Morgunblaðið - 09.02.1974, Qupperneq 22
22
MOR6U-NÐLAÐIÐ, LA UGA-RÐAGUR 9. FEBRÚAR 1974
Tómas Vigfússon húsa-
smíðameistari — Minning
.r-< f ni ‘tmn,;
F. 24.6. 1906
D. 1.2. 1974
Þegar við heyrum andlátsfregn
einhvers þess, sem við þekkjum,
skynjum við fyrir alvöru, hvað
hann hefur fyrir okkurgert.
Þetta var það fyrsta, sem í hug
mér kom, þegar ég heyrði dánar-
fregn Tómasar Vigfússonar.
Ósjálfrátt runnu upp fyrir sjón-
um mínum öll þau miklu og marg-
breytilegu störf, sem hann hefur
annazt fyrir félag sitt og samtök
iðnaðarmanna i heild.
Þar sem tilnefna þurfti menn í
stjórnir eða nefndir var Tómas
fyrsti maðurinn, sem til greina
kom, enda vitað fyrir, að gæfi
hann kost á sér í starfið myndi því
verða skilað af kostgæfni og alúð.
Tómas Vigfússon var allt frá
fyrstu tíð driffjöður í starfi iðnað-
armanna og sinnti þeim málefn-
um af sérstök um áhuga.
Hann var einn af frumkvöðlum
Meistarafélags húsasmíða hér í
bæ. Var hann kosinn varaformað-
ur í fyrstu stjórn félagsins og átti
sæti í henni i sjö ár. Á þeim tíma,
sem hann átti sæti i stjórn Meist-
arafélagsins, var hann aðalfrum-
kvöðull að stofnun Meistarasam-
bands byggingamanna.
Var hann tilnefndur formaður
undirbúningsnefndar að stofnun
sambandsins og á stofnfundi þess,
5. maí 1958, var hann kjörinn
fyrsti formaður þess. Því embætti
gegndi hann í tvö ár. Á þess-
um fyrstu árum sambandsins
var mótuð sú stefna, sem enn er
fylgt að meginhluta.
Vafalaust hefur mikið starf leg-
ið að baki þeirri mótun, sérstak-
lega þar sem um áður óþekkta
starfsemi í félagsmálum var að
ræða. Tómas varfulltrúi félagsins
á iðnþingum í fjölda ára og
gegndi þar ótal trúnaðarstörfum.
Fulltrúi félags síns í D'feyris-
sjóði húsasmiða var hann til síð-
ustu ára. Ekki mun ég telja hér
upp öll þau störf, sem hann ann-
aðist fyrir félagssamtök sín, enda
af svo mörgu að taka, að slíkt yrði
of langt mál.
Við félagar hans í Meistarafé-
l’agi húsasmiða og heildarsamtök-
um iðnmeistara höfum misst með
honum mikinn og mikilhæfan for-
ystumann, en þó er frekar ástæða
að þakka en kvarta yfir missi okk-
ar. Við viljum þakka honum af
alhug allt hans fjölbreytta starf
og samfylgdina í gegnum samtök
okkar; megi hún verða okkur
hvatning í framtíðinni.
í nafni félagasamtaka iðnmeist-
ara vil ég færa fjölskyldu hans
okkar dypstu samúð.
Gunnar S. Björnsson.
Kveðja frá Iðnskólanum í
Reykjavík.
Tómas Vigfússon er horfinn á
braut, — á vit feðra sinna.
t
Faðir minn og tengdafaðir
MARINÓ JÓNSSON,
fyrrum forstjóri lézt að heimili sínu miðvikudaginn 6. febrúar sl.
Örn Marinósson.
Ragnheiður Þorgeirsdóttir
Hann lézt hinn 1. febrúar sl. 67
ára að aldri eftir athafnamikið
æviskeið. Fæddur 1906 í
Reykjavik, sonur hjónanna Vig-
fúsar Sigurðssonar trésmiðs, vita-
varðar og Grænlandsfara, ogkonu
hans.Guðbjargar Árnadóttur.
