Morgunblaðið - 09.02.1974, Page 3

Morgunblaðið - 09.02.1974, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1974 3 Hrafnista færir út kvíarnar: Sjómannadagsráð byggir stórhýsi í Hafnarfirði í sumar mun sjómannadags- ráð hefja byggingu DAS i Hafnarfirði og verður þar reist veglegt dvalar- og hjúkrunar heimili fyrir aldraða. Þetta verða einhverjar stærstu og dýrustu framkvæmdir á sviði mannúðarmála, sem félagasam- tök hafa ráðizt f hér á landi. Heimilið verður reist vestast i Hafnarfjarðarkaupstað, á mörkunum við Garðahrepp, og á að rúma 240 vistmenn. Á fundi með fréttamönnum í gær (föstudag) gerði Pétur Sigurðs- son formaður sjómannadags- ráðs grein fyrir þessari áætlun og rakti um leið f stuttu máli sögu og ýmsa áfanga í starfstíð samtakanna. Pétur sagði meðal annars: — Sjómannadagssamtökin verða að teljast stofnuð i nóv ember 1937 af fulltrúum 10 stéttarfélaga sjömanna í Reykjavik og Ilafnarfirði, bæði yfir-og undirmanna. FVrsti sjómannadagurinn var hins vegar haldinn i Reykjavík 1938 á 2. hvítasunnudag i júní það ár. Má segja, að strax hafi dagur þessi orðið almennur há- tíðisdagur og svo varð um allt Iand á næstu árum. Um ótrúleg- an kraft var þegar að ræða hjá þessum samtökum og má til dæmis benda á hin fjöl- breytilegu hátíðarhöld dags- ins sjáifs: skrúðgöngur, útihátíðarhöld með eft- irminnilegum ræðum, iþrótta- keppni, vinnu- og starfs- keppni, minningu hins óþekkta sjómanns og minnisvarða hans. Utgáfa sérstaks blaðs, Sjó- mannadagsblaðsins, og strax á öðrum' sjómannadegi opnun sjóminjasýningarinnar 1939 og söfnun gripa, sem enn eru margir geymdir í Þjóðminja- safninu og eiga að renna til fyrirhugaðs sjóminjasafns á vegum þessara samtaka. Slík sýning var einnig haldin á veg- um sjómannadagsráðs árið 1968 i sýningarhöll atvinnuveganna i Laugardal. Þá höfðu þessi samtök og forystumenn þeirra mikil áhrif og tóku þátt í undir- búningi að byggingu Sjómanna- skólahússins í Reykjavík. En hornsteinn hans var lagður á sjömannadaginn 1944 af þáv. rikisstjóra, Sveini Björnssyni, en hátíðahöldin voru þá haldin við skólann, sem þá var upp- steyptur og kominn undirþak. Pétur fjallaði þvínæst um byggingu Dvalarheimilis aldr aðra sjómanna, ýmsa áfanga og erfiðleika og svo endanlegan sigur, en á Hrafnistu eru nú 446 vistmenn. Hann sneri sér svo að fyrirhugaðri nýbyggingu og sagði m.a; Nokkuð er nú umliðið siðan samþykkt var i samtökum okk- ar, að halda áfram að aðstoða við að leysa húsnæðisvandamál aldraðra hér á landi. Um likt leyti var sú ákvörðun tekin, að ekki yrði lengra fram haldið með byggingar aldraðra að Hrafnistu, vegna þess álags, sem orðið væri á sameiginlegar þjónustudeildir heimilisins. Þá lá fyrir leyfi skipulagsyfirvalda hér i Reykjavík til byggingar alls þriggja húsa með hjóna- fbúðum, sams konar og eitt hef- ur þegar verið byggt. Frekari byggingarframkvæmdum að Hrafnistu hefur þó verið frest- að og ákveðið að snúa sér að nýframkvæmdum i Hafnar- firði. Og Iiggja til þess, auk framangreindra ástæðna, m.a. síauknar kröfur um aukna og bætta þjónustu- fækkun í húsnæði, sem nú er nýtt að Hrafnistu, skortur á samkomu- sal, þörf á frágangi lóðar og skreytingu o.fl. Hyggjumst við reyna að ljúka þessum verkefn- um smám saman með árlegum fjárveitingum til þeirra auk þess sem við vonum, að rekstur Hrafnistu verði