Morgunblaðið - 30.06.1974, Síða 1

Morgunblaðið - 30.06.1974, Síða 1
40 SIÐUR OG LESBOK 111. tbl. 61. árg. SUNNUDAGUR 30. JUNl 1974 Prentsmiðja Morgunhlaðsins. Geir Hallgrímsson formaöur Sjálfstœðisflokksins: Á kjördegi KJÖRDAGUR er hátíðisdagur og má aldrei verða hversdagslegur, hvort sem kosið er á helgidegi eða breytt til í framtíðinni og kosið á virkum degi. Þótt við göngum sjálfsagt að kjörborðinu í baráttuhug, skulum við einnig vera í hátfðar- skapi, minnug þess, að kosningarétturinn er helgur réttur frjálsborinna manna. Við gerum okkur ljóst, að aðeins lítill minnihluti mannkyns nýtur þeirra mann- réttinda og auðvelt er að glata þeim. Sú vitneskja er okkur hvöt í senn til að vernda kosningaréttinn og neyta hans. Stundum er sagt, að valdið sé hjá kjósand- anum á kjördegi, en skammt næði lýðræðið, ef vald almennings væri bundið við kjördag einan. Sem betur fer er því heldur ekki svo farið. Úrslit kosninga ráða stefnunni, sem tekin er, og mönnum, er koma henni í framkvæmd. En vitund stjórnenda um að eiga að standa reikningsskil gerða sinna í næstu kosningum og virk þátttaka kjósenda í þjóðmálum milli kosninga getur og á að veita stjórnendum mikilvægt aðhald og leiðbeiningu milli kjör- daga. Stjórnendur verða þó engu að síður að veita forystu, vera sannfærðir um stefnu sína og reiðubúnir að standa og falla með henni. Þessi kosningabarátta hefur verið snögg og hörð, en kemur í beinu framhaldi annarr- ar fyrir byggðakosningar, svo að mörgum mun finnast mál að linni. Við skulum þó minnast þess, að mörg og mikilvæg vandamál þarf að leysa og taka örlagaríkar ákvarðanir eftir kosningar. Þótt hart hafi verið barizt og menn áskilji sér rétt til að vera ósammála, einnig að kjördegi loknum, skal þó ávallt vera efst í huga okkar íslendinga, að okkur eru öllum sköpuð sömu örlög. Meira og mikilvægara sameinar okkur en skiptir skoðunum okkar. Megi úrslit alþingiskosninganna í dag verða þjóðinni til heilla. Kjósum snemma: V í. '' t k mm J- Kjörstaðir í Reykja- vík opna klukkan 9.00 KJÖRFUNDUR vegna al- þingiskosninganna f Reykjavfk hefst kl. 9 ár- degis í dag og verða þá eilefu kjörstaðir vfðs veg- ar um borgina opnaðir. Kjörfundi lýkur kl. 23.00 svo sem venja er. A kjör- skrá f Reykjavfk er nú 54.181 kjósandi, en voru við alþingiskosningarnar 1971 50.170. Kjörstaðir f Reykjavfk eru sem hér segir: Álfta- mýrarskóli, Árbæjar- skóli, Áusturbæjarskóli, Breiðagerðisskóli, Breið- holtsskóli, Fellaskóii. Langholtsskóli, Laugar- nesskóli, Melaskóli, Mið- bæjarskóli og Sjómanna- skóli. Auk þessara ellefu kjörstaða verða kjör- deildir á Elliheimilinu Grund og f Hrafnistu. Skiptingu f kjörhverfi og kjördeildir verður hagað með sama hætti og var f borgarstjórnarkosning- unum 26. maf sl. Yfirkjörstjórn hcfur f dag aðsetur f Áustur- bæjarskólanum og þar hefst talning atkvæða strax og kjörfundi lýkur. Minnispunktar fyrir kjós- endur D-lista i Reykjavík BIFREIÐAAFGREIÐSLUR D-LISTANS Vesturbæjar-, Miðbæjar- og Melahverfi hjá Pétri Snæland h/f Vesturgötu 17, sími 24060 (þrjár línur). Austurbæjar-, Hlfða- og Háaleitishverfi að Reykjanesbraut 12, sími 20720 (fjórar línur). Laugarnes-, Langholts-, Voga-, Heima-, Smá- fbúða-, Bústaða-, Fossvogs- og Árbæjarhverfi í Skeifunni 11, sími 81530 (þrjár línur). Breiðholtshverfin að Arnarbakka 2, sfmar 84746 og 84750. I þessum sfmum er hægt að óska eftír akstri á kjörstað og einnig geta þeir, sem vilja aka fyrir D-Iistann á kjördag, haft samband við þessar skrifstofur. ALMENNAR UPPLVSINGAR Allar almennar upplýsingar vegna kosninganna í dag eru gefnar á vegum D-listans f sfma 17100 (fimm línur). UTANKJÖRSTAÐAATKVÆÐA- GREIÐSLA OG KJÖRSKRA Upplýsingar um utankjörstaðaatkvæðagreiðslu og kjörskrá eru gefnar í sfmum 22489 og 26627 að Laufásvegi 46.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.