Morgunblaðið - 29.10.1974, Side 1
36 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI
212. tbl. 61. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 1974
PrentsmiSja Morgunblaðsins.
11 ára sleppt
úr gíslingu
Haag, 28. okt. Reuter. AP.
VOPNUÐU fangarnir fjórir, sem
setið er um f fangelsinu Schev-
eningen í Haag, slepptu í kvöld
enn öðrum gísl — 11 ára dreng —
og hollenzka stjórnin taldi, að
dregið hefði úr spennunni f við-
ræðunum við fangana um að þeir
slepptu hinum gíslunum 16.
Aður hafði einn fanganna,
palestinski flugvélarræninginn
Adnan Ahmed Nuri, hótað að
myrða nokkra af gíslunum ef
hann fengi ekki að tala við félaga
sinn í sjúkrahúsi fangelsisins.
Hollenzkir embættismenn, sem
sögðust strax hafa gert sér grein
fyrir því, að Nuri væri full alvara,
komu honum í talstöðvarsamband
við félaga sinn, en hann sagðist
ekki vilja fara úr fangelsinu.
Þessi félagi Nuri, Sami Hoessin
Tanima. tók bátt með honum í
ráni brezkrar þotu á leið frá Beir-
út til London í júnf og þeir voru
báðir dæmdir í fimm ára fangelsi.
Gfslunum hefur ekki verið hót-
að dauða fyrr síðan Nuri og þrír
aðrir vopnaðir fangar lögðu undir
sig kapelluna í Scheveningen-
fangelsi í einu úthverfa Haag við
messu á laugardagskvöld. Upp-
haf lega voru gíslarnir 22.
Ástandið versnaði til muna síð-
degis í dag þegar Nuri krafðist
þess að ræða einslega við Tanima
á gangi, sem liggur til kapell-
unnar. Tanima hefur verið í
sjúkrahúsi fangelsisins þar sem
Framhald ð bls. 35
Sprenging
í bifreið
ráðherra
Birmingham, 28. okt.
Reuter.
SPRENGJA sprakk f bifreið
Denis Howell fþróttaráð-
herra í kvöld þegar kona
hans ók bifreiðinni frá
heimili þeirra með son
þeirra.
Kona Howells og sonur
þeirra David, 10 ára, eru
dösuð en ómeidd eftir
sprenginguna. Rúður brotn-
uðu f nálægum húsum við
sprenginguna.
Bflsþrengjur eru algengt
vopn Irska lýðveldishersins
(IRA).
GEORGS Papadopoulosar,
fyrrverandi Ieiðtoga grfsku
herforingjastjórnarinnar, er
stranglega gætt á eynni Kea.
Hér er hann umkringdur
lögreglumönnum er hann
kemur til eina hótelsins á
eynni. Með honum er fyrr-
verandi yfirmaður grfsku
leyniþjónustunnar, Mikael
Roufogalis.
Tveir ósigrar SPD
áf all fyrir Schmidt
Bonn, 28. október. AP. Reuter.
HELMUT Schmidt kanslari kom
til Moskvu í dag til viðræðna við
sovézka ráðamenn, aðallega um
efnahagssamvinnu, samtfmis þvf
að flokkur hans, SPD, er f sárum
eftir ósigra f mikilvæaum fvlkis-
Samkomulag
við Hussein
Rabat, 28. október. Reuter. AP.
HUSSEIN Jórdanfukonungur og
foringjar Frelsishreyfingar
Palestínu (PLO) hafa náð mála-
miðlunarsamkomulagi um hver
sé fulltrúi palestfnsku þjóðarinn-
ar samkvæmt áreiðanlegum
heimildum á ráðstefnu æðstu
manna Arabalandanna f Rabat f
dag.
Hussein konungur hefur fallizt
á að viðkurkenna PLO sem full-
gildan fulltrúa Palestínuþjóðar-
innar og að sætta sig i grundvall-
aratriðum við yfirráð Palestínu-
manna á vesturbakka Jórdanár-
innar þegar hernámi ísraels-
manna lýkur, samkvæmt
heimildunum.
I staðinn fellst PLO á að taka
þátt i næsta stigi friðunarvið-
ræðnanna i Genf sem aðili að
sendinefnd Jórdaníu.
Samkvæmt heimildunum eru
þetta aðalatriði samkomulags,
sem hefur tekizt eftir gífurlega
strangar sáttatilraunir nefndar
fimm Arabaríkja — Marokkó, Al-
sírs, Egyptalands, Saudi-Arabíu
og Sýrlands.
Hingað til hefur Hussein kraf-
izt þess að fá fullt umboð frá
leiðtogum Araba til að taka aftur
vesturbakkann en lofað að gefa
Palestínumönnum færi á að
ákveða framtíð sína við þjóðarat-
kvæði.
Konungurinn hefur raunveru-
lega bjargað Rabat-fundinum
með samkomulaginu að sögn
fréttarritara þar sem algert þrá-
tefli hafði skapazt þar vegna deil-
unnar. Talsmaður PLO sagði, að
hreyfingin hefði unnið „150%
sigur“.
