefur fylgst all- vel með kosningabaráttu hérlend- is í nær sjö áratugi. Heyrði ég oft getið um njósnir flokkanna, hvers f annars garð. Og áheit og smá- gjafir voru alþekkt brögð, svo og annar greiði, ef vel gengi, eða gekk. Þekktist þetta við prests- kosningar sem Alþingiskosning- ar. Vitanlega var þetta „höfuðs- mönnum" dulið sem vera bar. „Svona var það, og er það enn.“ Þó ætla lærifeður okkar, í hljóð- varpi og blöðum að rifna af vand- lætingu, ef þessu líkt gerist í Bandaríkjunum. Hver er ástæð- an? Saklaust mun að benda á sam- tök þarna vestur frá, á borð við kommúnistaklíkuna hér og aðrar slíkar um heim allan.sem notfæri sér gremju demókrata, og æsi þá til hefndarverka. Sumir Banda- ríkjamenn eru frekir til fjárins. I því sambandi mætti segja lfkt og Kiljan: Hver hefur þegið mútur, og hver hefur ekki þegið mútur? Nokkuð er, að svo leið heilt ár að kratarnir minnast ekki á neitt Watergate-,,hneyksli“. Sú kosn- ingabrella var að gleymast, þegar snögglega hvessti. Enda fyrnist fljótt yfir slfkar brellur. Stór- glæpur var þetta ekki, aðeins ljót- ur leikur. Fjölmiðlar vorir stimpla þessar njósnir stórglæp, og jafnvel dæma Nixon sekan, áður en nokkrar sannanir liggja fyrir. Hvaðan kemur þeim dóms- valdið? Þó ásaka mætti forsetann fyrir að vilja draga úr þungum kærum á vini sína cg flokksbræð- ur, sem þó hefur heldur ekki sannast, skyldi hver drengskapar- maður líta í eigin barm. Meist- arinn mesti sagði eitt sinn: „Hver yðar, sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum á hana.“ Farfsearnir gengu þá burt, gerðu nútíma mönnum skömm. Ætli rúblurnar séu kannski göður gjaldeyrir í Bandarikjunum? Svo ábyrgðarlausir eru ákær- endur forsetans, að þeir herða mesl sóknina. þá daga, er lorset- inn er önnum kafinn við að stilla til friðar við botn Miðjarðarhafs, og með því bjarga heiminum öllum. Glöggt má enn sjá hvað þeir vilja. Og íslenzki kórinn tek- ur undir ákærurnar. í augum slíkra manna er heimsstyrjöld smámunir hjá því, að geta fengið forseta Bandaríkjanna dreginn fyrir dóm, ákærðan um landráð. I einni blaðagrein s. 1. mánudag var glaðhlakkalega sagt að forsetinn hefði mikið látið á sjá síðustu daga, þ. e. að takast mundi að brjóta niður þrótt hans og vilja- festu. Nixon ætti öllum mönnum fremur skilið, að fá friðarverð- launin næsta ár. Enn streyma kærurnar inn Forsetinn ku hafa keypt hús. Ja. hvílíkt hneyksli. Því miður ei húsið ekki við Skúlagötuna, svo kalla mætti saman skemmtilegan útifund. Bandaríkin eru sterkasta lýn- veldi heimsins, þau eru og vold- ugasti verndari allra frjálsra þjóða. Og þess vegna leggja kommúnistar allt kapp í 3(1 hnekkja áhrifavaldi þeirra. For- setinn verður fyrst fyrir högginu. sem hátt er reist, seinnastjórn og þing. Gátan mun siðar ráðin. Svo mun Watergatemálið end- ast fréttamönnum sem flesk gaB" arins Sæhrímnis Einherjum, etið til agna hvern dag, en alla tm ferskt og gnótt hvern næsta dag- Halldór E. fóðrar vel geitina Heið- rúnu, svo ekki mun mjöðinn skorta. 31/10. 1973, Stgr. Davíðsson. Létt í spori Þessi Singer saumavél kostar aðeins kr. 22.164,00, en hefur flesta kosti dýrari saumavéla og þann kost fram yfir að hún vegur aðeins 6 kíló og er þess vegna mjög létt í meðförum. Þegar þér saumið úr hinum nýju tízkuefnum getið þér valið úr mörgum teygjusaumum, m. a. ,,overlock“, svo að engin hætta er á að þráðurinn slitni þó að togni á efninu. Singer 438 hefur einnig: innbyggðan, sjálfvirkan hnappagata- saum tvöfalda nál, öryggishnapp (gott þar sem börn eru), fjölbreyttan skrautsaum og marga fleiri kosti. SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR: Liverpool, Laugavegi 18A, Domus, Laugávegi 91, Gefjun, Austurstræti, Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeiid SÍS, Ármúla 3 og Kaupfélögin um land allt. SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA ^Véladeild ARMULA 3 REYKJAVIK. SIMI 38900 Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.