Morgunblaðið - 09.02.1974, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
33. tbl. 61. árg. LAUG ARDAGUR 9. FEBRUAR 1974. Prentsmiðja Morgunblaðsins
MÉpIi
Minnihlutastjórn Poul Hartling (t.h.) hefur nú náð samkomulagi við Jafnaðarmannaflokk Anker
Jörgensen (t.v) um efnahagsstefnu rfkisstjórnarinnar til frambúðar. Hér sjást þeir félagar skömmu
áður en þeir komu sér saman, en sleitulausar viðræður stóðu sólarhringum saman.
Lengstu geim-
ferðinni lokið
Orleans flugmóðurskipinu,
Washington, 8. febrúar
AP—NTB.
„É(i hef það ffnt. Og það er gott
að vera kominn heim,“ sagði
Edward Gibson er hann steig út
úr Apollo-geiinfarinu um borð í
flugmóðurskipinu New Orleans
ásamt félögum sínum úr Skvlab 3
geimleiðangrinum, Gerald Carr
og William Pogue, en þeir lentu
heilu og höldnu og nákvæmlega
sainkvæmt áætlun á Kyrrahafinu
sfðdegis í dag, uin 280 kfiómetra
suðvestur af San Diego. Þeir
félagar höfðu þá dvalizt í 84 sólar-
hringa samflevtt í geimnum, en
það er lengsta mannaða geim-
ferðin hingað til.
J Þeir Carr, Pogue og Gibson
brostu breitt og léku við hvern
sinn fingur við komuna til jarðar,
og að aflokinni fyrstu læknis-
rannsókninni lýstu læknar því
yfir, að geimfararnir virtust í
góðu formi eftir næstuin þriggja
inánaða dvöl í þvngdarleysi. Eru
vfsindamenn nú allvissir uin. að
Framhald á bls. 18
Stjórn námamannasambandsins synjar beiðni Heaths:
Allsher j arv erkf all
á miðnætti í kvöld
Olíunni
beitt gegn
íslandi?
Washington 8. febrúar — NTB
SOVEZKA ríkisstjórnin hefur
hótað að stöðva útflutning á
olíu til tslands ef íslenzka
rfkisstjórnin krefjist þess
ekki, að Bandaríkjamenn
fari frá Keflavfkurflug-
velli, að þv í er heimildir í
Washington hermdu í
dag. Haraldur Kröver,
sendiherra Islands í Was-
hinton, sagði hins vegar, að
þessi frétt ætti við engin rök
að stvðjast. Það væri aö vfsu
rétt, að olfuflutningum frá
Sovétrfkjunum hafi seinkað á
síðustu inánuðum, en orsökin
væri einungis tæknileg.
London, 8. febrúar, AP—NTB.
0 STJÖRN sambands brezkra
nániaverkamanna vísaði í dag á
bug tilmælum Edwards Heath
forsætisráðherra um að fresta
allsherjarverkfalli námamanna,
unz kosningarnar i Bretlandi 28.
febrúar næstkomandi væru af-
staðnar. Þar með leggja hinir
280.000 námamenn landsins
niður vinnu frá og með iniðnætti
á laugardag, og um leið bendir
allt til víðtæks rafmagnsskorts, á
meðan hin þriggja vikna langa
kosningabarátta stendur yfir, svo
og til algerrar lömunar atvinnu-
vega í Bretlandi með vorinu.
0 Eftir að ákvörðun stjórnar
sambandsins varð kunn, lýsti
Heatli forsætisráðherra því yfir.
að hann vænti þess, að námamenn
myndu breyta afstöðu sinni. Al-
mennt er taliö, að þessi ákvörðun
leiði til þess að sigurlíkur fhalds-
flokks Heath aukist til mikilla
inuna f kosningunum, en hann
livggst keppa undir slagorðunum:
„Hverjir stjórna Bretlandi — kos-
inn ríkisstjórn eða verkfalla-
hneigð verkalýðsfélög?" Sú
reynsla er af fvrri kosníngum, að
vinnudeilur valdi því, að kjós-
Jemen tók við
skæruliðunum níu
Dóttir
Hearsts
í haldi
Berkeley, Kaliforniu,
8. febrúar — AP.
DULARFULL hermdarverka-
samtök í Bandaríkjunuin,
Symbionesiski frelsisherinn,
hafa lýst sig ábyrga á ráni
Patriciu Hearst, dóttur blaða-
kóngsins Randolph Hearst, en
enn hafa ræningjarnir ekki
látið uppi, hvers þeir óski í
lausnargjald. Faðir stúlk-
unnar, en hún er 19 ára gömul,
sagði í kviild, að fjölskyldan
teldi sig hafa nokkra vissu um,
að hún væri á lifi, og biði nú
eftir kröfum ræningjanna.
Telur Hearst og lögreglan, að
hugsanlega sé tilgangur sam-
taka þessara að fá lausa tvo af
liðsmönnum þeirra, sem sitja
nú I lialdi vegna morðináls.
Aden, Kuwait, Tokió,
8. febrúar AP—NTB.
