Morgunblaðið - 12.05.1974, Page 40
SUNNUDAGUR 12 MAÍ 1974
Fallegri litir
Litfilmur
Olafur hindraði vísvit-
andi stjórnarmyndun
ÓLAFL'R Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, upplýsti í viðtalsþætti í
sjónvarpinu í fvrrakvöld að hann
hafi verið staðráðinn f þvf að
koma í veg fyrir myndun starf-
hæfrar meirihlutastjórnar á Al-
þingi, hvaðsem þaðkostaði nema
hann sjálfur réði stjórnarmynd-
un, og þess vegna hefði hann rof-
ið þing. beinlfnis ti I þess að koma
í veg fyrir, að Geir Hallgrfmsson,
formaður Sjálfstæðisf lokksins.
fengi tækifæri til að gera tilraun
til slíkrar stjórnarmyndunar.
Med þessum orðum. sem féllu í
orðaskiptum milli forsætisráð-
herra og fyrirspvrjenda, hefur
Olafur Jóhannesson staðfest, að
hann hafi sagt forseta Lslands
ósatt, er hann full.vrti í þingrofs-
boðskap, að engar horfur væru á
mvndun meirihlutastjórnar.
Orðaskiptin í sjónvarpsþættin-
um fóruframmeð þessum hætti:
Vilmundur Gylfason: En Ólaf-
ur, í Morgunblaðinu í morgun
komu fram á þíg mjög alvarlegar
ásakanir. Morgunblaðið fullyrðir
. .. (Ólafur: Ég hrekk nú ekki
við) . . . að þú hafir sagt forseta
íslands ósatt og að forsendurnar
fyrir þingrofinu hafi veriðósann-
ar vegna þess, að það hafi alls
ekki á það reynt, t.d. hafi Geir
Hallgrímsson, formaður stærsta
þingflokksins alls ekki fengið
tækifæri til að reyna, hvort hann
gæti myndað meirihlutastjórn...
segir í bréfinu, að slfkt hafi ekki
verið hægt.
Ölafur Jóhannesson: Það stóð
ekki til, að hann fengi neitt tæki-
færi til þess, ég átti tvo kosti,
annaðhvort að reyna að koma á
starfhæfri meirihlutastjórn. ..
Vilmundur: En af hverju þú,
Olafur.af hverju ekki. . .
Ólafur: Af því að ég var for-
sætisráðherra. Ég átti val og
heimtingu á því, ef ég vildi, að
rjúfa þingið. ..
Vilmundur: Þrátt fyrir það, að
Geir Hallgrímsson hefðí getað. . .
Framhald á bls. 39
Yfir 50% mæðra fæða
á aldrinum 20—30 ára
LANGSTÆRSTLR hluti mæðra á
Islandi, eða yfir 50%, á börn sfn á
aldrinum 20—30 ára. Á síðasta
áratug var þessi tala yfir 55% og
árið 1972 54,5%. Þessar upplýs-
Mitterand:
Stjórn Ólafs
gott dæmi
Friðrik I’áll Jónsson frétta-
ritari útvarpsins í París skýrði
frá því í útvarpinu í gær, að
Francois Mitterand fram-
bjóðandi sósfalista í frönsku
forsetakosningunum og mjög
kunnur stjórnmálasér-
fræðingur, prófessor Mauriee
Ouverger, hefðu nokkrum
sinnum í kosningabaráttunni
tekið rfkisstjórn Ólafs
Jóhannessonar sem dæmi um
það, að kommúnistar gætu
unnið sem áb.vrgur aðili í
vinstri stjórn. N'otaði
Mitterand þetta til stuðnings
máli sínu í umræðum um
hvort hægt væri að vinna með
kommúnistum í stjórn. Ekkert
hefur verið minnzt á ísland
eftir fall rfkisstjórnar Ólafs
Jóhannessonar.
ingarkoma fram feinum af mörg-
um þáttum rannsóknar, sem þeir
Gunnlaugur Snaslal læknir,
Gunnar Biering barnalæknir og
Helgi Sigvaldason verkfræðingur
eru að gera á vegum heilbrigðis-
yfirvalda.