ekki jafnbágur i framtíðinni og á sl. ári, en á því ári eigum við ekki fyrir afskriftum, þótt aðrir þættir gangi upp að mestu. BYGGT A REYNSLU Margir hafa spurt: Hvað veldur þessu staðarvaii ykkar á hinu nýja dvalarheimili? Þvi er til svara, að allar ákvarðanir okkar um staðarval, stærð heimilis og rými fyrir vistfólk og þjónustu er byggt á reynslu okkar af rekstri og upp- byggingu Hrafnistu, kynningu okkar af því fremsta á þessu sviði erlendis, bæði austan hafs og vestan, viðræðum og ráð- stefnum með framámönnum þessara mála í nágrannalönd- um okkar og hér heima. Þá má geta þess, að fyrirhuguð er sam- vinna hins nýja heimilis og Sól- vangs, en það heimili mun taka að sér sjúkradeildarþjétustuna. Auk þess er i Hafnarfirði spítalaþjónusta og sú fullkomn- asta á þessu sviði i nágranna- byggðinni, Reykjavík. Félaga- svæði okkar samtaka nær yfir Reykjavík, Hafnarfjörð og næstu sveitarfélög. Þá hefur öðrum sveitarfélögum í Reykja- neskjördæmi verið boðin bein þátttaka og aðild, en aðeins eitt þeirra hefur þegar svarað af- dráttarlaust jákvætt, (auk Ilafnarfjarðar og Garðahrepps) en það er Grindavík. Þá má geta þess, hvaðan fjár- öflun samtakanna til þessara og fyrri framkvæmda kemur. Rétt er þó að geta þess nú þeg- ar, að hvorki Hrafnista í Reykjavík né þetta nýja heimili er gert til þjónustu fyrir eitt eða takmarkaðan fjölda sveitar- félaga, heldur fyrst og fremst sjómenn og sjómannaekkjur alls staðar af landinu. Um nánari staðsetningu er þetta að segja. Heimilið er staðsett vestast i Hafnarfjarðarkaupstað á mörk- unum við Gtu'ðahrepp. Mun hluti heimilisins byggður þar skv. landamerkjum. Forráða- menn Garðahrepps hafa sýnt okkur þá velvild og rausnar- skap að afhenda okkur 43.592 ferm. í þessu skyni án endur- gjalds. Frá Hafnarfirði fáum við 26.555 ferm. auk þess sem væntanlegt heimilisfólk nýtur hins fagra útivistarsvæðis, sem friðað hefur verið og nær frá mörkum okkar lóðar og i vestur i sjó fram. Mun væntanlegt sjóminjasafn staðsett i jaðri þessa svæðis nálægt sjónum. Þá sér kaupstaðurinn um skolp-, vatns- og raflögn, að væntanlegri byggingu, heimil- inu sjálfu að kostnaðarlausu. Ákveðið var að óska eftir svo stórri lóð m.a. vegna frekari byggingarframkvæmda í fram- tiðinni. Vegna heimilisins verður að hafa i huga barnagæzlu vegna starfsfólks, og hugsanlegt er, að starfsmannahús byggist hér i framtiðinni. Þá eru einnig hugsanlegar byggingar fyrir aldraða á annarra vegum, sem nýta þann kjarna, sem hér verð- ur fyrir hendi. Leyfi viðkomandi ráðherra, heilbrigðisráðherra, er fyrir hendi og Teiknistofa Gísla Hall- dórssonar, Ármúla 7, hefur tekið að sér það, sem að arki- tektum snýr. Hefur Bjarni. Marteinsson arkitekt aðallega nnnið þær teikningar, sem fyrir liggja, en auk þess njótum við að sjálfsögðu ráða og þekkingar Gísla sjálfs. Heimilið á að rúma 240 vist- menn. U.þ.b. 160 f eins- og t. veggja manna íbúðum, sem skiptast þannig, að þar verða 57 íbúðir: éitt herbergi, eldhús og bað, u.