Morgunblaðið - 30.06.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1974
27
Magnús Siggeir
Bjarnason - Kveðja
hvenær sem hann kom — það
varð ávallt hátíðardagur. Hátíð
jólanna gekk í garð með honum,
þegar hann kom gangandi frá
Sandgerði til að verða okkur sam-
ferða til Utskálakirkju til aftan-
söngs. Heima á Hafurbjarnarstöð-
um beið logandi ljós við glugga.
Jólatréð vafið lynggreinum með
litlum marglitum kertum. Og all-
ar fallegu jólagjafirnar hans
frænda okkar til okkar systkin-
anna.
Þær tilfinningar og hátíðleiki
blandaður tilhlökkun lifa ávallt f
minningunni og munu aldrei
gleymast.
Fyrir réttum 35 árum áttum við
sfðast samleið að Utskálakirkju,
er hann sem svaramaður minn
leiddi mig upp að altarinu á brúð-
kaupsdaginn minn.
Mér, manni mínum og börnum
var hann ávallt sem föðurlegur,
elskulegur vinur og frændi alla
tfð, og munu börnin mín minnast
margra yndislegra stunda með
honum á heimili hans, og okkar
og blessa minningu hans.
Við kveðjum okkar elskulega
frænda, þökkum honum
ógleymanlegar samverustundir
og biðjum guðs blessunar handan
við gröf og dauða.
Friður veri með sál hans og
guðs blessun.
Þakkir eru hér einnig færðar
stjórn og starfsfólki Hrafnistu,
þar sem hann dvaldi sl. 7—8 ár,
fyrir frábæra umönnun, sérstak-
lega þegar mest á reyndi nú síð-
astliðið ár.
Ingibjörg Vilhjálmsdóttir.
Ekki geta aflir fagnað því
láni að hafa átt raunverulegan
frænda — frænda, sem skipar í
huga manns sama sess og afi og
amma — hinn eina og sanna
Fæddur 25. júnf 1959
Dáinn 22. júnf 1974
Þegar hringt var til mín sfðast-
liðið laugardagskvöld og mér sagt,
að hann Finni litli, þessi geð-
þekki, góði og fallegi drengur,
væri dáinn, varð mér á að hugsa,
hver er tilgangurinn, af hverju
einmitt hann, þessi ljúfi drengur,
sem öllum þótti vænt um, eldri
sonur kornungra foreldra? Já, af
hverju hann, hann var að svo
mörgu leyti óvanalega góður
unglingur.
Það þurfti ekki að segja honum
Finna að fara og heimsækja hana
langömmu sína á Elliheimilið
Grund, þar sem hún dvaldi yfir
hundrað ára gömul. Hann fór f
heimsókn til hennar oft á tfðum.
Hann vissi, að það gladdi hana og
frænda. Slíkan frænda áttum við
systkinin á meðan hann var á
meðal okkar.
Hann var okkar „jólasveinn“ á
hverjum jólum. Jólin gengu í garð
um leið og við stigum inn í litlu
snotru fbúðina hans, þar sem
snyrtimennskan réð ríkjum, svo
að af hverjum hlut lýsti. Jafnvel
bréfpokar voru pressaðir og vand-
lega samanvafðir, umbundnir
teygju. Hann tók á móti okkur
brosandi, leiddi okkur inn f stof-
una sína, sem hann þegar hafði
prýtt með jólaljósum, og þau log-
uðu svo glatt.
Hann fór fram í skáp, sótti lím-
onaði og skál fulla af konfekti,
sem e.t.v. hafði ekki verið snert
síðan við vorum hjá honum sfðast.
Pabbi fékk stóran jólavindil og
kannski kveikti frændi sér líka f
vindli. Það voru jólin hjá honum.
Þegar við kvöddum fengum við
pakka, sem alltaf var eins f laginu
— ferkantaður pakki — og við
vissum líka, að f honum var nokk-
uð, sem öllum börnum er kær-
komið. Við hlökkuðum mikið til
að opna þennan pakka, sem
venjulega var skókassi fullur af
sælgæti, en efst náttföt, sem hann
sjálfur hafði saumað — jólanátt-
fötin. Þá var gaman að vera lftill.
Og þegar hann kom til okkar
var ,jólasveinninn“ í heimsókn,
jafnvel þótt annars væru engin
jól. Andlitið á honum ljómaði lfka
alltaf og kátfna rfkti, hvar sem
hann var.