Þar kemur einnig fram, að hlut-
fallslegur fjöldi mjög ungra
mæðra er mjög svipaður á hverj-
um áratug sfðustu ÍM) ára og fjöldi
mæðra undir 20 ára aldri hefur
farið fækkandi sfðustu ár. 1972
var þessi aidur t.d. 16,5% af
heildartölunni en ekki 50% eins
og fram hefur verið lialdið í um-
ræðum á opinberum vettvangi að
undanförnu. Þá kemur einnig
fram, að fyrr á árum áttu flestar
konur börn sín á aldrinum 30—40
ára og um 1900 áttu yfir 20%
mæðra börn sín á aldrinum yfir
40 ára.
Þá koma fram í þessari skýrslu
mjög forvitnilegar upplýsingar
um fjöida ógiftra oggiftra
mæðra.
Þriðjungur mæðra á tslandi á
börn án þess að vera giftar, en
innan fárra ára eru þessar mæður
komnar í hjónaband með barns-
föður sfnum og virðist stofnun
hjónabands fremur miðast við
heimilisstofnun en barnsfæð-
ingu. Er þróunin í þessu efni allt
önnur hér á landi, en f nágranna-
löndunum eins og síðar kemur
framí þessari frétt.
Árið 1971 skrifuðu Sameinuðu
þjóðirnar Sigurði Sigurðssyni
landlækni og fóru fram á það, að
ísland yrði aðili í rannsókn á fæð-
ingum barna, aldri mæðra, fæð-
ingafjölda og mörgu fleiru varð-
andi fæðingaskrá. 1972 var þessi
athugun gerð í alls 5 löndum en
auk islands var hún gerð á Nancy
-svæðinu í Frakklandi, á Kýpur, f
Jerúsalem og hluta Bankok f
Thailandi.
Var i þessu sambandi búið tii
nýtt form fyrir fæðingartilkynn-
ingar og tók það gildi hér á landí
1. jan. 1972. Árið 1972 voru hér
4722 fæðingar, alls 4761 barn, en
Framhald á bls. 39
Hitaveita Reykjavfkur hefur látið bora 3—4 rannsóknarholur og tvær
stórar vinnuholur að Nesjavöllum.
Verður stór gufuaflstöð
reist að Nesjavöllum?
Sjá einnig greinar á bls 10.
NÆSTA stórframkvæmd Hita-
veitu Reykjavíkur verður virkjun
hitasvæðanna að Nesjavöllum f
Grafningi við Þingvallavatn, en
þar á Hitaveitan mikið landsvæði.
í áætlunum um framkvæmd er
gert ráð fyrir, að reist verði lítil
gufuaflstöð, sem sjái mannvirkj-
Núverandi eigandi Gullfoss hef-
ur áhuga á tveimur Fossum EI
TVÖ skip Einskipafélags islands
— Bakkafoss og Tungufoss —
Laugarásbíó í dag:
Fimmti hverfafund-
ur borgarstjóra
FIMMTI hverfafundur Birgis Is-
leifs Gunnarssonar borgarstjóra
verður haldinn í Laugarásbfó í
dag og hefst hann kl. 15.00. Fund-
urinn er fyrir fbúa Laugarnes-,
Langholts-, Voga- og Heimahverf-
is.
Á fundinum flytur Birgir isleif-
ur Gunnarsson borgarstjóri ræðu
um borgarmál almennt og um sér-
mál hverfisins, að lokinni ræðu
sinni mun borgarstjóri svara fyr-
irspurnum fundargesta.
Fundarhverfið er öll byggðin
norðan við hluta Laugavegar og
Suðurlandsbrautar að ElliðaámT
Fundarstjóri verður Gunnar J.
