Morgunblaðið - 12.05.1974, Qupperneq 1
73. tbl. 61. árg.
SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
FRAMBOÐSLISTI SJALF-
STÆÐISMANNA í REYKJAVÍK
Átta efstu menn á framboðslista Sjálfstæðisflokksins við borgar-
stjórnarkosningarnar í Reykjavík 26. maí n.k. Talið frá vinstri: Birgir
ísl. Gunnarsson borgarstjóri, Albert Guðmundsson, stórkaupmaður,
Ólafur B. Thors, framkvæmdastjóri, Markús Örn Antonsson ritstjóri
Elín Pálmadóttir, blaðamaður, Magnús L. Sveinsson, skrifstofustjóri
Ragnar Júlíusson, skólastjóri og Páll Gíslason læknir.
Geir Hallgrímsson:
Varið land — Efna-
hagsmál — 200 mílur
— VERÐA BARATTUMAL KOSNINGANNA
1 ræðu þeirri, sem Geir Hallgrimsson, formartur Sjálfstæðisflokks-
ins, flutti á fundi sjálfstæðisfólaganna f Reykjavík s.l. fimmtudags-
kvöld lagði hann áherzlu á eftirfarandi atriði:
0 Sjálfstæðismenn verða að leggja á það alla áherzlu næstu tvær
vikur að tryggja samhenta og trausta meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins íReykjavík á næsta kjörtímabili.
• Helztu baráttumálin í þingkosningunum verða varnarmál, efna-
hagsmál og útfærsla fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur fyrir
árslok.
0 Sjálfstæðisflokkurinn var reiðubúinn til að ræða möguleika á
myndun fjögurra flokka, þriggja flokka eða tveggja flokka stjórn,
þegar er núverandi stjórn hefði sagt af sér.
0 Sjálfsta>ðisflokkurinn var reiðubúinn að mynda minnihlutastjórn
með stuðningi eða hlutleysi annarra flokka. Hér fer á eftir frásögn
af ræðu Geirs Hallgrímssonar.
I ræðu þeirri, er Geir Hall-
grímsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, flutti á hinum fjöl-
menna fundi sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík sJ. fimmtudags-
kvöld, sagði hann. að ríkisstjórn
Ölafs Jóhannessonar hefði að
sjálfsögðu átt að segja af sér, eftir
að ljóst var orðið, að hún naut
ekki lengur meirihlutastuðnings
á Alþingi. Forsætisráðherra hefði
talið sig eiga tvo kosti, lausnar-
beiði eða þingrof og nýjar kosn-
ingar, en í raun og veru átti hann
ekki færi á þingrofsleiöinni, sagði
Geir Hallgrímsson. 1 fyrsta lagi
var samningur milli stjórnar-
fiokkanna þriggja um. aö for-
sætisráðherra nfi ekki þing,
nema með samþykki flokkanna
allra. Ef litið er svo á, að slfkur
samningur falli niður gagnvart
þeim flokki, sem fer úr ríkis-
stjórn, jafngildir það því, að slfk-
ur flokkur verður gegn vilja sín-
um að halda áfram i ríkisstjórn.
ef hann vill komast hjá þingrofi,
áður en kjörtfmabili lykur. Hér
væri urn óeðlilega niðurstöðu að
ræða og má benda á í þessu sam
bandi, að þegar Framsóknar-
flokkurinn rauf ríkisstjórn Sjálf-
stæðisf lokksins og Framsóknar
Framhald á bls. 3.