Þetta er sú mynd, sem við
geymum í huga okkar, þegar við
nú kveðjum frænda og þökkum
honum af heilum hug fyrir allar
þær ánægjustundir, sem hann
veitti okkur.
Guð blessi minninguna um
hann.
Systkinin, Barmahlfð 26.
ekkert var honum sjálfsagðari
ánægja.
Mundu margir drengir á hans
aldri vera alltaf reiðubúnir að
gæta lítils frænda síns, baða
hann, gefa honum að borða og
sofa hjá honum? Enda var það
áreiðanlega það bezta,- sem
þessum litla frænda hans fannst
hann geta gert fyrir mig, er hann
sagði: Amma, þú mátt sofa í
Finna rúmi.
Það er bezta ósk mín til handa
dóttursyni mínum, frænda Finna
og uppáhaldi, Jörundi Áka, að
hann megi lfkjast honum f flestu.
Beri hann til þess gæf u þá veit eg,
að honum verður vel borgið á
lífsleiðinni.
Foreldrum Finna, einkabróður
og öðrum ástvinum bið ég guðs-
blessunar.
Fæddur 25. júnf 1893
Dáinn 30. maf 1974
Hinn 30. maí síðastliðinn and-
aðist afi okkar, Magnús Siggeir
Bjarnason, að Elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund. Hann var fædd-
ur 25. júnf 1893 á Eyrarbakka.
Foreldrar hans voru Ingibjörg Er-
lendsdóttir og Bjarni Magnússon.
Hann ólst upp hjá móðurforeldr-
um sínum, Helgu Gísladóttur og
Erlendi Jónssyni í Smiðshúsum
og naut þar góðrar umhyggju í
uppvexti unz afi hans andaðist.
Tók hann þá við forsjá heimilis-
ins ungur að árum, fór snemma til
sjós og reri á opnum bátum eins
og tíðkaðist á þeim árum.
Afi og amma giftust árið 1920
og bjuggu f Smiðshúsum til ársins
1925 að þau fluttust til Reykja-
víkur vegna slæmrar lífsafkomu á
Bakkanum. Fluttist Helga amma
hans afa með þeim og var hún á
heimili þeirra þar til hún and-
aðist árið 1930.
Fyrstu árin eftir komuna
hingað suður stundaði hann sjó-
mennsku á togurum. Þá fékk
hann vinnu hjá Reykjavfkur-
borg og vann þar ýmis störf
við gatnagerð o.fl. Hann var
mjög áhugasamur og skylduræk-
inn við þau störf, sem
hann tók sér fyrir hendur.
Má sjá það af því, að hann varð
fljótlega verkstjóri hjá bænum og
var vel liðinn meðal starfsfélaga
sinna.
Árið 1956 kenndi afi þess sjúk-
dóms, sem varð hans banamein. A
þessum árum gekkst hann undir
margar skurðaðgerðir og fékk
Reynum svo að finna huggun í
orðum þjóðskáldsins, sem svo
kvað:
„Vort lff sem svo stutt
og stopult er.
Það stefnir á æðri leiðir.“
Marfa Pétursdóttir.
sæmilegan bata í fyrstu, en sjúk-
dómurinn tók sig alltaf upp að
nýju. Alltaf bar afi sig vel og var
hress og kátur, þegar við komum í
heimsókn til þeirra ömmu og
aldrei sáum við þess merki, að
hann væri svo sjúkur sem hann
var fyrr en undir það sfðasta.
Sfðastliðin 5 ár hafa þau afi og
amma dvalið á Elliheimilinu
Grund og notið frábærrar um-
hyggju alls hjúkrunarfólks.
Amma og afi eignuðust 4 börn,
Einar Inga, Erlend, Sigrfði og
Guðborgu, eru barnabörnin orðin
14 og eitt barnabarnabarn, sem
ber nafn Iangafa sfns, Siggeirs.
Við afabörnin eigum góðar
minningar um afa frá æsku-
árunum. Við áttum því láni að
fagna, að foreldrar okkarbjuggu í
sama húsi og afi og amma um
nokkurt skeið á meðan við elztu
börnin uxum úr grasi.
Oft fór afi með okkur í göngu-
ferðir og meðal annars leiðbeindi
hann okkur á skautum á Tjörn-
inni og hafði sjálfur mikla
ánægju af því.
Nú þegar Ieiðir skiljast viljum
við þakka afa allar þær ánægju-
stundir, sem við höfum átt með
honum.
Við biðjum honum Guðsbless-
unar.
Barnabörn.