Kveðið er á um samkomulagið í
ályktun, sem utanríkisráðherrar
sömdu í síðustu viku og samþykkt
var á fundi æðstu manna Araba i
dag, að því er heimildirnar
herma: Þar er ekki tiltekið hvern-
ig semja skuli um brottflutning
Israelsmanna. Hussein hefur
hingað til sagt, að hann einn geti
samið um þennan brottflutning
þar sem ísraelsmenn neiti að
semja við PLO.
kosningum f Hessen og Bæjara-
landi.
Hann neitaði þvf við komuna til
Moskvu, að ósigrarnir mundu
hafa áhrif á viðræðurnar. Hann
bar jafnframt til baka þá staðhæf-
ingu Franz-Josef Strauss, eins af
leiðtogum kristilegra demókrata,
að sú stefna stjórnarinnar að
bæta sambúðina við kommúnista-
rfki væri ein af ástæðunum til
ósigra sósfaldemókrata en úrslit-
in eru almennt túlkuð sem sveifla
til hægri.
Alit Schmidts hefur beðið al-
varlegan hnekki vegna úrslit-
anna. Þau eru jafnframt fyrir-
boði um að stjórn hans eigi erfiða
baráttu fyrir höndum næstu tvö
árin.
Kristilegir demókratar (CDU)
sigruðu í kosningunum á sama
tima og óttazt er, að alvarlegt at-
vinnuleysi sé framundan þrátt
fyrir þá yfirlýsingu Schmidts, að í
engu öðru iðnvæddu landi sé eins
lítið atvinnuleysi og eins lftil
verðbólga og í Vestur-Þýzkalandi.
Kosningarnar í Hessen og
Bæjaralandi voru fyrsti próf-
steinninn á vinsældir Schmidts
sfðan hann tók við kanslaraemb-
ættinu af Willy Brandt.
1 Hessen, sem hefur frá gamalli
tfð verið öruggt vigi sósíaldemó-
krata, fengu kristilegir demókrat-
ar meirihluta atkvæða i fyrsta
skipti frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar. Sósfaldemókrat-
ar halda þó meirihluta sinum á
fylkisþinginu vegna bandalags
síns við flokk frjálsra demókrata,
FDP.
í Bæjaralandi vann Kristilega
sósíalsambandið CSU-bræðra-
flokkur kristilegra demókrata —
jafnvel glæsilegri sigur þar sem
flokknum tókst að halda algerum
meirihluta sínum á fylkisþinginu
og fékk mesta meirihluta, sem
hann hefur fengið f 25 ár.
Lunu-23 skotið
Moskvu, 28. október.
Reuter.
RUSSAR skutu f dag á loft
tunglfarinu Luna-23, sem á að
halda áfram vfsindalegri
könnun á tunglinu, að sögn
Tass.
Sfðasta tunglfar Rússa,
Luna-22, fór á braut umhverfis
tunglið 3. júnf, fimm dögum
eftir að þvf var skotið á loft, og
tók myndir af yfirborðinu f
minnst 25 km fjarlægð.
CDU jók fylgi sitt f Hessen um
rúmlega sjö af hundraði og fékk
47,3% atkvæða, en SPD fékk
43,2% og FDP 7,4%. Flokkur
öfgamanna til hægri, NPD, fékk
1 % og kommúnistar 0,9%.
CDU bætti við sig sjö þing-
sætum í fylkisþinginu í Hessen og
er nú með 53 þingsæti af 110. SPD
tapaði fjórum þingsætum og er
með 49 og FDP tapaði þremur
sætum og er með 8.
1 Bæjaralandi hlaut CSU 62,1%
atkvæða en SPD 30,2% og FDP
5,2%. NPD hlaut 1,1%. CSU hlaut
132 þingsæti og bætti við sig átta.
SPD hlaut 64 þingsæti, tapaði sex
og FDP 8 þingsæti, tapaði tveim-
ur.
„Ég held, að landsmálin hafi
Framhald á bls. 35
Moro líklega
fyrir valinu
Róm, 28. okt. Reuter. AP.
KRISTILEGI demókrataflokkur
inn bað Aldo Moro f dag að reyna
myndun nýrrar rfkisstjórnar mið-
og vinstriflokka.
Giovanni Leone forseti hyggst
ræða við fulltrúa allra flokka
áður en hann ákveður hverjum
hann felur stjórnarmyndunina,
en Ifklegt er talið, að hann sam-
þykkí Moro. I dag ræddi Leone
við fulltrúa kommúnista um
stjórnarkreppuna, sem hefur
staðið f 25 daga.
Ef Moro verður fyrir valinu fær
hann litið svigrúm þar sem til-
raun Amintore Fanfanis til að
mynda samsteypustjórn kristi-
legra demókrata, sósíalista, sósial-
demókrata og lýðveldissinna —
svokallaða mið-vinstri-stjórn —
fór út um þúfur á föstudaginn
eftir 10 daga viðræður.
Flestar ríkisstjórnir ítalfu
undanfarin 10 ár hafa verið mið-
vinstri-stjórnir og kristilegir
demókratar hafa tjáð sig fylgj-
Framhald á bls. 35