Hins mikla starfs Tómasar sem
húsasmíðameistara í Reykjavfk,
framkvæmdastjóra og síðar
stjórnarformanns Byggingafélags
verkamanna, starfa hans að
félagsmálum iðnaðarmanna og i
stjórn hinna landskunnu fyrir-
tækja Sameinaðra verktaka og
síðar Islenzkra aðalverktaka, þar
sem hann var formaður, verður
áreiðanlega minnzt af öðrum, sem
betur þekkja þar til en ég, að
ótöldum þeim margvíslegu af-
skiptum af opinberum málum,
sem hann hafði, ekki sízt á sviði
byggingamála. Hins vegar er
varla mörgum kunnugt um störf
hans í þágu Iðnskólans í Reykja-
vík og iðnfræðslunnar i landinu
um ára bil, sem ljúft er að
minnast og þakka.
Tuttugu og tveggja ára lauk
Tómas sveinsprófi i húsa-
smíðaiðn, eftir að hafa lokið iðn-
skólagöngu með góðum árangri.
Hann var menntunarfús og sótti
meistaranámskeið við skólann,
eitt hið fyrsta, sem haldið var,
hélt síðan til framhaldsnáms í
Kaupmannahöfn við Det Tekn-
iske Selskabs Skoler og
Teknologisk Institut. Að því
loknu gerðist hann umsvifamikill
húsasmiðameistari í Reykjavík.
Sem mikill áhugamaður og
framfarasinni um byggingamál
fór hann kynnisferðir víða um
lönd og beitti sér fyrir nýjungum
f gerð íbúða og fjármögnun
þeirra.
Ég minnist yfir 30 ára kynna
við Tómas, fyrst sem framsækins
byggingameistara og síðar 16 ára
samstarfs í skólanefnd Iðnskólans
i Reykjavík, með hlýhug og virð-
ingu. Áhugi hans fyrir framför-
um í iðnfræðslu var mikill og
áhrif hans á að taka upp kerfis-
bundið verknám í skólum, aukna
fjölbreytni og bætta verkmenn-
ingu í landinu voru mjög sterk,
þegar fyrstu sporin voru stigin í
þá átt hérlendis. Hann sá hvorki
eftir fyrirhöfn né fjármunum til
þeirra hluta. Hann sat ótalda um-
ræðufundi um fyrstu fram-
kvæmdir um verknám fyrir tré-
iðngreinarnar f skólanum, stóð
fyrir gjöfum á tækjum og fé til
þessara hluta og studdi fram-
þróun þessa með ráðum og dáð.
t
Eiginkona mín,
UNNUR THORARENSEN,
Fáfnisnesi 2,
andaðist í Landsspítalanum þann 7. febrúar.
Jónas Thorarenssen.
t
Útför.
SIGURÐAR ÞORSTEINSSONAR
frá Kúfhól,
fer fram frá Krosskirkju, Austur-Landeyjum, miðvikudaginn 1 3. febrúai
kl. 2 e.h
Guðrfður Ólafsdóttir,
og börn.
t
Maðurinn minn og faðir okkar,
ÞÓRARINN SÖRING,
lézt 7. febrúar.
Valgerður Einarsdóttir Söring og synir
t
Litla dóttir okkar,
AÐALHEIÐUR MARGRÉT JÚLÍUSDÓTTIR,
er látin.
Elín Egilsdóttir,
Gunnar Berg Sigurjónsson.
t
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir,
STEINUNN ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Skáleyjum,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. þ.m. kl. 1 3.30.
Þórhildur og Baldur Snæland,
t Eiginkona mín og móðir okkar, GUÐMUNDA EIRÍKSDÓTTIR, Hverfisgötu 1 01, lézt á Borgarsjúkrahúsinu föstudaginn 8. febrúar. Ingimundur Guðmundsson Rósa E. Ingimundardóttir, Helgi G. Ingimundarson. Björn Jónsson.
t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför MÁLFRÍOAR JÓNSDÓTTUR Þökkum starfsfólki Grundar góða umönnun. Vandamenn.
t Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
ÞÓRUNN RAFNAR,
lézt 2. febrúar. GESTUR PÁLSSON,
Útförin hefir farið fram \ verður jarðsettur mánudaginn 1 1. febrúar frá Hallgrfmskirkju kl 1 30
Við þökkum auðsýnda samúð og vinarþel. Blóm eru vinsamlega afbeðin en þeir, sem vilja minnast hins látna er
Ingimar Einarsson, bent á Hallgrímskirkju.
Jónas Ingimarsson, Einar Ingimarsson,
María Ingimarsdóttir, Gisli Árni Eggertsson, Benónýja Bjarnadóttir,
Ingibjörg Ingimarsdóttir, Stefán Skarphéðinsson, Guðrún Gestsdóttir, Michael Piccininni,
og dætrabörn, Valgeir Bjarni Gestsson, Kistín Erla Jónsdóttir
Bjarm Rafnar, Jónas G. Rafnar.