5VAR MITT o
EFTIR BILLY GRAHAM
Mér var falið að hafa umsjón með eignum manns nokkurs.
Dag einn var ég að kanna eigur hans og fann þá álitlega
fjárfúigu, sem enginn annar vissi um. Haldið þér, að það væri
rangt af mér að eigna mér þessa peninga, eða ætti ég að skila
þeim aftur til mannsins?
Þér hafið tækifæri til að hagnast á þessu, þar sem
þér eruð opinber umsjónarmaður. En þetta væri ekki
heiðarlegt. Þér getið sjálfsagt eignað yrður þetta fé,
þar sem þér funduð það. En þér munduð alla ævina
vera yður þess meðvitandi, að þér öfluðuð yður þess
með óheiðarleika. Þér yrðuð þjófur. Gjaldið, sem þér
greidduð með órólegri samvizku, yrði miklu meira en
lítilfjörlegur ágóðinn. Þetta er það, sem menn verða
að gera, þegar svona stendur á: Þeir verða að vega og
meta útgjöld og ágóða. Svo segir í Orðskviðunum:
„Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður; vin-
sæld er betri en silfur og gull.“ (22,1). í hnignandi
samfélagi verðum við að hverfa aftur til þeirrar
trúar, að margt sé meira virði en peningar. Jesús
orðaði þetta betur en nokkur annar. Hann sagði, aö
líf mannsins væri ekki tryggt með eigum hans (Lúk-
as 12,15). Þetta eru orð að sönnu. Hér er áherzlan á
orðinu eigum. Jesús átti ekki miklar eignir. En hann
lagði meira til hamingju heimsins en nokkur önnur
persóna, sem hefur lifað á þessari jörð. Eins verður
um okkur, ef við neitum að láta stjórnast af gróða-
hyggju. Þá gætum við ef til vill lagt eitthvað mikið til
lífsins og einnig lifað með hreina samvizku.
Friðfinnur Sig-
urðsson — Kveðja
Sýnishorn af kjörseðli við Alþingiskosningar í Reykjavík 30. júní 1974
A Uflti Alþýðuflokksins B listi Framsóknarflokksins xD listi Sjálfstæðisflokksins F Usti Samtaka frjálslyndra og vinstri manna G llsti Alþýðubandalagsins K listi Kommúnistasamtakanna marxistanna - leninistanna N listá Lýðræðisflokksins R llsti Fylkingarinnar Baráttusamtaka sósialista
1. Gylfl Þ. Gialason 1. Þórarinn Þórarinsson 1. Geii Hallgrímsson 1. Magnús Torfi Olafsson 1. Magnús KJartansson 1. Gunnar Andrésson 1. Jörgen Ingi H&nsen 1. Ragnar StefAnsson
2. Eggert G. Þorstelnason 2. Einar Ágústsson 2. Gunnar Thoroddsen 2. Kristján Thorlacius 2. Eðvarð Slgurðsson 2. Sigurður Jón ólafsson 2. Etnar G. Harðarson 2. Haraldur S. Blöndal
3. Björn Jónsson 3. Sverrlr Bergmann 3. Ragnhildur Helgadóttir 3. Baldur Oskarsson 3. Svava Jakobsdóllir 3. Ari Guðmundsson 3. Blraa ÞórðardótUr
4. Eyjóifur Slgurösson 4. Kristján Frlðriksson 4. Jóhann Hafstein 4. Kristbjörn Arnason 4. Vilborg Harðardóttir 4. Alda Björk Marinósdóttir 4. Rún&r Sveinbjörnsson
5. Helga Elnarsdóttir 5. HjAlmar W. Hannesson 5. Pétur Sigurðsson 5. Rannveig Jónsdóttir 5. Sigurður Magnússon 5. Kristján Guðlaugsson 5. Sveinn R. Hauksson
6. Slgurður Jónsson 6. Jónas R. Jónsson 6. Ellert B. Schram 6. Guðmundur Bergsson 6. Þórunn Klemensdóttir Thors 6. Jón Atli Játvarðsson 6. NjAll Gunn&rsson
