Morgunblaðið - 09.02.1974, Page 13

Morgunblaðið - 09.02.1974, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRUAR 1974 13 Frá sildarplani á Seyðisfirði á sildarárunum. Nú er þar allt i niðurniðslu. „Ástandið í raforku- málum algerlega ófull- nægjandi” Spjallað við Svein Guðmundsson fréttaritara Mbl. á Seyðisfirði „ÞAÐ er hjá okkur eins og alls stað- ar annars staðar á Austfjörðum, að það snýst allt um loðnuna. Verksmiðjurnar tvær á Seyðisfirði, Hafsild og Sildarverksmiðjur rikisins bræða nú dag og nótt og byrjað er að frysta loðnu i frystihúsunum, þannig að það er nóg að gera, sagði Sveinn Guðmundsson fréttaritari Mbl. á Seyðisfirði i spjalli, er hann var staddur í höfuðborginni nú fyrir helgi. Sveinn sagði, að atvinnuástand í bænum hefði verið gott og nóg að gera i báðum frystihúsunum og oft unnið fram á kvöld og um helgar. Einn skuttogari, Gullver, ergerðurút og hefur aflað vel og auk þess 5—6 smærri bátar, sem hafa aflað sæmi- lega. Sagði Sveinn, að undanfarin ár hefði aldrei verið neitt teljandi at- vinnuleysi, fremur skortur á fólki til vinnu. Frystihúsin eru Fiskvinnslan, sem Ólafur Ólafsson útgerðarmaður er helzta driffjöðurinn i, og Norður- sild, sem Hreiðar Valtýsson frá Akur- eyri rekur. — Það fer lítið fyrir glansinum, sem var á Seyðisfirði á síldarárun- um. — Já, en loðnan hefur þó bjargað verksmiðjunum, sem margir töldu orðnar litilsvirði. Sömu sögu er þó ekki hægt að segja af sildarplönun- um, sem voru 9, þegar mestur upp- gangurinn var. Nú liggja þessi plön og tilheyrandi mannvirki undir stór- kostlegum skemmdum og þau hrörna ótrúlega fljótt, enda litið eða ekkert hugað að þeim. Það má helzt likja þeim við draugaborgir. Þess má geta hér, að nýlega var bænum boð- ið til sölu það, sem áður var stærsta plan á íslandi, með hafskipabryggju og húsum, sem á annað hundrað manns bjuggu i á sumrin, fyrir 1 'h milljón króna. — Hvernig hefur ástandið verið i raforkumálum hjá ykkur? — Það hefur verið alls endis ófull- nægjandi og kemur mest frá disil- stöðvum. Fyrir 20 árum vildi Seyð- firðingar byggja virkjun við Fjarðará. en þar er litil stöð, sem byggð var 1914 og enn er í notkun. Fjármagn fékkst þá ekki til þeirra framkvæmda en ráðizt var i Grimsárvirkjun, og eru margir. sem hafa alltaf talið, að þar hafi verið um pólitíska ákvörðun að ræða. Grimsárvirkjun hefur alltaf reynzt illa á veturna og verið okkur algerlega ófullnægjandi, þannig að orðið hefur að gripa til disilstöðv- anna. Þess má hér geta, að þegar Lagarfossvirkjun kemst i gagnið, er gert ráð fyrir að hún verði fullnýtt þegar og ekki verði um neina um- framorku að ræða frá henni. Seyð- firðingar eru því aftur farnir að renna augunum til virkjunar Fjarðarár. Það er okkur mikið öryggismál að fá úr þessu ástandi bætt og þess má geta, að er ég var á leið suður var há- spennulína á Fjarðarheiði slitin. Við teljum, að varanleg úrlausn þessa máls þoli enga bið. — Hvernig hefur félagslifið verið hjá ykkur? — Það hefur verið heldur dauft þó að bæinn byggi um 920 manns. — Hvernig er staðan í heil- brigðismálum Seyðfirðinga? — Héraðslæknirinn okkar, Kjartan Ólafsson, lézt í vetur og hafa læknar frá Borgarspitalanum skipzt á að sinna héraðinu, en von er á nýjum héraðslækni. Á Seyðisfirði er sjúkrahús, sem byggt var um alda- mótin og er þvi ekki orðið upp á marga fiska. Er nauðsynlegt að gera átak i heilbrigðismálum staðarins. Að öðru leyti er allt gott að frétta frá Seyðisfirði, sagði Sveinn að lokum. Holtaþokur AF BERGMAN 0G FLOSA EITTHVERT skemmtilegasta helgar- lesefnið í blöðunum okkar undan- farna mánuði hafa án efa verið hinir vikulegu skammtar Þjóðviljans af Flosa Ólafssyni. Þetta eru ómetan- legar sprautur fyrir þetta annars al- varlega blað. Flosi er einhver snarpasti absúrd- húmoristi sem við eigum, fundvís á hin fjölmörgu kát- broslegu einkenni íslenzks mannllfs og einkar laginn við að setja þau fram sem hin hátíðlegustu þjóðþrifa- mál. Kimni Flosa, þegar hún gerist bezt, er kimni