Fyrir þetta eitt erfull ástæða tjl
að minnast Tómasar, og eru þá öll
hans miklu störf í félagsmálum
iðnaðarmanna og í skólanefnd
ótalin.
Gott er að minnast góðra
manna, sem gengnir eru. Þökk
fyrir líf hans og störf, blessuð sé
minning Tómasar Vigfússonar.
Ekkju Tómasar, ættingjum og
vinum vilja samstarfsmenn hans í
skóla- og fræðslumálum iðnaðar-
manna votta dypstu samúð.
Þór Sandholt.
Tómas Vigfússon húsasmíða-
meistari andaðist hinn 1. febrúar
sl., og verður hann í dag lagður til
hinztu jarðneskrar hvílu.
Með Tómasi Vigfússyni er
genginn um aldur fram stórbrot-
inn og stórhuga athafna- og
drengskaparmaður.
Fyrst kynntist ég Tömasi, þegar
ég ungur að árum byrjaði að
vinna almenn byggingarstörf á
hans vegum hjá Byggingafélagi
verkamanna í Reykjavík, sem þá
var tiltölulega nýstofnað og hann
veitti forstöðu. Sfðan hafa leiðir
okkar legið saman allt til hins
síðasta.
Byggingafélag verkamanna var
stofnað hinn 5. júlí 1939, og var
Tómas ráðinn fyrsti fram-
kvæmdastjóri þess og bygginga-
meistari. Stjórnarformaður
félagsins var hann fyrst skipaður
árið 1949, og gegndi hann for-
mennsku í félaginu samfleytt til
ársins 1972, að hann baðst lausnar
frá þeim starfa sökum heilsu-
brests. Skipun Tómasar til.for-
mennsku í félaginu allan þennan
tima, eða í samtals 23 ár, vitnar
bezt um hið óskoraða traust, sem
hann naut hjá valdhöfum þeim,
er fóru með æðstu stjórn mála um
byggingafélög verkamanna á
hverjum tima. Áaðalfundi félags-
ins árið 1972 var Tómas gerður að
heiðursfélaga þess.
Mannkostir og vinsældir Tóm-
asar lýsa sér bezt i þvi, hve vel
honum hélzt á starfsfólki. Þegar
hann hætti byggingarstörfum,
voru á hans vegum starfsmenn,
sem höfðu um áraraðir og all-
margir um áratuga skeið verið
óslitið í hans þjónustu. Er mér
kunnugt um, að hann var þeim
innilega þakklátur fyrir trygg-
lyndi þeirra og vináttu.
Fljótlega eftir að leiðir okkar
lágu saman tók ég eftir því, að öll
störf Tómasar, hvort sem það
voru byggingarstörf, sem hann
tók að sér, eða önnur, störf, sem
honum voru falin, einkenndust af
atorku, nákvæmni og reglusemi á
öllum sviðum. Þo'tti öllum málum
vel borgið, sem f hans hendur
komust, enda var hann mála-
fylgjumaður svo af bar. Handar-
verkin hans og hin mörgu spor,
sem hann lætur eftir sig í
íslenzkri byggingarsögu og reyk-
vísku athafnalífi, munu ekki svo
skjótt fyrnast hjá þeim, sem
þeirra nutu, þó svo aðtímans tönn
virðist tlðum svo áleitin að afmá
störf og verk látinna.
Ekki get ég skilizt svo við
þessar fátæklegu línur, að ég
minnist ekki hinnar mikilhæfu
eiginkonu hans, frú Katrínar, sem
ætíð stóð bjargföst við hlið hans
bæði í blíðu og stríðu unz yfir
t
Þökkum innilega auðsýnda sam-
úð við andlát og útför,
JÓNS ÁSGEIRSSONAR
Sunnubraut 44, Kópavogi
Dóra Einarsdóttir og börn
Hildur Fímanns og Ásgeir
Gíslason
Brynhildur Jónsdóttir og systk
ini hins látna
t
Þökkum innilega auðsýnda sam-
úð og vinarhug við andlát og
útför
GESTS JÓHANNSSONAR,
járnsmiðs,
Sérstakar þakkir færum við
starfsmönnum Álversins í
Straumsvík.
Pálína Ákadóttir, og börn