Fríðriksson, framkv.stj. og fund-
arritarar, Gunnar Hauksson,
verzlunarstjóri og Hulda Valtýs-
dóttir, húsmóðir.
hafa um skeið verið á sölulista og
nú er staddur hér á landi grískur
skipajöfur — örri að nafni — til
að skoða þessi skip með hugsan-
leg kaup í huga. Orri þessi er
núverandi eigandi Gullfoss, sem
heitir nú Mecca og er fsiglingum
á Rauðahafinu.
i samtali við Morgunblaðið í
gær sagði gríski skipaeigandinn,
sem hefur aðsetur f Ydda í Saudi-
Arabíu, að hann væri kominn
hingað ásamt sérfræðingi sinum
til að skoða þessi tvö skip. Eftir
skoðun á skipunum hefur hann 48
klst. frest til að ákveða kaup á
skipunum og kvaðst hann mundu
halda stjórnarfund í fyrirtæki
sínu á þriðjudag, þar sem gengið
yrði endanlega frá því hvort af
kaupum yrði. Hann kvaðst sjálfur
hins vegar hafa aðsetur á Ydda í
Saudi-Arabíu, og gera þaðan út 16
skip af ýmsum stærðum.
Viggó Maack, verkfræðingur
Eimskipafélagsins, tjáði Mbl. í
gær, að bæði þessi skip — Bakka-
foss og Tungufoss — væru enn í
fullu fjöri, þó að þau hefðu verið
á sölulista um skeið. Sagði Viggó,
að ástæðan fyrir þvi, að Eimskip
vildi nú losa sig við þessi skip,
væri hin mikla endurnýjun á
•skipakosti félagsins, semnústæði
yfir. Eimskipafélagið festi fyrir
skömmu kaup á 5 nýjum skipum,
þar af eru 3 þegar komin til lands-
ins en hin tvö eru væntanleg inn-
an skamms. Eimskipafélagið á nú
19 skip en rekur að staðaldri 21
skip og er að auki með 6—9skip í
ferðum á sínum vegum.
um á staðnum fyrir rafmagni.
Einnig eru uppi hugmvndir um
að reisa scinna stærri gufuaflstöð
á svæðinu, og yrði umfram-
raforkan seld á almennan
markað. Hugmyndir um þetta eru
á frumstigi, að sögn Jóhannesar
Zoega hitaveitustjóra, en Mbl.
ræddi nýlega við hann um hita-
veitumál.
Hitaveita Reykjavíkur keypti
Nesjavelli 1964, og var kaup-
verðið 2,5 milljónir. Land Nesja-
valla er 27 ferkilómetrar að
stærð, og til þess landsvæðis telst
hluti af háhitasvæði Hengilsins.
Hitaveitan hefur látið bora 3—4
rannsóknarholur og tvær stórar
vinnuholur á svæðinu. Hefur
árangurinn orðið góður. Fundizt
hafa góðar hitaæðar og hár hiti,
allt að 290 gráður, sem er með því
mesta, sem fundizt hefur í borhol-
um hérlendis.
i áætlunum er gert ráð fyrir
því, að fyrsta virkjunaráfanga að
Nesjavöllum ljúki upp úr 1980.
Til þess áfanga telstlítil gufuafl-
stöð, nægilega stór til að sjá
mannvirkjum á staðnum fyrir
rafmagni. Mikið þarf til að dæla
vatninu upp úr jörðinni og dæla
þvf síðan til Reykjavikur, eftir 30
kílómetra leiðslu yfir þvera Mos-
fellsheiði, en það er liklegasta
leiðin fyrir aðallæðina. Talið er,
að síðar verði hagkvæmt að reisa
þarna enn stærri gufuaflstöð, því
gufuorkan á svæðinu virðist við
fyrstu athuganir vera geysilega
mikil.