7. Helgi Skúli KJart&nsson 7. Guðný Laxdal 7. Albert Guðmundsson 7. Njörður P. Njarðvtk 7. Sigurður Tómasson 7. Astvaldur Astvaldsson 7. ólafur Gislason
8. Nanna Jónasdóttir 8. Ásgelr Eyjólfsson 8. Guðmundur H. Garðarsson 8. Þorbjörn Guðmundsson 8. Jón Timóteusson 8 Halldóra Gisladóttir 8. D&nlel Engllbertsson
9. BJÖrn Vllmundarson 9. Kristin Karlsdóttlr 9. Geirþrúður H. Bernhöft 9. Jón Sigurðsson 9. Reynir lngibjartsson 9. Gústaf Skúlason 9. Ragnar Ragn&rsson
10. Valborg Böðvarsdóttlr 10. HJálmar Vilhjálmsson 10. Gunnar J. Friðriksson 10. Gyðu Sigvaldadóttir 10. Stella Stefánsdóttir 10. Konráð Breiðfjörð Pálmason 10. Þröstur Har&ldssson
11. Jens Sumarliðason 11. Hanna Jónsdóttir 11. Kristján J. Gunnarsson 11. Sigvaldi Hjálmarsson 11. liagnar Geirdal Ingólfsson 11. Hjálmtýr Heiðdal 11. Ari T. Guðmundsson
12. Emilla Samúelsdótttr 12. Gisll Guðinundsson 12. Aslaug Ragnars 12. Baldur Krtstjánsson 12. Ingólfur Ingólfsson 12. Ragnar Lárusson 12. MAr Guðmundsson
13. Jón Agúst.sson 13. Böðvar Steinþórsson 13. Gunnar Snorrason 13. Pétur Krlstinsson 13. Elisabet Gunnarsdóltir 13. Ingibjörg Emarsdóttir 13. Benedlkt Þ. Valsson
14. Ágúst Guðmundsson 14. Fríða Björnsdóttir 14. Þórir Einarsson 14. Slgurður Guðmundsson 14. Gunnar Karlsson 14. Jón Carlsson 14. Berglind Gunn&rsdóttlr
15. Hörður óskarason 15. Ingþór Jónsson 15. Halldór Kristinsson 15. Asa Kristin Jóhannsdóttir 15. Guðrún Hallgrímsdöttir 15. Mugnús Eiriksson 15. Einar ólafason
16. Erla Valdimarsdóttir 16. Jónas Guðmundsson 16. Karl Þórðarson 16. Höskuldur Egilsson 16. Rúnar Backmann 16. Guðrún S. Guðlaugsdóttir 16. öm ól&fsson
17. Eggert Knstinsson 17. Jón Snæbjömsson 17. Bergljót Halldórsdóttir 17. Þorstelnn Henrýsson 17. Ragna Olafsdóttir 17. Sigurður Ingi Andrésson 17. Elrlkur Brynjólfsson
18. Marlas Svelnsson 18. Friðgeir Sörlason 18. Gunnar S. BJörnsson 18. Aðalsteinn Eiriksson 18. Sigurður Rúnar Jónsson 18. Þórarinn ölafsson 18. Gylfi MAr Guðjónsson
19. KArl Ingvarsson 19. PAll A. PAlsson 19. Sigurður Þ. Árnason 19. Glsll Helgason 19. HUdigunnur ölafsdóttir 19. Ölöf Baldursdóttir 19. Pétur Tyrfingsson
20. BJarni VllhJAlmsson 20. Pétur Sturluson 20. Sigurður Angantýsson 20. Gunnar Gunnarsson 20. Heigi Arnlaugsson 20. Skúli Waldorff 20. Magnús Einar Slgurðsson
21. Sigurður E. Guðmundsson 21. Elnar Bimir 21. Ragnheiður Guðmundsdóttir 21. Hafdls Hunnesdóttlr 21. Sigurjón Rist 21. Gestur Asólfsson 21. Vílborg DagbjartsdótUr
22. Slgfús BJamason 22. Jón Helgason 22. Jónas Jónsson 22. Bjöm Teitsson 22. Guðrún Asmundsdóttir 22. Guðmundur Magnússon 22. Jón Stelnsson
23. Jónina M. Guðjónsdóttir 23. Kristlnn StefAnsson 23. Blrglr Kjaran 23. Alfreð Gtslason 23. Björn Bjarnason 23. Eirikur Brynjólfsson 23. Jón ölafsson
24. StefAn Jóh. StefAnsson 24. Sólvelg Eyjólfsdóttlr 24. Auður Auðuns 24. Margrét Auðunsdóttlr 24. Einar Olgelrsson 24. Björn Grímsson 24. Margrét OttósdótUr
Þannig lítur kjörseðillinn út, þegar D-listinn — listi Sjálfstaeðisflokksins — hefur verið kosinn með því að krossa fyrir framan D.