pókerandlitsins, grin sem er gert á grafalvarlegan máta og mælir þvert um geð sér. Flosi lætur sem sagt sjaldan Ijós sitt skína nema óbeint, —— er oftast með „lygamerki"' eins og krakkarnir segja. En hann teflir líka stundum á tæpasta vað, er einatt heldur stór- skorinn stíl og jafnvel smekklaus stöku sinnum. I „Vikuskammti" Flosa á laugar- daginn siðasta var þvi miður skotið heldur betur yfir markið. Þar skrifar „Geivar Páll," sérfræðingur Flosa i iistum „kvikdóm" um nýjustu mynd Ingmars Bergman, „Hvisl og hróp", sem Háksólabíó tók til sýninga. Bæði er það, að Flosa og „Geirvari Páli" bregzt bogalistin i framsetn- ingu hæðninnar, — það er afar klunnaleg brella að etja saman and- stæðum, þ.e. lofs- og skammaryrð- um i sömu setningunni á jafn aug- Ijósan hátt og Flosi gerir, t.d.: „gif- urlega tilgerðarleg og listræn kvik- myndataka" o.s.frv. Allt háðið felst í lýsingarorða frauði, meira og minna marklausu hjali, sem virðist vera fremur ætlað sem stæling á stíl „gaggrýnenda" (og látum það nú vera), en einhvers konar dómur um verðleika Ingmars Bergman og kvik- myndar hans. En tilgangur Flosa með þessum pistli virðist einmitt fyrst og fremst hafa verið sá að gera at i menningar- mafiunni, sem er að rembast við að halda þvi fram, að eitthvert hrútleið- inlegt pip eins og myndir Ingmars Bergman séu list, — eins og Flosi sjálfur kynni að hafa orðað þetta Því miður slakar Flosi á „lygamerkinu" í þessari ritsmíð, gengur sjálfur ber- rassaður fram á sjónarsviðið án skikkju hæðninnar og segir: „Um þessa kvikmynd Bergmans er það skemmst að segja, að fólki á að finnast (!) að hér sé um að ræða dæmigert l art pour l art (listin fyrir listina) þar sem leiðindin eru öðru fremur til þess að undirstrika það i eitt skipti fyrir öll, að hér sé listaverk á ferð Þetta sýnist mér inntak og útgangspunktur þriggja dálka vaðals Flosa. Þetta eru nú svoddan kerlingar- sjónarmið, að það tekur því tæpast að koma með rökstudd mótmæli. Það er nú sjálfsagt óþarfi ilka fyrir þá, sem Sáu umrædda kvikmynd, en þeir voru því miður alltof fáir. Þetta eru einmitt sams konar sjónarmið og Flosi sjálfur er vanur að teygja sundur og saman í háði. Þarna gerist sem sé sá leiðindaat- burður, að okkar skeleggasti háðfugl og „gaggrýnandi" fordómanna verð- ur þeim sjálfum að bráð. Það er nákvæmlega enginn punktur um kosti og galla Bergmans sem lista- manns i ritsmíð Flosa, og það er ekki Bergman sem þarna er steypt af stalli. Þarna er það Flosi sjálfur sem fellur fyrir eigin hendi. Auðvitað er það ofur eðlilegt að myndir Bergmans séu ekki fyrir alla smekk, og án efa eru þær einmitt aftaka leiðinlegar fyrir talsverðan fjölda fólks, þ á. m. Flosa. En ákafleg þröngsýni og ein- stefna er það, að líta svo á, að ákveðið verk sé ekki lista- verk vegna þess að mönnum kunni að hafa þótt fátt um hlátra og hasar. Það ætti að vera óþarfi ao taka fram, að njóti menn ekki listar Bergmans, þá er það vegna þess að þeir nenna ekki að leggja það á sig Fór Flosi virkilega á „Hvisl og hróp' til að „skemmta sér" i grynnstu merkingu þeirra orða? Sé svo, þá væri ekki illa til fundið, að hann blandaði næsta „Vikuskammt" svo- litlu sjálfsháði. Og bezt væri, ef Háskólabíó end- ursýndi myndina. Það er alveg ótrú- legt, að aðeins 2300 manns skuli hafa lagt leið sína til að kynnast jafn mögnuðu verki og „Hvisl og-hróp", og þó var myndin sýnd i heila viku i tæplega þúsund manna biói. Maður fer að halda að sú bærilega aðsókn sem „Snertingin" — miklu lakara verk Bergmans en „Hvísl og hróp" hlaut i Hafnarbiói fyrir skömmu, hafi eingöngu verið að þakka nærveru apamannsins Elliott Goulds. Alla vega verður því seint trúað, að öll hin þúsundin, sem sátu heinrta núna þegar „Hvisl og hróp" var sýnd, séu haldin sömu fordómum og Flosi. Raunar er vitað um fjölda manns, sem missti af henni vegna fyrirvara- litillar stöðvunar sýninga. En Flosi gæti þá óskað eftir endursýningu á „Apapláne'tunni". — Á.Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.