JAPÖNSK farþegaflugvél af DC 8
gerð lenti í kvöld í Aden í Suður-
Jemen með nfu arabíska og jap-
anska hermdarverkamcnn innan-
borðs,— fiinm þeirra höfðu tekið
japanska sendiráðið í Kuwaither-
skildi til þess að fá félaga sína
fjóra sótta til Singapore, þar sem
þeir höfðu haldizt við á ferju
einni í höfninni eftir misheppn-
aða tilraun til að sprengja upp
olíustöð. Héldu hermdarverka-
mennirnir í Kuwait starfsfólki
sendiráðsins, alls 12 manns, í gísl-
ingu unz gengið var að kröfum
þeirra og Singapore-mennirnir
sóttir. Komu þeir til Kuwait í
inorgun, og eftir að stjórnvöld í
Jemen hiifðu veitt vél þeirra
lendingarleyfi, slepptu þeir gísl-
unum heilum á liúfi og héldu til
Aden.
Á flugvellinum i Aden var tekið
á móti skæruliðunum af
embættismönnuin og lögreglu-
flokki, og var farið með þá til
óþekkts staðar. Með japönsku
flugvélinni, sem er eign Japan
Airlines, voru tveir starfsmenn
japanska utanríkisráðuneytisins
og 14 aðrir embættismenn og
flugliðar.
Gislunum í Kuwait leið öllum
bærilega eftir tveggja daga varð-
hald hjá skæruliðunum, þrátt
fyrir ýinsar hótanir þeirra uin
pyntingar og liflát. Japanski
sendiherrann — sem skæru-
liðarnir höfðu m.a. hótað að
henda út um glugga á 5. hæð
sendiráðsins — reyndi eftir á að
bera blak af skæruliðunum, og
kvaðst telja, að mál þetta ætti
eftir að auka skilning og sam-
band Araba og Japana, en Japan
á mikið undir oliu frá Arabalönd-
unum.
endur kjósi fremur íhaldsflokk-
inn, vegna þess að samband
námamanna er í nánuin tenglsum
\ið Verkamannaflokkinn.
Atkvæðagreiðslunni innan
stjórnar námamannasambandsins
lauk þannig, að 26 greiddu at-
kvæði gegn tilmælum Heaths um
frestun, en sex voru þeim hins
vegar fylgjandi. Meðal þeirra
siðarnefndu var Joe Gormley,
hinn tiltölulega hófsami forseti
sambandsins. Barðist Gormley
fyrir því í tvær og’hálfa klukku-
stund að fá verkfailinu frestað, en
án árangurs. Hið eina, sem hann
náði að knýja fram, var, að verk-
fallsverðir yrðu takmarkaðir á
meðan kosningabaráttan stendur
yfir vegna hættu af átökum
þeirra annars vegar og lögreglu
og hermanna hins vegar.
Gormley var fylgjandi frestun
verkfalls, m.a. vegna þess að ann-
Framhald á bls. 18
Bylting í
Efri-Volta
Ougadougou, Efri-Volta,
8. febrúar AP—NTB
SANGOULE Lamizana, forseti
Efri Volta í Mið-Afrfku lýsti því
yfir í útvarpsávarpi í dag, að hann
hefði numið stjórnarskrá lands-
ins úr gildi og leyst þingið upp.
Sagði Lamizana, að lierinn hefði
tekið völdin, (en hann er sjálfur
æðsti yfirmaður hans) vegna
þess. að.stjórnmálakrytur væri í
þann veginn að lama landið. Yrði
fljótlega koinið á „þjöðfrelsunar-
ríkisstjórn" með þátttiiku þeirra
afla innan hersins, sein stóðu að
byltingunni, en einnig fulltrúuin
borgara.
Hafnbann hefur verið sett á i
Framhald á bls. 18
Kröfu Watergate-
nefndarinnar hafnað
Washíngton, 8. febrúar— AP
ALRlKISDÓM ARI vfsaði í dag á
bug þeirri kröfu Watergaterann-
sóknarnef ndar öldungadeildar-
innar, að dómstóllinn gerði Nixon
Bandarfkjaforseta skvlt að af-
henda 5 scgulhandsspólur for-
setaembættisins varðandi Water-
gatemálið. Sagði dómarinn, Ger-
hard A Gesell, að ncfndin hefði
ekki fært gild rök að þvf, að hún
þyrfti á þessum segulbandsspól-
um að halda núna. ,,Eg veíti um-
sókn lögfræðings forsetans um
frávfsun kröfunnar samþykki
mitt,“sagði dómarinn.
J Þetta er í annað sinn að tii-
raunir W atergate-nefndarinnar
til að fá stuðning dómstóla í við-
ureign sinni við Hvfta húsið,
vegna seguibanda og annarra
gagna, hafa farið út um þúfur.
Þessi ákvörðun Gesells dóinara
var birt aðeins nokkruin klukku-
stunduin eftir að Leon Jaworski,
sérlegur saksóknari í Watergate
málinu, hóf viðræður við James
D. St. Clair ráðgjafa forsetans uin
óskir saksóknarans uin aðgang að
skjölum Hvfta hússins. Ekkert
var látið uppi um gang viðræðn-
anna, né lieldur hvenær þeir
m.vndu ræðast við á ný.
Gesell dómari sagði i urskurði
sinum, að hann féllist ekki á stað-
hæfingu forsetans um að dómstól-
ar hefðu engan rétt til að skera úr
deilu milli forsetaembættisins og
þingnefndar, og hann hafnaði
einnig þeirri fullyrðingu, að það
væri þjóðinni í hag, að gögn for-
setaembættisins væru ekki gerð
opinber. En hann sagði hins
vegar, að réttinum hefði ekki
verið færðar fullnægjandi sönnur
á, að Watergate-nefndin þyrfti
bráðnauðsynlega á þessum spól-
um að halda og að frekari opin-
berar yfirheyrslur vegna þeiira
væru þjóðinni í hag.