Morgunblaðið - 30.06.1974, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.06.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JUNÍ 1974 31 fclK í fréttum Útvarp Revkjavík SUNNUDAGUR 30. júní 8.00 Morgunandakt Séra Péfur Sigurgeirsson vfgslubiskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Norska útvarpshljðmsveitin leikur norsk lög; öivind Bergh stj. 9.00 Fréttir. (Jtdráttur úr forustugrein- um dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veður- fregnir). 11.00 Messa f Dómkirkjunni (Hljóðrituð við setningu prestasefnu s.l. þriðjudag). Séra Eirfkur J. Eirfks- son prófastur prédikar. Séra Andrés ólafsson og séra Bragi Friðriksson þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur. Organleikari: Ragnar Björnsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. Til- kynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.25 Mér datt það f hug Einar Kristjánsson frá Hermundar- felli rabbar við hlustendur. 13.45 tslenzk einsöngslög Sigurður Björnsson syngur lög eftir Skúla Halldórsson við undirleik höfundar. 14.00 Dagskrárstjóri f eina klukkustund Stefán Ágúst Kristjánsson raeður dag- skránni. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá útvarpinu f Frankfurt Sinfónfuhljómsveit útvarpsins og Edith Mathis söngkona flytja Sinfónfu nr. 4 f G-dúr eftir Gustav Mahler; Bern- hard Klee stj. 16.00 Tfu á toppnum örn Petersen sér um dægurlagaþátt. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir. 17.00 Barnatfmi: Ágústa Björnsdóttir stjórnar a. Tvær smásögur eftir Nikolaj Nosoff: „Sfminn“ og „Hafragrautur“. Sigurður Á skjánum SUNNUDAGUR 30. júnf 1974 23.00 Kosningasjónvarp Bein útsending úr sjónvarpssal. Birtar verða og skýrðar atkvæðatölur jafnótt og þær berast og gerðar kosn- Skúlason leikari les þýðingu Ragnars Þorsteinssonar. b. Sögur af Munda; — ellefti þáttur Bryndfs Vfglundsdóttir lýsir geysi- miklum reka og tilþrifum fólks við að koma honum á land. Einnig segir hún frá draumi og veruleika, þegar Mundi fór f fjallgöngu. 18.00 Stundarkom með franska selló- leikaranum Paul Tortelier. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.35 Eftir fréttir Jökull Jakobsson við hljóðnemann f þrjátfu mfnútur. 19.55 Sinfónfuhljómsveit tslands leikur f útvarpssal Stjómandi: Páll P. Pálsson. a. Forleikur að „Sfgenabaróninum“ eftir Johann Strauss. b. Ungverskur mars eftir Berlioz. c. „Raddir vorsins" eftir Johann Strauss. d. Rússneskur polki eftir Graetsch. e. „BIýflugan“ eftir Rimsky-Korsakoff. f. „Vfnarblóð“, vals eftir Johann Strauss. g. „Bahn frei“ eftir Edward Strauss. 20.30 Frá þjóðhátfð Vestur-Skaft- fellinga, dagskrá hljóðrituð að Kleif- um við Kirkjubæjarklaustur 17. þ.m. Hátfðina setur séra Sigurjón Einarsson á Kirkjubæjarklaustri, herra Sigur- björn Einarsson biskup talar, Samkór Skaftfellinga syngur ættjarðarlög undir stjórn Jóns tsleifssonar við undirleik Sigrfðar Einarsdóttur, Björn Magnússon prófessor flytur hátfðar- ræðu og Þorleifur Pálsson settur sýslu- maður Skaftfellinga slftur samkom- unni. 21.30 Frá þjóðhátfðarmóti f fþróttum Jón Ásgeirsson lýsir. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kosningafréttir. tslenzk alþýðulög. Danslög (01.00 Veðurfregnir, einnig 04.30 ef stöðin verður opin). Dagskrár- lok á óákvcðnum tfma. ingaspár, eftir þvf sem unnt reynist. Þess á milli verður flutt skemmtiefni og kosningafróðleikur ýmiss konar. Dagskrárlok óákveðin, þó ekki fyrr en kl. 04.00. Kosningasjónvarp KI. 23 verður bein útsending úr sjónvarpssal, þar sem birtar verða kosningatölur jafnóðum og þær berast, auk þess sem þær verða skýrðar og tölvuspár gerðar um lokaúrslit eftir þvf sem tilefni gefst til. Jafnframt verður fluttur ýmiss konar fróðleikur um kosningar, en létt efni verður flutt á milli. Okkur er sfðasta kosninga- nótt enn f fersku minni. Þá bárust fyrstu kosningatölur úr Reykjavfk mun seinna en ráð var fyrir gert f upphafi, og þeg- ar þær loks birtust voru þær á þann veg, að fyrstu viðbrögð margra voru að rengja þær. Spenningurinn var mikill — og óhætt mun að fullyrða, að ekki verður hann minni f nótt. Erindi um dulræn efni AHUGI Islendinga á dulrænum efnum hefur jafnan verið mik- i 11. Margir telja þennan áhuga bera vott hjátrúargrillum og vera f ætt við kukl, sem jafnvel geti verið af hinu illa. En það hefur jafnan verið heimskra manna háttur að úti- loka það, sem þeir skilja ekki, og hafna þvf, sem þeir geta ekki þreifað á með berum höndum. SI. mánudag flutti Birgir Bjarnason erindi um dulræn efni og annað kvöld kl. 20.30 flytur hann annað erindi, sem nefnist „Vald