þ.b. 26 ferm. og 54 ibúðir tvö- herbergi, eldhús og bað, u. þ.b. 52 ferm. Þá er ætlað, að sérstök hjúkrunardeild rúmi um 80 vistmenn. Áður hefur verið getið um væntanleg sam- skipti við Sólvang vegna sjúkradeildarþjónustu. Þá verður þarna einnig dag- heimili fyrir aldrað fólk til dag- vistunar. Er það hugsað á þann veg, að aðstandendur komi með þá öldruðu, eða hinir öldruðu komi sjálfir að morgni og dvelj- ist á heimilinu fram eftir degi eða til kvölds. Þar fær fólkið mat og hvildaraðstöðu, læknis- hjálp, endurhæfingu, nudd, fót- og andlitssnyrtingu, hár- greiðslu, böð, aðgang að föndri og vinnusölum, samkomusal, bókasafni og öðru sameiginlegu rými með vistfólkinu sjálfu. Heimilið verður i þrem aðal- byggingum, hver upp á 3—4 hæðir. Ennfremur er svokölluð frambygging á einni hæð, en þar verður ýmiss konar sam- eiginleg þjónusta, dagvistunin og samkomusalur. í tveim bygg- inganna verða íbúðir hinna öldruðu — (beskyttede bolig- heder) en þeirri þriðju hjúkrunardeildin ásamt læknis- og hjúkrunarþjónústu. I kjallara verða vinnusalir, geymslur, eldhús ásamt hrá- efnisvinnsiu og birgða- geymslum. Þar verður aðstaða til eldunar, pökkunar og send- ingar á mat til aldraðra og sjúkra, sem i nágrannabyggð- unum búa. Ilinar þrjár aðalbyggingar verða allar tengdar saman á öll- uin hæðum, er það bæði vegna þæginda fyrir vistfólk og starfs- fólk, auk öryggis. Auk stiga verður að sjálfsögðu um nægan lyftubúnað að ræða i öilum hús- unum. I lok máls síns sagði Pétur Sigurðsson, að vegna hugsaniegrar gagnrýni á stærð og fjölmenni þessa heimilis vildi hann taka fram, að þetta væri heppileg rekstrareining að þeirra mati. Utilokað væri að veita jafn fjölbreytta þjónustu og þarna á fámennu heimili. Þar að auki og ekki sízt vildu margir aldraðir umgangast og kynnast fólki á svipuðu reki. HVER HÆÐEINS OG LÍTIÐ HEIMILI Á hverri hæð hússins munu búa 26 eða 27 vistmenn, sem hafa fyrir sig sérstakan borðsal og setustofu. Þó að eldunar- aðstaða verði í ölium ibúðunum er ætlunin, að hádegisverður- inn verði sameiginlegur vegna nauðsynlegrar hreyfingar og til að fólk geti k>'nnzt. Minnstu einingarnar verða ibúðirnar sjálfar, en tveggja manna ibúðirnar eru hannaðar á þann veg, að hvor íbúinn get- ur verið i sínu herbergi, þólt bað og eldhús sé sameiginlegt. Innbyggðir skápar verða í öll- um íbúðum og að auki lagnir fyrir síma, sjónvarp, neyðar- bjöllu og innanhússamband. Heimilið verður gert þannig úr garði, að hægt verður að ferðast um það allt i hjólastól, jafnt símaklefa sem svalir eða garð. Sérstök gestaherbergi verða á hjúkrunardeild fyrir ættingja, ef um alvarleg veik- indi vistfólks er að ræða. Samkomusalur, sem mun í'úma 200 manns, verður með leiksviði og kvikmyndasýn- ingarklefa, og sérstakt hljóin- listarherbergi verður i sam- bandi við hann. I kjallara verður veiðarfæravinnustofa og aðstaða fyrir ýmsa tóm- stund astarfsemi. KOSTNAÐUR 700 MILLJÓNIR Pétur sagði, að miðað við verðlagið í dag mætti reikna með, að heildarkostnaður við þessa byggingu yrði 650—700 milljón krónur. Fjárins verður aflað með ýmsu móti, m.a. með tekjum af Happdrætti DAS, tekjum sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði, sölu skuldabréfa og lánum. Hann kvaðst svo viija taka það sérstaklega fram að lokum, að gjafir hefðu frá fyrstu tíð verið þýðingarmikill þáttur j uppbvggingu Hrafnistu, og hefðu þegar borizt tvær stór- gjafir til bókasafns nýja heimilisins. Lfkan af dvalarheimilinu, sem byggt verður ( Hafnarfirði. Stjórn Sjómannadagsráðs, frá v. Guðmundur H. Oddsson, Tómas Guðjónsson, Pétur Sigurðsson, Kristens Sigurðssonog Hilmar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.