hugans yfir efn- inu“, og skal athygli þeirra, sem vilja kynna sér dulræn efni með opnum huga, vakin á erindaflutningi Birgis. Frá þjóðhátíð Vestur-Skaftfellinga KL. 20.30 I KVÖLD er f útvarp- inu dagskrá, sem hljóðrituð var að Kleifum við Kirkjubæjar- klaustur, er Vestur-Skaftfell- ingar héldu þar þjóðhátfð sfna þann 17. júnf. Auk fjölbreyttra dagskrár- atriða var vfgsla minningarkap- ellu séra Jóns Steingrfmssonar tengd hátfðinni. Þegar ákveðið var, að haldnar yrðu hátíðir vegna 1100 ára af- mælisins f hinum ýmsu byggð- um landsins, fannst mörgum sem það yrði e.t.v. einum of mikið af þvf góða — hátfðirnar yrðu alltof margar, skyggðu hver á aðra o.s.frv. Hins vegar lftur nú út fyrir það, að þessi skipan gefist mjög vel, þar sem hvert hérað fær þannig tækifæri til að draga fram það, sem markverðast er og mest einkennandi fyrir menningu þess og búsetuna þar. Vestur-Skaftfellingar undir- bjuggu hátfð sfna af hinum mesta myndarskap, svo sem þeirra var von og vfsa — fólk ættað úr héraðinu streymdi þangað vfðsvegar að af landinu og margs konar menningar- starfsemi blómstraði f sam- bandi við hátfðina. Sagt hefur verið, að hátfð sé til heilla bezt, og áreiðanlega sannast það f sumar f byggðum landsins. ír TILÞRIF I TIVOLI Það verður sjálfsagt margur landinn sem bregður sér til gömlu kóngsins Kaupinhafnar i sumar. Og þá er ekki að sökum að spyrja, að hann fer f Tívolí til að skemmta sér. Þessar prýðilega pottþéttu piur verða þar að öllum líkindum á staðnum til að gleðja hjarta landans, — þ.e. ef bjórinn er þá ekki búinn að því þá þegar. Þær koma fram í nýrri revfu sem sett er upp í Tívolí með Axel Ströbye i aðalhlutverki. Píurnar heita f.v. Kirsten Peuliche, Annie Birgit Garde og Anne Birch. Allir þeir fjölmörgu íslendingar sem farið hafa að sjá svonefndar „Rúmstokks-myndir“ kannast við þau Axel Ströbye og Annie Birgit Garde, en þau hafa leikið í þeim myndum flestum. Vill heita Sir A. Hitler JIMMIE nokkur Artis i Boston taldi, að alltof margir hétu Jimmie. Þess vegna sótti hann um leyfi til þess að breyta nafni sinu í sir Adolph Hitler. Artis er stúdent við háskól- ann i Boston. Hann sagði fyrir rétti, að hann ætti bráðlega að hefja herþjónustu og væri hræddur um, að enginn tæki eftir sér ef hann héti bara Jimmie. „En ef ég heiti sir Adolph Hitler taka áreiðanlega allir eftir mér,“ sagði hann. Þeir, sem hafa eitthvað á móti því, að Jimmie taki sér nafn nasistaforingjans, hafa frest til 10. júlí til þess að mót- mæla því fyrir dómstólunum. Til dæmis er hægt að gera þá athugasemd, að Hitler stafsetti fyrra nafn sitt Adolf. Dómari myrtur Forseti hæstaréttar dverg- ríkisins Liechtenstein var ný- lega myrtur í réttarsal af sak- borningi, sem dæmdur var sek- ur. Liechtenstein er í Alpafjöli- unum milli Sviss og Austur- rfkis og hefur verið talinn einn friðsælasti staður heims. Þegar forseti hæstaréttar hafði fellt dóm sinn dró sak- borningurinn upp skammbyssu úr skjalatösku sinni og skaut sex skotum áður en lögreglunni tókst að ráða niðurlögum hans. Lögfræðingur særðist á hand- legg. Eftirlegu- hermaður í framboði JAPANSKI hermaðurinn Shoichi Yakoi, sem neitaði að gefast upp fyrr en 27 árum eftir að heimsstyrjöldinni lauk, hefur ákveðið að bjóða sig fram í kosningunum til japanska þingsins. Yakoi fannst á eynni Guam 1972. Hann er nú kvæntur og býr I Nagoya, suðvestur af Tokyo, þar sem hann ver mikl- um tíma til þess að halda fyrir- lestra um reynslu sína á Guam. Þegar Yakoi kom til Japans, sagðist hann skammast sín fyr- ir að koma aftur lifandi, enda var japönskum hermönnum innrætt á sínum tíma, að þeir mættu ekki þola þá smán að láta óvininn taka sig til fanga. Hefðarfrúr á villigötum TVÆR konur — eiginkonur ferðamálaráðherra Egypta- lands og sendiherra Egypta- lands — voru handteknar, fyrir búðarþjófnað i London og sekt- aðar um 300 pund. Konurnar, sem eru 26 og 36 ára gamlar viðurkenndu að hafa hnuplað 44 hlutum, þ. á m. sex pörum af sundbuxum i hinni kunnu stór- verzlun Selfridge’s i Oxford Street. Þó svo að lögreglan gæfi út tilkynningu um að konurnar væru eiginkonur þessara hátt- settu egypzku embættismanna, vísaði egypzka sendiráðið þessu á bug, kvað konur þessar hafa' villt á sér heimildir og væru þær Egyptum alls óviðkomandi. Pólitískar vœndiskonur VÆNDISKONUR á Italiu hafa ákveðið að stofna stjórnmálaflokk til þess að vinna að framgangi hags- munamála sinna. Hér undirritar Adrana Bonfanti forseti bandalags ítalskra vændiskvenna skilriki, sem breyta samtökunum i stjórnmálaflokk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.